Skessuhorn - 09.06.2021, Blaðsíða 12
miðVikUdAgUR 9. júNÍ 202112
Atvinnuveganefnd Alþingis hefur að
undanförnu fjallað um ónýtta mögu-
leika til endurnýtingar orku sem til
fellur t.d. við stóriðju hér á landi. Að
sögn Haraldar Benediktssonar sem
sæti á í nefndinni samþykkti nefnd-
in fyrr í vikunni fyrir sitt leiti breyt-
ingar á raforkulögum sem heimila að
nýta megi og selja glatvarma. Fyrri
lög gera ekki með beinum hætti ráð
fyrir endurnýtingu á orku og því er
með þessari breytingu opnað á slíka
möguleika. meirihluti nefndarinnar
telur mikilvægt að til staðar séu laga-
ákvæði sem heimili stórnotendum,
að tilteknum skilyrðum uppfylltum,
að nýta og selja þá orku sem leys-
ist úr læðingi frá eigin framleiðslu-
ferlum og annars færi til spillis, svo-
kallaður glatvarmi. meðal þess sem
horft er til er framleiðsla rafeldsneyt-
is, en það hefur umfram aðra orku-
gjafa þann kost að hægt er að nýta
núverandi innviði til geymslu og
síðar sölu. Alla aðra raforku þarf að
nota í rauntíma þegar hún er fram-
leidd. Skessuhorn ræddi við Harald
og Ólaf Adolfsson formann stjórnar
Þróunarfélags grundartanga um
þau tækifæri sem nú er verið að opna
fyrir.
Glatvarmi byggðamál
Haraldur Benediktsson segir að eitt
af markmiðum orkustefnunnar sé
að finna lausnir sem vinni að auk-
inni sjálfbærni við nýtingu orku-
auðlinda og fela í sér hámarksnýt-
ingu orkunnar. „Atvinnuveganefnd
Alþingis ræddi sérstaklega hvaða
leiðir eru færar til að stuðla að auk-
inni endurnýtingu orku, m.a. nýt-
ingu glatvarma, þ.e. orku sem leys-
ist úr læðingi í formi varma við iðn-
aðarstarfsemi. Á fundum nefndar-
innar kom fram að glatvarmi er nær
ónýtt orkuauðlind hér á landi en
endurnýting orku snýr að ábyrgri
nýtingu, lágmörkun sóunar og há-
mörkun verðmætis sameiginlegra
auðlinda. Í nefndaráliti meirihluta
atvinnuveganefndar er einmitt tek-
ið dæmi um tækifæri til orkuendur-
nýtingar orku hjá kísilveri Elkem Ís-
land á grundartanga. Þar myndast
um 110 megavött af varmaafli sem
ekki er nýtt í dag. með orkuendur-
nýtingu væri hægt að setja þar upp
25–30 mW túrbínu og/eða allt að
70 mW af varmaafli fyrir hitaveitu
eða aðra varmakrefjandi starfsemi
t.d. á sviði líftækniiðnaðar. Þá kom
fram á nefndarfundum okkar að sem
dæmi væri hægt að nýta glatvarma
frá Fjarðaáli til húshitunar á Reyð-
arfirði í stað beinnar rafhitunar sem
er dýrasti kosturinn þegar kemur að
húshitun. Að okkar mati er nýting
glatvarma því einnig mikilvæg út frá
byggðasjónarmiði,“ segir Haraldur
og bætir því við að í sinni einföld-
ustu mynd sé með þessu móti ver-
ið að nýta glatvarma til húshitunar.
margir stórnotendur raforku hér á
landi mynda í starfsemi sinni glat-
varma sem hægt væri að nýta til ann-
arrar starfsemi, en auk álvera eru það
járnblendiverksmiðjur, kísilver og ál-
þynnuverksmiðjur.
Framtíðin gæti
verið rafeldsneyti
Á vettvangi Þróunarfélags grund-
artanga hefur mikið verið rætt og
ritað um framleiðslu á rafeldsneyti.
Horft er til rafeldsneytis sem mikil-
vægs framtíðar orkugjafa til að knýja
samgöngutæki þar sem ekki verð-
ur hægt að nota beint rafmagn né
hreint vetni, til að ná fram kolefnis-
hlutleysi Íslands á næstu áratugum.
Árið 2019 var 96% af olíusölu á Ís-
landi notað til samgangna á landi, sjó
og í lofti. Ólafur Adolfsson formað-
ur stjórnar Þróunarfélags grundar-
tanga bindur miklar vonir við fram-
leiðslu rafeldsneytis fyrir landsmenn.
Hann segir í samtali við Skessuhorn
að þar sem 80% af frumorkunotk-
un Íslands sé nú þegar frá endur-
nýjanlegum orkugjöfum sé tækifæri
fyrir þjóðina að verða sjálfbær hvað
orku snertir. „Þannig getur Ísland
orðið 100% hreinorkuland í fram-
tíðinni. Það er raunhæfur mögu-
leiki samhliða því að byggja upp nýj-
an orkuiðnað til samræmis við þann
sem olíuþjóðir hafa haft. með því
að framleiða rafeldsneyti er mögu-
legt að fullnýta raforkukerfi lands-
ins og búa til orkugjafa sem auðvelt
er að geyma og dreifa. Orkugjafinn
er þannig framleiddur með rafmagni
og vatni (rafgreining) og í sumum
tilvikum jafnframt með koltvísýr-
ingi, sem fangaður er úr andrúms-
loftinu. Sama gildir um köfnunarefni
við framleiðslu rafammoníaks.“
Ólafur segir að áætlað sé að eftir-
spurn eftir rafeldsneyti eigi eftir að
aukast á næstu árum og áratugum,
samhliða vitundarvakningu stjórn-
valda, fyrirtækja og almennings um
hvaða afleiðingar loftslagsbreytin-
gar hafa á umhverfið. „með aukinni
eftirspurn og aukningu í framleiðslu
geri ég ráð fyrir að verð á rafeldsney-
ti muni lækka og verði það samkep-
pnishæft við lífeldsneyti og jarðef-
naeldsneyti í framtíðinni. Þannig
mun verða búið til kolefnishlutlaust
eldsneyti sem verður lausn á loft-
slagsvanda heimsins,“ segir Ólafur
Adolfsson.
mm
Blaðamaður Skessuhorns kíkti í
lok síðustu viku í heimsókn á bæ-
inn Ölkeldu ii í Staðarsveit. Þar
býr bóndinn kristján Þórðarson
ásamt Astrid konu sinni og reka
þau þar kúabú ásamt jóni Svavari
bróður hans og syni hans Þórði og
fjölskyldum þeirra. Þau hafa síð-
ustu tvo áratugi þurft að glíma við
svokallaðan símakulda á bæjunum
þremur. Nánast ekkert gSm sam-
band er á svæðinu og eru alls fimm
bæir þarna í kring sem eiga við
þennan vanda að etja. Þetta eru auk
Ölkeldu; Furubrekka, Foss, Álfta-
vatn og Lindarbrekka. Árið 2008
skipti kristján um allt gler í húsinu
á Ölkeldu með svokölluðu k-gleri
sem er flotgler og er mun betra að
gæðum en venjulegt gler. Svo gott
er það að eftir þetta versnaði gSm
sambandið enn meira á bænum og
var þó ekki gott fyrir. kristján seg-
ir þetta bagalegt ástand og að þetta
sé öryggismál: „Það eru tvö síma-
möstur hérna, annað er á gröf og
hitt er á Öxl. Tvö fjöll eru í beinni
línu milli þessara bæja sem blokka
líklegast símasambandið, Lágafells-
hyrnan fyrir austan og Þorgeirsfell
fyrir vestan. maður frá Neyðarlín-
unni kom hérna við um daginn og
náði engu sambandi og vildi bæta
við mastri á hólinn hjá okkur sem
er svo sem ágætis hugmynd.“
Heimasíminn datt
út í þrjár vikur
kristján segir þó að líklegast væri
best að setja mastur á vitann á
kirkjuhóli og er vongóður um það
eftir heimsókn starfsmanns Neyð-
arlínunnar. „Það myndi bæta úr
þessu vandamáli, ekki bara á þess-
um bæjum heldur í Staðarsveit-
inni allri því ekki er alls staðar gott
gSm samband hér í sveit þó hvergi
sé það eins slæmt og hér. Það þarf
einhvern punkt til að magna þetta
upp þó það séu blettir og blettir
sem detta inn að þá er það alls ekki
nóg. Það er einn staður í húsinu
sem eitthvað gSm samband næst
og það er í forstofunni. Ég skipti
um símafyrirtæki fyrir stuttu og
þegar það gerðist datt heimasíminn
út hjá mér í þrjár vikur. Það þýddi
að ég var nánast símasambandslaus
allan þennan tíma og það var ekki
góð tilfinning.“
Þá segir kristján einnig að það
færist sífellt í vöxt að göngugarpar
séu að príla um fjöllin fyrir ofan og
séu ekki í neinu gSm sambandi.
„Það virðist svo að símafyrirtækin
hafi ekki nokkurn áhuga að þjóna
þessum nokkrum vælandi íbúum
varðandi símamálin og að áherslan
verði að vera á öryggismálin til að
þoka þessum málum áfram.“ Hins
vegar segir kristján að það megi
alveg hæla ljósleiðaravæðingunni
sem hér hafi orðið: „Það eru allir
bæir hér í fullkomnu netsambandi
en því miður hefur það ekki áhrif á
blessað símasambandið.“
Róbótarnir þurfa
GSM samband
Ölkeldubændur eru nýlega búnir
að stækka við fjósið hjá sér. Þeir eru
með um 80 mjólkandi kýr og auk
þess töluvert nautaeldi. með við-
byggingunni stækkaði fjósið um
alls 400 fermetra og er allt húsið
nú um 1500 fermetrar. Næsta mál
hjá bændunum er að „róbótavæða,“
sem sagt að kaupa sér mjaltaþjóna
í fjósið hjá sér og það er fjárfesting
upp á tugi milljóna króna að sögn
kristjáns. „En þar kemur aftur
babb í bátinn því róbótarnir þurfa
gSm samband til að láta okkur vita
ef eitthvað er ekki í lagi hjá þeim
og því er nauðsynlegt að hafa þetta
samband til að þeir geti sent okk-
ur skilaboð. Það er því óljóst hvort
það sé gerlegt en leysist vonandi
þegar þar að kemur.“
Nánast ekkert gSm samband
er í fjósinu og getur blaðamað-
ur staðfest það. kristján er í sam-
starfi með bróður sínum og syni
hans en stundum komi það fyrir að
þeir séu að þvælast einir í fjósinu:
„Ef eitthvað kæmi fyrir þá væri lít-
ið sem við gætum gert því við gæt-
um ekki látið vita af okkur á þessu
dauða svæði sem fjósið er. Eins og
ég sagði að þá er þetta öryggismál
fyrir okkur bændurna hér í sveit-
inni og þolinmæði okkar er nán-
ast á þrotum. Þetta er eins og með
margt annað, maður venst þessu ef
hlutir eru í ólagi í einhvern tíma en
nú erum við komnir alveg að þol-
mörkum í þessu máli,“ sagði krist-
ján bóndi á Ölkeldu að lokum.
vaks
Símakuldi á Ölkeldu í Staðarsveit
Forsenda þess að hægt verði að kaupa mjaltaþjón á bæinn er að símasamband komist í lag
„Halló! Ertu þarna?“ Á þessum eina stað í húsinu í Ölkeldu II er hægt að ná GSM
sambandi.
Viðbygging við fjósið í Ölkeldu. Ef á að vera hægt að róbótavæða nýja fjósið er
GSM samband forsenda fyrir því
Glatvarmi virkjaður og framtíðin gæti falist í rafeldsneyti
Haraldur Benediktsson þingmaður og nefndarmaður í atvinnuveganefnd og Ólafur Adolfsson formaður stjórnar Þróunar-
félags Grundartanga.