Skessuhorn


Skessuhorn - 09.06.2021, Side 20

Skessuhorn - 09.06.2021, Side 20
miðVikUdAgUR 9. júNÍ 202120 Fjölskylduskemmtun var á hafnarsvæðinu á Akranesi á sjó- mannadaginn. dagskráin hófst með minningarstund í kirkju- garðinum að morgni og að aflokinni messu var lagður blóm- sveigur að styttunni á Akratorgi. Sjóbaðsfólk var með leið- sögn á Langasandi og var svo farið í guðlaugu að henni lok- inni. Á hafnarsvæðinu hófst dagskrá eftir hádegi með dorg- veiðikeppni, leiktæki voru fyrir börn og hægt að skoða lif- andi fiska, negla í spýtur og veiða plastkúlur úr körum. Árleg- ur kappróður var og ágæt stemning á bryggjunni þrátt fyrir skúraveður. Björgunarfélag Akraness var með ýmislegt til sýn- is, meðal annars tæki og búnað, sett var upp línuæfing og vett- vangsstjórnstöð. Auk dagskrár á hafnarsvæðinu var Byggða- safnið í görðum, Akranesviti og guðlaug opin og aðgang- ur ókeypis. mm/ Ljósm. ki Sjómannadagurinn á Akranesi Að aflokinni sjómannadagsmessu í Akraneskirkju var lagður blómsveigur að styttunni á Akratorgi. Þessi ungi maður veiddi stærsta fiskinn í dorgveiðikeppninni. Hildur Karen Aðalsteinsdóttir stýrir eflingarverkefni með ungu Skagafólki. Sigurvegarar í dorgveiðikeppninni. Lið Brekkubæjarskóla og Breiðarinnar að sigla í mark. Bæjarskrifstofan á Akranesi átti lið í kappróðrarkeppninni Sigurvegarar í kappróðrarkeppninni voru lið Crossfit Ægir. Lið Brekkubæjarskóla gerir klárt fyrir róðrakeppnina. Unga fólkið gat veitt plastkúlur úr körum. Lifandi fiskar í körum vöktu mikla athygli. Björgunarfélag Akraness var með mikinn mannskap og búnað á hafnarsvæðinu.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.