Skessuhorn


Skessuhorn - 09.06.2021, Síða 23

Skessuhorn - 09.06.2021, Síða 23
miðVikUdAgUR 9. júNÍ 2021 23 Veiði hófst í Norðurá í Borgarfirði síðastlið- inn föstudag. guðna Ágústssyni fyrrverandi þingmanni og ráðherra var boðið að egna flugu fyrir þann silfraða. Ekki leið löng stund þar til hann var búinn að setja í fisk og skömmu síð- ar var 14 punda hæng- ur kominn á land. Þetta var jafnframt fyrsti lax- inn sem guðni veiðir á flugu. „mér dettur helst í hug orðið kraftaverk, líkt og hjá jesús forð- um þegar hann gekk á vatninu. Tilfinning- in var í það minnsta góð,“ sagði guðni þeg- ar hann hampaði ný- gengnum laxinum fyrir ljósmyndara á árbakk- anum. Á myndinni er hann ásamt Þorsteini Stefánssyni leiðsögu- manni við Norðurá. mm/ Ljósm. María Gunnarsdóttir kastað til bata nefnist skemmtilegt endurhæfingarverkefni á vegum Brjóstaheilla - Samhjálpar kvenna og krabbameinsfélagsins. Um er að ræða veiðiferð þar sem konur hittast og fara saman að veiða og er veiði- ferðin hluti af endurhæfingarferli eftir meðferð við brjóstakrabba- meini. Ferðirnar hafa gefið afar góða raun og létt lundina svo eftir er tekið. komin er reynsla á að ferð- irnar hafa haft jákvæð áhrif á and- lega uppbyggingu eftir erfiða með- ferð. Verkefnið hófst árið 2010 og er hugmynd frá Bandaríkjunum, „Casting For Recovery“ og hugs- að sem endurhæfing fyrir konur sem lokið hafa meðferð við brjósta- krabbameini. Í rauninni skiptir ekki máli hversu langur tími er síð- an meðferðinni lauk. Tvær ferðir voru farnar nú fyrir skömmu, báðar í Langá á mýrum. Fyrra hollið var dagana 30. maí - 1. júní og svo 1.- 3. júní með þátttöku 12 kvenna. Þessi ævintýraferð var þátttakendum að kostnaðarlausu. Gerast einhverjir töfrar Blaðamaður Skessuhorns ræddi við Auði Elísabetu jóhannsdóttur, verkefnastjóra verkefnisins og ráð- gjafa hjá krabbameinsfélaginu um verkefnið. „Veiðiferðirnar hafa ver- ið ein á hverju ári en vegna Covid féll ferðin í fyrra niður. Við ákváð- um því að hafa ferðirnar tvær í ár. Í byrjun hverrar veiðiferðar fara kon- urnar í vöðlur, fá veiðikastkennslu og vaða síðan yfir ána og til baka. Þær halda þrjár, fjórar í hvor aðra og styðja þannig við hver aðra, það er eins og þær fari yfir einhvern hjalla. Þeim finnst þetta frábært og eru himinlifandi. margar af konunum hafa aldrei farið í veiði og eru því að stíga sín fyrstu skref. „Þetta er frábær æf- ing fyrir brjóstvöðvann og flestar eru með strengi eftir ferðirnar. Þá eru sumar konurnar að tala um sína reynslu og meðferð í fyrsta sinn og finna fyrir þessari samkennd sem ríkir þeirra á milli,“ segir Auður. „Það er svo dásamlegt að sjá hvað konurnar eru fljótar að tengjast og deila sínum persónulegu sögum sem næra þær bæði á líkama og sál. Það gerast einhverjir töfrar í þessum að- stæðum. Og þó umræðurnar snú- ist stundum um alvarleg málefni er hláturinn aldrei langt undan.” Eins og áður sagði eru það Brjósta- heill – Samhjálp kvenna, stuðnings- og baráttuhópur kvenna sem grein- ast með brjóstakrabbamein sem er aðal styrktaraðili verkefnisins ásamt krabbameinsfélaginu. Brjóstaheill leggur til tvo til þrjá starfsmenn og krabbameinsfélagið kostar síðan þátttöku Auðar Elísabetar. „Stuðn- ingur styrktaraðila skiptir höfuð- máli til að gera þetta skemmtilega endurhæfingarverkefni að veru- leika. Brjóstaheill hefur leitað til Velunnarasjóðs krabbameinsfélags- ins með styrk til að halda þetta flotta verkefni,“ segir Auður. Með bleikan veiðibúnað Veiðivöruframleiðandinn Sage er styrktaraðili verkefnisins í Banda- ríkjunum. „Verkefnið okkar hér á Íslandi er það eina á Norðurlönd- unum,“ segir Auður. „Við frétt- um af þessu verkefni í Bandaríkj- unum og hreinlega urðum að koma þessu verkefni á laggirnar hér í okk- ar fallega veiðiumhverfi og að eign- ast svona bleikar stangir. Fyrirtækið framleiðir sérstaklega búnað vegna þessa verkefnis. Það eru bleikar stangir, veiðihjól og girni og jafn- vel taskan undir búnaðinn er bleik. Leiðsögumenn sem við höfum haft hafa verið að missa sig yfir stöngun- um, verða hissa fyrst en síðan ótrú- lega ánægðir með þær.“ Þannig það er ekki ekki skrýtið að er bleikt þema út í eitt í þessum ferðum. maría í Veiðihorninu hefur ver- ið aðstandendum verkefnisins afar hjálpleg við að útvega Sage stang- irnar. „Í dag eigum við fjórar bleik- ar stangir og sex venjulegar stangir. Tvær þessara venjulegu eyðilögð- ust reyndar í síðustu veiðiferðun- um og því vantar okkur fleiri stang- ir. draumurinn er að eignast fleiri bleikar stangir. Það er hreinlega slegist um þær í ferðunum því þetta eru svo góðar stangir.“ Aðspurð um hvernig fólk getur snúið sér vilji það leggja verkefninu lið bendir Auður á guðrúnu kristínu Svavarsdóttur en hún er verkefnastýra verkefnisins fyrir hönd Brjóstaheil – Samhjálpar kvenna. frg/Ljósm. aðsendar. Við fórum í Fiskilækjarvatn fyrir skömmu og dóttirin landaði þrem- ur fiskum,“ sagði Reynir m Sig- mundsson er við spurðum frétta af silungsveiði á svæðinu. Eftir að hlýna tók í veðri hefur veiðin lagast mikið víða í vötnum landsins og fiskurinn farið að gefa sig meira. ,,Helga dís er fimm ára og land- aði hún þremur fiskum; tveimur urriðum og einni bleikju. Hún hef- ur töluverðan áhuga á veiði,“ sagði Reynir faðir hennar. Næst á dag- skrá hjá Reyni var opnun í Blöndu sem var síðastliðinn laugardag, þangað sem hann fór í hópi vaskra veiðimanna. gb Guðni fékk myndarlegan hæng í Norðurá Stórefnileg með veiðistöngina Helga Dís Reynis- dóttir 5 ára með flottan urriða. Ljósm. rms. Bleikar veiðistangir frá Sage. Kastað til bata með bleikum stöngum Kastað til bata hópurinn með bleiku stangirnar. Í byrjun veiðiferðarinnar veður hópurinn yfir ána og til baka. Kastað til bata hópurinn á bökkum Langár. Auður Elísabet úti í miðri á ásamt veiðikonu úr hópnum.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.