Kaupfélagsblaðið - 03.12.1980, Síða 8

Kaupfélagsblaðið - 03.12.1980, Síða 8
Þekkja menn kosti samvinnufélaganna? Við getum ekki lokað augunum fyrir því, að tím- arnir breytast og mennirnir með. Meðan þjóðin barðist tvísýnni baráttu fyrir frelsi sínu, vissu allir hvað frelsi og sjálfstæði var. Eftir að ísland varð fullvalda ríki, fór merking orðanna að skolasttil og menn fóru að nota þau um mörg og ólík hugtök. Verslunarfrelsið kostaði mikla og markvissa baráttu, sem nær öll þjóðin fylgdist með af opnum huga og með virkri þátttöku. Nú erverslunaránauð svo langt að baki í rás sögunnar, að baráttan fyrir afnámi hennar er flestum gleymd. Þáttur sam- vinnuhreyfingarinnar geymist heldur ekki í minni manna, nema á hana sé minnt. Nú ersamfélagið ofið miklu fleiri þáttumenáðurvar. Almenningurá því erfitt með að afla sér staðgóðrar þekkingar á afmörkuðum sviðum þess. Breyttir atvinnuhættir hafa í sumum tilvikum snúið athygli fólks frá kaupfélögunum. Gömlu kaupfélögin sem voru í senn framleiðenda- og neytendafélög, áttu stærri hlut í afkomu fólks, en þau félög sem síðar hafa orið nær eingöngu neytendafélög. Flestir eru sammála um að við búum við góðan hag og fólki líði hér betur en víðast hvar annars staðar í heiminum. En fáir hyggja að hvaða straumar báru okkur úr öldudal fátæktarinnar til velmegunar. Ég óttast að þáttur félagshyggju- fólksins og þá einkum sókn samvinnuhreyfingar- innartil betri lífshátta, sé aðfalla í gleymsku. Mark- viss og farsæl uppbygging samvinnufyrirtækja víðs vegar um landið, þykir ekki sérlega fréttnæm og fellur í skuggann hjá fjölmiðlum, þegar önnur rekstrarform skaþa sífellt nýjar fréttir af gjaldþrot- um, nafnaskiptum og sjóðþurrðum, svo nokkuð sé nefnt. Það er sagt að engar fréttirséu góðarfréttir. Þannig geta samvinnufélögin gleymst ef þau minna ekki á sig sjálf. Nú ersvo komið, að hægter að spinna upp sögu um vondan mann og segja að hann sé kaupfélagsstjóri. Svona eru kaupfélögin. Engu máli skiptir þótt söguþráðurinn brjóti alls staðar í bága við samþykktir og venjur samvinnu- hreyfingarinnar. Ég tel því, að fyrr á tímum hafi jafnvel einlægustu fylgismenn einkareksturs vitað meira um samvinnuhreyfinguna en almenntgerist í dag. S.K. Styrkir úr menningarsjóði SÍS Á síðasta aðalfundi Sambands íslenskra sam- vinnufélaga kom fram, að nýbúið er að ákveða nokkra styrki úr menningarsjóði þess, samtals að upphæð 7 millj. kr. Skógræktarfélagi íslands verða veittar 2 millj. kr. í tilefni af ári trésins, Ungmennafélagi íslands verða veittar 1.5 millj. kr. vegna ritunar á sögu fé- lagsins, Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra 1.5 millj. kr. vegna kostnaðar við nýbyggingu félags- ins við Háaleitisbraut í Reykjavík, Blindrafélagið hlýtur 1 millj. kr. sem viðurkenningarvott fyrir frá- bært starf um langt árabil, og 1 millj. kr. rennurtil tækjakaupa til hjálpar heyrnarskertum, en Stefán Skaftason yfirlæknir, verður til ráðuneytis um til hvaöa tækjakaupa upphæðinni verður varið. Jólatrésskemmtun fyrir börn í Stapa á þriðja i jólum ki. 3.

x

Kaupfélagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kaupfélagsblaðið
https://timarit.is/publication/1570

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.