Morgunblaðið - 18.01.2021, Side 12

Morgunblaðið - 18.01.2021, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2021 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Íslenskir stjórnendur eru yfirleitt vel með á nótunum um mikilvægi þess að sinna símenntun og þjálfun starfs- fólks. Á flestum vinnustöðum eru því námskeið haldin með reglulegu milli- bili til að skerpa á þekkingunni, þjálfa samskipta- hæfileikana eða einfaldlega styrkja tengslin og bæta starfs- andann. En hvað er til bragðs að taka þegar veirufar- aldur geisar, fjar- vinna er orðin normið og mun erfiðara en áður að stefna heilu deildunum eða vinnu- stöðunum á einn stað til að hlusta á fyrirlestur eða taka þátt í vinnustofu? Margrét Reynisdóttir, ráðgjafi og námskeiðshaldari hjá Gerum betur ehf., segir ljóst að þróun fjarnám- skeiða verði ein mikilvægasta áskor- un fyrirtækja á komandi árum. Reynslan af kórónuveirufaraldrinum hafi sýnt að þjálfun og símenntun með fjarfundakerfum hafi ýmsa kosti en líka ákveðna galla sem bæði leið- beinendur og þátttakendur þurfi að átta sig á. Til að mæta þessum nýja veruleika hefur Margrét samið handbókina Sprellifandi fjarkennsla þar sem þessi mál eru skoðuð frá ýmsum hlið- um og hagnýtum ráðum safnað sam- an. Bókina má nálgast ókeypis á vef- síðu Gerum betur (www.gerumbetur.is) en útgáfan er styrkt af Fræðslusjóði framhalds- fræðslunnar, Landsmennt, Ríkis- mennt, Sjómennt og Sveitamennt. Margrét segir að það eigi við um fjarnámskeið og fjarfundi að það geti m.a. verið kúnst að halda athygli allra þátttakenda. „Rétt eins og á nám- skeiðum sem fara fram augliti til aug- litis er lykilatriði að virkja fólk til þátttöku. Í Sprellifandi fjarkennslu eru settar fram hugmyndir um hvernig gera megi kennsluna sem að- gengilegasta og efnið áhugaverðara. Þar með eru þátttakendur virkjaðir með sama hætti og á hefðbundnum námskeiðum og þeim gefinn kostur á að vinna með efnið en ekki bara sitja, hlusta og sjá.“ Kúnst að halda athygli fólks Sem dæmi um ráðleggingar úr bókinni má nefna mikilvægi þess að leiðbeinandi á fjarnámskeiði leggi sig fram við að ná augnsambandi í gegnum skjáinn og geri kennslu- stundina þannig persónulegri. Annar þáttur felst í mikilvægi þess að verk- efni séu þáttur í fjarnámskeiðinu og þátttakendur þannig virkjaðir, hver og einn. „Helstu fjarfundaforrit bjóða upp á þann möguleika að skipta þátttakendum niður í smærri hópa og geta þeir þá spreytt sig sam- an á verkefnum tengdum markmið- um námskeiðsins,“ útskýrir Mar- grét. „Það er staðreynd á námskeiðum almennt, og sérstak- lega í fjarkennslu, að fólk á erfitt með að halda athyglinni nema í stutta stund og því verður að muna að brjóta efnið reglulega upp með ýms- um leiðum.“ Margrét brýnir líka fyrir leiðbein- endum að týnast ekki í tækninni. Vissulega séu mörg sniðug forrit í boði sem geti lífgað upp á fjarnám- skeið en það þurfi ekki að breyta öllu í einu. „Fólk ætti að nota sem mest af þeirri tækni sem það þekkir. Þeir sem eru t.d. vanir að nota Power- Point ættu endilega að halda því áfram enda er auðvelt að nota slíkar glærur í gegnum fjarfundaforritin.“ En það er líka undir þátttakendum komið að ná sem mestu út úr fjar- námskeiðum. Margrét segir það t.d. vera góða reglu að allir gefi sér tíma fyrir námskeiðið til að ganga úr skugga um að netið, myndavél og hljóðnemi virki sem skyldi og að ekk- ert trufli. „Fólk ætti að tryggja að það hafi gott næði meðan á nám- skeiðinu stendur og svo er vissara að muna að nota takkann sem slekkur á hljóðnemanum svo að hósti, hnerri eða einhver uppákoma trufli ekki aðra þátttakendur.“ Tímasparnaður og sveigjanleiki Þau fyrirtæki og stofnanir sem komast upp á lagið með að nota fjar- námskeið njóta góðs af á ýmsa vegu. Margrét segir t.d. mikinn tímasparn- að felast í því að þurfa ekki að gera sér ferð á milli bæjar- eða landshluta til að sitja námskeið og þá geti fólk sinnt vinnu sinni alveg þar til nám- skeið hefst. Þá er líka einfalt að taka efnið upp og svo þátttakendur geta auðeldlega rifjað upp eftir þörfum eða nýtt sér kennsluna á heppilegri tíma ef ómögulegt reyndist að sækja námskeiðið í beinni útsendingu. „Sumir reyna jafnvel að nýta tímann enn betur með því að hlusta á upptök- una á 150% hraða eða meira,“ útskýr- ir Margrét. Kórónuveirufaraldurinn hefur að öllum líkindum markað kaflaskil í vægi fjarvinnu í atvinnulífinu og næsta víst að þegar faraldurinn er af- staðinn muni margir halda áfram að vinna heiman frá sér, frá öðrum landshlutum eða jafnvel frá öðrum heimsálfum. Margrét segir að vinnu- staðir ættu samt sem áður að reyna að blanda saman staðarnámi og fjar- námi. Fjarnámið sé handhægur og sveigjanlegur kostur en það sé líka mikils virði að hópurinn hittist í eigin persónu. „Bæði er gott að hafa fjöl- breytni í formi námskeiða en svo er líka maður manns gaman og annars konar tengsl sem skapast á milli fólks í samveru og gefst þar betra tækifæri til að kynnast og spjalla.“ Hægara sagt en gert að þjálfa starfsfólk yfir netið AFP Möguleikar Fjarnámskeið vinnustaða eru m.a. heppileg að því leyti að þau spara fólki tíma. Bæði leiðbeinendur og þátttakendur þurfa samt að setja sig í réttar stellingar. Bandarískur heilbrigðisstarfsmaður við vinnu sína.  Vinnustaðir þurfa að aðlagast nýjum veruleika og nýta möguleika tækninnar ● Bandaríski bankinn Goldman Sachs væntir 6,6% hagvaxtar í Bandaríkj- unum á þessu ári og hefur hækkað fyrri spá sína sem hljóðaði upp á 6,4% hag- vöxt. Goldman gaf nýju spána út á laug- ardag en breytingin stafar einkum af nýjum aðgerðapakka sem Joe Biden kynnti á fimmtudag. Hyggst Biden knýja í gegn örvunar- aðgerðir fyrir samtals um 1.900 millj- arða dala en hann telur nauðsynlegt að gefa bandaríska hagkerfinu öfluga inn- spýtingu svo hjól atvinnulífsins komist hratt af stað nú þegar sér fyrir endann á kórónuveirufaraldrinum og von um að bólusetningar leyfi bandarísku sam- félagi að komast aftur í eðlilegt horf. ai@mbl.is Goldman hækkar hagvaxtarspá 18. janúar 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 129.0 Sterlingspund 175.73 Kanadadalur 101.44 Dönsk króna 21.024 Norsk króna 15.165 Sænsk króna 15.436 Svissn. franki 145.21 Japanskt jen 1.2437 SDR 185.8 Evra 156.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 186.8517 Hrávöruverð Gull 1853.85 ($/únsa) Ál 2010.5 ($/tonn) LME Hráolía 56.41 ($/fatið) Brent smiðju í Þýskalandi fram til 19. febrúar. Að sögn FT gripu framleiðendur til þess ráðs á síðasta ári að minnka pantanir sínar hjá tölvu- kubbaframleiðendum í takt við samdrátt í eftirspurn á bílamark- aði. Vaxandi bjartsýni meðal neyt- enda varð þó til þess að markaður- inn fyrir nýja bíla tók kipp á síðasta ársfjórðungi 2020 og varð eftirspurnin meiri en straumlínu- löguð aðfangakeðja framleiðenda gat ráðið við. Til að auka á vand- ann hefur sala á raftækjum gengið vel og hafa tölvukubbaframleið- endur í nógu að snúast við að skaffa íhluti s.s. í leikjatölvur og farsíma. ai@mbl.is Þýski bílaframleiðandinn Audi hef- ur sagt meira en 10.000 manns upp störfum tímabundið vegna skorts á íhlutum fyrir nýja bíla. Röskun hef- ur orðið á framleiðslu tölvukubba og orðið til þess að mynda flösku- hálsa hjá Audi og flestum öðrum framleiðendum bifreiða. Financial Times fjallar um tölvu- kubbaskortinn og hefur eftir stjórnendum Audi að fyrirtækið leggi allt kapp á að framleiðsla á fyrsta fjórðungi þessa árs dragist ekki saman um meira en 10.000 ökutæki. Móðurfyrirtækið Volkswa- gen reiknar með að smíða 100.000 færri bíla á fjórðungnum vegna vöntunar á tölvukubbum og þá hafa framleiðendur á borð við Renault, GM, Honda, Nissan og Daimler sagst standa frammi fyrir vand- ræðum af svipuðum toga. Hefur Ford þurft að loka heilli verk- Skortur á tölvukubbum hægir á bílaframleiðslu AFP Kippur Aðfangakeðjan hefur ekki haldið í við spurn eftir bílum. ● Fjármálaráðuneyti Bandaríkjanna hóf í síðustu viku að greiða út 15 milljarða dala fjárhagsaðstoð sem flugfélögin þar í landi skipta með sér. Á að nota fjármagnið til að standa straum af launakostnaði og auðvelda greininni að ráða aftur til starfa á komandi mán- uðum tugi þúsunda starfsmanna í flug- iðnaði sem sagt var upp störfum vegna kórónuveirufaraldursins. Að sögn Reuters eru 30% björg- unarpakkans í formi láns sem ber lága vexti og flugfélögin þurfa að end- urgreiða á tíu árum. Flugfélögin skuld- binda sig einnig til að setja þak á greiðslur til æðstu stjórnenda og greiða ekki út arð eða kaupa eigin hlutabréf út marsmánuð 2022. ai@mbl.is Bandarísk flugfélög fá björgunarpakka Vandi Vonandi fara sætin að fyllast. STUTT Margrét Reynisdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.