Morgunblaðið - 18.01.2021, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 2021
England
West Ham – Burnley ............................... 1:0
Jóhann Berg Guðmundsson lék fyrri
hálfleikinn með Burnley.
Wolves – WBA.......................................... 2:3
Leeds – Brighton...................................... 0:1
Fulham – Chelsea..................................... 0:1
Leicester – Southampton ........................ 2:0
Sheffield United – Tottenham ................ 1:3
Liverpool – Manchester United.............. 0:0
Manchester City – Crystal Palace.......... 4:0
Staða efstu liða:
Manch. Utd 18 11 4 3 34:24 37
Manch. City 17 10 5 2 29:13 35
Leicester 18 11 2 5 33:21 35
Liverpool 18 9 7 2 37:21 34
Tottenham 18 9 6 3 33:17 33
Everton 17 10 2 5 28:21 32
Chelsea 18 8 5 5 33:21 29
Southampton 18 8 5 5 26:21 29
West Ham 18 8 5 5 25:21 29
Aston Villa 15 8 2 5 29:16 26
Arsenal 18 7 3 8 20:19 24
Leeds 18 7 2 9 30:34 23
B-deild:
Nottingham F. – Millwall ....................... 3:1
Jón Daði Böðvarsson kom inn á hjá Mill-
wall á 80. mínútu.
Þýskaland
Werder Bremen – Augsburg ................. 2:0
Alfreð Finnbogason lék fyrstu 58 mín-
úturnar með Augsburg.
Ítalía
Roma – Napoli.......................................... 3:2
Guðný Árnadóttir lék allan leikinn með
Napoli.
B-deild:
Pisa – Brescia........................................... 1:0
Hólmbert Aron Friðjónsson kom inn á
hjá Brescia á 80. mínútu en Birkir Bjarna-
son var á bekknum allan tímann.
Pordenone – Venezia .............................. 2:0
Bjarki Steinn Bjarkason kom inn á hjá
Venezia á 78. mínútu en Óttar Magnús
Karlsson var á bekknum allan tímann.
Holland
AZ Alkmaar – Den Haag ........................ 2:1
Albert Guðmundsson lék fyrstu 63 mín-
úturnar með AZ.
Belgía
Oostende – Kortrijk ................................ 2:1
Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn með
Oostende.
Grikkland
Volos – Lamia........................................... 1:1
Theódór Elmar Bjarnason kom inn á hjá
Lamia á 66. mínútu.
Olympiacos – Giannina ........................... 1:0
Ögmundur Kristinsson var varamark-
vörður Olympiacos í leiknum.
Portúgal
SL Benfica – Torreense .......................... 7:0
Cloé Lacasse skoraði fjögur af mörkum
Benfica í leiknum.
ENGLAND
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Manchesterborg virðist vera að
taka völdin af grönnum sínum í Liv-
erpool í ensku úrvalsdeildinni í fót-
bolta. Manchesterliðin United og
City eru nú í tveimur efstu sætum
deildarinnar eftir leiki gærdagsins,
City er með fæst töpuð stig allra
liða í deildinni, á meðan Liverpool
hefur nú sigið niður í fjórða sætið
eftir markaþurrð að undanförnu.
Liverpool er reyndar það lið sem
enn hefur skorað flest mörk í deild-
inni, 37 talsins, en eftir markalausa
jafnteflið gegn Manchester United á
Anfield í gær hefur Jürgen Klopp
og hans mönnum ekki tekist að
skora í þremur leikjum í röð í deild-
inni og gert eitt mark í fjórum leikj-
um síðan þeir burstuðu Crystal Pa-
lace 7:0 rétt fyrir jól.
Tólf leikir í röð án taps
Manchester United er nú ósigrað
í tólf leikjum í röð í deildinni og er
tveimur stigum á undan Manchest-
er City og Leicester en þremur á
undan Liverpool. United átti lengi í
vök að verjast á Anfield í gær en
hefði getað hirt öll þrjú stigin undir
lokin þegar Alisson varði frá Paul
Pogba úr dauðafæri. Ole Gunnar
Solskjær er greinilega að ná upp
miklum stöðugleika hjá Manchester
United sem virðist í fyrsta skipti
eftir brotthvarf Alex Fergusons
vera líklegt til að gera sig virkilega
gildandi í baráttunni um enska
meistaratitilinn.
City er á siglingu
Manchester City nýtti sér þessi
úrslit til hins ýtrasta í lokaleik gær-
dagsins og sigraði Crystal Palace á
afar sannfærandi hátt, 4:0, á Eti-
had-leikvanginum. Miðvörðurinn
John Stones skoraði tvö mörk, hans
fyrstu úrvalsdeildarmörk fyrir City,
og Ilkay Gündogan og Raheem
Sterling gerðu sitt markið hvor.
City hefur klifrað töfluna hægt og
bítandi undanfarnar vikur eftir
óvenjuslæma byrjun á tímabilinu.
Sex sigrar og tvö jafntefli í síðustu
leikjum hafa komið Pep Guardiola
og hans mönnum í góða stöðu á nýj-
an leik. Á sama tíma hefur City
unnið fimm leiki og gert eitt jafn-
tefli í sex leikjum öðrum mótum og
virðist vera búið að ná góðu jafn-
vægi í sinn leik á ný.
Leicester sigraði Southampton
2:0 með mörkum frá James Madd-
ison og Harvey Barnes og gerir sig
áfram líklegt til að slást um topp-
sæti deildarinnar.
Sama er að segja af Tottenham
sem vann botnliðið Sheffield United
3:1 á útivelli með mörkum frá Serge
Aurier, Harry Kane og Tanguy
Ndombélé. Þótt Tottenham sé í
fimmta sæti er liðið aðeins fjórum
stigum á eftir Manchester United
og alls ekki hægt að afskrifa José
Mourinho og hans menn í toppbar-
áttunni.
Manchester að
taka völdin?
United og City í efstu sætunum
AFP
Jafnir Paul Pogba og Mohamed Salah skildu sáttir eftir markalausa jafn-
teflið á Anfield í gær þar sem Pogba nýtti ekki gott færi undir lokin.
Tryggvi Snær Hlinason og Martin
Hermannsson fögnuðu góðum sigr-
um í spænsku A-deildinni í körfu-
knattleik þar sem Tryggvi átti lík-
lega sinn besta leik til þessa. Hann
skoraði 24 stig fyrir Zaragoza sem
sigraði Fuenlabrada, 105:85, og tók
auk þess níu fráköst og átti tvær
stoðsendingar. Zaragoza er í 14.
sæti af nítján liðum í deildinni.
Martin og félagar í Valencia sigr-
uðu San Pablo Burgos á útivelli í
gærkvöld, 83:78, þar sem Martin
skoraði sex stig og átti fimm stoð-
sendingar. Valencia er í sjötta sæti.
Tryggvi var lykil-
maður í sigri
FIBA
Kraftur Tryggvi Snær Hlinason var
óstöðvandi gegn Fuenlabrada.
Jón Guðni Fjóluson landsliðsmaður
í knattspyrnu var á laugardaginn
kynntur til leiks sem nýr leikmaður
Hammarby í Stokkhólmi en félagið
hefur samið við hann til þriggja
ára. Jón lék síðustu mánuði ársins
2020 með Brann í Noregi en var áð-
ur tvö ár með Krasnodar í Rúss-
landi. Hann lék hins vegar í sex ár í
Svíþjóð þar á undan, með Sundsvall
og Norrköping, og er því kominn á
kunnuglegar slóðir. Jón Guðni er
31 árs gamall varnarmaður og hef-
ur leikið 17 A-landsleiki fyrir Ís-
lands hönd.
Jón Guðni til
Stokkhólms
Morgunblaðið/Eggert
Svíþjóð Jón Guðni Fjóluson er kom-
inn til Hammarby í Stokkhólmi.
Eftir góðan sigur á Haukum í
fyrstu umferð hefur Þór tapað
tveimur í röð sem hljóta að teljast
vonbrigði.
Stjarnan með fullt hús
Bikarmeistarar Stjörnunnar eru
einnig með fullt hús stiga eftir
sigur á stigalausum Þórsurum frá
Akureyri, 86:83. Stjarnan náði
mest 27 stiga forskoti en Þórsarar
sýndu mikinn styrk með að skora
19 stig í röð í þriðja leikhluta og
koma sér aftur inn í leikinn. Því
miður fyrir þá dugði það ekki til.
Eins og oft áður var Hlynur Bær-
ingsson bestur hjá Stjörnunni með
16 stig og sjö fráköst.
Þá vann ÍR auðveldan sigur á
stigalausum nýliðum Hattar á úti-
velli 105:87. Collin Pryor fór á
kostum hjá ÍR og skoraði 30 stig.
Collin nýtur sín vel hjá ÍR þar
sem hann er í stóru hlutverki. Sig-
urður Gunnar Þorsteinsson skor-
aði 17 stig og tók 9 fráköst fyrir
Hött gegn sínu gömlu félögum og
hefur sjaldan verið í betra formi.
Sigurður nýtur sín vel hjá Hetti,
en liðið virðist enn og aftur ekki
nægilega gott til að halda sér uppi
í efstu deild.
Morgunblaðið/Þórir Tryggvason
Klemmdur Þórsararnir Andrius Globys og Ivan Aurrecoechea þrengja að
Hlyni Bæringssyni fyrirliða Stjörnunnar í leiknum á Akureyri í gær.
Logi stal sen-
unni í Skagafirði
Grindavík og Stjarnan með fullt hús
KÖRFUBOLTI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Hinn 39 ára gamli Logi Gunn-
arsson stal senunni í Skagafirði er
Njarðvík vann 108:107-sigur á
Tindastóli í framlengdum leik í
Dominos-deild karla í körfubolta í
gærkvöldi. Logi skoraði sigurkörf-
una um leið og lokaflautið gall en
aðeins 1,7 sekúnda var eftir þegar
Njarðvík hélt af stað í lokasókn-
ina. Með sigrinum hristi Njarðvík
tapið gegn Haukum í síðustu um-
ferð af sér og er liðið með tvo
sigra og eitt tap. Shawn Glover
verður ekki kennt um tapið, en sá
bandaríski skoraði 39 stig og er
með 34 stig að meðaltali í leik fyr-
ir Tindastól til þessa í deildinni.
Spennan var ekki mikið minni í
Þorlákshöfn þar sem Grindavík
var í heimsókn gegn Þór. Eftir
framlengdan leik unnu Grindvík-
ingar 94:92-sigur og er gula liðið á
Suðurnesjunum með fullt hús
stiga eftir þrjá leiki. Kristinn
Pálsson er loksins byrjaður að
sýna sitt rétta andltið og skoraði
hann 18 stig og tók 12 fráköst.
Dominos-deild karla
Þór Ak. – Stjarnan................................ 83:86
Þór Þ. – Grindavík ....................... (frl.) 92:94
Höttur – ÍR ......................................... 87:105
Tindastóll – Njarðvík............... (frl.) 107:108
Staðan:
Stjarnan 3 3 0 274:239 6
Grindavík 3 3 0 314:291 6
Keflavík 2 2 0 209:161 4
ÍR 3 2 1 282:266 4
Njarðvík 3 2 1 285:274 4
Þór Þ. 3 1 2 284:306 2
Valur 2 1 1 182:181 2
Tindastóll 3 1 2 294:296 2
Haukar 2 1 1 184:190 2
KR 2 0 2 181:196 0
Þór Ak. 3 0 3 262:299 0
Höttur 3 0 3 251:303 0
Dominos-deild kvenna
Keflavík – Fjölnir ................................. 72:60
Skallagrímur – Snæfell ........................ 85:80
KR – Breiðablik.................................... 58:73
Haukar – Valur..................................... 64:74
Staðan:
Valur 4 3 1 245:193 6
Keflavík 3 3 0 252:188 6
Haukar 5 3 2 315:292 6
Fjölnir 5 3 2 350:333 6
Skallagrímur 4 3 1 272:293 6
Breiðablik 5 1 4 251:281 2
Snæfell 4 1 3 286:318 2
KR 4 0 4 276:349 0
Þýskaland
Fraport Skyliners – Würzburg.......... 72:80
Jón Axel Guðmundsson skoraði 21 stig
fyrir Fraport, tók 4 fráköst og átti 3 stoð-
sendingar.
Bretland
Caledonia – Leicester Riders............. 61:91
Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 19 stig
fyrir Leicester, tók 5 fráköst og átti 4 stoð-
sendingar á 24 mínútum.
Newcastle – Leicester Riders ............ 39:66
Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 16 stig
fyrir Leicester og tók 6 fráköst.