Morgunblaðið - 29.01.2021, Side 4
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Norðanáhlaupið hefur kostað sitt.
Þá hefur verið töluverður snjóblást-
ur og vinnuvélanotkun á Vest-
fjörðum, Austfjörðum og fyrir norð-
an. Það er bara eðlilegt í ljósi
veðurs,“ segir Bjarni Már Gauksson,
verkefnisstjóri vetrarþjónustu
Vegagerðinnar, um snjómoksturinn
í vetur.
Bjarni segir að þrátt fyrir áhlaup-
ið að undanförnu hafi veturinn al-
mennt verið hagstæður hvað varðar
kostnað við hálkuvarnir og snjó-
mokstur. Líkja megi þessum vetri
við veturinn 2018-2019. Annatíminn
í hálkuvörnum og snjómokstri sé yf-
irleitt í janúar og febrúar.
Mikill mokstur í janúar
Samkvæmt áætlun átti að vera
búið að aka 316.000 kílómetra á höf-
uðborgarsvæðinu, austur á Selfoss
og áfram í Rangárvallasýslu vegna
hálkuvarna og snjóhreinsunar. Ekn-
ir hafa verið um 195.000 kílómetrar
eða 120.000 kílómetrum minna en
áætlun gerði ráð fyrir.
„Síðasti vetur var miklu þyngri
og byrjaði miklu fyrr en nú með
áhlaupinu 10.-12. desember 2019.
Eftir það var bara harðavetur.
Kostnaður vegna snjómoksturs nú
er því minni en á sama tíma í fyrra.
Það hefur verið töluvert mikill snjó-
mokstur frá því það fór að snjóa fyr-
ir alvöru nú í janúar,“ segir Elías
Pétursson, bæjarstjóri í Fjalla-
byggð.
Í gær og í fyrradag var blíða í
Fjallabyggð, hörkufrost, bjart yfir
og fínasta vetrarfærð. Í gær var
vegurinn upp að skíðasvæðinu í
Skarðsdal á Siglufirði ruddur, eins
og kemur fram hér til hliðar. Mats-
menn frá Náttúruhamfaratrygg-
ingu Íslands komu til að meta tjónið
sem snjóflóðið olli 20. janúar.
„Síðan er bara að fara að endur-
byggja,“ sagði Elías.
Veturinn á Akureyri hefur verið
mjög snjóléttur fram að þessu sam-
anborið við síðasta vetur. Umfang
snjómoksturs til þessa er undir með-
alári og þó nokkuð mikið minna en á
sama tíma í fyrra.
Tvisvar hefur snjóað í vetur svo
þurft hefur að moka götur dag eftir
dag. Smá skot kom í desember og
svo hefur snjóað mikið síðan um
helgina, samkvæmt upplýsingum
frá Akureyrarbæ. Mikið hefur verið
að gera í snjómokstri undanfarna
daga.
Morgunblaðið/Eggert
Siglufjörður Unnið var á fullu við snjómokstur í blíðuveðri í gær.
Norðanáhlaupið
hefur kostað sitt
Kostnaður við snjómokstur í vetur
enn undir áætlunum Vegagerðarinnar
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 2021
Jakkaföt og skyrtur Gluggatjöld og áklæði Úlpur, kápur og frakkar
Rúmföt og heimilisþvottur Kjólar og blússur Servíettu- og dúkaþvottur
STOFNAÐ 1953Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • Sími: 553 1380 • haaleiti@bjorg.is
Ert þú með allt á hreinu 2021?
Við tökum vel á móti herðatrjám og endurnýtum
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Áfram berast tíðindi af fólki sem er
áhugasamt um þingframboð í haust.
Þar koma til sögunnar bæði vara-
þingmenn, fyrrverandi þingmenn og
aðstoðarmenn, í sumum tilvikum er
um sama fólk að ræða.
Þar má nefna t.d. Róbert
Marshall, fyrrv. þingmann, sem er í
pólitísku starfsliði forsætisráðherra
og veltir nú alvarlega fyrir sér að
fara fram fyrir vinstri græn í Reykja-
vík.
Talið er að Sjálfstæðisflokkurinn
haldi prófkjör í öllum kjördæmum,
en þar er helst horft til síðustu helgar
í júní í von um að veiran verði þá að
mestu gengin niður.
Hvíslað er um að þröngt verði á
þingi á lista sjálfstæðismanna í Suð-
vesturkjördæmi, því þar þurfi öflug-
ar konur að fá brautargengi án hrók-
eringa eftir prófkjör líkt og síðast.
Þar er t.d. nefnd Halla Sigrún
Mathiesen, Hafnfirðingur og for-
maður SUS. Því kunni þingmenn
þaðan að leita annað. Hafa sumir
nefnt möguleikann á því að Jón
Gunnarsson færi í Suðurkjördæmi
eða Óli Björn Kárason í Norðaust-
urkjördæmi þar sem oddvita vanti,
en gengið er út frá því að Kristján
Þór Júlíusson hætti. Þar nyrðra
munu upp á síðkastið æ fleiri hafa
þrýst á Ásthildi Sturludóttur, bæjar-
stjóra á Akureyri, að gefa kost á sér
þótt hún hafi áður tekið því ólíklega.
Í Norðvesturkjördæmi hefur Har-
aldur Benediktsson ekkert sagt af
eða á um hug sinn, sem ekki styrkir
stöðu hans, en víst er að varaformað-
urinn Þórdís Kolbrún Reykfjörð
Gylfadóttir ætli sér efsta sætið þar.
Í Suðurkjördæmi heyrist æ oftar
að Guðrún Hafsteinsdóttir athafna-
kona úr Hveragerði vilji leiða lista
sjálfstæðismanna, en eins að Unnur
Brá Konráðsdóttir vilji aftur á þing.
Diljá Mist Einarsdóttir aðstoðar-
maður utanríkisráðherra er sögð
vilja gefa kost á sér í Reykjavík og
hinn aðstoðarmaðurinn, Borgar Þór
Einarsson, er víst líka hugsi.
Framboðsmál
í mikilli gerjun
Sjálfstæðismenn ræða sumarprófkjör
Róbert
Marshall
Guðrún
Hafsteinsdóttir
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
thorgerdur@mbl.is
Rýma þurfti átta hús syðst á Siglu-
firði vegna snjóflóðahættu í síðustu
viku, í kjölfar snjóflóðsins sem féll á
skíðasvæðinu í Skarðsdal. Snjóflóða-
varnargarðar eiga að vernda húsin
en sérfræðingar töldu að vegna snjó-
magns væri mögulegt að garðarnir
héldu ekki. Andrew Perrett býr í
einu húsanna sem rýma þurfti, en
hann hefur búið á Siglufirði í fjögur
ár og ekki þurft að rýma hús sitt áð-
ur.
„Mér finnst það ekki skipta máli,“
segir Andrew, spurður hvað honum
finnist um að rýma hafi þurft svæðið
þrátt fyrir varnargarðana. „Ég veit
að þau eru bara að passa upp á ör-
yggi okkar og ég veit líka að í snjó-
flóðinu á síðasta ári virkuðu varn-
argarðar ekki sem skyldi,“ segir
Andrew og vísar þar til snjóflóðsins
sem varð á Flateyri fyrir um ári þeg-
ar flóð féll á ysta húsið í bænum.
Andrew kemur frá Nýja-Sjálandi en
finnst veturnir á Íslandi mun
skemmtilegri.
„Ef við fáum snjó er það yfirleitt
bara yfir eina nótt og hverfur svo
næsta dag,“ segir Andrew, en spurð-
ur út í kuldann bendir hann á að
hann sé vissulega sá eini meðal
vinnufélaga sinna í snjógalla, en
þegar Morgunblaðið hitti Andrew á
Siglufirði í gær var frostið nálægt 8
stigum og því raunar furðulegra að
vera ekki í snjógalla við útistörf.
Hreinsunarstarf á skíðasvæðinu í
Skarðsdal við Siglufjörð er í fullum
gangi. Snjóflóðið hreif með sér að-
stöðu skíðasvæðisins. Mildi þykir að
skíðalyftur svæðisins hafi sloppið við
flóðið.
Morgunblaðið/Eggert
Fönn Snjóflóðið hreif með sér aðstöðu skíðasvæðisins í Skarðsdal. Hreinsunarstarf var í fullum gangi þar í gær.
Treystir þess að ör-
yggis íbúanna sé gætt
Nýsjálendingur þurfti að rýma hús vegna snjóflóðsins
Á Siglufirði Andrew Perrett býr í
einu húsanna sem rýma þurfti.