Morgunblaðið - 15.01.2021, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021
H
elga Guðrún leiðir námskeið og
viðburði um kynorku og nánd auk
þess að taka fólk í einkatíma. Hún
starfar einnig sem jógakennari og
leiðir sérsniðin námskeið fyrir
fólk sem vill byggja sig upp eftir áföll eða lang-
varandi álag.
„Ég er að byggja upp starfsemi mína undir
nafninu Allt sem þú ert og býð upp á leiðsögn
fyrir hópa og einstaklinga sem snýr að því að
styðja fólk í að taka sjálft sig í sátt, að leyfa sér
að vera allt sem það er.“
Helga Guðrún segir að námskeiðið Dýpri
nánd fyrir pör hafi orðið til í fyrsta samkomu-
banninu.
„Þá fóru öll mín námskeið og viðburðir í hlé
því ekki var hægt að hittast í raunheimum. Þá
sá ég hversu frábært tækifæri væri að leiða pör
inn í dýpri nánd, hlið við hlið heima hjá sér,
tengd inn á námskeið í gegnum Zoom-forritið.
Þetta námskeið hefur gengið síðan þá og næsti
hópur verður sá sjöundi á námskeiði hjá mér.
Námskeiðið er fjögur skipti þar sem hópur af
pörum hittist og hver tími er með svipuðu sniði
þar sem ég kynni viðfangsefni vikunnar, leiði
þau svo inn í æfingar sem þau gera í einrúmi.
Svo gefst tækifæri fyrir alla að deila þeirrra
upplifun af æfingunum og þannig fær hópurinn
dýrmæta innsýn í þá sameiginlegu reynslu að
vera í pari.“
Þarf fólk þjálfun í að upplifa náið para-
samband?
„Stutta svarið er já. Ég held að mörg pör glími
við svipaðar áskoranir í sambandinu, að þrá
gæðastundir tvö saman en finna ekki tímann, að
reiða sig á afþreyingu og verja of miklum tíma í
praktísku málin og ekki síst að vita kannski ekki
hvar skuli byrja ef rækta á dýpri nánd.
Hraði samfélagsins og miklar annir styðja
ekki við djúpa nánd, til að vera í nánd þarf að
hvíla í augnablikinu og vera til staðar, það
krefst æfingar og jafnvel þarf að brjóta upp
áragömul mynstur og venjur. Einnig tel ég að
sagan sem okkur var seld um að lífið eigi alltaf
að vera auðvelt og þægilegt sé að hamla okkur í
að tala um erfiðu og óþægilegu hlutina sem er
partur af því að opna sig og deila með öðrum.“
Í kynlífinu erum við berskjölduð
Hvaða máli skiptir kynlíf að þínu mati?
„Kynlíf er fallegt tækifæri til að rækta nánd
og tengingu, auk þess sem unaður og sæla er
mjög heilandi. Í kynlífi erum við mjög ber-
skjölduð og getum tengst elskhuganum á djúp-
an hátt þar sem við sýnum hliðar okkar sem fá-
ir fá að sjá. Snerting er okkur mannfólkinu líka
lífsnauðsynleg og í kynlífi getum við fengið
góðan skammt af henni. Kynlíf kveikir á lífs-
kraftinum og við lendum í augnablikinu.
Þó er mikilvægt að átta sig á að kynlíf er
samt ekki alltaf náið. Kynlíf þar sem stefnt er
að einhverju lokamarkmiði, yfirleitt fullnæg-
ingu, þá er hætt við að við missum af dýr-
mætum augnablikum og unaði á leiðinni. Einn-
ig er algengt að fólk sé að reyna að standa sig,
sýna einhverja ákveðna frammistöðu og þá er-
um við ekki lengur sönn og hrá heldur að reyna
að vera eitthvað sem við höldum að sé
vænst af okkur.“
Er hægt að kenna fólki að elska betur?
„Ég trúi því af heilum hug að það sé
hægt og að leiðin að því sé að læra að
elska sjálfan sig. Þegar við lærum að
elska okkur sjálf og taka í sátt allt sem
við erum, ekki bara það sem við höldum
að sé ásættanlegt eða gott, eigum við
auðveldara með að elska aðra bæði kosti
þeirra og bresti.“
Hvað með námskeiðið um kven-
sköpin?
„Kvensköp er nýtt námskeið fyrir konur.
Þetta námskeið varð til í framhaldi af net-
kvennahring sem ég hélt í desember með þem-
að kvensköp. Við konurnar sem komum saman
það kvöld áttum magnaða stund og margar
voru spenntar í meira, að þetta hefði bara verið
byrjunin einhvern veginn. Morguninn eftir
kom þetta bara upp úr mér í heild sinni, fjög-
urra vikna námskeið með vikulegum net-
kvennahring og Facebook-hópi fyrir innblástur
og heimaverkefni, þar sem styrkjum teng-
inguna og samband við okkar heilagasta hluta,
kvensköpin!“
Þekkja ekki eigin píku
Eru konur yfirleitt ekki sáttar við sköpin
sín?
„Ég upplifi að það sé almennt skortur á teng-
ingu. Að margar konur hafa ekki kannað sína
eigin píku af forvitni, jafnvel aldrei snert hana
meðvitað innvortis. Til dæmis heyri ég mjög oft
að konur hafi kynnst píkunni sinni fyrst þegar
þær fóru að nota tíðabikar, því þá þarf meira að
vera að koma við og koma bikarnum fyrir á
réttum stað. Einnig eru truflandi hugmyndir
um að kvensköp eigi að líta út á einhvern
ákveðinn hátt, birtingarmyndir úr klámi til
dæmis þar sem mjög einsleitar píkur fá hlut-
verk. Algengi lýtaaðgerða á kvensköpum hefur
færst í aukana þar sem konur láta minnka innri
barma vegna hugmynda um að það sé ekki
nógu fallegt þegar þeir eru stærri. Þetta þykir
mér mjög sorgleg þróun og bara það að kynn-
ast börmunum, ytri og innri, og finna unaðinn
sem þar er í boði er tækifæri til að elska þá ná-
kvæmlega eins og þeir eru.“
Hvernig lítur þú á lífið?
„Þetta er stór spurning. Ég er bjartsýn að
eðlisfari og sé tækifæri á hverju strái. Ég hef
lært að njóta lífsins, að staldra við og elska ein-
földu hlutina. Ég elska mig eins og ég er, en
það hefur verið mitt stærsta verkefni og dýr-
mætasta að læra það. Ég er margfalt mildari
við mig og þar af leiðandi aðra líka. Ég trúi því
að alheimurinn sé með mér í liði og að ég eigi
ákveðið hlutverk hér á jörð, ég þarf að hlusta
eftir leiðsögn og svo stíga skrefin, vinna vinn-
una sem þarf til að sinna mínu hlutverki.“
Hvað er það dýrmætasta við lífið að þínu
mati?
„Að elska og vera elskuð, fá að þroskast og
eldast. Ég sé það svo vel þegar ég horfi á börn-
in mín þrjú vaxa úr grasi að ég er með lífið að
láni og ég vil lifa því vel, kærleiksrík, frjáls og
leggja mitt af mörkum til að fleiri njóti þess
sama.“
Helga Guðrún er dugleg að finna tækifæri í
aðstæðunum.
„Nú er ég á leið inn í fjögurra daga námskeið
um unað, Master your Pleasure, með einum af
mínum tantra-kennurum. Vegna aðstæðna er
námskeiðið á netinu þannig að ég verð ein í bú-
stað þessa daga og sit námskeiðið. Ég leyfi
fylgjendum mínum á Instagram að fylgjast að-
eins með þessu ferðalagi mínu og býð lesendur
velkomna að finna mig þar.
Ég býð líka upp á einkaferðalag í átt að
meira frelsi, nánd og kynorku fyrir þá sem vilja
frekar fá einstaklingsmiðaða leiðsögn.“
Ljósmynd/Sissi
Helga Guðrún Snjólfsdóttir hefur áhuga
á öllu sem viðkemur nánd, samskiptum
og kynlífi. Hún býður upp á námskeið fyrir
pör í gegnum Zoom-forritið.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ég elska mig
eins og ég er,
en það hefur
verið mitt
stærsta verk-
efni og dýr-
mætasta að
læra það.
„Kynlíf er fallegt
tækifæri til að
rækta nánd
og tengingu“
Helga Guðrún
segir alla geta
æft sig í nánd.
Menntun skapar
tækifæri
Ríkismennt styrkir starfsmenntun beint til stofnana ríkisins
á landsbyggðinni
Sjóðurinn veitir styrki í fræðsluverkefni á vegum
stéttarfélaganna.
Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin
um afgreiðslu þeirra í umboði Ríkismenntar.
Kynntu þér rétt þinn á www.rikismennt.is
Ríkismennt