Morgunblaðið - 15.01.2021, Side 14
H
lynur Hallgrímsson starfar sem
„Senior Data Scientist“ hjá
Reykjavíkurborg og leiðbein-
andi í gagnavísindum hjá
Skýinu – skapandi skóla. Hann
er sérfræðingur í gagnaforritun og spálík-
anagerð í forritunarmálinu R, en er með
heldur óvenjulegan bakgrunn.
Hvaða menntun ertu með og hvert sóttir
þú hana?
„Mín formlega menntun er meistaragráða
í stjórnmálahagfræði og BA-gráða í hag-
fræði, heimspeki og stjórnmálafræði frá Há-
skólanum á Bifröst. Svo er stór hluti af því
sem ég notast við dagsdaglega í vinnunni
minni eitthvað sem ég hef lært á netinu í
ýmsu netkúrsum og námskeiðum. Ég byrj-
aði að taka netkúrsa samhliða meistaranám-
inu og hef ekki hætt síðan. Það eru þá síður
eins og Dataquest, Coursera og EdX þar
sem ég hef tekið rétt um 50 netkúrsa í töl-
fræði, R-forritun og gagnavísindum, frá
skólum á borð við Harvard, Stanford og
Johns Hopkins.“
Kolféll fyrir hagfræðinni
Hvað starfarðu við í dag?
„Það kallast á góðri íslensku gagnavísindi
og vélnám, en dagsdaglega eru ensku heitin
notuð; „data science“ og „machine learning“.
Í grunninn snýst þetta um úrvinnslu gagna,
stórra gagnasafna sem og smárra, og hvern-
ig megi hagnýta þau gögn til að bæta þjón-
ustu, taka betri ákvarðanir og almennt auð-
velda fólki lífið.“
Hvernig kviknaði áhugi þinn á viðfangs-
efninu sem þú vinnur við í dag?
„Ég hef alltaf verið óttalegur vandræða-
gripur í þessu tilliti. Ég hef alltaf sveiflast
milli stærðfræðinnar og skapandi greina
svo sem myndlistar og tónlistar og langaði
einhvern veginn bæði að vinna sem gervi-
greindarverkfræðingur og listmálari alveg
frá því ég var krakki. Ég fór þess vegna í
hagfræði, heimspeki og stjórnmálafræði á
Bifröst eftir að hafa bæði prófað myndlist-
arnám og svo tekið ár í verkfræði í Háskóla
Íslands, án þess að hafa fundið mig. Hug-
myndin var að þetta væri svo breitt svið að
ég hlyti að finna eitthvað spennandi innan
námslínunnar. Það reyndist blessunarlega
rétt og ég kolféll alveg fyrir hagfræðinni.
Hagfræðin er svo skemmtileg því þar ertu
að nota tól raunvísindanna á heimavelli
félagsvísindanna. Ég byrjaði að nota töl-
fræðiforritunarmálið R til að vinna með
gögn fyrir verkefni í skólanum og það vatt
svo upp á sig að ég færðist alltaf meira og
meira í gagna- og tölfræðihlutann. Mynd-
ræn framsetning gagna er líka hluti af
vinnunni þannig að ég fæ í ofanálag smá út-
rás fyrir listahliðina.“
Gaman að taka þátt í að gera eitthvað nýtt
Er gaman í vinnunni?
„Alveg fáránlega gaman. Ég er heppinn
að vinna í ótrúlega góðu teymi sem vinnur
að skemmtilegum verkefnum sem skipta
máli. Teymið er tiltölulega nýtt af nálinni
þannig að það er fátt sem er skrifað í stein
um það hvernig við tæklum verkefni sem
stendur. Það er þess vegna sérstaklega
gaman, því maður fær að taka þátt í því að
móta hvernig starf okkar þróast og bara
hvernig svona gagnateymi á að vera.“
Hvaða þýðingu hafa gögn í þínum huga?
„Í rekstri fyrirtækja og stofnana skipta
gögn höfuðmáli, því án þeirra erum við
bara að giska. Í stærra samhengi finnst
mér alltaf mikilvægt að nefna að gögn eru
bara tilraunir okkar til að festa niður
raunveruleikann í kringum okkur. Það er
alveg ótrúlega gaman að gera alls kyns
sniðuga hluti með gagnasett, en maður
þarf bara alltaf að muna að gögn ein og
sér eru aldrei sjálfur raunveruleikinn,
heldur kortlagning mannfólksins á hon-
um, með ýmsum tólum. Það að skrásetja
hlutina rétt og meðhöndla þær skrásettu
upplýsingar rétt er undirstaða gagnsemi
upplýsinganna sem felast í gagnasetti.“
Nú varstu hagfræðingur hjá Samtökum
iðnaðarins og fjármálaráðuneytinu um
tíma, hvað kenndu þessi störf þér?
„Fyrst og fremst kenndu þau mér að
vera alltaf tilbúinn að kafa djúpt ofan í
eitthvað nýtt. Maður veit nefnilega aldr-
ei hvað ólíklegustu viðfangsefni geta
verið skemmtileg þegar maður er
kominn með góðan skilning á þeim. Sem
dæmi get ég nefnt að ég hefði aldrei
haldið að ég myndi ala með mér ástríðu
fyrir skattahermunum, en síðan er það
bara ótrúlega áhugaverður heimur þegar
maður er kominn djúpt í hann. Það eru
ekki alltaf þessir augljósu hlutir sem
reynast vera skemmtilegustu þættir
starfsins.“
Háskólanám ekki eina leiðin
Er nám mikilvægt að þínu mati?
„Já það er alveg fáránlega mikilvægt.
En mér finnst við oft tala um nám í of
þröngum skilningi. Það að fara í háskóla
er ekki eina leiðin til að læra eitthvað.
Námskeið og sjálfsnám skipta líka ótrú-
lega miklu máli. Vissulega getur verið
erfiðara að miðla því til mögulegra
vinnuveitenda að þú sért geggjaður for-
„Háskóla-
nám ekki
eina leiðin“
Hlynur Hallgrímsson gagnasérfræðingur hefur unn-
ið fyrir Samtök iðnaðarins, fjármálaráðuneytið og nú
starfar hann fyrir Reykjavíkurborg. Hann segir að fjar-
nám eigi eftir að aukast til muna í framtíðinni.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Það að fara í háskóla er
ekki eina leiðin til að læra
eitthvað. Námskeið og
sjálfsnám skipta líka
ótrúlega miklu máli.
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021