Morgunblaðið - 15.01.2021, Page 18

Morgunblaðið - 15.01.2021, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021 Íslenska fyrir útlendinga - öll stig • Sérstakir málfræðiáfangar • Enska öll stig • Önnur tungumál eftir óskum nemenda • Hraðnámskeið - litlir hópar - einkakennsla • Kennum á Skype Saga Akademía - málaskóli er viðurkenndur fræðsluaðili af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Allir kennarar skólans eru réttindakennarar. Eingöngu kennt í fámennum hópum eða einkakennslu. Pólskumælandi kennarar kenna íslensku og ensku fyrir Pólverja. Saga Akademía-málaskóli er viðurkenndur fræðsluaðili af mennta- og menningarmálaráðuneytinu. sagaakademia@sagaakademia.is • daria@sagaakademia.is www.sagaakademia.is • Sími 899 3961 / 771 5475 • facebook Saga Akademia ehf. Málaskóli • Language School small groups / intensivecourses / private lessons Þ að heyrist strax á tali Bjarkar að hún er skipu- lögð praktísk kona. Þrátt fyrir að hún brenni fyrir málefni sjúklinga með áfengisvanda, þá segir hún tilviljanir einar hafi ráðið því að hún valdi að starfa í geðheilbrigðiskerfinu í ára- tugi. Björk Guðjónsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1941. Hún lauk prófi frá Hjúkrunarkvennaskóla Íslands árið 1963. Lauk sérnámi í geð- hjúkrun frá Nýja hjúkrunarskólan- um árið 1981. Hún hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur við geðdeildir Landspítala frá árinu 1967 til 2003, þar af um 25 ár á Göngudeild fyrir áfengissjúklinga við Hringbraut, Reykjavík. Björk lauk BA-prófi í mannfræði frá Háskóla Íslands árið 2007 og MA-prófi í mannfræði frá Háskóla Íslands 2010. Árið 1967 bauðst henni vinna á Kleppsspítalanum og þáði hún starf- ið af praktískum ástæðum þar sem á þessum tíma bauðst hjúkrunarfræð- ingum húsnæði og barnapössun á staðnum. „Ég og þáverandi maðurinn minn, Skúli Ólafsson, vorum með tvö lítil börn og það var ekkert fæðing- arorlof eða leikskólar sem gripu mæður sem vildu vinna úti.“ Björk hóf störf á Kleppspítalanum á þeim tíma sem Tómas Helgason læknir og Þórunn Pálsdóttir hjúkr- unarforstjóri stýrðu spítalanum. Hún segir mikla byltingu hafa orðið á þeirra tíma, þar sem spítalinn færði sig frá því að vera geymslu- staður fyrir veika einstaklinga yfir í að vera meðferðarstöð þar sem leit- ast var við að lækna fólk og styðja við, frá allskonar fagfólki. „Inn á Kleppspítala komu sál- fræðingar, iðjuþjálfar, félagsráð- gjafar og svo urðu miklar breytingar á geðlækningum á þessum tíma í landinu. Tómas var ungur maður og mjög drífandi og hóf að hafa færri sjúk- linga á hverri deild og að reyna að lækna fólkið sem var þarna inni. Þórunn stóð þétt við bakið á honum í þessu og án hennar hefði þetta ekki verið hægt.“ Árið 1981 þegar geðdeildin var opnuð á Landspítala við Hringbraut bauðst Björk að færa sig þangað. Hún þáði það; aftur vegna þess að það hentaði henni sem fjölskyldu- konu. Nú voru börnin orðin eldri og auðvelt að koma sér með einum strætó í vinnuna. „Ég byrjaði 1. desember árið 1981 á göngudeild fyrir áfengissjúklinga og segi stundum að þá hafi ég dottið í brennivínið. Ekki í flöskuna eins og gefur að skilja heldur með því að sinna þeim sem háðu baráttu við Bakkus.“ Það er auðséð á tali Bjarkar að henni þótti vænt um skjólstæðinga sína og hefur dýpri skilning á alkó- hólisma en margir aðrir í samfélag- inu. „Ég kynntist fólkinu vel sem var á þeim tíma meira í áfengi en lyfjum eða dópi. Fólkið sem kom á deildina var búið að reyna allt sem það gat til að vera edrú. Það hafði prófað SÁÁ, farið í 12 spora samtök en hafði ekki náð sér á beinu brautina. Þannig að við vorum svolítið eins og síðari stoppistöðum. Í dag er búið að breyta þessu fyrirkomulagi þannig að göngudeild áfengis hefur verið sameinuð al- mennu göngudeildinni niðri sem sinnir almennri geðheilbrigðis- þjónustu. Hún er ekki lengur sjálf- stæð deild. Í starfi mínu kynntist ég einhverju af því besta fólki sem ég hef kynnst um ævina sem var með erfiðan sjúkdóm.“ Þeir sem kljást við alkóhólisma eru viðkvæmt fólk Hvað var það við þetta fólk sem var svona gott? „Þeir sem eru að kljást við alkó- hólisma eru svo viðkvæmt fólk. Í raun upplifði ég þá sem einstaklinga sem ættu erfitt með að horfast í augu við lífið. Þau misnotuðu vímu- efni, ekki vegna þess að þau vildu gera illa, heldur af því þau voru með þennan sjúkdóm sem þau höfðu ekki stjórn á. Margir af þeim sem höfðu ekki getað notað hefðbundin kerfi, eins og 12 sporin, grétu yfir að fá ekki lækningu sinna meina þar. Þau bara náðu ekki hugsuninni eða tengingunni þarna inn. Svo var annar hópur sem ég kynntist líka sem voru aðstandendur alkóhólistanna. Það var upplifun út af fyrir sig. Ég mætti oft aðstandendum sem komu með alkann sinn sem var bú- inn að brjóta öll samkomulög, þá virkaði stundum eins og aðstandend- urnir væru veikari en alkinn. Þegar ég var að reyna að benda þessu fólki á að alkóhólistinn væri veikur, urðu þau stundum reið og vildu kæra mig. Svo var það hópur kvenna sem ég fór að taka eftir sem voru öðruvísi aðstandendur. Konur sem voru ljúfar og góðar við alkann sinn og voru með allt annað viðhorf en þeir sem hálfpartinn sturtuðu fólki inn á deildina okkar. Þetta voru Al-Anon-konur, að- standendur alkóhólista sem höfðu nýtt sér hugmyndafræði Alcoholics Anonymous (AA). Þær töluðu um Varði dokt- orsritgerð- ina sína 78 ára að aldri Dr. Björk Guðjónsdóttir vann um árabil á Klepps- spítala og seinna á göngudeild áfengissjúkra. Hún segir að hver persóna sé verðmæt, hvort sem hún er með sjúkdóm eða ekki. Hún varði doktorsverkefni sitt 78 ára en ritgerðin fjallaði um kjarkinn til að breyta. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Dr. Björk Guðjóns- dóttir fjallaði um mót- un breyttrar sjálfs- myndar kvenna við langvarandi þátttöku í Al-Anon-fjölskyldu- samtökunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.