Morgunblaðið - 15.01.2021, Side 22
A
nna Dóra hefur sérhæft
sig meðal annars í nálgun
núvitundar og samkennd-
ar. Hún rekur eigin sál-
fræðistofu; Núvitundar-
setrið, ásamt öðrum fagaðilum sem
hafa sérhæft sig í þessum nálgunum.
Að hennar sögn er lögð mikil áhersla
á að bjóða einungis upp á vísindalega
rannsökuð og gagnreynd námskeið.
Anna Dóra segir að það hafi reynst
mörgum vel að fara fyrst á grunnnám-
skeið í núvitund og svo á samkenndar-
námskeið í framhaldinu. Sú leið hefur
gert þátttakendum kleift að þjálfast
fyrst í að læra að beita athyglinni með-
vitað, virkja skynfærin, kyrra hugann
og sjá hluti skýrar innra með sér þar
sem fjallað er um hugsanir, tilfinning-
ar, hvatir og líkamskenndir á grunn-
námskeiðinu í núvitund. Svo sé áhug-
vert að dýpka þekkinguna ennþá
meira á samkenndarnámskeiði þar
sem þátttakendur öðlast færni í að sjá
hlutina í stærra samhengi, taka eftir
þessu sammannlega í okkar upplifun-
um og mýkja og milda viðhorf í eigin
garð og annarra.
„Í stuttu máli má segja að hugar-
þjálfun í núvitund og samkennd skýri
hugann og mýki og hlýi hjartanu. Nú-
vitundar- og samkenndarnámskeiðin
eru einnig mjög hagnýt að því leytinu
til að þau byggjast á reynslunámi
þannig að fólki gefst kostur á að læra
þessar aðferðir á eigin skinni í stað
þess að læra þær bara hugrænt.“
Anna Dóra segir að það sé ánægju-
legt að fyrirtæki og stofnanir hafi
sýnt þessum námskeiðum aukinn
áhuga undanfarin ár.
„Þau hafa óskað eftir þessum nám-
skeiðum eða styttri vinnustofum eða
fyrirlestrum um núvitund fyrir
starfsmenn sína til að auka vellíðan
og hugarró þeirra og stemma þannig
stigu við streitu daglegs lífs.
Sum fyrirtæki bjóða meðal annars
upp á reglulegar núvitundarstundir
fyrir starfsmenn sína sem fagaðili
Núvitundarsetursins leiðir. Eitt af
ástríðuverkefnum Núvitundarseturs-
ins er að innleiða núvitund í mennta-
kerfið í samræmi við lýðheilsustefn-
una. Eftir að starfsmenn
Laugarnesskóla höfðu lokið hefð-
bundnu núvitundarnámskeiði árið
2019 þá lýsti Sigríður Heiða Braga-
dóttir, skólastjóri Laugarnesskóla,
því að þeir starfsmenn sem tóku þátt
voru mjög ánægðir og töluðu um að
æfingarnar sem voru kenndar á nám-
skeiðinu hefðu haft jákvæð áhrif á
vellíðan þeirra og dregið úr streitu.
Æfingarnar kenndu starfsmönnum
líka hvernig þeir gætu öðlast meiri
hugarró og að njóta betur líðandi
stundar.“
Heilbrigði hefur áhrif á vellíðan
Anna Dóra kennir jafnframt núvit-
und í Endurmenntun Háskóla Ís-
lands. Ein af þeim námsbrautum sem
hún kennir þar heitir „Hugur og heil-
brigði“.
„Sú námsbraut er áhugaverð að
mörgu leyti þar sem lagt er upp með
heildræna nálgun til að efla andlega
og líkamlega líðan. Námsbrautin fel-
ur í sér kennslu í þremur megin-
færniþáttum sem hafa með núvitund,
næringu og hugmyndafræðina ACT
(Acceptance Commitment Therapy)
að gera. Ég sé um núvitundar-
þjálfunina, þar sem lögð er áhersla á
að þjálfa athyglina, kyrra hugann,
virkja skynfærin, auka sjálfsþekk-
ingu og skýrleika í hugsun. Að leyfa
innri visku að birtast í því hvernig við
bregðumst meðvitað við í aðstæðum í
stað þess að bregðast ósjálfrátt við,
eins og af gömlum vana. Það gefur
okkur tækifæri til að vanda okkur
eins mikið og við getum í lífinu. Okkar
helstu sérfræðingar á landinu í nær-
ingarfræði og hugmyndafræði ACT
(e. Acceptance Commitment The-
rapy) kenna síðan hina tvo hlutina.
Birna G. Ásmundsdóttir næring-
arfræðingur kennir allt um fæði,
næringu, hollustu, mikilvægi heil-
brigðrar meltingar og hlutverk þar-
maflórunnar. Það hvernig við nær-
umst hefur heilmikil áhrif á andlega
og líkamlega líðan og því mikilvægt
að taka upplýstar og meðvitaðar
ákvarðanir um hvernig við nærum
okkur. Rúnar Helgi Andrason, sál-
fræðingur og sérfræðingur í klínískri
sálfræði, kennir síðan um hugmynda-
fræði ACT (e. Acceptance Commit-
ment Therapy). Kjarninn í þeirri
nálgun er að við göngumst við þáttum
í lífinu sem við höfum ekki stjórn á en
tökum um leið meðvitaða ákvörðun
um að framkvæma það sem eykur
lífsgæði okkar. Markmiðið er að
auðga líf okkar og gera það innihalds-
ríkara. Læra einnig leiðir til að takast
á við þær áskoranir sem verða á veg-
inum. Að sögn Önnu Dóru hefur þessi
námsbraut gagnast fólki mjög vel og
stutt það í að gera þær breytingar á
sínu lífi sem eru í samræmi við lífs-
gildi þess, enda spannar námið
nokkra mánuði í stað nokkurra vikna
sem gerir þeim kleift að festa þessar
nýju daglegu venjur betur í sessi.
Fyrirhugað er að bjóða upp á þetta
nám á vorönn 2021, en það hefst 26.
janúar og verður haldið sem fjarnám
til að gera öllum á landinu kleift að
taka þátt.“
Aukin andleg vanlíðan í faraldrinum
Aðspurð segir Anna Dóra að hún
og kollegar hennar á Núvitundar-
setrinu hafi tekið eftir aukinni and-
legri vanlíðan hjá skjólstæðingum
sínum þegar leið á síðasta ár, sér-
staklega í kjölfar þriðju bylgju kór-
ónuveirufaraldursins.
„Það var mikilvægt að stilla vænt-
ingar af í sjálfsvinnu og fyrir suma
var það í raun mikill sigur að halda
andlegri líðan stöðugri.“
Anna Dóra segist upplifa það að
aldrei hafi reynt eins mikið á sam-
félagslegan stuðning og nú, þar sem
ástæður fólks til að leita sér hjálpar
hafi verið í auknum mæli andleg van-
líðan út af afkomuótta og atvinnu-
óöryggi. Fólk hafi upplifað sig oft ein-
mana og vonlaust í þessum óvissu-
aðstæðum og þurft á andlegum
stuðningi að halda en hafi jafnvel ekki
haft efni á sálfræðimeðferð og verið
því að „leyfa sér“ einn og einn sál-
fræðitíma hér og þar en hefði í raun
þurft mun meiri stuðning. Að hennar
sögn hefur þessi reynsla enn betur
sýnt fram á mikilvægi þess að huga
að andlegri líðan landsmanna og hún
segist vona innilega að fjárlög fylgi
frumvarpinu um að sálfræðimeðferð
falli undir greiðsluþátttökukerfi
Sjúkratrygginga, sem var samþykkt
á síðasta ári.
„Ég veit um fjölmörg dæmi þess að
einstaklingar sem hafa haft kost á
sálfræðimeðferð hafa nýtt þessa
áskorun, sem heimsfaraldurinn er,
sem tækifæri í sjálfsvinnu og per-
sónulegum þroska. Þeir einstaklingar
hafa náð virkilega miklum árangri og
mögulega meiri árangri en venjulega
út af aðstæðum.
Það er svo merkilegt með okkur
mannfólkið hvað við erum þrautseig
og eflumst sem aldrei fyrr á erfiðum
tímum. Því er þessi tími alveg tilval-
inn til sjálfsvinnu, aukinnar sjálf-
þekkingar og að efla þessi bjargráð
sem við búum yfir en sem við vitum
„Þetta hefur
verið erfiður tími
fyrir marga“
Anna Dóra Frostadóttir sálfræð-
ingur og sérfræðingur í klínískri
sálfræði segir mikilvægt að læra
að lifa í augnablikinu.
Þjálfun í núvitund og samkennd skýrir hugann að sögn Önnu Dóru Frostadóttur,
sálfræðings og sérfræðings í klínískri sálfræði. Hún segir okkur mannfólkið gerð til
að lifa af í stað þess að vera gerð fyrir að vera hamingjusöm alltaf.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Jon Kabat-Zinn hugleiddi með 2.500 manns í Hörpunni á sínum tíma.
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. JANÚAR 2021
EIN STÓR
FJÖLSKYLDA
Hver einasti meðlimur Colgate-fjölskyldunnar
finnur tannbursta, tannkrem og aðrar tannhirðu-
vörur við sitt hæfi.Velkomin í fjölskylduna!