Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.01.2021, Síða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.01.2021, Síða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.1. 2021 Eftir óvenjuróleg jól og áramót,svona að undanskildumsprengingum og svif- ryksmengun, heilsuðu landsmenn nýju ári fremur frískir og virtust ekki hafa lent í sams konar smit- bylgju og víða gætti erlendis. Áhorf á Áramótaskaup Ríkissjón- varpsins reyndist hafa verið í hæstu hæðum, en 77% landsmanna horfðu á það á gamlárskvöld. Það var líka óvenjulegt fyrir þær sakir að lands- menn virtust á einu máli um að það hefði verið fyndið og vel heppnað. Áhyggjur kviknuðu um dræma öflun bóluefna til landsins, að einhverju leyti vegna svifaseinna skriffinna Evrópusambandsins sem Íslend- ingar hengdu sig á í þeim efnum. Bjarni Benediktsson fjár- málaráðherra taldi að bráðaleyfi Lyfjastofnunar Íslands vegna nýrra bóluefna kæmi til greina fremur en að bíða stimpils frá Evrópu. Þórólfur Guðnason sóttvarnalækn- ir efaðist hins vegar um að nauðsyn- leg sérfræðiþekking fyrirfyndist í landinu til þess að veita slík bráða- leyfi fyrir bóluefnum. Fram hafa komið sjónarmið um að fylgja megi leyfisveitingum í öðrum löndum með viðurkennt lyfjaeftirlit, t.d. Bretlandi eða Bandaríkjunum. Brúnin lyftist aðeins á ferðaþjón- ustunni þar sem hreyfing væri kom- in á bókanir fyrir sumarið. Eftir sem áður myndi það velta mjög á bólu- setningu og breytingu á hömlum við komu til landsins. Í Múlaþingi var tekið að ræða að- gerðir á Seyðisfirði til þess að verja byggðina þar fyrir frekari skriðu- hlaupum, bæði bráðaaðgerðir og aðr- ar til frekari framtíðar. Björn Ingi- marsson sveitarstjóri kvaðst vænta jákvæðra viðbragða stjórnvalda líkt og ráðamenn hefðu gefið til kynna. Kársnesskóli í Kópavogi var jafn- aður við jörðu vegna myglu, en ekki þótti svara kostnaði að lappa upp á húsið. Ný skólabygging mun rísa í stað þeirrar gömlu. Lögregla gerði enn athugasemdir við mannfjölda við messu í Landa- koti og hafði afskipti af messu þar. Á hinn bóginn hefur hún ekki skakkað leikinn á fjölmennum tónleikum á vegum Reykjavíkurborgar eða ítrek- uð sóttvarnabrot í heitum pottum sundlauga hennar, sem fjölmiðlar hafa greint frá. Háðfuglinn Ari Eldjárn hlaut ís- lensku bjartsýnisverðlaunin. Hann kvaðst hafa átt á dauða sínum von.    Tilkynnt var um andlát fjögurra aldraðra, sem fengið höfðu bólusetn- ingu við kórónuveirunni. Sérfræð- ingar töldu ekkert orsakasamhengi þar á milli og minntu á að dánartíðni háaldraðs fólks væri há. Kennsla hófst í framhaldsskólum á ný eftir nokkurt hlé. Þeir reyndust mjög misvel undir það búnir, en eins var upp og ofan hversu vel vor glaða æska fór að fjarlægðarreglum, banni við hópamyndun og geðblöndun. Sem aftur vakti spurningar um feykilega strangar fjöldatakmark- anir í þjóðfélaginu, nema hinu op- inbera hentaði annað. Ársuppgjörin sópuðust inn, en þar kom meðal annars á daginn að fjór- um milljónum fleiri áfengislítrar seldust í vínbúðum ÁTVR árið 2020 en árið á undan, nær fimmtungi meira. Ástæðan vafalaust sú að fáir áttu leið um Fríhöfnina í Leifsstöð og veitingahús og knæpur sættu mikl- um lokunum á árinu, svo fólk svalaði þorstanum í auknum mæli heima fyrir. Íslendingar hertu þó ekki aðeins heimadrykkju á síðasta ári. Kaup- höllin kynnti að tvöfalt fleiri ein- staklingar hefðu átt í hlutabréfa- viðskiptum á liðnu ári en árið á undan. Að sögn björgunarsveitanna gekk flugeldasala ágætlega fyrir sig í að- draganda áramóta, þó ekki væri upp- gefið hvað selst hefði eða hvað þær hefðu haft upp úr krafsinu. Kaþólska kirkjan aflýsti öllum sunnudagsmessum og kvöldmessum á laugardögum til þess að bregðast við brotum á fjöldatakmörknum. Davíð Tencer biskup sagði það óljúfa lausn og furðaði sig á því að í stórri kirkju mættu ekki koma nema tíu saman, færri en sitja mættu sam- an á þröngri þóftu í gufuböðum, svo dæmi væri tekið.    Þrátt fyrir ótal yfirlýsingar Svandís- ar Svavarsdóttur heilbrigðis- ráðherra um að svo og svo mikið af bóluefni hefði verið tryggt landslýð til handa og heilbrigðis, liggur færra fyrir um hvenær það berist til lands- ims. Miðað við tilkynningarnar geta aðeins 8% landsmanna vænst þess að vera bólusett á fyrsta ársfjórðungi 2021 og ekkert í hendi um hvað síðar verður þó ráðuneytið voni að bólu- efni berast örar og í meiri mæli er líður á árið. Greint var frá því að vænta mætti 5.000 skammta af bóluefni Moderna til landsins fyrir febrúarlok. Fyrsta sendingin, með 1.000 skömmtun, er boðuð á næstunni. Vinnumálastofnun tók saman að aldrei hefðu verið fleiri fjölda- uppsagnir en á liðnu ári. Þær voru 141 talsins, þar sem 8.789 manns misstu vinnuna. Nýtt afbrigði kórónuveirunnar vekur ugg, þar sem það er talið smitgjarnara en hin fyrri og að það leggist auk þess í meiri mæli á börn. Hins vegar bendir ekkert til þess að það valdi meiri veikindum og sam- kvæmt fyrstu rannsókn duga bólu- efnin jafnvel á það og hin. Skipulagsstofnun leggst gegn Svartárvirkjun í Bárðardal, þar sem umhverfisáhrif þess í heild yrðu verulega neikvæð. Það gengur þvert gegn niðurstöðu umhverfismats ráð- gjafa SSB orku, sem áformar að virkja. Tilraun Strengs til yfirtöku í Skelj- ungi virtist hafa mistekist, þegar að- eins var tekið tilboðum í 2,54% hlutafjár félagsins. Lífeyrissjóðir vildu ekki selja sinn hlut, töldu til- boðsverðið lágt og gast mátulega að fyrirætlunum Strengs með félagið. Næstu daga keypti Strengur hins vegar slatta til viðbótar og eignaðist þannig meira en helming í félaginu.    Vestur í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, bar það til tíðinda að múgur stuðningsmanna Donalds Trump Bandaríkjaforseta réðst inn í þinghúsið, olli þar nokkrum skemmdum og truflaði þingstörf. Í nýrri skýrslu Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra um utanríkisviðskiptastefnu Íslands kom fram það sjónarmið að Íslend- ingar yrðu að líta lengra en til Evr- ópu um viðskipti. Sá markaður færi hlutfallslega minnkandi en ógnarstór miðstétt að myndast í Asíu, ákjósan- legir kaupendur íslenskrar vöru og þjónustu. Þá var dregið fram að möguleg Evrópusambandsaðild drægi úr fríverslun og myndi hækka vöruverð, en einnig að Bandaríkja- dalur væri helsta viðskiptamynt Ís- lendinga ef einhver vildi ræða gjald- miðilsskipti af alvöru. Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir auknar líkur á miklu atvinnuleysi á vori komanda, sem dragast muni á lang- inn ef bið verður áfram eftir bóluefni. Sveitarstjórn Múlaþings bannaði endurbyggingar á því svæði Seyð- isfjarðar sem harðast fór út úr skriðuföllunum á dögunum. Þær verða ekki heimilaðar nema að und- angengnu nýju hættumati og bættum vörnum. Flugfélagið Atlanta náði því afreki á liðnu ári að vera rekið með hagnaði. Það er ekki algengt í flugbransanum þessi misserin. Bókanir skemmtiferðaskipa til landsins hafa verið viðunandi, en hins vegar eru afboðanir teknar að berast, þar sem menn óttast að heimsfarald- urinn dragist enn á langinn. Mikil uppbygging hefur verið á Suð- urlandi og Vestmannaeyjum, hvað sem líður plágunni. Mikil eftirspurn er eftir íbúðarhúsnæði, bæði vegna atvinnulífs á staðnum og eins þeirra sem kjósa rólegra og öruggara um- hverfi, oft þeirra sem unnið geta heima. Þar er fyrst og fremst um ungt fólk að ræða. Ný landfylling er áformuð við Kletta- garða í Sundahöfn, en þar við Sundin blá á að koma fyrir skólphreinsistöð. Bóksala jókst mikið um frá fyrra ári. Jólabókasalan var ágæt, en einnig hefur sala á bókum og öðru afþrey- ingarefni aukist mikið í heimsfaraldr- inum. Maður var dæmdur til 1,3 milljóna króna sektar í héraðsdómi Reykja- ness fyrir 12 umferðarlagabrot af ýmsu tagi.    Þrátt fyrir að veturinn hafi enn sem komið er ekki verið ýkjaharður, mikil úrkoma en lítill snjór, þá er meiri haf- ís nú en allra síðustu ár og aðeins 23 sjómílur norður af Hornströndum. Ekki er ljóst hvort hnattrænni hlýn- un er um að kenna. Ýmis fyrirtæki í flutningum, dreif- ingu og póstþjónustu ætla í hart við Íslandspóst, sem þau telja hafa farið fram með ólögmætum hætti, og Póst- og fjarskiptastofnun, sem þau saka um sórkostlegt sinnuleysi í eftirlits- hlutverki sínu gagnvart Póstinum. Gert er ráð fyrir atkvæðatalningu í hverju sveitarfélagi í frumvarpi Steingríms J. Sigfússonar, forseta Alþingis, til kosningalaga. Það telur Þorkell Helgason stærðfræðingur varhugavert og segir kosningaleynd hættu búna af því í smærri sveit- arfélögum. Hrun hefur orðið í sölu íslensks nef- tóbaks á liðnu ári, en hún hefur nær helmingast milli ára. Hins vegar sækja ungmenni meira í niktótínpúða en fyrr. Og aldrei það komi til baka Að venju var margt um manninn við Hallgrímskirkju um áramótin og gerði lög- reglan athugasemdir við hópamyndun. Vel viðraði til loftárása eða kannski frem- ur til flugeldaskota, en veðrið var síður til þess fallið að losna við reykjarkófið. Morgunblaðið/Árni Sæberg 3.1.-8.1. Andrés Magnússon andres@mbl.is Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.