Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.01.2021, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.1. 2021
LÍFSSTÍLL
VE
FV
ER
SL
UN
ww
w.b
etr
aba
k.is
OP
IN
AL
LA
N
SÓ
LA
RH
RI
NG
IN
N
OPNUNARTÍMI
einstakra verslana sjá
www.betrabak.is
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
KRINGLUNNI
Reykjavík
820 6015
2 020 var heimili ekki bara einhver klénn griða-staður heldur vinnustaður, fjarfundastaður, skóli,leikskóli, íþróttasalur, snyrtistofa, skemmtistaður,
hárgreiðslustofa, heimaspa og mötuneyti svo eitthvað sé
upp talið.
Þegar heimilið verður miðpunktur alls breytast þarf-
irnar. Fólk flutti í stórum stíl 2020 því það kom í ljós að
heimilið var kannski ekki eins vel heppnað þegar á
reyndi. Sparistofa vék fyrir leikfimiaðstöðu og heima-
skrifstofan þurfti að gera
gagn. Fólk flutti vegna fjöl-
margra ástæðna en eitt af
því var að lán voru með hag-
stæðari vöxum en áður og
einhverjir ákváðu að hoppa
upp á skuldavagninn í von
um betra líf.
Þeir sem fluttu ekki hóf-
ust handa við að breyta og
bæta, færa til húsgögn og
fegra þetta stórbrotna virki
sem þeir höfðu komið sér
upp. Enda besta vörnin gegn
veirunni að halda sig inni á
heimilinu og hitta helst ekki
neinn.
En hvað var það sem fólk
var að gera inni á heimilinu á
árinu annað en að flytja lög-
heimili sitt inn í ísskáp?
Jú, fólk málaði og málaði.
Grágrænir tónar voru vinsælir og svo fengu
hlýir jarðlitir að vera með. Brúnbleikur og
brúnleitir tónar fengu hljómgrunn hjá þeim
allra smörtustu. IVAR-skáparnir úr IKEA
seldust eins og enginn væri morgundagurinn
og voru þeir oft og tíðum málaðir í sama lit og
veggirnir. Fólk var líka svolítið í því að mála
opnar hillur og kaupa gömul húsgögn á Bland eða Face-
book til að gera upp. Marmarinn varð afar vinsæll og
þeir sem gerðu upp eldhús létu gjarnan setja marm-
araborðplötu í eldhúsið.
Svo voru það pottaplönturnar sem urðu einn heitasti
tískustraumur ársins. Plöntur hafa marga góða kosti.
Þær auka til dæmis loftgæði heimilisins, fegra það og
svo var auðveldara að halda í þeim lífi þegar enginn var í
útlöndum. Fólk sem leiddist mjög mikið í vinnunni gat
umpottað á daginn, sem það hefði aldrei nennt að gera í
venjulegu árferði. Vandamálið er bara að það er ekki
nóg að vökva bara plönturnar. Þær þurfa að vera rétt
staðsettar því plöntur eru lifandi – ekki dauðir hlutir. Á
árinu blómstruðu lokaðir facebookhópar sem snerust um
að halda lífi í pottaplöntum.
Andi áttunda áratugarins sveif yfir vötnum 2020 og
panillinn fékk uppreist æru. Allir sem voru búnir að
sprautulakka panilklæddu veggina heima hjá sér eru nú
komnir í net-þerapíu til þess að koma í veg fyrir að
stranda aftur í lífinu vegna lélegra ákvarðana og glataðs
smekks.
Svo var það svarta matta lakkið
sem hélt áfram að vera vinsælt. Fólk
málaði heilu innréttingarnar á meðan
það átti að vera á fjarfundum. Sumir
skráðu sig inn og „mjútuðu“ svo ekki
myndi harðna í penslinum. Milli þess
sem það málaði innréttingar lét það
gera göt í innréttinguna til að koma
fyrir vínkæli – enda lágmarksmann-
réttindi að geta hellt í sig
vínanda í réttu hitastigi því
heimilið var ekki bara
heimili heldur líka varð líka
skemmtistaður.
Fólk valdi bestu sjónar-
horn heimilisins fyrir fjart-
íin og fjarfundina því 2020
var öllum boðið heim í
gegnum tölvuskjáinn.
Svo voru það glugga-
tjöldin. Eftir langa tíð
strimlagluggatjalda og hálf-
gegnsærra rúllugardína
(sem reyndar sést alveg í
gegnum) tóku hótelgard-
ínur við keflinu sem vinsæl-
asta gluggatjaldaefni árs-
ins. 2020 var enginn maður
með mönnum nema vera með „New Wave“-rykkingu á
gluggatjöldunum.
Þegar upp er staðið var 2020 gott heimilisár þar sem
fólk áttaði sig á mikilvægi þess að hafa sómasamlegt í
kringum sig. Stærsta áskorunin var kannski einna helst
að halda heimilinu hreinu því það tekur á að vera í sama
rýminu sólarhring eftir sólarhring. Svo ekki sé minnst á
alla vinnuna við það að spritta snertifleti og vera ekki
með puttana úti um allt. Það eina sem ekki mátti var að
drekka handsprittið, þótt það stæði tæpt á sumum heim-
ilum, en það er önnur saga!
Rut Káradóttir innanhússarkitekt og eiginmaður hennar, Kristinn Arnarson,
gerðu upp fallegar íbúðir í Hveragerði en þar ráða mjúkir litir ríkjum.
Fólk málaði í hlýjum jarðlitum. Hér
má sjá baðherbergi Sæbjargar Guð-
jónsdóttur innanhússhönnuðar.
Ljósmynd/Guðfinna Magnúsdóttir
Plöntuæði greip landsmenn á
árinu 2020. Plöntur fegra
heimilið og auka loftgæði þess.
2020 – þegar heimilið
varð miðpunktur alls
2020 byrjaði óskaplega vel. Janúar var hefðbundinn og febrúar líka en svo
fór að síga á ógæfuhliðina þegar veiran fór að gera heimsbyggðinni lífið að-
eins leiðara en vanalega. Svona eftir á að hyggja var 2020 árið þar sem heim-
ilið var miðpunktur alheimsins, hvort sem fólki líkaði betur eða verr.
Marta María mm@mbl.is
Heimaskrif-
stofur í öllum
myndum rudd-
ust inn í tilveru
fólks 2020. Ein-
hverjir voru
komnir með
bakverk vegna
slæmra stellinga
í heimavinnunni.