Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.01.2021, Blaðsíða 6
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.1. 2021
Í þinghúsi Bandaríkjanna stendur maðurmeð horn. Hann er ber að ofan og meðandlitsmálningu í bandarísku fánalit-
unum. Hann virðist hafa týnt skiltinu sem
hann er venjulega með um að Q hafi sent
hann en virðist að öðru leyti vera frekar létt-
ur. Það er ekki annað að sjá en þetta sé góð-
ur dagur hjá okkar manni.
Það er eitthvað stórkostlega órökrétt við
þetta, í ljósi þess að hann stendur í púlti
bandaríska þingsins sem er nánast heilagur
staður í bandarísku samfélagi. Samt er þetta
eins og hið fullkomna púsl í fullkomlega fá-
ránlegu verki sem hefur verið að myndast
síðustu árin og er vonandi að lokum komið.
Það verður þó að teljast afskaplega ólíklegt.
Fyrir utan þinghúsið er maður að stilla sér
upp fyrir myndatöku þar sem hann lýsir því
að þessir andskotans lögreglumenn hafi
sprautað á hann piparúða og slegið hann í
bakið og hausinn fyrir það eitt að hafa ráðist
inn í bandaríska þinghúsið. Það er ekki að
sjá að það sé neitt að honum – líkamlega. Við
hlið hans stendur maður sem öskrar af öllum
lífs og sálar kröftum að borgarstjórinn
standi á bak við þetta og hann sé demókrati
á launum hjá kínverskum stjórnvöldum.
Sextugur maður stendur fyrir framan
þingið með umslag frá Nancy Pelosi, forseta
þingsins. Hann er ber að ofan í jan-
úarnepjunni. Hann segir hverjum sem heyra
vill að hann hafi átt fullan rétt á að fara inn
á skrifstofuna hennar, setja fæturna upp á
borð og taka það sem hann vildi. Enda sé
hann búinn að borga fyrir þetta allt saman.
Sólbrúnn og sællegur maður með Trump-
húfu er á leið út úr bandaríska þinginu.
Hann er glaður á svip því hann hefur náð sér
í svo ljómandi skemmtilegan minjagrip:
Ræðupúlt. Hann röltir með það um sali
þingsins og gefur sér tíma til að sitja fyrir á
mynd. Eins og ekkert í heiminum sé eði-
legra.
Við fylgdumst öll með þessu gerast í
beinni útsendingu. Hvernig fólk upplifði að
það væri sjálfsagður réttur þess að gera
það sem það sem því dytti í hug af því að
kosningarnar fóru ekki eins og það vildi.
Þetta er í raun stórmerkilegt. Þarna
sjáum við hvað gerist þegar fólk hafnar
hlutum sem við höfum vanist. Hlutum á
borð við og lög og reglu. Nú hafa þegar
verið lögð rúmlega sextíu mál um svik í
forsetakosningunum fyrir dómstóla, víða
um landið. Þeim hefur öllum verið hafnað.
Mörgum þeirra af dómurum sem Trump
hefur sjálfur skipað. Samt gefst hann ekki
upp, heldur því fram að kosningunum hafi
verið stolið og allt fari beina leið til helvít-
is fái hann ekki fjögur ár í viðbót.
Það dapurlega er að þetta á ekki að
koma okkur á
óvart. Hugtök
eins og stað-
reyndir eru
varla til leng-
ur. Við höfum
stóra hópa
fólks sem
halda því fram
að jörðin sé
flöt, að bólu-
efni sé fullt af
5G-sendum og
róbotum og allt þetta líf sé eitt allsherjar
samsæri. Fyrir utan að allt bandaríska
stjórnkerfið sé í raun leynileg samtök
barnaníðinga. Ég hef oft talað um að við
eigum ekki að afneita fólki heldur reyna
að tala við það og rökræða. En ég bara
veit það ekki …
Það sem er þó furðulegast við þetta er
að kórstjórinn í þessu er maður sem hefur
verið kallaður leiðtogi hins frjálsa heims;
forseti Bandaríkjanna. Hann neitar að gef-
ast upp þótt engin rök séu sjáanleg. Hon-
um finnst eðlilegt að siga fólki á þingið og
koma í veg fyrir að lýðræði hafi sinn gang.
Svo mætir hann bara daginn eftir að
segir: Jæja þetta var nú meira ruglið. Og
þið eruð öll að fara í grjótið.
Eins og stundum er sagt í þessu landi:
You can’t make this shit up!
’Hann segir hverjum semheyra vill að hann hafi áttfullan rétt á að fara inn á skrif-stofuna hennar, setja fæturna
upp á borð og taka það sem hann
vildi. Enda sé hann búinn að
borga fyrir þetta allt saman.
Á meðan ég man
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Maður með horn
Ronald Reagan sór embættiseiðsem forseti Bandaríkjannafyrir sléttum 40 árum, hinn
20. janúar 1981. Í innsetningarræðu
sinni nefndi Reagan að Bandaríkja-
mönnum þætti sjálfsagt að á nokk-
urra ára fresti færu fram friðsamleg
valdaskipti í landinu. Hann benti á að
fáir veltu fyrir sér hve einstakt þetta
væri, en að frá sjónarhóli margra
annarra þjóða væri slíkt fyrirkomu-
lag hreint kraftaverk.
Þessi orð Reagans fengu aukna
merkingu í vikunni þegar stjórnlaus
hópur hélt beint af stuðningsmanna-
fundi Trumps forseta, gekk þaðan að
þinghúsi Bandaríkjanna og réðst þar
til inngöngu í því skyni að stöðva
þingið í því verkefni að staðfesta kjör
Bidens.
Vonbrigði
Þó að fáein dæmi séu um byssu- og
sprengjutilræði í þinghúsinu hefur
ekki verið ráðist þar til inngöngu í
næstum tvö hundruð ár eða síðan
1814, þegar bresk-
ir hermenn gerðu
þar atlögu og
lögðu eld að bygg-
ingunni. Þá áttu
Bandaríkjamenn
og Bretar í stríði.
Nú hefur það
gerst í fyrsta sinn
að bandarískir
borgarar gera inn-
rás í eigið þinghús.
Þetta var sögulegur og ótrúlegur
atburður sem sýnir að þrátt fyrir
tveggja alda hefð eru friðsamleg
valdaskipti ekki eins sjálfsögð og okk-
ur hættir til að halda, heldur þvert á
móti kraftaverk sem gengur þvert
gegn því sem lengi var álitið innsta
eðli valds – nefnilega, að enginn léti
það ótilneyddur af hendi.
Það eru öllum unnendum frelsis og
lýðræðis sár vonbrigði að slíkur at-
burður skuli eiga sér stað í landi sem
hefur á sínum bestu stundum verið
helsti kyndilberi þeirra gilda í heim-
inum.
Ekki síður tengsl sjálfs forsetans
við slíkan atburð, en erfitt er að færa
rök fyrir að hann beri ekki á honum
neina ábyrgð með herskáu orðfæri
sínu.
Fordæmingarlaust
Fyrstu viðbrögð forsetans voru raun-
ar næstum því jafn söguleg og at-
burðurinn sjálfur. Eftir innrásina,
sem hafði þá þegar kostað fólk lífið,
birti hann myndband þar sem hann
lét algerlega hjá líða að fordæma at-
burðinn heldur talaði þvert á móti
hlýlega til mótmælenda („We love
you“) og hafði ekki fyrir því að und-
anskilja þá sem harðast gengu fram.
Það er auðvitað með ólíkindum. For-
dæmingin kom loks í öðru mynd-
bandi, rúmum sólarhring eftir árás-
ina. En fyrstu viðbrögðin sitja eftir og
gleymast ábyggilega seint.
Þessir sögulegu atburðir vekja
margar spurningar í stóru sem smáu
samhengi. Um sjálfa innrásina,
hvernig hún gat átt sér stað, hvernig
það gat gerst að ónógar varnir væru
fyrir hendi, sem verður vafalaust
rannsakað, og um þá linkind sem
mótmælendum virðist hafa verið
sýnd, ekki síst í samanburði við önnur
mótmæli í landinu á undanförnum
mánuðum. Um framtíð Repúblikana-
flokksins. Um gjána á milli ólíkra
hópa í bandarísku samfélagi, orsakir
hennar og hvort hún gliðnar enn á
komandi árum eða gengur saman.
Um forystuhlutverk Bandaríkjanna í
heiminum. Um uppgang popúlískra
öfgahreyfinga af ýmsu tagi hérna
megin Atlantshafs. Um upplýsinga-
óreiðu og hvernig bæði fjölmiðlar og
samfélagsmiðlar eiga að bregðast við
henni.
Ég heimsótti Washington-borg í
maí 2017, nokkrum mánuðum eftir að
Trump sór embættiseið, og hitti þar
marga sem lifa og hrærast í stjórn-
málum og hafa það
að atvinnu að
greina stöðu og
horfur. Eftir-
minnilegt er hve
furðu lostnir þeir
voru yfir kjöri
Trumps og sáu
ekkert nema
óvissu fram undan.
Svo virtist sem öll
hefðbundin lögmál hefðu verið numin
úr gildi. Enginn spáði því þó upphátt
að kjörtímabili hans myndi ljúka með
þeim hætti sem nú hefur orðið raun-
in.
Slagorð sem á vel við
Ronald Reagan átti sem kunnugt er
rætur í „show business“, sem var
stundum haft til marks um að ekki
þyrfti að taka hann alvarlega sem
stjórnmálamann. Sú gagnrýni hefur
elst illa. Reagan er sá forseti sem not-
ið hefur hvað mestra vinsælda allra
Bandaríkjaforseta við lok valdatíma
síns. Í seinni tíma skoðanakönnunum
hefur hann líka iðulega verið hátt
skrifaður, sérstaklega meðal almenn-
ings en líka hjá sérfræðingum í sögu
og stjórnmálum.
Hvað sem segja má um Trump hef-
ur bakgrunnur hans í „show busi-
ness“ ekki dregið úr nauðsyn þess að
taka hann alvarlega sem stjórnmála-
mann, þó að það sé ekki af þeim
ástæðum sem flestir telja eftirsókn-
arvert.
Forsetar Bandaríkjanna eiga það
flestir sameiginlegt að hafa lagt
metnað í að stíga af sviðinu með
sæmd þegar hlutverki þeirra er lokið.
Öldungadeildarþingmaðurinn Corey
Booker sagði einmitt í umræðum eft-
ir óeirðirnar að þær væru afleiðing
þess þegar persónudýrkun keyrir úr
hófi fram. En í lýðræðisríki er enginn
stærri en það hlutverk sem hann
gegnir. Um Trump munu eftirmælin
líklega verða þau að hann hafi ekki
verið nógu stór í hlutverkið.
Fjögurra ára valdatíð hans er nú
senn á enda. Það er kaldhæðnislegt
að slagorð hans um nauðsyn þess að
gera Bandaríkin aftur stórkostleg
hefur sjaldan átt eins vel við.
Söguleg innrás
Úr ólíkum
áttum
Þórdís Kolbrún R.
Gylfadóttir
thordiskolbrun@anr.is
’Það eru öllum unn-endum frelsis og lýð-ræðis sár vonbrigði aðslíkur atburður skuli eiga
sér stað í landi sem hefur
á sínum bestu stundum
verið helsti kyndilberi
þeirra gilda í heiminum.
Greinarhöfundur við Hvíta húsið
í maí 2017, nokkrum mánuðum
eftir embættistöku Trumps.
TISSOTWATCHES .COM
TISSOT, INNOVATORS BY TRADITION
SKARTGRIPIR&ÚR
SÍÐAN 1923
Bankastræti 12 | Sími 551 4007 | skartgripirogur.is
#ThisIsYourTime