Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.01.2021, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10.1. 2021
08.00 Blíða og Blær
08.20 Mæja býfluga
08.30 Mia og ég
08.55 Latibær
09.20 Lukku láki
09.40 Ævintýri Tinna
10.05 Strumparnir
10.25 Greppikló
10.55 Adda klóka
11.15 Zigby
11.30 Lína langsokkur
12.00 Nágrannar
12.20 Nágrannar
12.45 Nágrannar
13.05 Nágrannar
13.30 Nágrannar
13.50 Hell’s Kitchen USA
14.35 MasterChef Junior
15.20 Masterchef UK
16.20 Friends
16.50 60 Minutes
17.35 Víglínan
18.26 Vedur
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.40 Sportpakkinn
18.50 Ísland í dag
19.05 Tónlistarmennirnir okk-
ar
19.30 The Great British Bake
Off
20.40 Years and Years
21.45 Two Weeks to Live
22.15 Briarpatch
23.00 City Life to Country Life
23.45 Ice On Fire
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
20.00 Sögur frá Grænlndi
þáttur – 8
20.30 Þegar – Helga Sigríður
Sigurðardóttir
21.00 Tónlist á N4
Endurt. allan sólarhr.
16.00 Trúarlíf
17.00 Times Square Church
18.00 Tónlist
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
20.00 Blönduð dagskrá
21.00 Blönduð dagskrá
22.30 Gegnumbrot
23.30 Tónlist
20.00 Bókahornið (e)
20.30 Helgarjóga
21.00 Sir Arnar Gauti (e)
21.30 Saga og samfélag (e)
Endurt. allan sólarhr.11.30 The Block
12.30 The Block
13.30 Dr. Phil
14.15 Dr. Phil
15.00 The Bachelor
16.30 Family Guy
16.50 The King of Queens
17.10 Everybody Loves Ray-
mond
17.35 For the People
18.20 This Is Us
19.05 Lifum lengur
19.35 Vinátta
20.00 The Block
21.20 Des
22.10 Your Honor
23.10 Cold Courage
24.00 The Good Fight
00.45 Stumptown
01.30 The Rookie
02.15 MacGyver
06.55 Bæn og orð dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Hringsól.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Á tónsviðinu.
09.00 Fréttir.
09.03 Svona er þetta.
10.00 Fréttir. .
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta í Lang-
holtskirkju.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádgisfréttir.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Víðsjá.
15.00 Lestin.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Úr tónlistarlífinu: Söng-
stund með Stuart
Skelton.
17.00 Réttvísin: Smásaga.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Loftslagsdæmið.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Úr byggðum vestra:
Steinólfur Lárusson í
Fagradal.
20.35 Gestaboð.
21.30 Fólk og fræði.
22.00 Fréttir. ir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Refurinn Pablo
07.21 Úmísúmí
07.44 Kalli og Lóa
07.55 Klingjur
08.06 Lalli
08.13 Kúlugúbbarnir
08.36 Nellý og Nóra
08.43 Flugskólinn
09.05 Hrúturinn Hreinn
09.12 Múmínálfarnir
09.34 Kátur
09.36 Konráð og Baldur
09.49 Sjóræningjarnir í næsta
húsi
10.00 Krakkaskaup 2020
10.25 Hjálp til sjálfshjálpar
10.50 Óperuminning
11.00 Silfrið
12.10 Síðasti séns
12.40 Grænir fingur 1989-
1990
12.55 Poirot
14.25 Tónatal
15.30 Ísland – Portúgal
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Stundin okkar
18.25 Menningin – samantekt
18.45 Gert við gömul hús
19.00 Fréttir
19.25 Veður
19.30 Íþróttir á sunnudegi
19.55 Hringfarinn
21.00 Gullregn
21.50 Um Atlantsála
22.45 Bréfin frá Aminu
00.05 Silfrið
01.05 Dagskrárlok
12 til 16 Þór Bæring Besta blandan af tónlist á
sunnudegi og létt spjall með Þór Bæring. Hækkaðu í
gleðinni með K100.
16 til 18 Tónlistinn Topp40 með Dj Dóru Júlíu. Einn
vinsælasti plötusnúður landsins kynnir 40 vinsælustu
lög landsins á hverjum einasta sunnudegi. Tónlistinn
er eini opinberi vinsældalisti landsins.
18 til 00 K100 tónlist Besta tónlistin dunar í allt
kvöld.
Tónlistarfólkið Daði Freyr og
Ásdís María gáfu á dög-
unum út lagið Feel the Love
en þetta er annað lagið sem
þau gefa út saman. Á nýárs-
dag kom svo út myndband
við lagið þar sem bæði Daði
og Ásdís fara með stórt hlutverk en dansarinn George n
Roses slær algjörlega í gegn í myndbandinu. Lagið er
hresst og skemmtilegt og fjallar aðallega um sjálfsást.
Eins og flestum Íslendingum er kunnugt mun Daði Freyr
keppa fyrir Íslands hönd í Eurovision í Rotterdam á
þessu ári eftir að síðustu keppni var aflýst. Bæði Daði
og Ásdís gáfu sér tíma til þess að spjalla við blaðamann
K100 þar sem þau deila hugmynd sinni á bak við lagið,
samvinnunni og lífinu úti í Berlín á þessum skrítnu tím-
um. Það er ekki að sjá á þeim að nóg sé um að vera en
bæði voru þau virkilega hress og í miklu fjöri. Viðtalið
við Daða og Ásdísi má nálgast í heild sinni á K100.is.
Lag Daða og Ásdísar
fjallar um sjálfsást
Skjáskot/YouTube
Karachi, Pakistan. AFP. | Muham-
mad Rafiq hefur tekist að leggja
álitlegar fúlgur til hliðar síðan hann
lærði að ná fuglum lifandi þegar
hann var táningur. Nú fangar hann
fálka af ýmsum tegundum, sem sum-
ar eru í útrýmingarhættu, og selur
arabískum auðkýfingum við Persa-
flóa.
Hægt er að fá tugþúsundir dollara
fyrir einn fálka á svörtum markaði
og hefur Rafiq getað leyft sér þann
munað að gera upp heimili sitt.
„Reglulega koma milligöngumenn
frá Karachi og skilja eftir upplýs-
ingar um sig og við hringjum í þá
aftur ef við veiðum eitthvað,“ segir
Rafiq, sem er 32 ára og býr í
strandbæ skammt frá Karachi.
Ekki er langt síðan hann náði
förufálka í veiðiferð, sem tók viku.
„Ég þurfti verulega á peningum
að halda,“ sagði hann við AFP. „Og
Guð bænheyrði mig.“
Árum saman hefur þungamiðja
fálkaverslunar verið í Pakistan. Þar
er veiðifuglana að finna og þangað
leita menn einnig til að veiða með
fuglana sér til fulltingis.
Opinberlega er bannað að fanga
fálka í landinu, en eftirspurnin fer
vaxandi, að sögn samtakanna World
Wildlife Fund í Pakistan.
Að mati samtakanna var allt að
700 fálkum smyglað ólöglega út úr
landinu í fyrra og stóðu skipulögð
glæpasamtök iðulega að baki.
För fuglanna er yfirleitt heitið til
ríkjanna við Persaflóa þar sem hefð
er fyrir fálkaveiðum.
Fara með eins og börnin sín
Margit Muller, stjórnandi fálkaspít-
alans í Abu Dabí, sagði að eigend-
urnir færu með fálkana eins og börn-
in sín. Spítalinn fær 11 þúsund fálka
á ári til meðferðar og hefur fjöldinn
rúmlega tvöfaldast á undanförnum
tíu árum.
Verndurnarsinni sagði AFP að ar-
abískur fálkaveiðimaður ætti á milli
fimm og sex hundruð fálka og flestir
væru þeir veiddir í Pakistan eða
Mongólíu.
Villtir fuglar eru í meiri metum en
fuglar, sem alast upp undir manna
höndum því talið er að þeir séu betri
veiðifuglar, þótt engar vísbendingar
séu því til stuðnings.
Á hverjum vetri streyma vel fjáðir
veiðihópar frá Persaflóanum í eyði-
merkur Pakistans þar sem þeir fá
leyfi til að nota fálka sína til að veiða
doðrur (Chlamydotis undulata), far-
fugla á stærð við hænsn, sem eru
eftirsóttar vegna hjátrúar um að
nota megi þær í ástarlyf. Staða
fuglsins er talin viðkvæm.
Þessar veiðiferðir eru til marks
um þau djúpstæðu tengsl sem eru á
milli Pakistana og bandamanna
þeirra við Persaflóa.
Veita lán gegn leyfum
Áratugum saman hafa ríkin við
Persaflóa veitt stjórnvöldum í Isl-
amabad lán á góðum kjörum gegn
því meðal annars að geta áfram not-
að veiðilendur í Pakistan eins og
veiðimenn hafa gert kynslóð fram af
kynslóð.
Mohammed bin Salman, krón-
prins í Sádi-Arabíu, og tveir aðrir úr
konungsfjölskyldunni fengu leyfi til
að veiða doðra hjá stjórn Imrans
Khans forsætisráðherra nú í desem-
ber. Khan hafði opinberlega sagt að
hann væri andvígur slíku í milliríkja-
samskiptum þegar hann var í stjórn-
arandstöðu.
Pakistönsk stjórnvöld hafa einnig
gefið leiðtogum heims fálka að gjöf.
„Embættismenn okkar starfa eins
og melludólgar fyrir arabana,“ sagði
opinber embættismaður við AFP í
skjóli nafnleyndar.
Hæstiréttur afnam bann við
doðraveiðum 2016. Nú berjast
verndunarsinnar fyrir því að bönd-
um verði komið á útflutning á fálk-
um og eru með mál fyrir yfirrétti í
Islamabad.
Á hverju ári flýja fálkar vetrar-
hörkurnar í Síberíu og fljúga þús-
undir kílómetra á hlýrri slóðir, þar á
meðal til Pakistans. Á meðan fálk-
arnir eru þar flykkjast sölumenn til
þorpa við Arabíuhaf og freista fiski-
manna að leggja bátum sínum og
halda á fuglaveiðar.
„Við borgum þeim fyrir fram,
sendum mat til fjölskyldna þeirra og
ef þeir veiða fugl er það verðmætt,
þá gefum við þeim með glöðu geði
mótorhjól,“ sagði milliliður, sem tal-
aði við AFP gegn því að nafn hans
yrði ekki látið uppi.
Veiðiþjófarnir reyna sérstaklega
að ná förufálkum, sem standa
þokkalega, en einnig öðrum teg-
undum, sem eru í meiri hættu á út-
rýmingu.
Fálkar sem yfirvöld í Pakistan hafa gert upptæk hjá smyglurum í athvarfi í Karachi.
AFP
VEIÐIÞJÓFNAÐUR FER VAXANDI Í PAKISTAN
Olíufurstar
sólgnir í fálka
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Vefverslunin alltaf opinwww.listverslun.is
Verkfæralagerinn
í miklu úrvali, gæða-
vara á góðu verði
Kolibri penslar
Handgerðir þýskir penslar
! "!#$ á afar hagstæðu verði
Ennþá meira úrval af
%
WorkPlus
Strigar frá kr. 195