Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.01.2021, Page 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.01.2021, Page 32
SUNNUDAGUR 10. JANÚAR 2021 Það er komin Helgi, tónlistar- og skemmtiþáttur Helga Björns- sonar, Reiðmanna vindanna og gesta, snýr aftur í Sjónvarp Símans laugardaginn 23. janúar næstkomandi. „Við myndum aldrei halda inn í nýtt ár án þess að bjóða hinn eina sanna Helga Björns velkom- inn aftur,“ segir Pálmi Guðmundsson, dagskrárstjóri Sjónvarps Símans. Tíu þættir eru fyrirhugaðir í þessari lotu, fram að páskum. Pálmi lofar að skemmtilegt og bjart verði yfir Sjónvarpi Símans Premium á nýja árinu. Stærsta íslenska þáttaröðin verður Systra- bönd í leikstjórn Silju Hauksdóttur með Ilmi Kristjánsdóttur, Lilju Nótt Þórarinsdóttur og Jóhönnu Friðriku Sæmundsdóttur í aðal- hlutverkum, en hún verður tekin til sýningar um páskana. Mikið verður lagt upp úr íslenskri þáttagerð á árinu; nýjum and- litum mun bregða fyrir og gamlir vinir snúa aftur á skjáinn. Hver drap Friðrik Dór? er til dæmis ný og spennandi þáttaröð, þá má nefna Með Loga, Vináttu, Aldrei ein, að ekki sé talað um hina vin- sælu gamanþætti Venjulegt fólk, en fjórða sería verður sýnd í haust. Helgi Björns aftur á skjáinn Ilmur Kristjánsdóttir leikur eitt af aðalhlut- verkunum í nýju þáttunum, Systraböndum. Helgi Björns snýr aftur og fjöldi íslenskra þátta í Sjónvarpi Símans Premium. Helgi Björnsson heldur áfram að ylja þjóðinni á laugardags- kvöldum fram að páskum. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Morgunblaðið/Eggert „Í nýútkomnu hefti af Veðrinu segir Guðmundur Kjartansson, jarðfræðingur, frá skemmtilegri keppni í veðurspá, sem menn höfðu sér til gamans í fræðslu- og skemmtiferð Hins íslenzka náttúrufræðifélags inn á Kjöl í sumar.“ Frá þessum óvenjulega leik var greint í Morgunblaðinu 10. janúar 1961 en vel mun hafa tek- ist til. „Og eftir reynzlu þá sem fékkst af þessum leik, mælir Guðmundur með honum í hvers konar hópferðum í byggð og óbyggð, þar sem sami hópur er staddur í nokkur dægur,“ sagði ennfremur í fréttinni. Guðmundur hafði undirbúið þessa keppni mjög vel og látið prenta þar til gerð eyðublöð, þannig að keppendur þurftu að- eins að gera krossmerki í fer- hyrndan reit við þá veðurlýs- ingu, sem þeir spáðu að verða mundi á tilteknum stað á til- teknum tíma. „Og eyðublöðin er hægt að fá hjá Hinu íslenzka náttúrufræði- félagi (í vinnustofum náttúru- gripasafnsins), sem hefur látið prenta nokkurt upplag.“ GAMLA FRÉTTIN Keppni í veðurspá Hveravellir á fallegum sumardegi. Í leiknum þurftu keppendur aðeins að gera krossmerki í ferhyrndan reit við þá veðurlýsingu sem þeir spáðu. Morgunblaðið/ÞÖK ÞRÍFARAR VIKUNNAR Pósturinn Páll bréfberi Bogi Ágústsson fréttamaður Steve Martin kvikmyndaleikari STAN model 3035 L 170 cm Leður ct. 10 Verð 369.000,- L 206 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,- DUCA model 2959 L 215 cm Leður ct. 10 Verð 529.000,- L 241 cm Leður ct. 10 Verð 549.000,- ESTRO model 3042 L 164cm Leður ct. 10 Verð 339.000,- L 198 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,- GOLF model 2945 L 176 cm Áklæði ct. 70 Verð 239.000,- L 216 cm Áklæði ct. 70 Verð 259.000,- ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15 LEVANTE model 3187 L 204 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,- L 224 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.