Morgunblaðið - 08.02.2021, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 08.02.2021, Qupperneq 6
Ferðalag grágæsarinnar ÍSLAND Mars 2018 Október 2020 Desember 2020 Maí 2020 DANMÖRK SKOT- LAND NOREGUR Júlí 2018 Apríl 2019 Blönduós Merkt í júlí 2017 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Íslenska grágæsin NAV sem merkt var á Blönduósi sumarið 2017 sást rétt fyrir áramótin á Norður-Jótlandi. Er þetta í fyrsta skipti sem íslensk grá- gæs sést í Danmörku, svo vitað sér, að sögn Arnórs Þóris Sigfússonar, dýra- vistfræðings hjá Verkís, sem staðið hefur fyrir merkingum íslenskra grá- gæsa og fylgst með ferðum þeirra. NAV sást á hefðbundnum vetrar- stöðvum íslenskra gæsa á Skotlandi veturinn eftir að hún var merkt og á heimaslóðum á Blönduósi sumrin 2018 og 2019. Arnór telur líklegast að hún hafi verið í Skotlandi síðustu tvo vetur þótt ekki hafi borist tilkynningar um það. Hluti stofnsins í Noregi Arnór frétti svo af NAV á Mæri og í Raumsdal og í Þrændalögum í Noregi í maí og október í fyrra. Nú hefur hann fengið upplýsingar um að hún hafi sést í Ålbæk á Norður-Jótlandi í Danmörku 30. desember sl. Það eru óvenjulegar slóðir íslenskra gæsa. Tel- ur Arnór ekki ólíklegt að NAV sé flutt til Noregs og hafi farið suður til Dan- merkur með norskum gæsum. Ekki er óvanalegt að þær séu á þessum slóðum þegar kalt er í Noregi þótt flestar eigi vetrarstöðvar í Suður-Evrópu. Þegar farið var að merkja íslenskar gæsir kom í ljós að þær fara eitthvað til Noregs og telur Arnór að einhver hundruð íslenskra gæsa eigi þar vetr- arstöðvar. Íslensku gæsirnar eru að- eins frábrugðnar þeim norsku í útliti og hafa stofnanir verið að mestu að- skildir. Á myndum sem hann hefur fengið frá Noregi og Danmörku virðist NAV vera ein á ferð þó ekki sé útilokað að hún hafi tekið saman við norskan gassa og eignast fjölskyldu með hon- um. Ekki heyrst frá einni Merkingar grágæsa eru mikilvægur liður í mati á stofnstærð. Þær gefa til kynna hvar stofninn heldur sig. Ákveðnir erfiðleikar eru við að telja íslensku gæsirnar í Bretlandi því ekki er hægt að aðgreina þær frá þeim bresku og líklega blandast þær líka saman. Auk merkinga eins og er á NAV sem byggjast á því að fugla- áhugamenn geti lesið táknin eru fest- ir sendar á nokkrar gæsir. Nú eru tíu þannig gæsir á ferð. Níu þeirra eru í Skotlandi, aðallega Orkneyjum, en ein er með vetrarstöðvar í Þykkvabæ. Aðeins ein gæsin hefur ekki látið heyra í sér að undanförnu en Arnór er þó ekki úrkula vonar um að það gerist. Íslensk grágæs sést nú í fyrsta skipti í Danmörku  Dýravistfræðingur telur að NAV gæti verið flutt til Noregs Ljósmynd/Jens Kirkeby Heimsókn Íslenska grágæsin NAV flaug með norskum vinum sínum og hef- ur verið á beit á túnum danskra bænda í Ålbæk á Norður-Jótlandi. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2021 Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Svokölluð macros-talning, sem snýst um það að fylgst er með því hversu mörg grömm einstaklingur fær af orkuefnunum próteinum, kolvetnum og fitu yfir daginn, hefur notið auk- inna vinsælda hérlendis síðast- liðið ár en Lilja Guðmundsdóttir næringarfræð- ingur segir að að- ferðin geti verið varhugaverð. Lilja segir að macros-talning hafi sína kosti og galla og geti nýst sumum vel. Í mörgum tilvikum geti hún þó, eins og öll önnur ytri stýring á fæðuinntöku, ýtt undir óheilbrigt samband við mat og í verstu tilvikunum leitt til átrask- ana. Aukning hefur orðið á því að ein- staklingar leiti til átröskunarteyma og næringarfræðinga vegna átrask- ana og óheilbrigðs sambands við mat sem hófst með macros-talningu. „Undanfarinn er þetta óheilbrigða samband við mat. Ef það ágerist get- ur það leitt til átraskana sem er nátt- úrulega mjög alvarlegt,“ segir Lilja. Óheilbrigt samband við mat ein- kennist m.a. af tíðum megrunarkúr- um, kvíða sem fylgir neyslu á ákveðnum matvælum, stífum reglum þegar kemur að mat og hreyfingu, samviskubiti og niðurrifi í kjölfar máltíða, þráhyggjuhugsunum um mat, útlit og þyngd. Með ytri stýringu á fæðuinntöku er átt við utanaðkomandi reglur um hvað, hvenær og hversu mikið við- komandi má borða. Önnur dæmi um slíka ytri stýringu eru t.d. að fylgja matarplönum, föstur, ketó og annað mataræði þar sem ákveðnar fæðu- tegundir eru útilokaðar án þess að óþol eða ofnæmi sé til staðar. Margir horfa ekki á gæðin Lilja telur sérstaklega mikilvægt að foreldrar sem fylgi ákveðinni ytri stýringu á fæðuinntöku hafi í huga að slíkt geti haft áhrif á börn sem fylgist með foreldrum sínum og líti upp til þeirra. „Ef við horfum á macros-talningu út frá öllum hliðum þá getur hún t.d. hjálpað fólki að borða nóg, sérstak- lega þeim sem eru í mikilli þjálfun. Einnig getur hún verið gagnleg fyrir fólk til þess að læra inn á orku- og næringargildi matvæla og samsetn- ingu máltíða. Hin hliðin á peningnum er hins vegar sú að margir horfa ekki á gæði matvælanna sem þeir neyta, orkuskerðingin getur verið of mikil og getur ágerst eftir því sem líður á. Einnig er orkuþörf hvers og eins breytileg milli daga. Það geta því myndast ákveðin vandamál þegar fólk reynir að uppfylla ákveðinn ramma daglega og vinna með sömu orkuinntöku þegar orkuþörf er í raun breytileg,“ segir Lilja. „Það er því mikilvægt að einstak- lingsmiðuð nálgun sé höfð í forgrunni þegar kemur að því að meta hvort slík aðferð henti einstaklingnum, ásamt því að umræðan um mögu- legar neikvæðar afleiðingar sé opin,“ segir Lilja. Hún bendir á að macros-talning sé ekki það eina sem geti ýtt undir óheilbrigt samband við mat. „Megr- un í bland við neikvæða líkamsímynd er einn af stærstu áhættuþáttunum fyrir því að þróa með sér átröskun . Ekki allir sem fara í megrun þróa með sér átröskun en allir sem eru með átröskun hafa á einhverjum tímapunkti farið í megrun,“ segir Lilja. Getur ýtt undir óheilbrigt sam- band við mat  Talning orkuefna sem einstaklingar innbyrða nýtur aukinna vinsælda Lilja Guðmundsdóttir Góð þjónusta í tæpa öld 10%afslátturfyrir 67 ára og eldri Leifur S. Garð- arsson, skóla- stjóri í Ás- landsskóla í Hafnarfirði, er kominn í ótíma- bundið veik- indaleyfi frá skólanum og aðstoðar- skólastjóri tek- inn við stöðu hans. Rósa Guðbjartsdóttir, bæj- arstjóri í Hafnarfirði, staðfesti þetta við Morgunblaðið í gær. Rósa sagði málið í skoðun en kvaðst ekki mundu tjá sig að öðru leyti um málið. Ráðstöfunin er tengd því að nýverið var Leifur, sem hefur einnig starfað sem körfubolta- dómari, tekinn af dómaraskrá hjá Körfuknattleikssambandi Íslands. Það var gert vegna óviðeigandi skilaboða sem Leifur sendi leik- manni í meistaraflokki kvenna eftir að hafa dæmt leik hjá við- komandi leikmanni. Aðrar ásakanir um óviðeigandi kynferðisleg skilaboð af hálfu Leifs komu fram á vef Vísis í gær. Sendur í leyfi vegna óviðeigandi skeytis  Víkur sem skólastjóri vegna hegðunar sem körfuboltadómari Leifur Garðarsson Fyrsta löndun loðnu á Fáskrúðs- firði í ár átti sér stað í gær þegar norska skipið Kings Bay kom með 460 tonn af loðnu. Á miðunum fyrir utan fjörðinn voru nokkur norsk skip að veiðum og samkvæmt fréttaritara Morg- unblaðsins á Fáskrúðsfirði fiska þau vel. Kristján Þór Júlíusson, sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra, undirritaði á föstudagsmorgun reglugerð um veiðar á loðnu í sam- ræmi við ráðgjöf Hafrann- sóknastofnunar. Reglugerðin heimilar íslenskum skipum að veiða 69.834 tonn af loðnu. Skip annarra ríkja fá heim- ild til veiða á rúmlega 57 þúsund tonnum eða um 45% af heildarafla. Fyrsta löndun loðnu á Fáskrúðsfirði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.