Morgunblaðið - 08.02.2021, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2021
HRÖKKBRAUÐ
8. febrúar 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 129.27
Sterlingspund 176.95
Kanadadalur 100.97
Dönsk króna 20.831
Norsk króna 15.032
Sænsk króna 15.307
Svissn. franki 143.1
Japanskt jen 1.2223
SDR 185.28
Evra 154.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 188.6462
Hrávöruverð
Gull 1808.55 ($/únsa)
Ál 1979.5 ($/tonn) LME
Hráolía 59.17 ($/fatið) Brent
● Útluftningur á vörum frá Bretlandi til
Evrópusambandsins dróst saman um
68% í janúarmánuði. Koma þessar tölur
frá samtökum flutningafyrirtækja, RHA,
en bresk stjórnvöld hafa ekki getað stað-
fest samdráttinn og fullyrða að röskun á
vöruviðskiptum hafi verið sáralítil.
Reuters segir að samdrátturinn stafi
einkum af þeim truflunum sem urðu á
gangi viðskipta um áramótin þegar Bret-
land kvaddi Evrópusambandið end-
anlega. Eftir útgöngu Bretlands hefur
flækjustig flutninga aukist og sum fyrir-
tæki átt fullt í fangi með að ganga rétt
frá tollaskýrslum og heilbrigðisvott-
orðum. Bætist það við þá erfiðleika sem
kórónuveirufaraldurinn hefur skapað.
Í yfirlýsingu breskra stjórnvalda um
málið segir að vöruflutningar til og frá
Evrópu séu nú nokkurn veginn eins og í
eðlilegu árferði. ai@mbl.is
Skarpur samdráttur
varð í kjölfar Brexit
Aðlögun Breskir útflytjendur hafa þurft
að breyta vinnubrögðum sínum.
AFP
STUTT
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Íslensk fyrirtæki standa mörg
frammi fyrir því að safna miklu
magni gagna í gegnum mismun-
andi kerfi og eiga í erfiðleikum
með að sjá heildarmyndina af
rekstrinum. Bjarki Ásbjarnarson,
hugbúnaðarverk-
fræðingur og
framkvæmda-
stjóri Hugfimi,
segir mun hag-
stæðara en
margur heldur
að setja upp
sjálfvirka ferla
sem gefa þessa
heildarmynd.
Hugfimi sér-
hæfir sig í
gagnasamþættingu og öflun gagna
úr mismunandi áttum sem svo eru
sett fram á þægilegan og auðskilj-
anlegan máta. Aðalvara fyrirtækis-
ins er eignayfirlitskerfið EYK sem
er sérsniðið til að sameina og halda
utanum gögn eigna. Kerfið er t.d.
notað af Orkuveitu Reykjavíkur til
að halda utan um gögn virkjana og
borhola en þessara gagna er aflað
frá mörgum ólíkum kerfum og frá
ýmsum aðilum.
„Almenn vitundarvakning hefur
átt sér stað í atvinnulífinu um að
æskilegt sé að gögnum sé safnað.
Víða fer þessi söfnun fram í
stórum stíl og ný gögn verða til í
sífellu í hinum og þessum kerfum.
Það sem vill vanta upp á er að
gögnin séu unnin, sett fram á skil-
merkilegan hátt og séu aðgengileg
þeim sem þau varða, hvort sem
það eru starfsmenn eða viðskipta-
vinir. Í rekstrarumhverfi nútímans,
þar sem hraðinn er mikill og álag
oft talsvert, er mikið virði í því að
ekki þurfi að leita uppi nýjustu
gögn heldur séu þau birt þeim sem
þau varðar. Slík birting getur verið
í formi sjálfvirkra morgunpósta,
vaktara sem senda skilaboð við
ákveðin skilyrði eða birting beint
út á vefinn.“
Miðlun gagna til að sjá
árangurinn og vandamálin
Bjarki nefnir að breytt landslag
atvinnurekenda auki þörfina fyrir
rétta öflun og miðlun gagna. „Nú
þegar sýnt þykir að fjarvinna muni
verða mun algengari er enn
brýnna að alls kyns upplýsingar úr
rekstri fyrirtækja séu aðgengileg-
ar og vel uppsettar svo starfsfólk
hafi góða yfirsýn hvar sem það kýs
að sinna vinnu sinni.“
Í tilviki Hugfimi felst þjónustan
ekki síst í því að veita fyrirtækjum
leiðsögn og ráðgjöf um hvaða
gögnum þarf að safna og miðla;
hvað það er sem mestu skiptir að
miðla hratt og vel til starfsfólks og
hvaða upplýsingar í gögnunum
þarf að kjarna svo þau nýtist sem
best.
Bjarki segir m.a. hægt að sýna
viðskiptavinum þessar upplýsingar
til að koma til skila umsvifum, fag-
mennsku og jákvæðum áhrifum
starfseminnar eða að setja gögnin
þannig fram að þau hvetji starfs-
fólkið til dáða og sýni þeim árang-
ur vinnu sinnar frá degi til dags:
„Það getur haft jákvæð áhrif á af-
köst og líðan starfsmanna að sjá
svart á hvítu hvernig vinna þeirra
gerir gagn og geta séð hvernig
rekstrinum vindur fram oftar en í
ársfjórðungsuppgjörum. Gögnin
geta líka vísað starfsfólki leiðina
við að bæta störf sín enda getur
söfnun og miðlun gagna í rauntíma
veitt dýrmæta endurgjöf og sýnt
hvar skórinn kreppir.“
Hvað á að gera við gögnin?
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hafsjór Gögn verða til á ótal stöðum í starfsemi fyrirtækja og stofnana en ekki alltaf að því hlaupið að koma
auga á þau gögn sem skipta máli og miðla þeim á réttan stað. Viðskiptavinur afgreiddur í verslun í Kringlunni.
Eitt er að safna gögnum úr rekstrinum og annað að greina þau og miðla svo að
þau nýtist starfsfólki og viðskiptavinum Lausnirnar þurfa ekki að vera flóknar
Bjarki
Ásbjarnarson
Alþjóðavísitala MSCI, sem vaktar
þróun hlutabréfaverðs í 50 löndum,
styrktist um 4,35% í síðustu viku og
hefur aldrei mælst hærri. Banda-
rísk hlutabréf vega mjög þungt í
vísitölu MSCI og segir Reuters að
einkum megi tengja hækkunina við
bjarstýni hjá fjárfestum sem vænta
þess að ráðamenn í Washington
muni leggja mikið kapp á að örva
hagkerfi Bandaríkjanna og eins að
erfiðasta skeið kórónuveirufarald-
ursins verði senn að baki. Er útlit
fyrir að Bandaríkjaþing muni á
komandi vikum samþykkja 1.900
milljarða dala örvunarpakka Joe
Biden og að demókratar geti komið
frumvarpi þess efnis í gegnum
þingið án atkvæða repúblikana.
Bjartsýni á mörkuðum varð m.a.
til þess að olíuverð hækkaði vegna
væntinga um vaxandi eftirspurn og
fór heimsmarkaðsverðið á Brent-
hráolíu yfir 59 dala markið á föstu-
dag.
Bjartsýnin virðist áberandi mest
á bandarískum markaði og virðast
fjárfestar ekki hafa látið það á sig
fá þó að nýjar vinnumarkaðstölur
sýni að atvinnuleysi í nóvember og
desember var meira en áður var
talið og að fjölgun starfa í janúar
var minni en hafði verið spáð. Virð-
ast erfiðleikar á vinnumarkaði
einkum bundnir við smásölu, af-
þreyingu, ferðaþjónustu og heil-
brigðisþjónustu sem eru þeir geirar
sem hafa orðið fyrir mestum
skakkaföllum í faraldrinum. Binda
fjárfestar vonir við að viðsnúningur
verði í þessum greinum eftir því
sem fleiri láta bólusetja sig gegn
kórónuveiru.
Þá lofa nýjustu rekstrartölur frá
fjórða ársfjórðungi góðu og urðu til
þess að bæði Nasdaq og S&P 500
vísitölurnar slógu ný met.
Evrópska STOXX 600 vísitalan
styrktist um 3,5% í liðinni viku sem
er mesta vikuhækkunin síðan í nóv-
ember. ai@mbl.is
AFP
Uppleið Á Wall Street virðist fólk
reikna með viðsnúningi von bráðar.
Verðbréf í hæstu
hæðum á heimsvísu
Bjartsýni
einkennir Banda-
ríkjamarkað