Morgunblaðið - 08.02.2021, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 08.02.2021, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2021 Í það minnsta sjö eru látnir og á ann- að hundrað saknað eftir gríðarmikið flóð í Himalajafjöllum á norðurhluta Indlands í gær. Talið er að flóðið hafi farið af stað þegar stórt stykki brotnaði úr jökli og féll í á. Flóðið flæddi í gegnum dal í Uttarakhand- fylki. Þorp á svæðinu voru rýmd. „Þetta gerðist mjög hratt, það gafst enginn tími til að gera neinum viðvart,“ sagði Sanjay Singh Rana, sem býr nærri Dhauli Ganga-ánni. Trivendra Singh Rawat, fylkisstjóri Uttarakhand, sagði í gær staðfest að 125 manns væri saknað og tölurnar gætu hækkað. Þá sagði hann að vatnsyfirborðið væri einum metra hærra en vanalega, en rennslið færi minnkandi. Björguðu 16 manns Flestir þeirra sem er saknað voru við störf við tvær virkjanir á svæð- inu. Singh Rawat sagði lögregluna og herinn „gera sitt besta til að bjarga lífum starfsmannanna“. Lög- reglustjóri Uttarakhand, Ashok Kumar, sagði að óttast væri að fleiri en 50 einstaklingar sem voru við störf í virkjun á svæðinu væru látnir. Hann sagði þó að einhverjum starfs- mönnum hefði verið bjargað. Björg- unarsveit tókst að bjarga 16 starfs- mönnum sem höfðu verið fastir inni í göngum sem höfðu fyllst af rusli. Þá voru hundruð hermanna sendir á svæðið ásamt herþyrlum. Forsætisráðherra Indlands, Na- rendra Modi, sagðist fylgjast með aðstæðunum. „Landið biður fyrir ör- yggi allra á svæðinu,“ skrifaði hann á Twitter í gær. Enginn veit hvað það var ná- kvæmlega sem olli flóðinu. Sérfræð- ingar segja þó mögulegt að stórt jök- ulbrot hafi brotnað frá jöklinum, sem gæti verið rakið til hækkunar í hita- stigi, svo gífurlegt magn vatns braust út. Það gæti hafa valdið snjó- flóðum sem bera með sér bæði steina og leðju. Umhverfissamtök hafa kallað eftir endurskoðun á virkjunarfram- kvæmdum í fjöllunum, sem eru vist- fræðilega viðkvæm, eftir hörmung- arnar í gær. Á annað hundrað saknað  Gríðarmikið flóð braust út í Uttarakhand-fylki á Norður-Indlandi eftir að jökul- brot úr Himalaja-fjöllunum lenti á stíflu  Á annað hundrað manns er saknað Bóndakona frá Cuenca í Ekvador greiðir at- kvæði sitt í forsetakosningunum í Ekvador. Í gær opnuðu kjörstaðir þar í landi og þá hófst fyrsta umferð forsetakosninganna. Seinni um- ferð á að eiga sér stað 11. apríl næstkomandi svo enn er langt í að skorið verði úr um hver taki við af forsetanum Lénin Moreno. Með efnahagslífið í molum segjast margir kjósendur vera upptekn- ari af daglegu lífi sínu en af stjórnmálum. AFP Forsetakosningar í Ekvador hófust í gær George Shultz, fyrrum utanrík- isráðherra, fjár- málaráðherra og atvinnumála- ráðherra Banda- ríkjanna, lést í fyrradag 100 ára að aldri. Shultz er einna frægastur fyrir að hafa komið á betri sam- skiptum milli Ronalds Reagan Bandaríkjaforseta og Gorbatsov, aðalritara Sovétríkjanna, í tíð sinni sem utanríkisráðherra, og þannig hjálpað til við að binda enda á kalda stríðið. Shultz var viðstaddur leiðtogafundinn í Höfða árið 1986. Shultz fæddist þann 13. desem- ber árið 1920 og útskrifaðist úr Princeton-háskóla áður en hann gekk til liðs við bandaríska herinn. Hann tók við embætti ráðherra atvinnumála í Bandaríkjunum árið 1969 í valdatíð Richards Nixon. Árið 1972 var hann skipaður fjármálaráðherra og gegndi hann því starfi til 1974. Hann starfaði síðan ekki aftur fyrir Bandaríkja- stjórn fyrr en árið 1982, þá sem utanríkisráðherra. BANDARÍKIN George Shultz lát- inn 100 ára að aldri George Shultz Kafaldsbylur skall á Hollandi í gær, sá fyrsti í meira en áratug, að sögn veðurfræðinga. Bylurinn hafði tölu- verð áhrif á samgöngur og urðu miklar tafir á umferð vegna hans. Þá var Eindhoven-flugvellinum lok- að vegna bylsins sem og lest- arteinum sem liggja til Þýskalands. Að auki var öllum skimunar- stöðvum fyrir Covid-19 einnig lok- að vegna veðursins. Rauð veðurviðvörun var gefin út í Hollandi fyrir allan sunnudaginn en þar var mikil ofankoma og vindasamt allan daginn. Viðbúið er að áfram verði kalt í Hollandi, en um 10 stiga frosti er spáð næstu daga. Kuldakastið er afleiðing af storminum Darcy, sem hefur einnig herjað á hluta Bretlandseyja. HOLLAND Fyrsti kafaldsbyl- urinn í áratug Stærstu mótmæli í Mjanmar í meira en áratug áttu sér stað í gær. Tugþúsundir mótmæltu valdaráni hersins og kröfðust lausnar hins kjörna leiðtoga Mjanmar, Aung San Suu Kyi. „Við viljum ekki einræði hersins. Við viljum lýðræði,“ hróp- aði fjöldinn í borginni Yangon. Mót- mæli voru þá einnig haldin í meira en tug annarra borga. Frá 1962 og fram til 2011 réðu hernaðarstjórnir í Mjanmar, áður þekkt sem Búrma, með járnhnefa. Fyrir 6 árum var von um breyt- ingar, að sögn CNN, en þá stofnaði Suu Kyi, friðarverðlaunahafi Nóbels og fyrrverandi pólitískur fangi, fyrstu borgaralegu ríkisstjórnina. Það breyttist allt þegar herinn náði völdum síðasta mánudag og handtók Suu Kyi og lokaði fyrir netþjónustur. Kynnir á fréttarás í eigu hersins tilkynnti þá að hers- höfðinginn Min Aung Hlaing stýrði nú landinu. Herinn náði völdum eftir að hafa haldið því fram, án sannana, að kosningarnar í nóvember væru byggðar á svikum. Herinn hefur ekki enn tjáð sig um vaxandi and- stöðu við valdaránið sem átti sér stað síðasta mánudag en ráðamenn hafa lýst yfir áralöngu neyðar- ástandi. Suu Kyi og æðstu leiðtogar Lýð- ræðisflokksins, þar á meðal Win Myint forseti Mjanmar, hafa verið sett í stofufangelsi. Í Yangon klæddist fólk rauðum bolum og hélt á rauðum blöðrum, einkennislit flokks Suu Kyi, meðan bílar og rútur hægðu á sér til að flauta til stuðnings mótmælendun- um. Margir höfðu þrjá fingur á lofti en það er tákn andófs forræðis- hyggju á svæðinu. Stærstu mótmæli í meira en áratug  Tugþúsundir mótmæltu valdaráni AFP Fingur Konur í Yangon halda uppi þremur fingrum til að tákna andóf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.