Morgunblaðið - 08.02.2021, Síða 14

Morgunblaðið - 08.02.2021, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Stjórn-arformaðurfélagsins Betri samgangna ohf., Árni Mathie- sen, sem heldur ut- an um borgarlínu- verkefnið, segir að þeir sem að verkefninu standa verði dæmdir af þremur atrið- um: „Í fyrsta lagi að tímasetn- ingar standist. Í öðru lagi að kostnaðaráætlun standist og í þriðja lagi að markmið um samgönguhegðun náist. Og þetta síðasta er lykilatriði í verkefninu í heild.“ Allt er þetta rétt og óvenjuleg hrein- skilni að leggja spilin á borðið með þessum hætti því að oftar en ekki vilja menn ákveða eftir á hvaða mælistikur á að leggja á verk þeirra. Þessar mælistikur eru ekki aðeins nothæfar til að meta borgarlínuna að einhverjum tíma liðnum, verði anað áfram í það verkefni, þær eru einnig gagnlegar til að meta það sem gert hefur verið í samgöngu- málum á höfuðborgarsvæðinu síðasta áratuginn eða svo. Borgarlínan á að auka mjög notkun almenningssamgangna, úr 4% af heildarferðum í 12% ferða. Líkurnar á að þetta tak- ist hlýtur að verða að skoða í samhengi við það að fyrir um áratug var ákveðið, í samstarfi þáverandi vinstri meirihluta í borginni og vinstri stjórnar- innar í landsmálum, að slá á frest brýnum framkvæmdum í samgöngumálum á svæðinu en setja í staðinn einn milljarð til viðbótar árlega í að efla al- menningssamgöngur, það er að segja strætisvagnana. Þessi ár- legi viðbótarmilljarður hefur engum árangri skilað. Hlutfall þeirra sem velja strætó er það sama og var en ætlunin var að milljarður árlega yrði til þess að hækka þetta hlutfall umtals- vert. Í staðinn hafa tafir á framkvæmdum valdið umferð- arteppum sem fara síversn- andi. Það sem gert hefur verið hingað til hefur því ekki staðist þá mælistiku sem að ofan er nefnd og flokkast undir augljós mistök. Þessi árlegi milljaður bætist við það fé sem fyrir var sett í rekstur strætó, en farþega- tekjurnar stóðu árið 2019 undir um þriðjungi kostnaðar, sem nam sjö milljörðum króna það ár. Af fréttum að dæma má ætla að afkoman hafi verið enn verri í fyrra. Þar kenna stjórn- endur Strætó kórónuveirufar- aldrinum um og hefur hann ef- laust haft talsverð áhrif. Annað sem einnig hafði áhrif og mun að líkindum hafa vaxandi áhrif eru rafknúnu hlaupahjólin sem sprottið hafa upp eins og gor- kúlur í borgarlandinu síðast- liðið ár. Sá nýi sam- göngumáti mun án efa draga verulega úr notkun almenn- ingssamgangna til framtíðar. Áætl- anir borgarlín- unnar, að því marki sem þær liggja fyrir, taka ekki tillit til þessa enda er þar um að ræða stórkarlalega, þunglama- lega og gamaldags hugmynd í stað þess að horft sé á nýja tækni og raunhæfar lausnir. En vandinn við borgarlínuna er líka sá að útfærð rekstrar- áætlun hennar liggur ekki fyrir og heildaráætlun um fjárfest- ingar og rekstur almennings- samgöngukerfisins í saman- burði við aðrar lausnir hefur ekki verið gerð. Fyrir liggur til dæmis að áfram þarf að reka strætisvagnakerfi og fram hef- ur komið að rekstrarkostnaður Strætó kunni að aukast um tvo milljarða króna á ári vegna borgarlínunnar. Heildarmynd borgarlínu- hugmyndarinnar og saman- burður við aðra kosti liggur alls ekki fyrir. Þá liggur ekki fyrir hvað gerist ef borgarlínan skilar engum eða litlum ár- angri í því að fjölga þeim sem nota almenningssamgöngur. Þá er augljóst að umferðartafir verða enn verri en nú er þar sem búið verður að þrengja enn meira að langvinsælasta ferðamátanum, fjölskyldubíln- um. Víða verður búið að taka aðra akreinina af þeim 75% sem nota þann ferðamáta til að bæta við borgarlínubraut sem mögulega mun ekki skila neinni aukningu í notkun. Og það er að minnsta kosti ljóst að notkun almenningssamgangna þarf að aukast gríðarlega til að vega upp á móti þeirri þreng- ingu sem verður á götum fyrir fjölskyldubíla. Um leið og hægt er að taka undir að borgarlínuverkefnið, ásamt þeim sem fyrir því hafa barist og að því standa, verði metið út frá þeim þremur mælistikum sem stjórnar- formaður Betri samgangna nefnir er ljóst að það verður til lítils ef þetta risaverkefni fer illa. Það mun ekki leysa sam- gönguvandann eftir fimm eða tíu ár að geta bent á að tafir hafi orðið, að kostnaður hafi verið meiri eða að færri hafi notað borgarlínuvagnana en stefnt hafi verið að. Þeir sem árið 2030 sitja fastir í fjöl- skyldubílum sínum og munu þar að auki þurfa að greiða ný veggjöld ofan á hækkað útsvar eru engu bættari með að geta bent á sökudólga. Það er gott að hafa skynsamlegar mæli- stikur, en þær geta aldrei rétt- lætt að ráðist verði í vanhugs- aðar og óraunsæjar risaframkvæmdir. Hugmyndir um borg- arlínu eru vanhugs- aðar og óraunsæjar og taka ekki tillit til nýjustu tækni} Mistök og mælistikur N ú er liðið tæpt 31 ár frá því bjór var leyfður á Íslandi, en hann hafði þá verið bannaður í rúm 70 ár. Sjálfsagt myndu fáir vilja banna hann á ný í dag og þrengja þannig að valfrelsi einstaklinga. Það er hins vegar rétt að hafa í huga að afnám bjór- bannsins varð ekki til af sjálfu sér. Til þess þurfti dugmikla baráttu manna og kvenna sem kusu að treysta því að Íslendingar gætu sjálfir tekið ákvörðun um eigið líf, þar með talið drykkjarmenningu. Þarna var stigið skref í átt að auknu frelsi. Öll slík skref skipta máli. Á undanförnum áratug hefur smærri brugg- húsum, handverksbrugghúsum, fjölgað mikið um allt land. Þau eiga það sammerkt að leggja áherslu á minni framleiðslu, gæði og sjálfstæði. Samhliða þessari þróun hefur eftirspurn og áhugi almennings á innlendri bjórframleiðslu aukist verulega. Endurspeglast það meðal annars í um- talsverðri fjölgun á íslenskum bjórtegundum. Fyrir utan aukna fjölbreytni í vöruúrvali hafa húsin skapað ný störf og nýja veltu í hagkerfinu okkar. Í frumvarpi til breytinga á áfengislögum sem ég hef lagt fram verður minni brugghúsum veitt leyfi til sölu áfengs öls á framleiðslustað. Breytingin mun styrkja rekstur smærri brugghúsa, sérstaklega á landsbyggðinni, sem eiga erfitt með að koma vörum sínum að í ÁTVR. Áfram gilda strangar reglur um leyfisveitingu og eftirlit og sveit- arstjórnir munu hafa ákvörðunarvald um hvort smásala á framleiðslustað fari fram innan sveitarfé- lagsins. Ekki hefur náðst samstaða um breyt- ingar á íslenskri netverslun. Frumvarpið tekur mið af sjónarmiðum þeirra sem vilja aukið frjálsræði í verslun með áfengi sem og þeirra sem kjósa aðhaldssama áfengisstefnu. Það felur ekki í sér tillögur um breytingu á áfengisstefnu eða breyttum áherslum í lýðheilsumálum. Á síðastliðnum ár- um og áratugum hefur fjöldi sölustaða áfengis aukist umtalsvert og á það bæði við um fjölda verslana ÁTVR sem og fjölda vínveitingaleyfa. Fjölgun útsölustaða hefur ekki haft í för með sér samsvarandi aukningu á áfengisneyslu þjóðarinnar. Frumvarpið felur ekki bara í sér tæknilegar útfærslur á því hvort og hvernig selji megi áfengi, í þessu tilviki bjór, heldur er hér um mikilvægt frelsismál að ræða. Við eigum að treysta fólki til að taka ákvarðanir um eigið líf og það þurfa að vera afskaplega góð rök fyrir því að skerða val- frelsi almennings í þessum málum sem og öðrum. Rík- isvaldið á ekki að ákveða hvað, hvort og hvernig lands- menn neyta drykkjarfanga og það er ekkert sem kallar á að reglur hér á landi séu mun strangari en annars staðar. Það er nauðsynlegt að stíga skref sem þessi, þau eru mik- ilvæg og mættu vera fleiri, jafnvel þótt þau séu smá. aslaugs@althingi.is Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir Pistill Lítil en mikilvæg skref Höfundur er dómsmálaráðherra STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Gjaldið sem rennur af laun-um stúdenta sem vinnasamhliða námi í atvinnu-leysistryggingasjóð er lík- lega frekar komið frá konum en körl- um. Því er kynjunum óbeint mismunað þegar stúdentum er neit- að um atvinnuleysisbætur. Það fer ekki saman við jafnréttislög og lög um opinber fjármál. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í meist- araritgerð Jónu Þóreyjar Péturs- dóttur í lögfræði í Háskóla Íslands sem hún varði í byrjun árs. Hún segir ritgerðina leiða í ljós að kerfið í kringum framfærslu stúdenta sé göt- ótt og kallar hún eftir því að stjórn- völd stoppi í götin með endurskoðun á því. Í ritgerðinni kemur fram að stúdentar mynda um 8,5% af vinnu- afli Íslands og greiða launagreið- endur í atvinnuleysistryggingasjóð af launum stúdentanna. Samt sem áður eiga þeir ekki rétt á atvinnuleysis- bótum ef þeir missa vinnuna. 14-15% stúdenta hérlendis, eða tæplega 3.000 manns, eru í fullu starfi sam- hliða námi en þeir eiga flestir ekki heldur rétt á atvinnuleysisbótum ef þeir missa vinnuna. „Það er rosalega stórt gat í kerfinu,“ segir Jóna Þórey. Mannréttindadómstóll Evrópu (MDE) hefur metið það þannig að þegar fólk greiðir eða stendur undir gjöldum í ákveðna sjóði þá njóti það eignarréttinda í þeim sjóðum. Jóna svarar því þó ekki í sinni ritgerð hvort stjórnvöld brjóti gegn eignar- réttinum með því að neita stúdentum um atvinnuleysisbætur. „En ég kemst samt að þeirri nið- urstöðu að það sé tilefni til að skoða það miklu betur,“ segir Jóna Þórey. Hún telur vandann í raun þrí- þættan, stúdentar eiga hvorki rétt á atvinnuleysisbótum né fjárhags- aðstoð sveitarfélaganna á skólaárinu og námslánakerfið er einnig tak- markað, námslán eru einungis veitt að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. „Það hefur því gerst að náms- fólk er án allra fjárhagsúrræða. Það fer gegn skyldum Íslands samkvæmt alþjóðlegum samningum um að tryggja fólki aðstoð og tryggja fólki framfærslu. Okkur ber skylda til þess að tryggja félagslegt öryggi, okkur ber skylda til að tryggja fram- færslurétt einstaklinga sem eru án úrræða og við erum ekki að gera það núna. Þannig að ég kemst að þeirri niðurstöðu í minni ritgerð að það sé fullt tilefni til þess að endurskoða bæði reglur um fjárhagsaðstoð og at- vinnuleysistryggingakerfið,“ segir Jóna Þórey. Hún bendir á að konur vinni frekar með námi en karlar og að konur séu meirihluti stúdenta. „Þær voru það líka þegar þessi réttindi voru tekin af námsfólki árið 2010. Um 70% þeirra vinna með námi en bara 60% karla. Gjaldið sem renn- ur frá námsfólki í atvinnuleys- istryggingasjóð er líklega frekar komið frá konum sem þýðir að það er verið að mismuna óbeint á milli kynjanna þarna,“ segir Jóna Þórey og heldur áfram: „Það er auðvitað bannað samkvæmt jafnréttislögum. Samkvæmt lögum um opinber fjár- mál á að skipuleggja tekjur og út- gjöld ríkisins þannig að þau stuðli að jafnrétti kynjanna.“ Jóna Þórey starfaði sem forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands (SHÍ) í upphafi kórónuveirufaraldursins. Þá kallaði ráðið eftir rétti stúdenta til atvinnuleysisbóta þar sem fjöldi stúdenta leitaði til ráðsins í vonleysi og án úrræða. Stjórnvöld samþykktu ekki kröfu stúdenta um aðgengi að atvinnuleysisbótum og ákvað Jóna að skrifa ritgerðina þegar hún lauk störfum fyrir SHÍ síðasta vor. Hún hefur sent meistararitgerð- ina á þrjú ráðuneyti og fengið svör frá tveimur. „Ég sendi þeim tölvu- póst með upplýsingum um að ég voni að þetta gagnist þeim í að stoppa upp í kerfi sem er augljóslega götótt,“ segir Jóna Þórey sem sækist eftir forystusæti fyrir Samfylkinguna í Suðvesturkjördæmi í þingkosningum næsta haust. Morgunblaðið/Árni Sæberg Stúdentar 14-15% stúdenta hérlendis eru í fullu starfi samhliða námi. Óbein mismunun birtist í bótakerfinu Spurð hvað hún hafi að segja við þeim full- yrðingum að réttur stúdenta til atvinnuleys- istrygginga væri í raun bara til þess gerður að leyfa þeim að gera ekki neitt vísar Jóna Þórey því á bug og bendir á að 70% stúd- enta vinni með skóla og 90% þeirra vinni á sumrin. Hún segir að stúdentar vilji vinna til þess að geta staðið á eigin fótum. Þá bendir Jóna Þórey á að ströng skilyrði séu sett fyr- ir því að fólk komist á atvinnu- leysisbætur. „Þetta snýst ekki um að fá pening til þess að gera ekki neitt. Þetta snýst um að vera ekki fullkomlega úrræðalaus þannig að þú getir staðið und- ir eigin húsnæði og matarinn- kaupum og að ekki eingöngu þeir sem eigi eitthvert bak- land geti komist í gegnum há- skólanám. Þetta snýst svolítið um jafnrétti til náms,“ segir Jóna Þórey. Snýst um jafnrétti 90% VINNA Á SUMRIN Jóna Þórey Pétursdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.