Morgunblaðið - 08.02.2021, Síða 21

Morgunblaðið - 08.02.2021, Síða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2021 ✝ Þóra Stef-ánsdóttir fædd- ist í Fagraskógi við Eyjafjörð 2. maí 1933. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 29. janúar 2021. Foreldrar hennar voru Stefán Stefánsson, lög- fræðingur, bóndi og alþingismaður, f. 1. ágúst 1896, d. 8. september 1955, og Þóra Magnea Magnúsdóttir hús- freyja, f. 8. febrúar 1895, d. 3. maí 1980. Alsystkini Þóru eru Stefán Stefánsson, f. 29. febr- úar 1932, d. 7. júní 2009, Magn- ús Vilhelm Stefánsson, f. 30. desember 1934, d. 28. ágúst 2019, og Ragnheiður Valgerður f. 21. maí 1962. Maki Örn Arn- arson, f. 4. september 1964. Sonur þeirra Önnu Þóru og Arnar er Hannes Orri, f. 3. apr- íl 2001. Þóra lauk stúdentsprófi frá máladeild Menntaskólans á Ak- ureyri 1953. Hún stundaði nám í forspjallsvísindum, ensku og þýsku í HÍ 1953-54. BA-próf í bókasafnsfræði og þjóðfræði frá HÍ í júní 1982. Hún var for- stöðumaður bókasafns Tækni- skóla Íslands 1982-90. Deild- arstjóri bókasafns Veðurstofu Íslands 1990-2000. Hún starfaði sem sjálfboðaliði hjá Rauða krossi Íslands, á sjúklinga- bókasafni Landspítalans við Hringbraut árin 1970-80 og 2001-11. Útför Þóru fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 8. febr- úar 2021, og hefst athöfnin kl. 13. Jarðsett verður í Gufu- neskirkjugarði. Stefánsdóttir, f. 9. nóvember 1936. Hálfsystkini Þóru eru Ida Hedvig Be- hrens, f. 5. ágúst 1918, d. 27. ágúst 2007, og Vilhelm Magnús Behrens, f. 16. nóvember 1919, d. 18. júní 1934. Þóra giftist 23. júní 1956 Gísla Teitssyni frá Reykjavík, f. 26. október 1928, d. 16. september 2000. For- eldrar hans voru Teitur Teits- son trésmiður, f. 15. júní 1889, d. 3. maí 1960, og Anna Gísla- dóttir húsfreyja, f. 17. júlí 1893, d. 6. október 1971. Börn Þóru og Gísla eru: 1) Stefán, f. 26. nóvember 1956, 2) Anna Þóra, Elsku mamma mín – mér finnst óraunverulegt að hugsa til þess að nú sé ein vika liðin frá því þú kvaddir þessa jarðvist. Það er skrítið að fara heim til þín vitandi að þú átt ekki eftir að koma þang- að aftur. Það er margt sem leitar á hugann þegar ég hugsa til þín. Æskuárin voru oft viðburðarík, sér í lagi þegar Fornhaginn fyllt- ist af frændfólkinu okkar að norð- an og þú naust þín hvergi betur en þegar þú varst umkringd því. Þú hugsaðir líka vel um ömmu Þóru sem bjó í kjallaraíbúðinni okkar á Fornhaganum í 15 ár. Matseld lék í höndum þínum og súpurnar þínar voru sérstaklega rómaðar af öllum sem gæddu sér á þeim. Það urðu umskipti í lífi okkar þegar þú hófst nám í bóka- safnsfræði við HÍ um fertugt. Námið sóttist þér vel og eftir að hafa tekið valfög í þjóðfræði bættir þú við þig þjóðfræðinni og útskrifaðist frá HÍ í júní 1982 sem bókasafnsfræðingur og þjóðfræð- ingur. Þú varðst forstöðumaður bókasafns Tækniskóla Íslands og sinntir þörfum nemenda og kenn- ara af mikilli natni auk þess að endurskipuleggja bókasafnið. Þarna varstu að sinna áhugamál- um þínum og varst í miklum sam- skiptum við fólk. Eftir 8 ára starf við Tækniskólann tókstu við starfi deildarstjóra á bókasafni Veðurstofu Íslands og undir þín- um hag vel. Þarna varstu þó enn að sinna hugðarefnum þínum, nefnilega veðrinu. Þú hættir störfum á Veðurstofunni í júlí ár- ið 2000, eftir 10 ára starf, til þess að fara að njóta lífsins með pabba, sem hafði hætt störfum u.þ.b. tveimur árum fyrr. Sá draumur átti þó ekki eftir að rætast því í september þetta sama ár fóruð þið í ferðalag með TBO og var ferðinni heitið til Brussel og Amsterdam og átti að standa í tvær í vikur. Á öðrum degi ferð- arinnar, 16. september, tilkynntir þú okkur um andlát pabba. Áfall- ið var gríðarlegt, sársaukinn og söknuðurinn var enn meiri vegna þess hve skjótt þetta bar að. Fæðing Hannesar Orra í apríl ár- ið eftir var þér mikið fagnaðar- efni og þú hlakkaðir til að taka þátt í lífi hans og uppvexti. Þú varst honum góð amma og hann naut þess að heimsækja þig og dvelja hjá þér, sér í lagi eftir að þú fluttir líka í Grafarvoginn. Það er gott at vita til þess að nú sértu komin yfir í sumarlandið. Ég enda þessi orð til þín með ljóðinu eftir Davíð Stefánsson, föðurbróður þinn sem var þér svo kær. Seztu hérna hjá mér, systir mín góð. Í kvöld skulum við vera kyrrlát og hljóð. Í kvöld skulum við vera kyrrlát af því, að mamma ætlar að reyna að sofna rökkrinu í. Mamma ætlar að sofna. Mamma er svo þreytt. - Og sumir eiga sorgir, sem svefninn getur eytt. Sumir eiga sorgir, og sumir eiga þrá, sem aðeins í draumheimum uppfyllast má. Í kvöld skulum við vera kyrrlát og hljóð. Mamma ætlar að sofna, systir mín góð. Ég kveð þig með söknuði en minningin um þig lifir um ókomna tíð. Anna Þóra. Elskuleg föðursystir mín og nafna, Þóra Stefánsdóttir frá Fagraskógi, er fallin frá. Dedda eins og hún var alltaf kölluð var bæði glæsileg og tignarleg kona hvort heldur var í fasi eða fram- komu og manni fannst allt verða „elegant“ sem hún kom nærri. Fyrstu minningar um ferðir til Reykjavíkur voru ekki tengdar helstu kennileitum borgarinnar heldur Deddu föðursystur og Fornhaganum, heimilinu þar sem okkur fjölskyldunni var tekið opnum örmum en þangað lágu leiðir okkar reglulega í æsku. Á Fornhaganum tók Dedda á móti okkur ásamt Gísla sínum og börn- um þeirra tveimur, Stefáni og Önnu Þóru, og nutum við velvild- ar og gestrisni þeirra. Í minning- unni setti æskan sig ósjálfrátt í ákveðnar stellingar þegar Dedda var sótt heim, manni fannst yf- irbragð heimilisins bjóða upp á það og nærvera Deddu. Ræktarsemi við ættingja var rík hjá systkinum frá Fagraskógi og passað upp á að gefa sér tíma fyrir stórfjölskylduna til að hitt- ast. Á sumrin kom Dedda norður með fjölskylduna til að hitta ætt- ingjana og sjá sveitina sína. Þess- ar samverustundir voru dýrmæt- ar. Leiðir okkar Deddu áttu eftir að liggja saman síðar þegar ég leigði hjá henni í nokkurn tíma. Þá var hún orðin ein eftir fráfall Gísla og bjó á fallegu heimili í Skerjafirðinum með garðinum þar sem hún undi svo vel. Hún bauð mér gjarnan í mat og kaffi og áttum við góðar stundir og spjall saman. Þá var gjarnan rætt um Fagraskóg, sveitina, ættingja og gamla tíma sem hún naut svo vel að segja frá og tala um. Ég er þakklát fyrir þessar stundir sem við áttum saman nöfnurnar enda löngu hætt að setja mig í ákveðnar stellingar þegar við hittumst og naut frá- sagnar hennar, nærveru og vænt- umþykju. Blessuð sé minning þín, elsku frænka, og takk fyrir allt. Stefáni, Önnu Þóru og fjölskyldu votta ég mína dýpstu samúð. Þóra Ragnheiður Stefánsdóttir. Þóra Stefánsdóttir frá Fagra- skógi er látin. Hún hefur verið veik lengi svo ef til vill er hún sæl að fá hvíldina. Við Þóra höfum lengi verið vin- konur, kynntumst í MA fyrir margt löngu, vorum í sama stúd- entsárgangi og bjuggum á heima- vistinni. Þar var auðvelt að kynn- ast og vinátta okkar hélst til æviloka hennar. Ég held að ég segi það satt að stúdentsárgangurinn okkar hafi haldið vel saman og gerði Þóra ásamt fleirum sitt til þess að svo mætti verða. Þóra var glæsileg kona sem gaman var að hitta. Hún hafði frá mörgu að segja og oft kom við sögu Fagriskógur þar sem hún fæddist og átti heima öll sín bernskuár. Þóra giftist ung Gísla Teits- syni, mætum manni sem féll frá árið 2000. Þau eignuðust tvö börn, Stefán og Önnu Þóru. Börnin hennar hlúðu vel að henni þessi síðustu erfiðu ár og gat það ekki betra verið. Við skólasystk- inin kveðjum Þóru með söknuði og þökkum henni löng og góð kynni. Ingibjörg Þórarinsdóttir Þóra Stefánsdóttir HINSTA KVEÐJA Ég á eftir að sakna þín amma. Þú varst heiðarleg, ákveðin og full af skemmti- legurm sögum frá Fagra- skógi. Takk fyrir að vera amma mín, ég hefði ekki viljað neina aðra. Takk fyrir allar góðu stundirnar og vonandi sjáumst við aftur. Gangi þér vel í næsta lífi eða hverju sem tekur við og njóttu þess. Hinsta kveðja, Hannes Orri. Það var haustið 1981 að ég frétti að skóla- og ferming- arsystkini mín væru að kanna áhuga okkar sem fædd voru árið 1932 á Siglufirði á því að hittast fyrir norðan í ágústlok næsta árs. Tilefnið var að það ár urð- um við fimmtug en Siglfirðingar ætluðu að minnast þess að þá væru liðin 50 ár frá því Siglu- fjarðarkirkja var vígð, þann 28. ágúst 1932. Mér fannst þessi hugmynd áhugaverð en verð að viðurkenna að ég hafði ekki mikla trú á að af yrði. En þar skjátlaðist mér heldur betur. Nokkur úr hópnum hófu und- irbúning ferðarinnar en hug- myndina átti skólasystir okkar, Sigríður Angantýsdóttir eða Sisí eins og hún var kölluð. Ég held að mér sé óhætt að segja að Kristjana Heiðberg sem við kveðjum hér í dag hafi verið að- alskipuleggjandinn við undir- búning ferðarinnar. Kristjana eða Gógó, eins og hún var köll- uð, bókstaflega tók verkið að sér með aðstoð Sisíar og nokkurra fleiri hér sunnan heiða en einnig áttu þau sem enn voru búsett á Siglufirði mikinn og ómetanleg- an þátt í þessu öllu. Gógó var í stöðugu sambandi við okkur hin og lét okkur fylgjast með. Svona leið veturinn og þegar kom fram á vor var dagskrá ferðarinnar orðin nokkuð ljós. Gógó gaf okkur nafnið „Árgang- ur 32“. Síðan notuðum við þetta Kristjana Heiðberg Guðmundsdóttir ✝ KristjanaHeiðberg Guð- mundsdóttir fædd- ist 20. janúar 1932. Hún lést 29. janúar 2021. Útför Kristjönu fór fram 5. febrúar 2021. nafn okkar á milli eða bara „Árgang- urinn“. Við buðum fyrrverandi sóknar- presti, séra Óskari J. Þorlákssyni, og konu hans, frú El- ísabetu Árnadóttur, með okkur í ferðina. Séra Óskar fermdi „Árganginn“ í Siglufjarðarkirkju þann 19. maí 1946, alls 75 börn. Mikil var gleðin og ánægjan þegar við hittumst á Siglufirði 56 skólasystkini af 69 sem þá voru á lífi. Siglfirðingar og bæjarstjórn tóku vel á móti okkur. Við mættum öll til hátíð- arguðsþjónustu í Siglufjarðar- kirkju í tilefni vígsluafmælisins. Nú rak hver skipulagði viðburð- urinn annan. Gógó og Ólafur Einarsson, þá ráðherra, höfðu orð fyrir hópnum þegar við átti, annars var dagskráin í okkar höndum. Allt vel skipulagt og vel heppnað. Þessir ljúfu ágústdagar líða seint úr minni. Að ferð lokinni hélt Gógó áfram og boðaði okkur hér sunnan heiða saman á myndakvöld. Farið var að ræða um hvort ekki væri rétt að end- urtaka ferðina fyrst svona vel tókst til. Það þurfti ekki að ræða það lengi. Ákveðið var að stefna á aðra ferð að fimm árum liðn- um og auðvitað var Gógó þar í fararbroddi. Í stuttu máli fórum við til Siglufjarðar á fimm ára fresti og var okkar síðasta ferð farin 2012. Alls fórum við sjö ferðir til okkar kæru heima- byggðar og alltaf tóku Siglfirð- ingar vel á móti okkur. Rætt var um að fara eina ferð enn árið 2017. Fallið var frá því. Heilsu- farið farið að segja til sín auk þess sem fækkaði í „Árgangin- um“. Gógó var samt ekki búin að sleppa af okkur hendinni. Síð- ustu ár hefur hún hóað okkur, sem búum hér sunnan heiða, saman á mánaðarlega kaffifundi, nú síðast í mars sl. en þá urðum við að hætta að hittast vegna Covid. Það dugði ekki minna en heimsfaraldur til þess að stöðva þessa dugmiklu konu. Heilsu Gógóar tók mjög að hraka á síðustu mánuðum og andaðist hún á Landspítalanum þann 29. janúar sl. Ég kveð mína kæru skóla- systur með virðingu og þakklæti fyrir örlæti hennar, kærleika og störf í þágu okkar í „Árgangi 32“. Blessuð sé minning hennar. Börnum Gógóar og fjölskyld- um votta ég mína dýpstu samúð. Henning Á. Bjarnason. Kær frænka okkar, Kristjana Heiðberg Guðmundsdóttir, er látin í hárri elli. Það er ekki langt síðan að Gógó frænka, eins og við kölluðum hana alltaf, leið virðulega um götur Kópavogs á skutlunni sinni og taldi sér allir vegir færir. Hún kom ósjaldan við hjá mömmu í Sunnuhlíð til að spjalla við frænku sína um at- burði líðandi stundar eða til þess að rifja upp bernskuárin. Það var báðum mikils virði að eiga hvor aðra að síðustu misserin, sem endranær, og nú eru báðar gengnar á vit feðra sinna með hálfs árs millibili. Mamma og Gógó frænka voru systradætur og ólust upp á Siglufirði. Gógó var nokkrum ár- um eldri en af gömlum myndum af dæma hafa þær, mamma, Baddý móðursystir okkar og Gógó, verið eins og samlyndar systur. Stórborgarblær lék um Siglufjörð á þessum árum og ungar stúlkur fóru ekki varhluta af þeim menningarstraumum sem léku um síldarbæinn. Gógó spilaði listavel á gítar og smitaði frænkur sínar með hljóðfæra- slætti sínum; hún var glæsilega til fara og mikil fegurðardís svo eftir var tekið, orðheppin með afbrigðum og lá þá ekki á norð- lenskum framburði sínum. Örlögin höguðu því þannig til að fjölskyldur okkar settust að í Kópavogi. Gógó og Snorri flutt- ust vestur á Þinghólsbraut og ólu þar upp syni sína tvo, Gylfa og Ásgeir Val, en foreldrar okk- ar settust að austur á Álfhóls- vegi og brutu sér nýtt land til búsetu. Heimsóknir voru tíðar á milli okkar frændfólksins og var ekki amalegt fyrir unga drengi að setjast að veisluborði hjá þeim hjónum. Stundum var haldið í bíltúr á frambyggða Willys-num þeirra suður með sjó; ógleymanleg er ferð sem við fórum eitt sinn suður að Sela- töngum; við strákarnir hrist- umst eins og skopparakringlur í sætunum – skellihlæjandi – meðan Snorri mjakaði Willysn- um hægt og bítandi um stór- grýtta slóð. Þá var Strandamað- urinn í essinu sínu. Gógó frænka setti sterkan svip á æsku okkar og var okkur alla tíð haukur í horni. Við minn- umst hennar með hlýhug og þakklæti og vottum Gylfa og Ás- geiri Val og fjölskyldum þeirra innilega samúð okkar. Gunnsteinn og Pétur Már Ólafssynir. Það er erfitt að kveðja kæra vinkonu, minningarnar streyma fram en orðin festast ekki á blað en þyrlast upp eins og lauf í vindi. Við Kristjana áttum að hittast, það er ég sannfærð um og það gerðist einmitt á réttum tíma í lífi okkar beggja. Ég fór á námskeið, settist í fyrsta auða sætið og kynnti mig fyrir næstu konu sem var einmitt Kristjana og það fyrsta sem hún sagði við mig var: „Ég talaði við þig í síma í gær, ég þekki röddina þína!“ Mikið rétt, ég hafði hringt til Símans deginum áður þar sem Kristjana var skrifstofu- stjóri. Þetta næmi hafði hún gagn- vart fólki og frá þessari stundu urðum við vinkonur. Vinátta er eins og dýrmæt gjöf sem gleður ekki bara þegar gjöfin er gefin heldur varir ævilangt og mikið áttum við Kristjana margar skemmtilegar og góðar stundir saman og á vináttu okkar féll aldrei skuggi. Faðmurinn var stór, hann rúmaði ekki bara mig heldur börnin mín líka og ég gleymi ekki ferðalaginu þegar þú bauðst mér og dóttur minni til Akureyrar með viðkomu á fæðingarstað þínum Siglufirði. Auðvitað fórum við ekki göngin því ég átti að njóta þess að fara gamla veginn og sjá yfir fjörð- inn. Þú bentir og bentir í allar áttir og sagðir mér nöfnin á því sem fyrir augu bar en ég sat stjörf og stundi upp: „Kristjana, ég sé ekki neitt, einhver verður að horfa á veginn.“ Þú varst mikil hannyrðakona eins og sjá mátti á heimili þínu og í dag á ég marga fallega hluti sem þú mál- aðir og gafst mér. Ég kynntist aldrei honum Snorra þínum en hann var Strandamaður eins og ég, Þú sagðir mér margar sögur frá ferðum ykkar Snorra og drengjanna ykkar um landið og þær frásagnir voru svo lifandi og skemmtilegar að það var eins og ég hefði verið þátttakandi í þeim en ekki hlustandi. Kæra vinkona, minningabrot raðast saman í huganum, þú í fallega rauða flauelskjólnum á gamlárskvöldi í Kambaselinu, falleg eins og fyrirsæta, leiðbein- andinn minn þegar ég þurfti ráð, sem var oft, sögumaðurinn sem gat látið fólk gleyma stund og stað með lifandi frásögn, sagn- fræðingurinn sem gat galdrað fram ritverk með léttum leik og fræðimaðurinn sem átti svo auð- velt með að útskýra. Fyrst og fremst var það lífsgleðin og krafturinn sem fylgdi þér sem er minnisstæðast og þitt geislandi bros. Þegar heilsan gaf sig lagð- ir þú ekki árar í bát, þegar þú gast ekki lengur ekið bíl þá var gengið og þegar þér var það um megn var notast við fjórhjólið, uppgjöf var ekki til í þínum huga. Gestrisni þín var einstök og tíminn flaug alltaf þegar við hittumst. Frá íbúðinni þinni í Fannborg var víðsýnt og við sát- um oft á svölunum og nutum þess að sitja saman, þá þurfti engin orð, samveran nægði. Síð- astliðið ár var erfitt fyrir okkur báðar og samverustundirnar allt of fáar en við spjölluðum saman í síma og það varð að nægja. Ég sendi afkomendum þínum sam- úðarkveðjur, þú varst stolt af þeim og mér fannst ég þekkja þau öll af myndum og frásögn- um. Ég kveð þig með söknuði kæra vinkona með ljóði Davíðs Stefánssonar sem heitir Vinátta: Hverju sem ár og ókomnir dagar að mér víkja, er ekkert betra en eiga vini sem aldrei svíkja. Þín vinkona, Svala. Okkar ástkæra STEFANÍA SJÖFN SÓFUSDÓTTIR lést á krabbameinsdeild Landspítalans 31. janúar. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju 12. febrúar klukkan 13:00. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á deild 11e á Landspítala við Hringbraut og starfsfólk Heru. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið. Kristinn Stefánsson Guðmundur Emil Jónsson Margit Elva Einarsdóttir Oddný Jónsdóttir Jón Ingi Theódórsson Ásgeir Arnar Jónsson Ragnheiður Björg Harðardóttir barnabörn barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.