Morgunblaðið - 08.02.2021, Síða 26

Morgunblaðið - 08.02.2021, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2021 England Aston Villa – Arsenal .............................. 1:0  Rúnar Alex Rúnarsson var varamark- vörður Arsenal. Burnley – Brighton ................................. 1:1  Jóhann Berg Guðmundsson lék allan leikinn með Burnley og skoraði mark liðs- ins á 53. mínútu. Manchester United – Everton................ 3:3  Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á hjá Everton á 69. mínútu og lék sinn 400. deildaleik á ferlinum. Newcastle – Southampton....................... 3:2 Fulham – West Ham................................ 0:0 Tottenham – WBA ................................... 2:0 Wolves – Leicester ................................... 0:0 Liverpool – Manchester City .................. 1:4 Sheffield United – Chelsea...................... 1:2 Staðan: Manch. City 22 15 5 2 43:14 50 Manch. Utd 23 13 6 4 49:30 45 Leicester 23 13 4 6 39:25 43 Liverpool 23 11 7 5 44:29 40 Chelsea 23 11 6 6 38:24 39 West Ham 23 11 6 6 34:28 39 Everton 21 11 4 6 34:28 37 Tottenham 22 10 6 6 36:22 36 Aston Villa 21 11 2 8 36:24 35 Arsenal 23 9 4 10 27:23 31 Leeds 21 9 2 10 36:38 29 Southampton 22 8 5 9 29:37 29 Crystal Palace 22 8 5 9 27:37 29 Wolves 23 7 6 10 23:31 27 Brighton 23 5 10 8 25:30 25 Newcastle 23 7 4 12 25:38 25 Burnley 22 6 5 11 14:29 23 Fulham 22 2 9 11 17:31 15 WBA 23 2 6 15 18:54 12 Sheffield Utd 23 3 2 18 15:37 11 B-deild: Millwall – Sheffield Wednesday ............ 4:1  Jón Daði Böðvarsson lék í 86 mínútur með Millwall og lagði upp mark. D-deild: Exeter – Bradford City........................... 3:2  Jökull Andrésson varði mark Exeter í leiknum. Þýskaland B-deild: Darmstadt – Nürnberg........................... 1:2  Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik- inn með Darmstadt. Ítalía Parma – Bologna ..................................... 0:3  Andri Fannar Baldursson var varamað- ur hjá Bologna og kom ekki við sögu. Fiorentina – Napoli ................................. 2:0  Guðný Árnadóttir lék allan leikinn með Napoli en Lára Kristín Pedersen var ekki með liðinu. B-deild: Brescia – Cittadella................................. 3:3  Hólmbert Aron Friðjónsson kom inn á hjá Brescia á 78. mínútu en Birkir Bjarna- son var ekki með. C-deild: Padova – Fermana .................................. 1:0  Emil Hallfreðsson kom inn á hjá Padova á 84. mínútu. Frakkland Lyon – Montpellier .................................. 2:1  Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leik- inn með Lyon. Le Havre – Guingamp............................. 0:1  Anna Björk Kristjánsdóttir og Andrea Rán Hauksdóttir léku allan leikinn með Le Havre en Berglind Björg Þorvaldsdóttir var ekki með. Holland Emmen – AZ Alkmaar ............................ 0:1  Albert Guðmundsson fór af velli á 90. mínútu hjá AZ. Grikkland PAOK – Smyrnis...................................... 2:2  Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn með PAOK og jafnaði á 88. mínútu. Olympiacos – OFI Krít............................ 3:0  Ögmundur Kristinsson var varamark- vörður Olympiacos í leiknum. Portúgal Famalicao – Benfica................................ 0:1  Cloé Lacasse lék allan leikinn með Ben- fica. Danmörk Bröndby – AaB......................................... 1:1  Hjörtur Hermannsson lék síðari hálf- leikinn með Bröndby. AGF – Lyngby.......................................... 1:0  Jón Dagur Þorsteinsson lék í 70 mínútur með AGF og skoraði sigurmarkið. Nordsjælland – OB .................................. 0:2  Aron Elís Þrándarson kom inn á hjá OB á 90. mínútu.  ENGLAND Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Óhætt er að segja að Manchester City sé komið í algjöra lykilstöðu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fót- bolta eftir sannfærandi sigur á Eng- landsmeisturum Liverpool á Anfield í gær, 4:1. Pep Guardiola og hans menn eru komnir með fimm stiga forskot á granna sína í Manchester United og eiga auk þess leik til góða. Miðað við þá siglingu sem hefur verið á liðinu undanfarnar vikur er ekki að sjá að nokkurt lið sé líklegt til að stöðva það. Frá 22. desember hefur City unnið þrettán leiki í röð, níu í deild- inni og fjóra bikarleiki, og markið sem Mohamed Salah skoraði úr víta- spyrnu fyrir Liverpool í gær er það fyrsta sem City fær á sig í átta leikj- um í röð í deildinni. Phil Foden og Ilkay Gündogan voru fremstir meðal jafningja í heil- steyptu liði City. Gündogan skaut yf- ir mark Liverpool úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik en bætti úr því með tveimur mörkum í þeim síðari. Foden innsiglaði góðan leik sinn með fjórða markinu og hafði áður lagt upp mark fyrir Gündogan. Reyndar kom Al- isson Becker markvörður Liverpool mótherjum sínum til aðstoðar en tvö marka þeirra komu eftir misheppn- aðar sendingar hans frá marki sínu. Vígið Anfield er kolfallið Úr þessu má telja nokkuð ljóst að Liverpool ver ekki meistaratitilinn. Jürgen Klopp og hans menn hafa að- eins unnið tvo af síðustu níu leikjum sínum og vígið mikla Anfield er kol- fallið eftir þrjá ósigra í röð á heima- vellinum. Úr þessu blasir við Liver- pool sú barátta að verja fjórða sætið og komast í Meistaradeildina næsta haust. Manchester United virðist eina lið- ið sem gæti komið í veg fyrir að meistarabikarinn fari til grannanna í City en missti dýrmæt stig í blálokin gegn Everton í fyrrakvöld. Dominic Calvert-Lewin jafnaði fyrir Everton, 3:3, í mögnuðum leik með síðustu spyrnu leiksins. Gylfi Þór Sigurðsson kom inn á sem varamaður hjá Ever- ton um miðjan síðari hálfleik og lék sinn 400. deildaleik á ferlinum.  Jóhann Berg Guðmundsson tryggði Burnley jafntefli, 1:1, gegn Brighton þegar hann jafnaði metin í viðureign liðanna á Turf Moor á laugardaginn. Þetta var áttunda mark Jóhanns í úrvalsdeildinni á ferlinum en hans fyrsta síðan í ágúst 2019.  Chelsea er komið með tíu stig úr fjórum leikjum eftir að Thomas Tuc- hel tók við liðinu en þurfti að hafa mikið fyrir útisigri á Sheffield Unit- ed, 2:1. Jorginho skoraði sig- urmarkið úr vítaspyrnu.  Harry Kane sneri aftur í lið Tottenham eftir meiðsli og skoraði fyrra markið í sigri á WBA, 2:0. Staða City orð- in afar vænleg  Titilvörn Liverpool er á endastöð AFP Stórsigur Phil Foden fagnað eftir að hann innsiglaði sigur Manchester City á Liverpool, 4:1 á Anfield, með glæsilegu marki á 83. mínútu leiksins. Keflvíkingar héldu sigurgöngunni í úrvalsdeild karla, Dominos- deildinni, áfram í gærkvöld með mjög sannfærandi sigri á Tinda- stóli, 107:81. Þeir hafa unnið átta af fyrstu níu leikjunum og fimm þeirra með 20 stiga mun eða meira. Dominykas Milka var fremstur í flokki að vanda með 23 stig og 15 fráköst fyrir Keflavík en Jaka Brodnik skoraði 20 fyrir Tindastól.  Þór á Akureyri vann óvæntan stórsigur á Njarðvík, 90:68, og und- irstrikaði að allir geta unnið alla, eða flesta, í þessari deild. Srdan Stojanovic skoraði 22 stig fyrir Þór og Ivan Aurrrecoechea 20.  Haukar unnu loks eftir sex tap- leiki í röð. Þeir lögðu Val, 85:78, þar sem Hansel Atencia skoraði 23 stig fyrir Hauka og Miguel Cardoso 32 fyrir Valsmenn.  Þór í Þorlákshöfn lagði Hött í hörkuleik, 97:89, og er í öðru sæti. Larry Thomas skoraði 31 stig fyrir Þór og Adomas Drungilas 24 en Michael Mallory skoraði 23 stig fyr- ir Hött. vs@mbl.is Morgunblaðið/Þórir Tryggvason Þór Srdan Stojanovic úr Þór fer fram hjá Loga Gunnarssyni úr Njarðvík. Enn einn stórsigur hjá Keflvíkingum Íslenska kvennalandsliðið í körfu- knattleik lauk undankeppni Evr- ópumóts kvenna í Ljubljana í Slóv- eníu á laugardaginn með ósigri gegn Slóvenum, 96:59. Ísland tapaði þar með öllum sex leikjum sínum í keppninni, gegn Slóveníu, Grikklandi og Búlgaríu. Slóvenía vann alla leiki sína og Grikkland fjóra leiki af sex og þess- ar tvær þjóðir fara í lokakeppnina sem fram fer í Frakklandi og á Spáni í sumar. Sextán lið leika þar til úrslita um Evrópumeistaratit- ilinn. Búlgaría varð í þriðja sæti riðilsins með tvo sigra gegn Íslandi. Fimmtán stiga tap gegn Búlgaríu í Laugardalshöll var minnsta tap ís- lenska liðsins í keppninni. Hildur Björg Kjartansdóttir og Þóra Kristín Jónsdóttir voru allt í öllu hjá íslenska liðinu í Ljubljana á laugardaginn en þær skoruðu 42 af 59 stigum liðsins. Ísland varð fyrir áfalli strax í fyrsta leikhluta þegar Sara Rún Hinriksdóttir, leikmaður Leicester á Englandi, meiddist og varð að fara af velli. Undankeppnin var óvenjuleg vegna kórónuveirufaraldursins en íslenska liðið gat af völdum hans aðeins leikið einn leik á heimavelli. Fyrstu tvær umferðirnar fóru fram samkvæmt áætlun en seinni fjórar umferðirnar voru leiknar á Krít og í Ljubljana, tvær umferðir á hvor- um stað. Stig Íslands: Hildur Kjart- ansdóttir 25 (9 fráköst), Þóra Krist- ín Jónsdóttir 17 (8 stoðsendingar), Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 6, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 5, Dag- björg Dögg Karlsdóttir 3, Ásta Júl- ía Grímsdóttir 2, Lovísa Björt Henningsdóttir 1. vs@mbl.is Hildur og Þóra voru allt í öllu í Ljubljana Ljósmynd/FIBA 25 Hildur Björg Kjartansdóttir skorar í leiknum við Slóveníu. HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: TM-höllin: Stjarnan – ÍBV ....................... 18 Varmá: Afturelding – FH .................... 19.30 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin: HS Orkuhöll: Grindavík – KR............. 19.15 MG-höll: Stjarnan – ÍR........................ 19.15 Í KVÖLD!  Knattspyrnumaðurinn Daníel Haf- steinsson er kominn aftur til KA eftir tveggja ára fjarveru og hefur samið við félagið til þriggja ára. Hann fór til Helsingborg í Svíþjóð 2019 og var lánaður þaðan til FH á síðasta ári.  Aron Bjarnason skrifaði á laug- ardag undir samning við sænska knattspyrnufélagið Sirius sem kaupir hann af Újpest í Ungverjalandi. Aron var í láni hjá Val á síðasta ári og varð Íslandsmeistari með Hlíðarendalið- inu.  Kristján Örn Kristjánsson lands- liðsmaður í handknattleik sagði við handbolta.is um helgina að hann yrði frá keppni í tvær til þrjár vikur. Krist- ján gat ekki leikið með Aix í Frakk- landi um helgina eftir að hafa tognað á ökkla á æfingu.  Ari Freyr Skúlason landsliðs- maður í knattspyrnu missti af sig- urleik Oostende gegn St. Truiden, 3:1, í belgísku A-deildinni. Félagið til- kynnti fyrir leikinn að hann hefði greinst smitaður af kórónuveirunni.  Þá gat Lommel, lið Kolbeins Þórð- arsonar, ekki mætt til leiks í belg- ísku B-deildinni vegna kórónu- veirusmita og var úrskurðaður 0:5 ósigur gegn Seraing.  Sverrir Ingi Ingason forðaði PAOK frá óvæntu tapi gegn Smyrnis á heimavelli í grísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Hann jafnaði, 2:2, á 88. mínútu og gerði þar sitt fjórða mark í deildinni á tímabilinu.  Alfreð Finnbogason gat ekki leik- ið með Augsburg þegar liðið tapaði fyrir Wolfsburg, 0:2, í þýsku 1. deild- inni í knattspyrnu á laugardag. Á heimasíðu Augsburg var sagt að Al- freð ætti við meiðsli í kálfa að stríða.  Zlatan Ibrahimovic skoraði sitt 500. og 501. mark í mótsleik á ferl- inum þegar AC Milan vann Crotone, 4:0, í ítölsku A-deildinni í knatt- spyrnu í gær. Lið hans er með tveggja stiga forskot á Inter á toppi deildarinnar.  Jón Dagur Þorsteinsson, fyrirliði 21-árs landsliðsins í knattspyrnu, kom AGF í annað sæti dönsku úrvals- deildarinnar í gær þegar hann skor- aði sigurmarkið gegn Lyngby, 1:0.  Kvennalið Selfoss í knattspyrnu fékk tvo nýja leikmenn í sínar raðir um helgina. Miðjumaðurinn Eva Núra Abrahamsdóttir kemur frá FH en hún á að baki 109 úrvalsdeildarleiki með FH og Fylki og einn A-landsleik. Daníel Hafsteinsson Sverrir Ingi Ingason Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.