Morgunblaðið - 08.02.2021, Síða 27
Þýski markvörðurinn Anke Preuss
kemur frá Vittsjö í Svíþjóð en hún
hefur leikið með Liverpool, Sunder-
land, Frankfurt, Hoffenheim og Duis-
burg og yngri landsliðum Þýska-
lands.
Daníel Freyr Andrésson var með
tæplega 50 prósent markvörslu fyrir
Guif í gærkvöld þegar liðið vann
óvæntan útisigur á toppliði Malmö,
32:27, í sænsku úrvalsdeildinni í
handknattleik. Daníel varði 18 skot í
leiknum.
Hilmar Smári Henningsson, tví-
tugur Hafnfirðingur, átti sannkall-
aðan stórleik með varaliði Valencia í
spænsku D-deildinni í körfuknattleik
á laugardaginn. Hilmar Smári skor-
aði 43 stig fyrir Valencia í stórsigri,
100:64, á Puerto Sagunto.
Sigvaldi Björn Guðjónsson lands-
liðsmaður í handknattleik skoraði
níu mörk fyrir pólsku meistarana
Kielce þegar þeir unnu Stal Mielec
38:28 á laugardaginn. Kielce hefur
unnið alla tólf leiki sína og er með
níu stiga forskot á næstu lið.
Eva Núra
Abrahamsdóttir
Sigvaldi Björn
Guðjónsson
Haukar eru búnir að koma sér vel
fyrir á toppi úrvalsdeildar karla í
handknattleik, Olísdeildarinnar,
með þremur sannfærandi sig-
urleikjum á átta dögum eftir að Ís-
landsmótið hófst á ný í lok janúar.
Þeir hristu Framara af sér í seinni
hálfleik á Ásvöllum í gær og sigr-
uðu, 34:28.
Darri Aronsson var í stóru hlut-
verki hjá Haukum og skoraði 9
mörk en Orri Freyr Þorkelsson
gerði átta. Þorgrímur Smári Ólafs-
son og Vilhelm Poulsen voru at-
kvæðamestir Framara með 5 mörk
hvor. Andri Sigmarsson Scheving
varði 14/2 skot í marki Hauka og
var með 40 prósent markvörslu.
Valsmenn eru í öðru sæti eftir
sigur á Gróttu, 30:28, á Seltjarn-
arnesi en sex mörkum munaði á lið-
unum skömmu fyrir leikslok. Finn-
ur Ingi Stefánsson skoraði 7 mörk
fyrir Val, Arnór Snær Óskarsson
og Magnús Óli Magnússon 6 mörk
hvor. Andri Þór Helgason skoraði 9
mörk fyrir Gróttu og Stefán Huldar
Stefánsson var með 40 prósent
markvörslu í marki Seltirninga en
hann varði 18 skot.
Selfyssingar eru aðeins með
þrjú stig töpuð eftir öruggan sigur
á Þór, 33:24, og hafa verið mjög
sannfærandi í tveimur fyrstu leikj-
unum eftir fríið. Atli Ævar Ingólfs-
son skoraði 7 mörk fyrir Selfoss og
Einar Sverrisson 5 en Arnþór Gylfi
Finnsson og Ihor Kopyshynskyi
gerðu 5 mörk hvor fyrir Þór.
KA burstaði botnlið ÍR, 32:16,
og vandséð er hvar ÍR-ingar eigi að
fá stigin í vetur. Árni Bragi Eyjólfs-
son skoraði 6 mörk fyrir KA sem
skoraði tíu mörk í röð seinni hluta
síðari hálfleiksins. vs@mbl.is
Haukarnir sann-
færandi eftir fríið
Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
Mark Þorvaldur Tryggvason skorar
fyrir Fram gegn Haukum.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. FEBRÚAR 2021
Dominos-deild karla
Þór Þ. – Höttur ..................................... 97:89
Þór Ak. – Njarðvík ............................... 90:68
Haukar – Valur..................................... 85:78
Keflavík – Tindastóll .......................... 107:81
Staðan:
Keflavík 9 8 1 842:730 16
Þór Þ. 9 6 3 893:801 12
Stjarnan 8 6 2 766:692 12
ÍR 8 5 3 719:706 10
Grindavík 8 5 3 710:728 10
Njarðvík 9 4 5 767:792 8
Tindastóll 9 4 5 834:845 8
KR 8 4 4 720:755 8
Þór Ak. 9 3 6 801:843 6
Valur 9 3 6 728:767 6
Höttur 9 2 7 798:857 4
Haukar 9 2 7 749:811 4
Spánn
Zaragoza – Obradorio ........................ 83:70
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 8 stig
fyrir Zaragoza og tók 7 fráköst á 18 mín-
útum.
Valencia – Real Betis .......................... 89:82
Martin Hermannsson skoraði 13 stig
fyrir Valencia, átti 4 stoðsendingar og tók 2
fráköst á 22 mínútum.
Þýskaland
Vechta – Fraport Skyliners ............... 72:96
Jón Axel Guðmundsson skoraði 12 stig
fyrir Fraport, tók 4 fráköst og átti eina
stoðsendingu á 27 mínútum.
Litháen
Siaulai – Rytas ..................................... 85:98
Elvar Már Friðriksson skoraði 18 stig
fyrir Siauliai, tók 5 fráköst og átti 3 stoð-
sendingar á 29 mínútum.
ekki áhorfendur. Fyrstu köstin voru
erfið, það var einhver að tala og það
var lækkað í tónlistinni og þá kom
algjör þögn. Mér finnst rosalega erf-
itt að kasta í þögn. Það er ógeðslega
leiðinlegt og andrúmsloftið er dauft.
Það dregur mig niður. Svo var
hækkað í tónlistinni og við náðum að
öskra á hver annan. Maður gíraðist
upp við það og ég var vel gríraður
fyrir síðasta kastið. Kannski þurfti
ég eitt kast í viðbót og þá hefði ég
náð 19 metrunum,“ sagði Guðni en
lengsta kastið kom í síðustu tilraun.
Guðni sló 31 árs gamalt Íslands-
met Vésteins Hafsteinssonar í
kringlukasti í september á síðasta
ári er hann kastaði 69,35 metra. Það
kast hefði tryggt honum sæti á Ól-
ympíuleikunum, en glugginn fyrir
lágmörk á leikana var lokaður.
Hann hefur því enn ekki tryggt sitt
sæti á leikunum í Tókýó í sumar.
Guðni er þó afar brattur.
„Ég tel möguleikana mína vera
100 prósent. Ég er ekki í neinum
vafa um að ég nái að kasta 66 metr-
ana sem þarf til að komast á leikana.
Ég á nú þegar kast sem er þremur
metrum lengra. Ég á eftir að prófa
að kasta 66, 67 og 68 metra á einu
móti og ég ætla mér að gera það í
sumar. Ég er að kasta vel í netið á
æfingum,“ sagði Guðni.
Hann segir dagskrá næstu vikna
og mánaða óljósa hjá sér.
„Ég hef ekki grænan,“ sagði
Guðni. Ég kastaði núna og ég gæti
alveg eins verið farinn í einhverjar
æfingabúðir erlendis eftir ein-
hverjar vikur. Það fer eftir því
hvernig Covid er. Ég væri til í að
vera úti núna að kasta svo það væri
hægt að einblína á Ólympíuleikana
en kannski er betra að vera heima
og kasta í net. Ég vil ekki fara út og
mögulega veikjast af kórónuveir-
unni og missa af tveimur vikum á
æfingum og glíma við einhver eft-
irköst. Það væri leiðinlegt,“ sagði
Guðni.
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir
vann 60 metra og 200 metra hlaup á
7,58 sekúndum og 24,42 sekúndum.
Kolbeinn Höður Gunnarsson
gerði slíkt hið sama í karlaflokki á
6,87 sekúndum og 21,69 sekúndum.
Hinn efnilegi Kristján Viggó
Sigfinnsson stökk 2,04 í hástökki og
fagnaði sigri.
Nánar er fjallað um leikana á
mbl.is/sport/reykjavikurleikar/.
„Ég fer á Ólympíuleikana“
Kolbeinn og Guðbjörg unnu tvær
greinar Kristján Viggó stökk hæst
Morgunblaðið/Eggert
Bæting Guðni Valur Guðnason náði sínum besta árangri í kúluvarpi í gær.
FRJÁLSAR
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Guðni Valur Guðnason bar sigur úr
býtum í kúluvarpi á Reykjavík-
urleikunum í Laugardalshöllinni í
gær. Guðni varpaði kúlunni lengst
18,81 metra sem er persónulegt
met.
„Ég er mjög sáttur. Ég kom inn í
mótið og stefndi á 19 metra og fór í
18,81 sem er mjög gott. Það eru fáir
á Íslandi sem hafa kastað svona
langt og miðað við að ég sé ekki að
leggja mikla áherslu á kúluvarp er
ég mjög glaður að hafa náð 18,81 og
bætt mig,“ sagði Guðni við Morg-
unblaðið. Hann æfir kúluvarpið lítið.
„Ég æfði þetta svona fjórum sinn-
um fyrir þetta mót,“ sagði Guðni og
hló. „Ég vildi ná 19 metrum en það
vantaði áhorfendurna og rafmagn-
aðra andrúmsloft til að hvetja mig
meira áfram.“
Erfitt að kasta í þögn
„Það var tónlist á meðan við
kepptum, svo þetta var ekki alveg
steindautt eins og maður óttaðist
fyrst þegar maður vissi að það yrðu
Ragnheiður Júlíusdóttir skoraði 12
mörk í gær þegar Fram vann afar
öruggan sigur á HK, 32:22, í Kórn-
um þegar áttundu umferð úrvals-
deildar kvenna í handknattleik, Ol-
ísdeildarinnar, lauk.
Karólína Bæhrenz skoraði 7
mörk fyrir Fram en Tinna Sól
Björgvinsdóttir var atkvæðamest
hjá HK með 7 mörk.
Fram komst því að hlið KA/Þórs
á toppnum en Akureyrarliðið vann
ÍBV í spennuþrungnum leik á laug-
ardaginn, 24:23. Ásdís Guðmunds-
dóttir skoraði sigurmark KA/Þórs
úr vítakasti rétt fyrir leikslok eftir
að Eyjakonur höfðu verið yfir nær
allan tímann. Ásdís skoraði 7 mörk
fyrir KA/Þór en Birna Berg Har-
aldsdóttir 7 fyrir ÍBV.
Þórey Anna Ásgeirsdóttir skor-
aði jöfnunarmark Vals gegn Hauk-
um, 19:19, í öðrum spennuleik á Ás-
völlum á laugardaginn.
Eva Björk Davíðsdóttir skoraði
10 mörk fyrir Stjörnuna sem vann
FH af öryggi, 29:22, í Kaplakrika á
laugardaginn. vs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
Kórinn Kristín Guðmundsdóttir úr HK og Ragnheiður Júlíusdóttir úr Fram
með augun á boltanum í leik liðanna í Kópavogi í gær.
Tólf frá Ragnheiði og
Fram náði KA/Þór
Olísdeild karla
Grótta – Valur....................................... 28:30
Haukar – Fram..................................... 34:28
KA – ÍR ................................................. 32:16
Selfoss – Þór ......................................... 33:24
Staðan:
Haukar 7 6 0 1 204:170 12
Valur 8 5 0 3 234:218 10
Afturelding 6 4 1 1 146:144 9
Selfoss 6 4 1 1 163:148 9
ÍBV 6 4 1 1 174:161 9
FH 7 4 1 2 198:179 9
KA 7 2 3 2 183:167 7
Fram 8 3 1 4 190:196 7
Stjarnan 6 2 1 3 156:162 5
Grótta 8 1 3 4 197:204 5
Þór Ak. 8 1 0 7 186:221 2
ÍR 7 0 0 7 161:222 0
Olísdeild kvenna
KA/Þór – ÍBV ....................................... 24:23
Haukar – Valur..................................... 19:19
FH – Stjarnan....................................... 22:29
HK – Fram............................................ 22:32
Staðan:
KA/Þór 8 5 2 1 189:171 12
Fram 8 6 0 2 236:195 12
Valur 8 4 3 1 220:180 11
Stjarnan 8 5 0 3 213:202 10
Haukar 8 3 1 4 191:208 7
ÍBV 8 3 1 4 200:188 7
HK 8 2 1 5 197:216 5
FH 8 0 0 8 157:243 0
Spánn
Barcelona – Anaitasuna ..................... 40:23
Aron Pálmarsson skoraði 2 mörk fyrir
Barcelona.
Danmörk
SönderjyskE – Ribe-Esbjerg ............. 28:23
Sveinn Jóhannsson skoraði eitt mark
fyrir SönderjyskE. Rúnar Kárason skoraði
4 mörk fyrir Ribe-Esbjerg og Gunnar
Steinn Jónsson 3.
GOG – Tvis Holstebro ......................... 30:35
Viktor Gísli Hallgrímsson varði 6/2 skot
(18%) í marki GOG. Óðinn Þór Ríkharðsson
skoraði ekki fyrir Tvis Holstebro.
Vendsyssel – Aarhus United.............. 24:25
Steinunn Hansdóttir skoraði 2 mörk fyr-
ir Vendsyssel og Elín Jóna Þorsteinsdóttir
varði 11 skot í marki liðsins, 33 prósent.
Svíþjóð
IFK Ystad – Alingsås .......................... 19:31
Aron Dagur Pálsson skoraði 2 mörk fyr-
ir Alingsås.
Malmö – Guif ........................................ 27:32
Daníel Freyr Ágústsson varði 18 skot í
marki Guif, 49 prósent markvarsla.
Þýskaland
Minden – Balingen .............................. 20:27
Oddur Gretarsson skoraði 4 mörk fyrir
Balingen.
Stuttgart – Coburg.............................. 23:29
Viggó Kristjánsson skoraði 6 mörk fyrir
Stuttgart en Elvar Ásgeirsson ekkert.
B-deild:
Eisenach – Bietigheim ....................... 29:34
Aron Rafn Eðvarðsson varði 9 skot í
marki Bietigheim. Hannes Jón Jónsson
þjálfar liðið.
Sachsen Zwickau – Leipzig ............... 32:21
Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði 4 mörk
fyrir Sachsen Zwickau.
Pólland
Kielce – Stal Mielec ............................. 38:28
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 9
mörk fyrir Kielce.
Valsmenn urðu á laugardag
Reykjavíkurmeistarar karla í
knattspyrnu í 23. skipti og í fyrsta
sinn í fjögur ár þegar þeir unnu
Fylki í vítaspyrnukeppni, 5:4, eftir
að liðin skildu jöfn, 1:1, í úrslitaleik
á Hlíðarenda. Patrick Pedersen
kom Val yfir í byrjun síðari hálf-
leiks en Orri Sveinn Stefánsson
jafnaði fyrir Fylki tveimur mín-
útum síðar. Kristófer Jónsson, sem
kom til Vals frá Haukum í vetur,
tryggði Val sigurinn þegar hann
skoraði úr sjöttu spyrnu Hlíð-
arendaliðsins.
Kristófer tryggði
Val sigurinn
Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
Valur Haukur Páll Sigurðsson og
Patrick Pedersen með bikarinn.