Morgunblaðið - 09.02.2021, Page 1
hugsanlega verður það ekki fyrr en um eða eftir helgi. Fer
það m.a. eftir hrognafyllingu, veðri og öðrum aðstæðum.
Loðna var ekki veidd við landið í fyrra og hitteðfyrra, en í ár
mega íslensk skip veiða samtals tæplega 70 þúsund tonn.
Um 20 norsk skip voru í gær að veiðum úti af Austfjörðum.
Þrjú íslensk fyrirtæki hafa síðustu daga keypt loðnu af norsk-
um skipum. Loðnu hefur í framhaldinu verið landað og unnin
hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað, Eskju á Eskifirði og
Loðnuvinnslunni a Fáskrúðsfirði, alls tæplega 2.200 tonnum.
Ekki liggur fyrir hvenær íslensku skipin halda til veiða, en
Metverð var greitt fyrir loðnuna á uppboðsmarkaði Norges
Sildesalgslag fyrstu daga vertíðar. Verðið lækkaði aðeins um
helgina og voru gjarnan greiddar um 180-190 krónur fyrir
kílóið. Í gær hækkaði verðið á ný og norskt fyrirtæki borgaði
um 227 krónur fyrir kílóið í einum farminum. aij@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Nótin um borð og gert klárt fyrir loðnuvertíðina
Loksins loðnuvertíð Nótin var hífð um borð í Víking AK við Skarfabakka í Reykjavík í gær. Brottför er ekki ákveðin, en allt er orðið klárt um borð til að halda til veiða í fyrsta sinn í þrjú ár.
Þ R I Ð J U D A G U R 9. F E B R Ú A R 2 0 2 1
Stofnað 1913 33. tölublað 109. árgangur
VALDÍS STEFNIR
Á EVRÓPU-
MÓTARÖÐINA
HÁLENDIÐ
HEILLAR AÐ
VETRI TIL
MARGT BÝR
UNDIR YFIR-
BORÐINU
JEPPAMENN FLYKKJAST NÚ TIL FJALLA 10 LJÓÐ KARI ÓSKAR 28GLÍMDI VIÐ MEIÐSLI 27
Omeprazol
Actavis 20mg14 og 28 stk.
Magasýruþolin hylki sem innihalda 20 mg af virka
efninu Omeprazol og eru ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni með mat eða á fast-
andi maga. Kynnið ykkur notkunarleiðbeiningar,
varnaðarorð og frábendingar áður en lyfið er notað.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgi-
seðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða
lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um
áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar
um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Markaðsleyfishafi:
Actavis Group PTC ehf.
T
ev
a
0
2
8
0
6
2Síðustu ár hefur ákveðin auglýs-
ingaþreyta farið að gera vart við
sig á samfélagsmiðlum, nú þegar
fleiri eru byrjaðir að nýta miðlana
til að koma vörum sínum og þjón-
ustu á framfæri, að sögn Sigurðar
Svanssonar, eins af eigendum aug-
lýsingastofunnar SAHARA. Þreyt-
an lýsir sér m.a. þannig að fólk
veitir slæmri framsetningu á
markaðsefni sem birtist ein-
staklingum á röngum forsendum
minni athygli, eins og Sigurður
lýsir því. „Það ætti ekki að koma
neinum á óvart að þessi þreyta sé
farin að myndast, enda sjáum við
það greinilega í því hvernig ein-
staklingar eru farnir að færa sig
meira og meira inn í lokuð svæði á
borð við Facebook-hópa, lokuð
samtöl inni á Facebook Messenger
eða nýja miðla þar sem þeir eru
lausir við áreiti auglýsenda. Face-
book hefur til að mynda verið
mjög meðvitað um þetta og því
hefur samfélagsmiðillinn lýst því
yfir að hann vilji gefa efni frá ein-
staklingum meira vægi á miðl-
inum, þ.e. að þú sjáir meira af efni
frá vinum og vandamönnum, á
kostnað auglýsinga frá fyr-
irtækjum,“ segir Sigurður.
Hann bætir við að þeir miðlar
sem selji auglýsingar muni samt
alltaf á endanum finna leiðir til að
koma auglýsingum nær notendum,
sama hvort það eru opin svæði eða
lokuð. » 12
Þreytan kemur ekki á óvart
AFP
Auglýst Samfélagsmiðlar reyna
hvað þeir geta að ná til fólks.
Fólk flýr inn í hópa og spjall undan áreiti auglýsinga Fulltrúar íslenskra stjórnvalda
funda með forsvarsmönnum lyfja-
framleiðandans Pfizer í dag um
framkvæmd mögulegrar hjarð-
ónæmistilraunar á Íslandi, sem við-
ræður hafa staðið yfir um, um
nokkra hríð. Heimildir Morg-
unblaðsins herma að líkur séu á að
endanlegrar niðurstöðu sé að
vænta eftir fundinn í dag. Hann er
haldinn síðdegis.
Fari svo að ráðist verði í verk-
efnið, eru innviðir til framkvæmd-
arinnar nærri því tilbúnir hér á
landi. Komið hefur fram í fréttum
að fjöldabólusetningarstöð er þeg-
ar risin í Laugardal og fleiri
íþróttahús geti einnig nýst undir
starfsemina. Hægt verður að bólu-
setja tugi þúsunda á degi hverjum á
slíkum stöðum. »6
Stjórnvöld funda
með Pfizer í dag