Morgunblaðið - 09.02.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.02.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 2021 STIGA ST5266 P 40 ár á Íslandi Hágæða snjóblásarar Fjölbreytt úrval Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is VETRARSÓL er umboðsaðili Gulltryggð gæði Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Mun færri gengu í hjúskap á sein- asta ári en á árunum þar á undan. Tæplega 660 færri hjónavígslur fóru fram í fyrra en á árinu 2019 samkvæmt tölum sem fengust hjá Þjóðskrá Íslands í gær. Mörg pör þurftu að fresta fyr- irhuguðu brúðkaupi vegna farald- urs kórónuveirunnar og sam- komutakmarkana. Alls fóru fram 3.480 hjónavígslur í fyrra sam- anborið við 4.136 á árinu á undan. Hjónavígslum í kirkjum þjóðkirkj- unnar fækkaði úr 1.636 á árinu 2019 í 1.490 á seinasta ári. Hjóna- vígslum hjá sýslumanni fækkaði líka nokkuð. Þær voru 1.383 á árinu 2019 en 1.276 fóru fram í fyrra. Hrun í komum erlendra ferða- manna birtist einnig í þessum töl- um því mun færri útlend pör voru gefin saman hér á landi í fyrra eða 248 samanborið við 615 hjóna- vígslur erlendra ríkisborgara á árinu 2019. Hjónavígslum í skráð- um trúfélögum utan þjóðkirkj- unnar fækkaði í fyrra frá árinu á undan og voru 462 en 502 á árinu 2019. Nú virðist hins vegar gæta auk- innar bjartsýni á að brátt sjái fyr- ir endann á faraldrinum og fjölda- takmörkunum svo hægt verði að halda brúðkaup þegar líður á árið og næsta sumar. Að sögn sr. Guð- rúnar Karls Helgudóttur sókn- arprests í Grafarvogskirkju hefur lifnað yfir þessu og mörg pör hafa hug á kirkjubrúðkaupi í sumar. „Fólk er mikið að bóka núna fyrir sumarið en það er líka töluvert mikið búið að bóka á árinu 2022 því sumir vilja hafa vaðið fyrir neðan sig og bíða. Ég hugsa að það hafi ekki oft verið bókað eins mikið með svona löngum fyrirvara eins og núna er fyrir árið 2022,“ segir hún. Töluvert var um að pör þyrftu að fresta fyrirhuguðum brúð- kaupum sl. vor og í byrjun sum- ars. Svo þegar í ljós kom síðsum- ars að ástandið vegna faraldursins héldi áfram gripu margir til þess ráðs að fresta stóru brúðkaups- athöfninni en halda í staðinn litla athöfn í kirkjunni með fjölskyldu og nánustu vinum. Ætla síðan að bjóða gestum aftur til kirkju í sumar og halda þá blessunar- athöfn og stóra veislu svo fleiri gestir fái að upplifa athöfnina með þeim í kirkjunni. Hún segir að mikill meirihluti hafi ákveðið að halda sig við brúðkaupsdaginn og ætli sér svo að vera með stærri athöfn síðar þegar búið verður að aflétta fjöldatakmörkunum. Laufey Böðvarsdóttir, kirkju- haldari í Dómkirkjunni, segir að margir hafi þurft að flytja til dag- setningar hjónavígslna í kirkjunni í fyrra en margir hafi verið í sam- bandi við kirkjuna og ætli því ekki að hætta við fyrirhugað brúðkaup, sem sé mjög ánægjulegt. Sumir hafi líka ákveðið að láta farald- urinn ekki stoppa sig og gengið í hjónaband þótt ekki mættu vera nema tíu gestir að hámarki við at- höfnina í kirkjunni en ætli sér svo að halda veisluna síðar. Þessi fá- mennu brúðkaup hafi verið mjög fallegar athafnir. Að sögn hennar er töluvert um bókanir fyrir brúð- kaup í Dómkirkjunni á þessu ári og líka 2022 en þó ekki jafn mikið og bókað var fyrir síðasta ár. 656 færri hjónavígslur í fyrra en 2019  Mörgum brúðkaupum var frestað en lifnað hefur yfir bókunum í sumar og fram á árið 2022 Fjöldi hjónavígslna 2018 til 2020 Heildarfjöldi 2018-2020 Tegund hjónavígslna 2018-2020 5.000 4.000 3.000 2.000 1.000 0 2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 2018 2019 2020 2018 2019 2020 Heimild: Þjóðskrá Íslands 4.328 4.136 3.480 Hjónavígsla í þjóðkirkju Hjá sýslu- manni Hjá trúfélagi utan þjóðkirkju Erlend hjónavígsla 1.276 462 252 1.490 Leyft verður að veiða allt að 1.220 hreindýr á þessu ári, 701 kú og 519 tarfa. Það er nokkur fækkun frá því í fyrra en þá mátti veiða allt að 1.325 dýr, 805 kýr og 520 tarfa. Heimildin til veiða er veitt með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðunum. Mesta breytingin á milli ára virð- ist í fljótu bragði vera á veiðisvæði 2, það er í Fljótsdalshreppi og hluta Múlaþings. Þar verður nú leyft að veiða 275 hreindýr, 175 kýr og 100 tarfa. Í fyrra var kvótinn þar upp á 349 dýr, 191 kú og 158 tarfa. Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta þessa árs samkvæmt tillögum frá Um- hverfisstofnun. Veiðitími tarfa er frá 1. ágúst til 15. september, en þó get- ur Umhverfisstofnun heimilað veið- ar á törfum frá og með 15. júlí. Veiði- tími kúa er frá 1. ágúst til 20. september. Fyrstu tvær vikur veiðitímabilsins er veiðimönnum gert að forðast í lengstu lög að fella mylkar kýr svo draga megi eftir megni úr áhrifum veiðanna á kálfa, samkvæmt auglýs- ingu ráðuneytisins. Þess í stað eru veiðimenn eindregið hvattir til að veiða eingöngu geldar kýr. Er í þessu sambandi bent á hlutverk og skyldur leiðsögumanna við að að- stoða og leiðbeina veiðimönnum við val á bráð. Veturgamlir tarfar eru friðaðir sem fyrr og einnig er óheimilt að veiða hreinkálfa. gudni@mbl.is Hreindýraveiðileyfum fækk- ar talsvert á svæði 2 frá 2020  Hreindýrakvóti 2021 er 125 dýrum minni en í fyrra Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Hreindýr Umsóknir um veiðileyfi hafa verið mun fleiri en leyfi í boði. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Bálskýli í Haukadal brann til kaldra kola síðastliðinn fimmtudag. Skýlið sem var reist árið 2017 var stórt og stæðilegt og stóð í Hákonarlundi í Haukadalsskógi. „Fyrst og fremst erum við þakk- lát fyrir ekki hafi orðið slys á fólki við svona stóran bruna en um tals- vert tjón er að ræða og kostnaður- inn við byggingu svona skýlis hleyp- ur á milljónum,“ segir Trausti Jóhannsson, skógarvörður á Suður- landi. „Mikil mildi er að eldurinn hafi ekki dreifst víðar en veður var hagstætt, raki í jörðu og vindur hægur. Skýlið stendur úti í miðjum skógi og hæglega hefði eldur getað læst sig í skóginn og valdið gríð- arlegu tjóni.“ Talið er að atvikið hafi orðið síð- astliðið fimmtudagskvöld en engin tilkynning barst um brunann og urðu starfsmenn Skógræktarinnar varir við hann þegar þeir voru í eft- irliti um svæðið daginn eftir, þá var enn glóð í stólpum skýlisins. Að sögn Trausta hefur enginn gefið sig fram varðandi málið en lögreglunni á Selfossi var tilkynnt um brunann strax þegar starfsmenn Skógrækt- arinnar urðu varir við tjónið. Eldhafið mikið Trausti segir ljóst að eldhafið hafi verið mikið og eldsúlan há, en skýlið var yfir fimm metra hátt og byggt úr stórviði úr skóginum. Skýlið hef- ur verið vinsæll viðkomustaður heimamanna úr sveitinni og ferða- manna, innlendra sem erlendra, og því mikill missir að því. Óvíst er á þessari stundu hvort það verði end- urbyggt enda ná tryggingar ekki yf- ir svona mannvirki, að sögn Trausta. Allar ábendingar um málið má senda á trausti@skogur.is. Bálskýli brann til kaldra kola  Tjónið hleypur á milljónum  Tryggingar ná ekki yfir tjónið  Mildi að eldurinn breiddist ekki út Ljósmyndir/Trausti Jóhannsson Mikið tjón Þannig var aðkoman sem blasti við starfsmönnum Skógræktarinn- ar er þeir komu í Hákonarlund á föstudaginn. Ekki er vitað um eldsupptök. Áningarstaður Skýlið var vinsælt meðal heimamanna og ferðafólks.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.