Morgunblaðið - 09.02.2021, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 2021
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þessi aukning helst í hendur við
upplýsingar sem við höfum frá Euro-
pol og víðar. Netglæpir hafa aukist
mikið á þessum Covid-tímum,“ segir
Daði Gunnarsson, lögreglufulltrúi í
netbrotadeild hjá lögreglunni á höf-
uðborgarsvæðinu.
Skráðum netglæpum hjá lögregl-
unni á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði
mikið á síðasta ári frá 2019. Þeir
voru 422 í fyrra en 318 árið áður.
Nemur aukningin tæpum 33% á milli
ára.
Daði segir í samtali við Morgun-
blaðið að sig gruni að bæði sé um
fjölgun brota að ræða en einnig að
fólk sé duglegra að tilkynna slíka
glæpi en áður.
„Í kórónuveirufaraldrinum hafa
allir neyðst til að vera meira á netinu
en áður. Það að
fólk sé meira í
tölvunum eykur
hættuna á net-
glæpum. Þarna
erum við líka að
fást við atvinnu-
menn í þessari
grein. Það er
þeirra vinna að
svindla. Þetta er
skipulögð brota-
starfsemi og þessir menn eru með
fólk í vinnu við að reyna að svindla á
öðrum.
Við sáum það í fyrra að við heyr-
um undir stóran markað. Menn eru
kannski að herja á Norðurlöndin og
átta sig ekki alltaf á að ekki er talað
sama tungumál hér og í öðrum lönd-
um. Hingað barst til dæmis mikið af
póstum á dönsku þar sem reynt var
að blekkja fólk.“
Lögreglan flokkar netglæpi í
nokkra flokka, til að mynda fjársvik,
hótanir (til dæmis um myndbirting-
ar, ærumeiðingar og fleira), blygð-
unarsemisbrot og barnaníðsmál.
„Það hefur verið mikið um þetta
hefðbundna tölvupóstssvindl. Sömu-
leiðis svokölluð BEC-mál þar sem til
að mynda er verið að reyna að fá
fjármálstjóra í fyrirtækjum til að
millifæra fjármuni. Eins hafa vef-
veiðar aukist gríðarlega. Við sáum
það meðal annars í fölsuðum send-
ingum frá Póstinum, DHL og fleir-
um fyrir jólin. Þar erum við með
beina tengingu við Covid-ástandið,
það voru margir sem bjuggust við
sendingum og voru ekki nógu vel á
varðbergi.“
Daði segir aðspurður að netglæp-
um hafi fjölgað jafnt og þétt síðustu
ár. Hann kveðst ekki búast við öðru
en svo verði áfram. „Fólk var neytt
til þess að vera tæknivæddara í
fyrra. Margir fóru að versla á netinu
sem gerðu það ekki áður. Ég sé ekki
að þetta breytist og því býst ég frek-
ar við aukningu en hitt.“
Netglæpum fjölgaði um þriðjung
Aukin heimavinna og netverslun
Svipuð þróun hér og erlendis
AFP
Netglæpir Lögreglan telur að netglæpum muni halda áfram að fjölga.
Daði
Gunnarsson
Snorri Másson
snorrim@mbl.is
Barir og skemmtistaðir máttu opna í
gær í fyrsta sinn frá því í byrjun
október, á meðan veitingastaðir hafa
allan tímann mátt hafa opið þó með
skertum afgreiðslutímum. Nú er
þjónusta af þessum toga í boði til
klukkan 22 að kvöldi, en síðustu gest-
unum verður að vera hleypt inn í
seinasta lagi klukkan níu.
Í sóttvarnatilslökunum gærdags-
ins fólst einnig að leikhús mættu nú
hafa 150 gesti í sal í stað 100 og lík-
amsræktarstöðvar máttu hleypa
gestum í sturtu eftir æfingu. Nýjar
sóttvarnareglur gilda til 3. mars að
óbreyttu.
Aðeins 21 er í sóttkví á landinu og
28 í einangrun með Covid-19. Eitt
smit greindist innanlands í fyrradag
en undanfarna daga hafa greinst til
skiptis eitt og ekkert smit. Ráðist var
fyrr í tilslakanir en fyrirhugað hafði
verið vegna hagfelldrar þróunar í
faraldrinum. 4.856 hafa verið bólu-
settir.
Þrálátur orðrómur um árangur Ís-
lendinga í viðræðum við lyfjafram-
leiðandann Pfizer um fjöldabólusetn-
ingu í tilraunaskyni hér á landi var
ræddur á upplýsingafundi almanna-
varna í gær. Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir endurtók þar það sem
margoft hefur áður komið fram í máli
hans, að engin samningsdrög liggi
enn fyrir og að meðan svo sé, sé ekki
unnt að slá því föstu að af verkefninu
verði. Ekkert liggur fyrir um hve
mikið bóluefni kann að vera á leiðinni
eða hvenær það kemur.
Þórólfur sagði þá til skoðunar
hvort skikka ætti fólk í farsóttarhús á
milli skimananna tveggja sem það er
skyldað í við komuna til landsins eða
hvort einfaldlega ætti að gera kröfu
um neikvæða niðurstöðu úr sýnatöku
áður en fólki væri hleypt inn í landið.
Morgunblaðið/Eggert
Langþráð opnun Barir og skemmtistaðir hafa verið lokaðir frá því í október, en veitingastaðir opnir.
Beint á barinn eftir
fjögurra mánaða lokun
Aðeins 21 í sóttkví á landinu 4.856 hafa verið bólusettir
Innanlandssmit:
12 ný smit greindust sl. 14 daga
Nýgengi er: 3,3
Fjöldi í sóttkví: 21
Smit á landamærum:
49 virk smit greindust sl. 14 daga
Nýgengi er: 6,0
Fjöldi í skimunarsóttkví: 987
28 eru með virkt smit og í einangrun
Fjöldi smita
frá 30.6. '20
Heimild: covid.is
júlí ágúst september október nóvember desember janúar
Fjöldi smita innanlands
Fjöldi smita á landamærum
„Sú umræða að gera þurfi kerfis-
breytingar í skólastarfi jafnhliða end-
urskoðun námskrár er sjaldnast rök-
studd, til dæmis með því hvernig
fækkun námsára eða stytting sum-
arfrís eigi að vera til bóta,“ segir
Ragnar Þór Pét-
ursson formaður
Kennarasam-
bands Íslands.
Menntamál í
eru nú í deiglunni
á vettvangi Sam-
taka atvinnulífs-
ins sem hafa lagt
til breytingar á
skólastarfi. Í við-
tali í Morgun-
blaðinu í gær
sagði Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir,
forstöðumaður samkeppnishæfnis-
sviðs samtakanna, að endurskoða
þyrfti ýmsa kerfislega þætti í skóla-
starfi, sem að mörgu leyti væri fast í
viðjum þeirra 40 mínútna sem hver
kennslustund er.
„Vissulega eru 40 mínúturnar
gamalt viðmið í skólastarfi, sem víða
hefur þó verið brotið upp. Kennarar
fara yfir námsefnið með ólíkum að-
ferðum, flétta jafnvel námsgreinum
saman í verkefnavinnu og nálgast
markmið námskrár því með ýmsu
móti. Skólastarf hefur breyst mikið
síðustu ár,“ segir Ragnar Þór.
„Það er athyglisvert ef grunnskól-
inn á að taka að sér sífellt viðameira
hlutverk, svo sem tómstunda- og
íþróttastarf og jafnvel hlutverk fjöl-
skyldna. Á Íslandi eins og annars
staðar er þróunin í þá átt að stytta
vinnutíma og auka samverustundir
fjölskyldna, til dæmis með styttingu
vinnuvikunnar. Þær gæðastundir
eiga fjölskyldurnar að nýta sér sam-
an. Íslenskt samfélag hefur sömuleið-
is tilhneigingu til þess að fylgja ekki
eftir nægilega vel þeim kerfisbreyt-
ingum sem gera skal. Stefnan yfir-
leitt vandlega hugsuð en trú á töfra-
lausnir veldur því að úthaldið
brestur. Þannig ætlum við gjarnan að
gera það á tveimur árum sem aðrar
þjóðir gefa sér 20 ár í,“ segir Ragnar.
Hann segist þó sjá ýmsar vísbend-
ingar um að þetta sé að breytast. Nú
sé lagt meira upp úr langtímalausn-
um t.d. með eflingu kennaranáms og
fjölgun kennaranema.
„Vegna kórónuveirunnar varð að
breyta öllu skólastarfi – og sú upp-
stokkun var hugsuð og útfærð á örfá-
um dögum. Að segja skólakerfið
staðnað er því á margan hátt klisja
þótt mörgu megi breyta til bóta,“
segir Ragnar Þór. sbs@mbl.is
Skólastarf að
breytast hratt
Oftrú er á töfralausnir, að mati KÍ
Ragnar Þór
Pétursson