Morgunblaðið - 09.02.2021, Síða 6

Morgunblaðið - 09.02.2021, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 2021 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Eitrunarsíminn fékk 2.445 símtöl í fyrra eða tæplega sjö símtöl á dag. Merkjanleg aukning varð á símtöl- um vegna sótthreinsivökva og nikótínpúða. Þetta kemur fram í árs- skýrslu Eitrunarmiðstöðvar 2020. Árið 2019 voru skráð símtöl 2.217 og fjölgaði þeim því á milli ára. Betri skráning, meðal annars á almennum fyrirspurnum, og betra utanumhald skýrir að miklu leyti aukninguna. Símtölum vegna sjálfsskaða fækkaði úr 7% árið 2019 í 6,5% árið 2020 en símtölum vegna rangrar lyfjagjafar á stofnunum fjölgaði úr 11% í 13,4%. Af þeim 2.445 símtölum sem bár- ust í fyrra voru 1.948 eða 80% erind- anna afgreidd í símtalinu. Læknar á sjúkrahúsum eða bráðamóttökur hringdu 11% símtalanna, um 2% er- inda var vísað á heilsugæsluna, um 11,4% var vísað á bráðamótttöku og í um 7% tilvika var sjúklingurinn þeg- ar á sjúkrahúsi og var óskað eftir ráðgjöf vegna atviks. Í um 46% tilvika hringdu foreldrar í eitrunarsímann, í um 26% tilvika hringdi fólk sjálft, læknir eða heil- brigðisstofnun hringdu í 11% tilvika, einhver annar hringdi í 9% tilvika og maki í 3% tilvika. Hringjandi var ekki tilgreindur í 5% tilvika. Fleiri karlar (47%) hringdu en konur (43%) og í 9% tilvika var kyn ekki tilgreint og í 1% tilvika var það annað eða ekki vitað. Langflest símtölin bárust skömmu eftir (0-15 mínútum) að meint eitrun átti sér stað. Flestar eitranir (63%) urðu á heimilum. Eitrunarmiðstöðin starfaði á bráðaþjónustu meðferðarsviðs Landspítala 2020. Hennar helsta hlutverk er að sinna ráðgjöf um með- ferð eitrana til almennings og heil- brigðisstarfsmanna. Eitrunarsíminn 543-2222 er opinn fyrir alla og allan sólarhringinn. Einnig er hægt að ná sambandi við eitrunarsímann í gegn- um 112. gudni@mbl.is Sjö símtöl á dag vegna eitrana  Fleiri hringingar í Eitrunarsímann Morgunblaðið/Eggert Eitrunarsíminn Meira hringt vegna nikótínpúða og sótthreinsivökva. Þyrla pakistanska hersins flaug að- eins eina ferð um leitarsvæðið á K2 í gær í leit að John Snorra Sigurjóns- syni, Muhammad Ali Sadpara og Ju- an Pablo Mohr, enda leyfði veður ekki frekara flug. Í tilkynningu frá fjöl- skyldu Johns Snorra í gær kom fram að fyndust þeir ekki á meðan bjart væri, væru mjög litlar líkur á að þeir fyndust á lífi í framhaldinu. Þremenn- ingarnir sáust síðast á föstudags- morguninn, þegar sá fjórði í hópnum þurfti að snúa við niður sökum bilunar í súrefnistanki. Leitinni hefur ekki verið hætt enda þótt aðstæður til flugs geti orðið slæmar næstu daga, eins og veðurspá bendir til. Engu að síður er stefnt á að fljúga aftur á morgun ef það er hægt. Leitinni er annars haldið áfram í gegnum myndgreiningu og aðra yf- irgripsmikla nútímaleitartækni. Muhammad Ali Sadpara er eins konar þjóðhetja í Pakistan. Hann er eini Pakistaninn sem hefur klifið átta af fjórtán tindum veraldar, sem eru hærri en 8.000 metrar, og hefur hann verið títt umfjöllunarefni þarlendra fjölmiðla vegna afreka sinna á þessu sviði. Um tíma vann hann við flutn- inga fyrir pakistanska herinn. Telja má að tilraunir pakistanskra yfir- valda til að finna hópinn séu í takt við þá stöðu sem Sadpara hefur. Kuldinn hefur verið sérstaklega mikill á svæðinu og gerir það aðstæð- ur til leitar þeim mun verri. Hugað er vandlega að öryggi leitarmanna, sem leggja gríðarmikið á sig í þágu leit- arinnar. Fjölskylda Johns Snorra þakkaði íslenskum stjórnvöldum, borgara- þjónustu utanríkisráðuneytisins, rík- islögreglustjóra, Landhelgisgæslunni og Geimvísindastofnun fyrir „ómet- anlegan stuðning og fagmennsku“ meðan á leitinni hefur staðið. „Þetta er erfiður tími fyrir okkur fjölskyld- una og við óskum eftir því að fá and- rými til að takast á við þessa þung- bæru stöðu,“ var haft eftir Línu Móey Bjarnadóttur, eiginkonu Johns Snorra, í tilkynningu. snorrim@mbl.is Þyrluflug erfitt vegna veðurs næstu daga  Litlar líkur taldar á að John Snorri og félagar finnist á lífi Ljósmynd/Aðsend K2 John Snorri Sigurjónsson sást síðast fyrir fjórum sólarhringum. Vestmannaeyjar, Akureyri og Eyja- fjörður eru þau svæði sem koma best út í nýrri skoðanakönnun meðal íbúa landsins á búsetuskilyrðum, hamingju og við- horfi til síns sveitarfélags. Þetta segir í til- kynningu frá Samtökum sveit- arfélaga á Vest- urlandi. Að könn- uninni stóðu landshlutasamtök sveitarfélaga á landinu ásamt Byggðastofnun. Niðurstöðurnar byggja á svörum frá 10.253 þátttakendum. Í könnuninni var spurt um 40 bú- setuþætti. Var þannig spurt um hús- næðismál, nettengingar, vöruverð, þjónustu við fatlaða og aldraða, skólamál og fleira. Efnisatriðin voru því fjölbreytt. Þættir á borð við frið- sæld, náttúru og loftgæði fengu al- mennt nokkuð háar einkunnir. Ásthildur Sturludóttir, bæjar- stjóri á Akureyri, segist alsæl með niðurstöðurnar og þær komi henni ekki á óvart. „Lífsgæðin hérna eru bara óskaplega góð. Hér er náttúru- fegurð og mikil lífsgæði fólgin í því að þurfa ekki að vera lengi í umferð á morgnana. Stöðugt og gott at- vinnulíf og mikið um að vera í þó ekki stærri bæ en Akureyri,“ sagði Ásthildur og bætti við: „Þetta er bara frábær staður til að búa á.“ Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist glöð með niðurstöður könnunarinnar. „ Ég er auðvitað glöð og ánægð með þessar niðurstöður og býð fólk velkomið til Eyja,“ sagði Íris og bætti við: „Það hefur verið markvisst unnið að því að búa til samfélag sem er barnvænt og heldur vel utan um bæði unga sem aldna og ég veit að það skiptir bara miklu máli. Við erum sam- heldið samfélag sem býður nýja íbúa velkomna. Hér er hátt þjónustustig, falleg náttúra og fjölbreytt mann- líf.“ Hamingjan einnig könnuð Stærsti hópur þátttakendanna mat hamingju sína 8 á skalanum 1- 10. Lítill munur mældist á hamingju íbúa eftir landsvæðum en íbúar í Vestmannaeyjum og Snæfellsbæ reyndust þó hamingjusamastir sam- kvæmt könnuninni og jafnframt marktækt hamingjusamari en á öðr- um svæðum landsins. Íbúar höfuð- borgarsvæðisins og Reykjanes- bæjar voru hins vegar marktækt óhamingjusamari en aðrir. Íslendingar hamingjusamir  Ný könnun á búsetuskilyrðum Morgunblaðið/Eggert Akureyri Þau svæði sem koma best út í nýrri og viðamikilli skoðanakönnun meðal íbúa landsins eru Akureyri, Vestmannaeyjar og Eyjafjörður. Íris Róbertsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.