Morgunblaðið - 09.02.2021, Side 8

Morgunblaðið - 09.02.2021, Side 8
Morgunblaðið/sisi Selt Þinganesið í Slippnum í Reykjavík, næsti áfangastaður er Inverness. Skinney-Þinganes á Höfn í Horna- firði hefur selt gamla Þinganesið ÁR 25, áður SF, til Inverness í Skotlandi. Skipið er 30 ára gam- alt, smíðað í Portúgal 1991, og hafði verið á söluskrá í rúmt ár. Gamla Þinganesið hafði ekki verið í notkun í um ár eða frá því að nýtt Þinganes SF byrjaði róðra í byjun síðasta árs. Steinunn SF er systurskip nýja Þinganessins, bæði skipin smíðuð hjá Vard í Aukra í Noregi. Þau eru meðal sjö systurskipa, sem komu til landsins 2019. Samfara nýsmíði á þessum skip- um voru eldri Steinunn og Hvann- ey seld til Nesfisks í Garði, en þau skip voru smíðuð í Kína fyrir 20 árum. aij@mbl.is Gamla Þinganesið selt til Skotlands 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 2021 Hugsum áður en við hendum! www.gamafelagid.is 577 5757 Morgunblaðið greindi frá þvífyrir nokkru að Róbert Mars- hall, upplýsingafulltrúi forsætis- ráðherra, velti því alvarlega fyrir sér að fara fram fyrir vinstri græn í Reykjavík en nú hefur upplýsinga- fulltrúinn upplýst að hann hyggist taka þátt í forvali flokksins í Suður- kjördæmi. Þar mun hann meðal annars takast á við þing- manninn Kolbein Óttarsson Proppé sem einnig vill fylla það sæti sem losnar þegar Ari Trausti Guð- mundsson hverfur af þingi.    Róbert Marshall á tiltölulegaskrautlegan feril í stjórn- málum. Hann sat á þingi fyrir Sam- fylkinguna í Suðurlandskjördæmi frá 2009 til 2013 og svo fyrir Bjarta framtíð í Reykjavík á árunum 2013 til 2016. Sá flokkur missti þá fót- anna eftir ævintýralegan nætur- fund og Róbert varð eins og fleiri úr þeim óvenjulega flokki að reika um leitandi að heimahögum.    Svo bauðst honum fyrir tæpu áriað aðstoða forsætisráðherra við að upplýsa almenning um eitt og annað sem ella hefði farið fyrir ofan garð og neðan og nú virðist sem það hafi verið ætlað sem skref inn á þing á nýjan leik en undir öðr- um fána en áður.    Ekki er þó líklegt að frambjóð-andinn upplýsandi hafi kastað frá sér öllum fyrri baráttumálum. Eitt sem hann hlýtur að ætla að upplýsa nýja flokksfélaga sína um er afstaðan til Evrópusambandsins og hvort hann er enn sannfærður og ákafur stuðningsmaður aðildar Íslands að ESB. Það gætu talist nokkur pólitísk tíðindi ef slíkum fjölgar á framboðslistum VG og ekki víst að það verði flokknum til framdráttar. Róbert Marshall Upplýsandi framboð innan VG? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Bílaumferð um Mýrdalssand var að jafnaði um 70% minni allt síðastliðið ár en á árinu á undan ef undan eru skildir mánuðirnir júlí og ágúst. Yfir allt síðasta ár var umferðin að jafn- aði aðeins um helmingur umferðar- innar árið á undan. Þetta kemur fram í samantekt Hagstofunnar um umferðina í fyrra skv. umferðartelj- urum Vegagerðarinnar. Sem dæmi um samdráttinn á tím- um veirufaraldursins kemur fram að meðalfjöldi bifreiða sem ekið var um hringveginn á Mýrdalssandi í apríl, í miðri fyrstu bylgju faraldursins, fór úr því að vera 1.046 bílar á dag árið 2019 niður í 217 bíla í apríl í fyrra. Samkvæmt upplýsingum Vega- gerðarinnar sem birtar voru í sein- ustu viku jókst hins vegar umferðin á hringveginum í seinasta mánuði um tæp þrjú prósent miðað við janúar í fyrra og var sú næstmesta í fyrsta mánuði ársins síðan þessar mæling- ar Vegagerðarinnar hófust. „Athygl- isvert er að umferðin eykst þrátt fyr- ir gríðarlega fækkun ferðamanna og áhrif sóttvarnareglna sem ekki gætti fyrir ári síðan,“ sagði í frétt Vega- gerðarinnar. Hafa ber í huga að um- ferðin í janúar í fyrra dróst mikið saman frá sama mánuði ársins á und- an og var slæmt veðurfar talið skýra þann samdrátt að mestu. Miklu minni umferð á Mýrdalssandi  Umferðin tók kipp í janúar síðastliðnum og var meiri en í byrjun seinasta árs Morgunblaðið/Brynjar Gauti Umferð Áhrifa kórónuveirunnar gætti í fjölda bíla á þjóðvegum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.