Morgunblaðið - 09.02.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.02.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 2021 Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan Sjá verð og verðdæmi á heimasíðu okkar www.veislulist.is Fagnaðir Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar. PINNAMATUR Veislur eru okkar list! Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta Pinna- og tapasréttir eru afgreiddir á einnota fötum, klárt fyrir veisluborðið. Vatnajökulsþjóðgarður er í öðru sæti yfir áhugaverðustu þjóðgarða í Evrópu á árinu 2021 samkvæmt ný- birtum lista ferðasíðunnar TripAdvi- sor. Á heimsvísu er Vatnajökuls- þjóðgarður í 17. sæti. Reykjavíkurborg lendir í 33. sæti á lista yfir vinsælustu áfangastaðina í Evrópu samkvæmt TripAdvisor. Listinn er byggður á einkunna- gjöf og umsögnum ferðamanna á vefsíðunni. Í umfjöllun á vef Vatnajökuls- þjóðgarðs um þessa niðurstöðu Trip- Advisor segir að vísað sé til þess að í þjóðgarðinum megi finna yfirnátt- úrulegt landslag, bláa íshella, svarta sanda, fossa og grónar grundir, sem sé eftirsótt að kanna. Skeifulaga kvosin Ásbyrgi sé talin staður fyrir þá sem vilji kanna skóg- lendi og hvort sem klífa eigi hæsta tind Íslands, Hvannadalshnjúk, eða ganga að Dettifossi þá sé einstakt landslag og hrífandi jarðmyndandir nokkuð sem ekki megi láta fram hjá sér fara. Serengeti þjóðgarðurinn í Tans- aníu er í efsta sæti yfir áhugaverð- ustu þjóðgarða heims og í Evrópu er Yorkshire Dales-þjóðgarðurinn á Englandi í efsta sætinu. omfr@mbl.is Morgunblaðið/Golli Hvannadalshnúkur klifinn Val TripAdvisor byggist m.a. á meðmælum og einkunnagjöf ferðalanga. Vatnajökulsþjóðgarður er í 17. sæti á heimsvísu. Í öðru sæti í Evrópu  Vatnajökulsþjóðgarður valinn meðal áhugaverðustu þjóðgarða Evrópu Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Færðin er góð og fjöllin heilla,“ segir Sveinbjörn Halldórsson, for- maður Ferðaklúbbsins 4x4. Fjöldi jeppamanna var á ferðinni um helgina og margir voru til dæmis á svæðinu við Skjaldbreið og norð- ur af Þingvöllum. Einnig lögðu margir leið sína inn á Kjöl. „Núna er harðfenni yfir öllu sunnanverðu hálendinu og undirlagið því öruggt. Á harðskafanum er hægt að aka langar leiðir líkt og á mal- bikuðum vegi sé. Í fyrravetur og nú í haust var lítið um ferðir vegna kórónuveirunnar. Nú þegar faraldurinn er í rénun er frelsinu tekið fagnandi og farið á fjöll.“ Meiri snjór veit á gott Samfélag jeppafólks er stórt og félagsstarfið fjölbreytt. Alls eru 4- 5.000 félagar í 4x4, sem efnir til nýliðaferðar síðar í mánuðinum og stórar skipulagðar ferðir detta inn alltaf öðru hverju. Einnig er fólk í hópum duglegt að taka sig saman um leiðangra, lengri sem skemmri. Til eru á samfélags- miðlum hópar þar sem fólk hópar sig saman og fer í ferðir. Suður- hálendið er þá ofarlega á blaði, Langjökulsslóðir, Kjalvegur, Kerl- ingarfjöll og Landmannalauga- svæðið. Einnig er mikið farið um Línuveginn svonefnda, sem liggur frá Sultartanga um hálendið til vesturs að Skjaldbreið. „Til ferðalaga upp á hálendið þarf öfluga bíla og ekki er ráðlegt að fara á jökul á jeppa á minna en 38 tommu dekkjum. Og nú er besti tíminn til jeppaferða fram undan. Að vera inni á fjöllum í mars og apríl er ævintýr; daginn farið vel að lengja og yfirleitt nægur snjór. Núna er líka spáð snjókomu þegar líður á vikuna og meiri snjór veit á gott um ferðalög á næstunni,“ segir Sveinbjörn. Meðal þeirra sem fóru á fjöll um helgina var Rúnar Kjart- ansson, jeppamaður úr Garðabæ, með hópi fólks á fimm bílum sem lagði upp snemma á laugardags- morgun. Farið var úr bænum austur á Lyngdalsheiði vestan við Laugarvatn, hvar ekið var að Skjaldbreið, Tjaldafelli og Slunka- ríki. Þaðan var svo ekið inn á suð- urhluta Langjökuls og af honum vestanverðum niður að Húsafelli í Borgarfirði þangað sem komið var síðdegis. Bílamix í gangi í öðrum hverjum skúr „Færið var þægilegt og útsýnið tært. Svona ferðir eru algjört æv- intýri,“ segir Rúnar sem ekur um á Jeep Cherokee, kröftugum bíl sem er á 38 tommu dekkjum. „Þetta er þrjátíu ára gamall bíll vestan af fjörðum sem ég eign- aðist fyrir nokkru. Þennan jeppa mixaði ég saman með hjálp pabba míns og frænda. Notaði í smíðina varahluti úr öðrum bíl sem ég átti. Viðgerðabrasið er skemmtilegt. Margir jeppakarlar hafa notað ró- lega tímann að undanförnu til þess að breyta bílum. Í öðrum hverjum skúr í bænum hefur verið eitt- hvert mix í gangi og nú eftir nokkurra mánaða stopp er verið að taka bílana fram einn af öðrum. Fjallaflotinn er sennilega aldrei öflugri en nú og ferðahugur í flestum,“ segir Rúnar Ljósmynd/Rúnar Kjartansson Fastur Hluti af gleðinni í hverri fjallaferð er að koma sér í meinlaus vand- ræði. Þurfa að moka sig og síðan spóla upp úr fönnum og skafladrögum. Ljósmynd/Halldór Freyr Sveinbjörnsson Bílafloti Svæðið fyrir norðan og austan Þingvelli er vinsælt í vetrarferðum jeppamanna og hægt er að fara hindr- unarlaust um stór svæði. Hér er horft til Hlöðufells á mynd, sem tekin var í aldeilis frábæru ferðaveðri. Jeppamennirnir flykkjast til fjalla  Hálendið heillar að vetri  Breiðdekkjaðir bílar  Skjaldbreiður og Langjökull eru fjölfarin svæði Sveinbjörn Halldórsson Rúnar Kjartansson Ljósmynd/Halldór Freyr Sveinbjörnsson Vetrarríki Sé snjór nægur eru jeppamönnum allir vegir færir, enda eru þeir á góðum bílum með breið dekk. Myndin er tekin í Árskarði við Kerlingarfjöll.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.