Morgunblaðið - 09.02.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 09.02.2021, Blaðsíða 18
✝ Þóra G.Bene- diktsdóttir var fædd 9. september árið 1945. Hún lést 19. desember 2020. Móðir henn- ar var Þorbjörg Vilhjálmsdóttir frá Sandfellshaga í Öxarfirði í Norð- ur-Þingeyjarsýslu. Uppeldisfaðir Þóru var Einar Loftsson frá Neðra-Seli í Landssveit. Með fyrri eiginmanni sínum, Karli S. Karlssyni, átti Þóra tvö börn, Einar Þór og Ísól Björk. Seinni eig- inmaður Þóru var Skjöldur Krist- insson. Hann lést 27. ágúst árið 2016. Hann átti tvö börn, Kristin Þór og Kristínu. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Við viljum hér minnast hennar móður okkar og ömmu með þeim góðu minningum sem við eigum um hana, hvað hún var flott kona, hugmyndarík, fróðleiksfús, list- ræn og mörgum hæfileikum gædd, hvað hún gaf af sér til okk- ar. Hún var mjög flink í höndun- um, hafði gaman af því að teikna og skrifa, saumaði vandaðar flíkur, prjónaði fallegar peysur og var listakokkur. Þegar sá gállinn var á henni lék allt í höndum hennar. Fyrir afmæli, páska og jól gat hún sökkt sér í föndur, haft tíma og þolinmæði til að skapa og búa til skraut með börnunum. Þannig gat hún verið góð mamma, en ekki minna góð, skemmtileg og eftir- minnileg amma, svona akkúrat eins og ömmur eiga að vera og hefði örugglega orðið frábær langamma. Hún hafði þann hæfi- leika að gera hversdagslega hluti eftirminnilega og ævintýralega, og þannig var með ferðir í grasagarð- inn í Laugardal og síðar í Forna- lund, þetta voru ekki ferðir til að skoða blóm eða tré heldur ævin- týraferðir í aðra heima. Og hún hafði líka gaman af því að ferðast, skoða borgir og lönd, njóta menn- ingar og mannlífs, fór margar slík- ar ferðir. En sú sem henni þótti mest um var þegar hún fór með Obbu ömmu á aðventunni til Kan- ada til að halda jólahátíðina með Ísól og fjölskyldu. Þegar heim var komið var lengi minnst á þessa eft- irminnilegu og skemmtilegu jóla- ferð. Þið sem þekktuð hana þekkið þessa konu, en þið vitið líka hvern- ig hún gat verið, stundum aðeins Þóra G. Benediktsdóttir of góð með sig, eins og sagan af bíl- túrnum sýnir. Þá var hún með Ísól í framsætinu og Ísabellu Ósk í aft- ursætinu, var að keyra út á Álfta- nesveginn og ekur yfir á ranga ak- rein. Ísól dauðbregður og grípur andann á lofti og segir: Gættu þín, þú ert á öfugum vegarhelmingi. Þá fær hún svarið, nokkuð hofmóðugt og snúðugt: Hvaða læti eru þetta, heldur þú að ég viti það ekki, auð- vitað var allt undir kontról. Já, það kom fyrir að hún fór yfir á vitlausa akrein en hún hafði alltaf þessa trú á sér, ekki þessa viðteknu íslensku „þetta reddast“ heldur að hún sjálf væri við stjórn og þetta yrði allt í lagi. Og það kristallast í æðruleys- isbæninni sem hún hélt mikið upp á: Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. (Reinhold Niebuhr) Og hvorki skorti hana vit né kjark, var flutt í hlýjuna á Gran Canaria, búin að koma sér vel fyrir og eignast þar góðar vinkonur, hlakkaði til að fá börn og barna- börn í heimsókn, allt undir kont- ról, en þá kom kallið. Mamma, amma, skilur eftir sig svo margar, svo yndislegar minningar, ekki bara hvað hún gerði með okkur heldur einfaldlega hvernig hún var, þegar hún var tilbúin að hrósa og hvetja, hjálpa, styðja og breyta til hins betra. Fyrir hönd okkar og barna- barna, Einar Þór og Ísól Björk. 18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 2021 ✝ Ingimar Er-lendur Sig- urðsson rithöf- undur fæddist á Akureyri 11. des- ember 1933. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 2. febr- úar 2021. For- eldrar hans voru Sigurður Ingimar Helgason, f. 1. mars 1906, d. 2. janúar 1940, og Friðbjörg Jóns- dóttir, f. 25. ágúst 1900, d. 19. september 1995. Systkini hans voru Sigríður Freyja Sigurð- ardóttir, f. 23. júlí 1931, d. 15. júní 1970, og Birgir Sigurðsson rithöfundur, f. 28. ágúst 1937, d. 9. ágúst 2019. Fyrri kona Ingimars var Ragnheiður Jóns- dóttir kennari, f. 20. nóvember 1935. Þau skildu. Börn þeirra eru; Huld, f. 7. apríl 1956, Frið- björg, f. 8. ágúst 1959, Helga, f. 23. febrúar 1962, og Þóra, f. Ingimar Erlendur helgaði sig ritstörfum, aðallega ljóðlist. Rit Ingimars Erlendar eru; Sunnanhólmar, ljóð, 1959; Hveitibrauðsdagar, smásögur, 1961; Borgarlíf, skáldsaga, 1965; Íslandsvísa, skáldsaga, 1967; Ort á öxi, ljóð, 1973; Undirheimur, skáldsaga, 1974; Fiskar á fjalli, ljóð, 1974; Ís- landsvísa, norsk útgáfa, 1975; Grasið hefur grænar hendur, ljóð, 1975; Veruleiki draumsins, ljóð, 1976; Göngustafur vinds- ins, sögur, 1977; Fjall í þúfu, ljóð, 1978; Núvist, ljóð, 1980; Helgimyndir í nálarauga, ljóð, 1982; Ljóð á Lúthersári, 1983; Ljósahöld og myrkravöld, ljóð, 1985; Hvítamyrkur, ljóð, 1993; Hvítvoðungar, ljóð, 1997; Hvít- blinda, ljóð, 2000; Hvítalogn, ljóð, 2001; Hvítuvötn, ljóð, 2002; Hvítelfur I., ljóð, 2003; Hvítelfur II., ljóð, 2003, Hvíta- kista, ljóð, 2008, Ljóðdómur 2013, myndskreytt með ljóð- myndum eftir hann. Nokkur tónverk hafa verið samin eftir ljóðum hans. Útför Ingimars Erlendar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 9. febrúar 2021, klukkan 13. 11. nóvember 1963. Seinni kona Ingi- mars var Margrét S. Blöndal geðhjúkrunarfræð- ingur, f. 7. desem- ber 1939, d. 9 apríl 2006. Börn þeirra eru; Sigríður Freyja, f. 18. ágúst 1970, og Sigurður Vífill, f. 8. apríl 1977. Stjúpbörn Ingimars eru; Sölvi, f. 17. maí 1959, Elísabet, f. 19. júlí 1961, Ingveldur, f. 29. desember 1962, og Elsa María, f. 20. des- ember 1963. Barnabörn Ingi- mars eru 14 og barna- barnabörnin 11. Ingimar var kennaramennt- aður, blaðamaður við Morg- unblaðið 1959-1962, ritstjóri og ábyrgðarmaður Frjálsrar þjóð- ar 1962-1963. Hann hlaut við- urkenningu úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins 1973. Eins og ljós sem snögglega lifnar í myrkri; varpar skærri birtu í kringum sig, og hverfur jafn snögglega til ókunns upphafs síns – þannig er ljóðið, stjörnuhrap í brjósti mannsins, lýsir upp vitund hans eitt andartak, hverfur og skilur eftir minningu sína í myrkrinu eins og ósýnilegt ljós. Bréf án utanáskriftar. Eins og drengur tálgar spýtu, spón eftir spón unz höndin er tóm, skrifa ég þessar línur og orðin falla úr huga mér eins og svartar spænir á hvítan pappírinn. Ég skrifa ekki um ástina, sorgina, einver- una, kvölina, segi ekki sögu, syng ekki, græt ekki. Ég skrifa eins og drengur tálgar spýtu og orðin falla eins og svartar flygsur á hvítt hjarn. Eilífð. Þar sem skógurinn hverfur á vit draumsins hef ég reist mér hús án veggja. Þar sem áin líður gegnum sígrænan skóg hef ég reist mitt hús án dyra. Þar sem skógurinn speglar fegurð sína hef ég reist mitt hús án glugga. Þar sem hvelfist endalaus blár himinn rís mitt hús án þaks. Guð Eins og blindur maður finnur regnið falla á hendur sínar í myrkrinu og sér ekki himininn eins og blindur maður finnur ilminn berast að vitum sínum í myrkrinu og sér ekki blómið sjáum við ásýnd þína Guð. (Úr ljóðabókinni Sunnanhólmar, útg. í Rvík 1959. Höf. Ingimar Erlendur Sigurðsson) Hans vegur er væng haf og geiminn þér guð gaf um eilífð sem einn dag hans frelsi er faðm lag. (Faðmur birtist í safnritinu Ljóðspor, 1988) Hvíl þú í friði kæri pabbi og megi ljósið faðma þig. Friðbjörg Ingimarsdóttir. Í dag kveð ég elsku föður minn. Ég vil þakka honum fyrir lífið og lífið okkar saman. Hann reyndist mér góður faðir. Hann var flug- gáfaður, hugmyndaríkur, sjálf- stæður og ótrúlega hæfileikarík- ur. Það var fátt sem hann gat ekki gert. Þegar ég var lítil smíðuðum við kassabíla til að keyra um á hlaðinu. Við smíðuðum báta og fleka til að sigla um á tjörninni á lóðinni. Það var dásamlegt að alast upp við Elliðavatn fjarri stórborginni. Þar var kyrrðin og þar var fegurðin sem var honum óþrjótandi efniviður til listsköpun- ar. Hann helgaði líf sitt ritstörf- um, þó aðallega ljóðlist, en hann teiknaði líka myndir og bjó til skúlptúra. Hann elskaði bækur. Alltaf á föstudögum fórum við í helstu fornbókaverslanir bæjarins og alltaf var keypt bók. Hann elsk- aði líka harðfisk eins og ég. Sval- barði var uppáhaldsbúðin okkar. Ég minnist djúpra samræðna um öll heimsins mál sem skerptu sýn mína og auðguðu mig. Oft las hann ljóðin sín fyrir mig. Hann hafði einstaka rödd og gat túlkað minnstu blæbrigði svo unun var á að hlýða. Hann kenndi mér að unna listum. Hann kenndi mér ástríðuna og eljusemina sem þarf til að þjóna listagyðjunni. Takk elsku pabbi minn. Fljúgðu hærra. Sigríður Freyja. Það er sárt að kveðja afa. Við vorum alla tíð nánir og það er erf- itt að kyngja því að ég hafi nú þeg- ar skeggrætt heimsmálin við hann í Skáldastofunni í síðasta sinn. Í Skáldastofunni orti afi ljóð og mál- aði myndir. Þar voru fallegir og forvitnilegir munir í hverju horni. Sannkallað ævintýraland fyrir okkur Kristrúnu systur þegar við heimsóttum afa Ingimar og ömmu Möggu í Sunnudal. Þaðan á ég svo margar góðar minningar. Ég man að þegar ég var ungur fékk ég hlaupabólu líkt og algengt er. Þau veikindi upplifa flestir ekki endi- lega sem jákvætt tímabil í sínu lífi en fyrir mér var það dásamlegur tími. Það varð nefnilega til þess að ég fékk að eyða heilli viku í Sunnu- dal með afa og ömmu. Þar var séð um mig líkt og ég væri prins. Að lokum varð það svo að Kristrún systir, sem var farin að öfunda mig ansi mikið af stöðu minni sem prins í Sunnudal, reyndi viljandi að smitast af hlaupabólunni til þess að geta komið í Sunnudal og verið með. Afi kenndi mér margt og ég er afar þakklátur fyrir að hafa þekkt hann. Dýrmætt þykir mér að Baltasar, sonur minn og Karenar, hafi fengið að kynnast afa. Þótt það sé sárt að kveðja afa veit ég að hann er kominn á betri stað. Kom- inn til ömmu. Hvíldu í friði afi minn. Við sjáumst síðar. Ingimar Tómas Ragnarsson. Ingimar Erlendur Sigurðsson Mér var brugðið er ég las um andlát vinar míns Hauks í Morgunblaðinu. Með söknuði og þakklæti vil ég að- eins minnast Hauks. Ég kynnt- ist honum á haustdögum 1952 þegar hann hóf nám í 2. bekk í Kennaraskóla Íslands þar sem ég og kona mín, Karen Vil- hjálmsdóttir, vorum nemendur. Haukur kom frá Svíþjóð þar sem hann hafði unnið og verið við nám. Hauki var vel tekið í bekknum með sinn léttleika og góða skap. Með okkur tókst góður vinskapur. Á haustdögum í 3. bekk spurði hann mig hvort ég væri til í að koma og taka vakt á móti sér í vinnu sem vaktamaður á kvöldvakt á Kleppi. Það varð úr, og unnum við þar í tvo vetur með skól- anum. Eftir lokapróf frá KÍ vorið 1955 fór okkar bekkur ásamt Haukur Helgason ✝ Haukur Helga-son fæddist 24. júlí 1933. Hann lést 22. janúar 2021. Út- förin fór fram 1. febrúar 2021. mörgum útskriftar- nemum úr stúd- entsdeild skólans í kynnisferð til Dan- merkur, Svíþjóðar og Noregs. Þetta var góð og fróðleg ferð. Það kom sér vel að Haukur var með í ferðinni, en fararstjóri okkar, sr. Árelíus Níels- son, hafði ekki farið áður til útlanda. Haukur hóf sinn kennaraferil í Lækjarskóla í Hafnarfirði, en varð síðar skólastjóri við Öldu- túnsskóla. Algengt var að kenn- arar fengju sér einhverja aðra vinnu yfir sumartímann. Haukur hafði tekið að sér umsjón með sumarnámskeiðum á vegum Hafnarfjarðarbæjar fyrir drengi úr 2. til 6. bekk sem haldið var í Krísuvík. Tvö sumur fékk Hauk- ur mig með sér. Eiginkonur okkar, þær Karen og Kristín H. Tryggvadóttir, ásamt börnum okkar sem þá voru fædd voru með. Ýmislegt var gert með drengjunum. Farið í gönguferð- ir, í heyskap, að moka út úr fjár- húsum, að gróðursetja tré í Undirhlíðum o.fl. Við Haukur vorum í félagi áhugaljósmyndara en síðar vorum við fimm sem stofnuð- um sér klúbb sem við köll- uðum Myndbræður. Við sett- um okkur ákveðin verkefni, fórum saman í myndatökuferð- ir og dæmdum myndir hver hjá öðrum. Fundir voru haldn- ir til skiptis heima hjá félög- unum þar sem við fengum gott kaffi og meðlæti. Fyrsta skipulagða sólar- landaferðin sem Haukur kom á með 6 vinahjónum var farin kringum 1974 til Costa del Sol á Spáni, mjög góð ferð. Ótal utanlandsferðir fórum við hjónin með Hauki og Kristínu, og síðar með Hauki og Sig- rúnu, en oftast var farið til Kanarí, þar sem mikið var spilað bridge. Eins var farið í sumarbústaðaferðir og einu sinni til Ísafjarðar, heimabæj- ar Hauks. Síðustu árin voru Hauki erf- ið. Eftir heilablóðfall missti Haukur málið, en hann skildi þó allt sem við hann var sagt. Vegna Covid-19-plágunnar gat ég ekki hitt Hauk eins oft eins og ég hefði viljað á Hrafnistu. Ég sendi samúðarkveðju til Sigrúnar Davíðsdóttur og barna Hauks um leið og ég kveð minn góða vin. Þorvaldur Óskarsson. Minningarvefur á mbl.is Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að- gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum.         þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber       ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát Minningar og andlát Þá hefur góður maður kvatt þennan heim. Þótt aldurinn væri orðinn hár var þetta skyndilegt og ófyrirséð, rétt eins og þú værir að drífa þig yfir um og langar mig að trúa því að ætlunin hafi verið að hitta ömmu daginn eftir því þá áttuð þið 55 ára Halldór Guðmundsson ✝ Halldór Guð-mundsson fæddist 4. ágúst 1935. Hann lést 27. desember 2020. Útför hans fór fram 5. janúar 2021. brúðkaupsafmæli. Þegar ég var barn var alltaf pláss fyrir okkur barnabörnin hjá ömmu og afa. Þar var allt leyfilegt og framkvæmanlegt og brölluðum við ýmislegt á háaloft- inu og sama hvaða vitleysa okkur datt í hug var aldrei sagt nei. Hvort sem það var að mála veggi, bræða niður öll kertin, setja eldhúsið á hvolf með sulli, fá ís í morgunmat, læra á verkfærin í smíðahorninu eða fylla húsið af skeljum og blómum. Það var allt svo sjálfsagt og velkomið. Þá var farið í ófáar fjöruferðir, bíl- túra um Snæfellsnes og eitt sinn buðum við Heimir okkur sjálfum með í hringferð um landið og auð- vitað var því svarað játandi. Þegar barnabarnabörnin bætt- ust í hópinn var gleðin ekki minni, ykkur þótti yndislegt að hafa þau í heimsókn og fengu þau að kynn- ast ykkur og góðvild ykkar. Nýj- asta fjölskyldumeðliminn náðuð þið hvorugt að hitta, en þú, afi, fékkst þó að sjá hann í símanum. Fyrir ykkur skipti fjölskyldan öllu máli, rétt eins og það á að vera, og pössuðuð þið bæði upp á að muna eftir öllum afmælisdögum og öðr- um merkisdögum. Mikið er ég þakklát fyrir ykkur bæði tvö. Takk fyrir allt, elsku afi og langafi. Við biðjum að heilsa ömmu. Sólrún og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.