Morgunblaðið - 09.02.2021, Side 19
MINNINGAR 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 2021
✝ Sveinn Guð-jónsson, bóndi
Stekkjarvöllum í
Staðarsveit, fædd-
ist 8. október 1933
á Gaul í Staðar-
sveit. Hann lést á
Hjúkrunarheim-
ilinu Höfða á Akra-
nesi 28. janúar
2021.
Foreldrar hans
voru Guðjón Pét-
ursson, bóndi og sjómaður á
Gaul í Staðarsveit, f. 1894, d.
1968, og kona hans Una Jó-
hannesdóttir, f. 1908, d. 1996.
Sveinn var sjötti elsti 13
systkina, en þau voru í aldurs-
röð:
Jón Guðjónsson, f. 1926, Þor-
björg Guðjónsdóttir, f. 1927,
lést á unga aldri, Pétur I. Guð-
jónsson, f. 1928, d. 1996, Jó-
hannes M. Guðjónsson, f. 1929,
d. 1998, Kjartan Guðjónsson, f.
1930, d. 2015, Vilhjálmur M.
Guðjónsson, f. 1932, d. 1991,
Gunnar H. Guðjónsson, f. 1934,
Ólína A. Guðjónsdóttir, f. 1937,
d. 2017, Guðmundur B. Guð-
jónsson, f. 1938, Sigurjón Guð-
jónsson, f. 1940, d. 2004, Soffía
H. Guðjónsdóttir, f. 1942, Vil-
borg I. Guðjónsdóttir, f. 1950,
d. 2013.
Eftirlifandi eiginkona er
Ragnheiður Lilja Þorsteins-
dóttir, f. 12. mars 1938, frá Ölv-
börn. Arnleifur Hjörleifsson og
Hjörvar Hjörleifsson, f. 2000.
Þorvaldur Sveinsson, f. 1970,
bifvélavirki, maki Selma Sig-
urðardóttir. Synir þeirra eru:
Sigurður Ingi Grétarsson, f.
1989, maki Guðrún Drífa Hall-
dórsdóttir og þau eiga tvær
dætur. Sveinn Þór Þorvalds-
son, f. 1998, maki Birta
Kjærnested Jóhannsdóttir.
Birnir Þór Þorvaldsson, f.
2004.
Þórdís Sveinsdóttir, f. 1979,
viðskiptafræðingur, maki Dag-
bjartur Vilhjálmsson. Dætur
þeirra eru: Aðalheiður Ósk
Dagbjartsdóttir, f. 2003, Lilja
Rún Dagbjartsdóttir, f. 2009,
Karítas Rós Dagbjartsdóttir, f.
2015.
Sveinn ólst upp á Gaul í Stað-
arsveit á Snæfellsnesi og síðan
á Glaumbæ. Sveinn stundaði
sjómennsku og fór í Vélstjóra-
skólann. Upp úr 1960 hófu
Sveinn og Ragnheiður upp-
byggingu á bóndabæ sínum á
Stekkjarvöllum í Staðarsveit.
Stekkjarvellir urðu að mjög
efnilegu og metnaðarfullu býli
með áherslu á kúabúskap. Árið
2002 minnkuðu hjónin við sig
búskap og voru einungis með
sauðfjárbúskap til ársloka
2014.
Útför Sveins fer fram í Akra-
neskirkju 9. febrúar 2021
klukkan 13. Streymt verður frá
útför á vef Akraneskirkju:
https://www.akraneskirkja.is
Virkan hlekk á streymi má
finna á https://www.mbl.is/andlat
iskrossi, Hnappa-
dal. Foreldrar
hennar voru Þór-
dís Ólafsdóttir, f.
1893, d. 1970, og
Þorsteinn Guð-
laugsson, f. 1885,
d. 1958.
Börn Sveins og
Ragnheiðar eru
sex talsins:
Erla Björg
Sveinsdóttir, f.
1961, sjúkraliði, dóttir hennar
er Una Lilja Erludóttir, f. 1998.
Ævar Sveinsson, f. 1963,
bæjarverkstjóri, maki Margrét
Sigríður Birgisdóttir. Börn
þeirra eru: Birgir Tryggvason,
f. 1982, maki Heiðrún Hulda
Hallgrímsdóttir og þau eiga
þrjú börn. Heiðdís Ævars-
dóttir, f. 1985, maki Andrzej
Kowalczyk og þau eiga einn
son. Hafrún Ævarsdóttir, f.
1991, maki Gylfi Ásbjörnsson.
Ólöf Sveinsdóttir, f. 1968,
maki Ingólfur Aðalsteinsson
sjómaður. Dætur þeirra eru:
Sædís Ragna Ingólfsdóttir, f.
1994, maki Ásgeir Mogensen.
Ragnheiður Ingólfsdóttir, f.
2000, maki Leon Ingi Stefáns-
son.
Fríða Sveinsdóttir, f. 1969,
maki Hjörleifur Guðmundsson.
Synir þeirra eru: Sigurlaugur
Hjörleifsson, f. 1989, maki Guð-
rún Jónsdóttir og þau eiga tvö
Vorið 1958 vann pabbi við að
byggja upp vegi í Hnappadaln-
um og var sendur inn að Ölv-
iskrossi þar sem hann kynntist
yngstu heimasætunni, móður
okkar, Ragnheiði Lilju. Segja
má að hann hafi birst á jarðýtu
en ekki hvítum hesti, einn ör-
lagaríkan vordag og þar með
byrjaði saga þeirra hjóna.
Pabbi og mamma trúlofuðu
sig í nóvember 1960 og gengu
síðan í hjónaband 10. september
1961 á Staðarstað. Þau fengu
svo prestinn með sér heim að
Gaul til að skíra frumburðinn,
þannig hún yrði ekki skráð í
kirkjubækurnar sem lausaleiks-
barn.
Fyrstu hjúskaparárin bjuggu
þau á Akranesi, þar sem pabbi
var á sjó en flytjast svo vestur
að Gaul til ömmu og afa. Þar
höfðu þau aðstöðu á meðan þau
byggðu upp jörðina Stekkjar-
velli, sem var nýbýli út frá Gaul
á árunum 1962-1968. Foreldrar
okkar komu saman upp efnileg-
um og metnaðarfullum bónda-
bæ, með Elliðahamarinn trygg-
an fyrir utan og kraft
Snæfellsjökulsins sem nært hef-
ur jörð og sál til margra ára.
Fyrsta byggingin á Stekkjar-
völlum var súrheysturn, sem
mörgum þótti athyglisverð
byrjun, en fyrst þurfti að eiga
hey, síðan skepnur. Á árunum
1965 til 2002 var áherslan á
kúabúskap með mjólkurfram-
leiðslu, en einnig voru þau með
sauðfjárbúskap, hesta og hæn-
ur. Árið 2002 ákváðu hjónin að
minnka við sig búskapinn og
seldu kýrnar en héldu áfram
með sauðfjárbúskapinn til árs-
loka 2014.
Pabbi var bóndi af líf og sál
og af þeirri kynslóð þessa lands
sem upplifði miklar tæknibreyt-
ingar og var hann fljótur að til-
einka sér þær. Þau hjónin byrj-
uðu heyskap með orf og ljá sem
síðan færðist upp í nýjustu
tækni. Pabbi var mjög metnað-
arfullur í öllu því sem hann tók
fyrir sér, var kappsamur og
ósérhlífinn. Ef hann var ekki
fyrstur til að byrja heyskap þá
sagði hann alltaf að sá sem var á
undan honum hefði bara slegið
„montblett“. Allar vélar og tæki
voru vel smurð og þrifin, bæði
fyrir og eftir heyskap. Mikið var
lagt upp úr því að gera hluti vel.
Enn í dag er fyrsti traktorinn
gangfær. Uppáhaldslitur Sveins
var rauður, öll húsþök voru
rauð, traktorar rauðir og flestir
bílarnir. Hann hugsaði einstak-
lega vel um bílana sína, ávallt
þvegnir og settir inn í bílskúr
eftir hvern bíltúr.
Eftir að búskap var hætt, þá
sat pabbi ekki auðum höndum,
hann var mjög handlaginn með
bæði tré og vélar. Hann keypti
sér gamlan sjúkrabíl sem hann
innréttaði og breytti í húsbíl.
Hins vegar var sá bíll ekki nógu
kraftmikill þannig að hann
keypti sér annan kraftmeiri
sjúkrabíl og innréttaði líka. Á
húsbílunum ferðuðust þau hjón
mikið um allt land og veigruðu
sér ekkert við að keyra lands-
horna á milli til að hitta á okkur
börnin í útilegu ef þannig lá á
þeim.
Sveitin okkar fagra sem for-
eldrar okkar byggðu upp er
fjársjóður minninga sem mun
aldrei gleymast.
Fjalladrottning, móðir mín!
mér svo kær og hjartabundin,
sæll ég bý við brjóstin þín,
blessuð aldna fóstra mín.
Hér á andinn óðul sín
öll, sem verða á jörðu fundin.
Fjalladrottning, móðir mín,
mér svo kær og hjartabundin.
Blessuð sértu, sveitin mín,
sumar, vetur, ár og daga.
Engið, fjöllin, áin þín,
yndislega sveitin mín,
heilla mig og heim til sín
huga minn úr fjarlægð draga.
Blessuð sértu, sveitin mín,
sumar, vetur, ár og daga.
Allt, sem mest ég unni og ann,
er í þínum faðmi bundið.
Allt það, sem ég fegurst fann,
fyrir berst og heitast ann,
allt, sem gert fékk úr mér mann
og til starfa kröftum hrundið,
allt, sem mest ég unni og ann,
er í þínum faðmi bundið.
Fagra, dýra móðir mín,
minnar vöggu griðastaður,
þegar lífsins dagur dvín,
dýra, kæra fóstra mín,
búðu um mig við brjóstin þín.
Bý ég þar um eilífð glaður.
Fagra, dýra móðir mín,
minnar vöggu griðastaður.
(Sigurður Jónsson)
Erla, Ævar, Ólöf,
Fríða, Þorvaldur
og Þórdís
Sveinn Guðjónsson
Yndislega
María. Henni
kynntist þegar ég
byrjaði 19 ára
gömul að vinna í
félagsmálaráðuneytinu, algjör-
lega blaut á bak við eyrun í
öllu sem þar var fengist við.
Hún og aðrir þar tóku mér af-
ar vel og hófust strax handa
við uppeldi mitt í stjórnsýsl-
unni. Í því uppeldi var mér
stundum treyst fyrir að leysa
Maríu af þegar hún fór í frí.
Það var heiður. Með henni
vann ég þar til hún lét af störf-
um árið 1999 eftir afar farsæl-
an starfsferil í ráðuneytinu.
Við tvær vorum saman í einka-
klúbbi í vinnunni, febr-
úarklúbbnum, ásamt Inga Val
og Þorgerði. Þá gerðum við
okkur dagamun í sameiginleg-
um afmælismánuði okkar og
nutum þess m.a. að borða sam-
an á Holtinu. Góðar minningar
tengjast því. Nákvæmni og
fagmennska einkenndu hennar
verk og kenndi hún mér mikið
María Áslaug
Guðmundsdóttir
✝ María ÁslaugGuðmunds-
dóttir fæddist 27.
febrúar 1930. Hún
lést 22. janúar 2021.
Útför fór fram 4.
febrúar 2021.
á þessum árum.
Allt það hefur nýst
mér síðan í mínum
störfum. Nærvera
hennar var líka
alltaf svo notaleg.
Hláturinn var eft-
irminnilegur og
væntumþykjan
þegar hún talaði
um fjölskylduna
sína skein í gegn.
Að leiðarlokum vil
ég þakka Maríu fyrir allt sem
hún kenndi mér. Ég var lán-
söm að fá að kynnast henni.
Samúðarkveðjur sendi ég fjöl-
skyldunni.
Sesselja Árnadóttir.
Það var glaðleg og glæsileg
kona sem tók á móti mér þegar
ég mætti á fyrsta vinnudegi í
félagsmálaráðuneyti í ársbyrjun
1985. Þetta vingjarnlega viðmót
er mér minnisstætt. Síðan setti
María mig inn í ýmislegt í
gangvirki ráðuneytisins enda
eldklár og vel að sér. Héldust
hin góðu samskipti okkar þau
14 ár sem við unnum saman.
Hún var úrræðagóð, fróð um
þjóðfélagið sem kom sér vel
sem ritari ráðherra. Hún leið-
beindi fólki um rétt þess og
möguleika innan kerfisins og
svaraði spurningum af fjöl-
breyttu tagi.
Það sópaði að henni og hún
naut sín greinilega í hinu
vandasama starfi fyrir ráð-
herra, svo og aðra yfirmenn
ráðuneytisins. Samviskusemi
hennar og dugnaður einkenndi
hana og stundum óttaðist ég að
hún gengi fram af sér. Þar áttu
nú ráðherrar hauk í horni í öllu
því sem á gekk.
Dýrmætt var að með okkur
Maríu tókst góður vinskapur.
Við áttum góðar stundir saman
þar sem við ræddum m.a. um
málefni þjóðfélagsins, sem var
sannarlega hluti af starfinu.
Enda þótt á okkur væri aðeins
15 ára aldursmunur fannst mér
oft eins og um kynslóðamun
væri að ræða. Hún fræddi mig
um félagsleg kjör fólks þegar
hún var ung að árum, svo sem
um verkamannabústaði og þýð-
ingu þeirra fyrir láglaunafólk.
Ekki síður vakti athygli mína
frásögn hennar um tíðarand-
ann varðandi menntun kvenna
á miðri 20. öld, þegar hún lauk
stúdentsprófi, hversu sjálf-
sagðara þótti að karlar fremur
en konur legðu stund á há-
skólanám. Við, nokkrir sam-
starfsmenn Maríu, sem vorum
fædd í febrúar, tókum upp
þann góða sið að borða saman
á Hótel Holti í febrúar á
hverju ári. Sá siður hélst í
mörg ár eftir að María lauk
störfum.
Ég vil þakka fyrir mín góðu
og eftirminnilegu kynni af
Maríu. Aðstandendum votta ég
samúð mína.
Þorgerður Benediktsdóttir.
Elskuleg móðir mín, amma, langamma
og systir,
KRISTÍN MARÍA JÓNSDÓTTIR,
Dúfnahólum 4,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
laugardaginn 30. janúar.
Útförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju föstudaginn
12. febrúar klukkan 13.
Við þökkum kvennadeild Landspítalans fyrir góða umönnun.
Vignir Pétursson Alda Þorsteinsdóttir
Íris Dögg Vignisdóttir Halldór Freyr Sveinbjörnsson
Andri Heimir Vignisson
Ásbjörn Arnar Jónsson
Kristinn Þór Jónsson Alexandra Líf Atladóttir
Elin Jonsdottir Collstrup
Anja Nicole Jonsd. Collstrup
langömmubörn og systkin hinnar látnu
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
HELGI KRISTMUNDUR ORMSSON
rafvirkjameistari,
lést í Brákarhlíð í Borgarnesi föstudaginn
5. febrúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Hilmar Helgason
Kristján Helgason Hrefna Traustadóttir
Sigríður S. Helgadóttir Stefán Aðalsteinsson
Helgi Örn Helgason Kerstin Bruggemann
Þuríður Helgadóttir Sigurður Ó. Kristófersson
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku móðir okkar og tengdamóðir,
HÓLMFRÍÐUR VALDEMARSDÓTTIR
frá Húsavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir 31. janúar.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
fimmtudaginn 11. febrúar klukkan 15.
Athöfninni verður streymt: https://youtu.be/_SdsDMi7XcA.
Árnína Kristín Dúadóttir
Björn Dúason
Auður Dúadóttir Þórir V. Þórisson
Ólafur J. Straumland Guðrún Magnúsdóttir
Gunnar J. Straumland Anna G. Torfadóttir
og fjölskyldur
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
AAGE STEINSSON,
sem lést á Landspítalanum föstudaginn 5.
febrúar, verður jarðsunginn frá
Kópavogskirkju fimmtudaginn 11. febrúar
klukkan 13. Vegna fjöldatakmarkana verða einungis nánustu
ættingjar og vinir viðstaddir. Útförinni verður streymt á
promynd.is/aage.
Torfi Steinsson Tina Weber
Árni Steinsson Kristrún Gísladóttir
Bryndís Steinsson Örn Eyjólfsson
Eva Steinsson Kristján Guðjónsson
Sjöfn Heiða Steinsson Halldór Þorgeirsson
Steinn Ágúst Steinsson Susi Haugaard
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
ELÍAS GUNNLAUGSSON
frá Gjábakka í Vestmannaeyjum,
síðast til heimilis á Hraunbúðum
í Vestmannaeyjum,
lést föstudaginn 5. febrúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Hjördís Elíasdóttir Hannes G. Thorarensen
Björk Elíasdóttir Stefán Örn Jónsson
Viðar Elíasson Guðmunda Áslaug Bjarnad.
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
RICHARD HANNESSON,
Suðurlandsbraut 60, Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Mörk
sunnudaginn 31. janúar.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 11. febrúar
klukkan 13. Allir eru hjartanlega velkomnir svo lengi sem pláss
leyfir í ljósi aðstæðna.
Útförinni verður streymt á
www.utfor-richard-hannesson.is.
Ingibjörg Ásmundsdóttir
Ásmundur R. Richardsson Guðrún Sigurðardóttir
Hannes R. Richardsson
Ragnhildur M. Kristjánsdóttir
afabörn og langafabarn