Morgunblaðið - 09.02.2021, Side 22

Morgunblaðið - 09.02.2021, Side 22
Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Raðauglýsingar Raðauglýsingar Tilboð/útboð ÚTBOÐ Fasteignafélag Árborgar óskar eftir tilboðum í framkvæmdina: STEKKJASKÓLI, NÝR GRUNN- SKÓLI Í ÁRBORG - HÚSBYGGING, útboð nr. U2006052. Lauslegt yfirlit yfir verkið: Verkið felst í byggingu fyrsta áfanga nýs skóla í Björkurstykki á Selfossi. Byggingin er í nýju hverfi sem er í uppbyggingu sunnan við núverandi byggð á Selfossi. Byggingin er steypt, tvær hæðir auk kjallara/lagnagangs og er fyrsti áfangi 2.500 m² að grunnfleti. Mannvirkið er klætt að utan, með steyptri loftaplötu og viðsnúnu þaki. Verkið felst í uppsteypu og fullnaðarfrágangi hússins bæði úti og inni. Þegar verkið hefst verður búið að fram- kvæma stóran hluta jarðvinnu (gröftur fyrir húsi og frágangur jarðvegspúða undir undirstöður) en nánar er um það fjallað í útboðsgögnum. Þá hefur verið lokið við að afmarka vinnusvæðið með girðingu. Helstu stærðir og magntölur eru: • Birt flatarmál 4.560 m2 • Heildar rúmmál 14.110 m3 • Malarfylling 4.900 m3 • Steypumót 11.000 m2 • Steinsteypa 2.300 m3 • Bendistál 245.000 kg • Utanhúss klæðning 2.040 m2 • Þakfrágangur 2.330 m2 • Gólfdúkur 3.260 m2 • Frárennsli 1.400 m • Neysluvatn 1.600 m • Vatnsúði 2.600 m Upphaf framkvæmda: Framkvæmd hefst þegar verkkaupi hefur með formlegum hætti tekið tilboði bjóðanda. Lok framkvæmda: Verkinu skal skila í þremur áföngum eins og þeim er lýst í útboðsgögnum, en loka skiladagur verksins er 30. júní 2022. Útboðsgögn verða afhend í útboðskerfinu Ajour þar sem bjóðendur geta sótt gögn frá og með þriðjudeginum 9. febrúar 2021. Bjóðendur skrá sig inn á vef og hlaða niður gögnum: https://arborg.ajoursystem.is/Tender/DirectLink/- 32551479-46e8-4769-a3cc-7392b82bd278 Notkunarleiðbeiningar um kerfið má sjá hér https://help.ajoursystem.com/astopic/tender/ Gögnum þátttakenda skal skila inn rafrænt í útboðkerfinu Ajour fyrir kl. 14.00 miðvikudaginn 17. mars 2021. Fyrirmælum varðandi skil gagna er nánar lýst í útboðsgögnum. Tilboð skulu sett fram með þeim hætti sem sett er fram í útboðskerfinu og í samræmi við skilmála útboðs og hlaða upp þeim skrám sem gerð er krafa um. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Ef enginn póstur berst, hefur afhend- ing ekki tekist. Bjóðendur skulu í þeim tilfellum leita til Ajour þjónustuaðila án tafar. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn. Mannvirkja- og umhverfissvið Árborgar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 8.30-12.30. Prjónaklúbbur Önnu kl. 13.30. Tálgað í tré kl. 13. Postulínsmálun kl. 13. Kaffi kl. 14.30-15.20. Vegna fjöldatakmarkana þarf að skrá sig í viðburði hjá okkur og jafn- framt er grímuskylda í Samfélagshúsinu, gestir bera ábyrgð á að koma með eigin grímu og passa uppá sóttvarnir. Nánari upplýsingar í síma 411-2702, allir velkomnir. Árskógar Smíðar, útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin vinnu- stofa kl. 9-12. Handavinnuhópur kl. 12-16. MS fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Dansleikfimi kl. 13.45. Kaffisala kl. 14.15-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. Grímuskylda og það þarf að skrá sig í viðburði eða hópa í síma 411-2600. Boðinn Frjáls ganga eða stafganga kl. 10 frá anddyri Boðans. Fugla- tálgun kl. 13-16. Munið grímuskyldu og tveggja metra regluna. Sund- laugin er opin frá kl. 13.30-16. Bústaðakirkja Það verður opið hús hjá okkur á miðvikudaginn kl. 13 -16. Við gætum millibils og sóttvarna. Allt verður á sínum stað. Hlakka til að sjá ykkur. Hólmfríður djákni. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Opnunartími kl. 8.10-16. Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11. Thai chi kl. 9-10. Prjónum til góðs kl. 9-12. Hádeg- ismatur kl. 11.30-12.30. Kríur myndlistarhópur kl. 13-15.30. Síðdegis- kaffi kl. 14.30-15.30. Þátttökuskráning í síma 411-2790 og á skrifstofu. Grímuskylda og fjöldatakmörk miðast við 20 manns. Virðum allar sóttvarnir. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Garðabær Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Pool- hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga kl. 11 í sal í kjallara Vídalínskirkju. Botsía Ásgarði kl. 12.55. Smíði í Smiðju Kirkjuhvoli kl. 9 og 13. Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 15.15. Litlakot opið kl. 13–16. Áfram skal gæta að handþvotti og smitvörnum og virða 2 metra regluna. Gullsmári Myndlist kl. 9. Tréútskurður kl. 13. Sóttvarnir, grímuskylda og tveggja metra reglan. Hraunsel Dansleikfimi á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 8.30 og 9.30. Bingó á miðvikudögum kl. 13. Handverk á miðvikudögum kl. 13. Píla á fimmtudögum kl. 13. Línudans á föstudögum kl. 10 og 11. Grímuskylda og 2ja metra reglan eru í gildi og nauðsynlegt að skrá sig í allt starf fyrirfram í síma 5550142. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Korpúlfar Botsía kl. 10 í Borgum, sóttvarnir í hávegum hafðar. Helgi- stund með Grafarvogskirkju kl. 10.30 í Borgum og spjallhópur í Borg- um kl. 13 í listasmiðju í Borgum. Sundleikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 14 í dag. Minnum á skráningu í mat og kaffi fyrir kl. 12 deginum áður og allir fá mætingatímasetningu. Takk fyrir gleðina og þolin- mæðina, við erum öll almannavarnir. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 7.10. Kaffispjall í krókn- um á Skólabraut kl. 10.30. Helgistund í salnum á Skólabraut kl. 13.30. Örnámskeiðin hafin í roði og leðri á neðri hæð félagsheimilisins kl. 15.30-18.30. Skráning. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Höldum áfram að viðhalda sóttvarnir, handþvott, sprittun, grímur og virðum fjarlægðarmörk. atvinna@mbl.is Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á Vantar þig fagmann? FINNA.is mbl.is alltaf - allstaðar 22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 2021 Einn af þeim kennurum sem ég hafði í Hagaskóla þau tvö ár sem ég var þar var teiknikennarinn Guðmundur Magnússon. Þegar ég sagði móður minni hver ætti að kenna mér teikningu kannaðist hún strax við hann, sagði hann vera Austfirðing líkt og hún og sagð- ist þekkja vel föður hans sem var skyldur henni í föðurætt. Guðmundur var fljótur að finna áhuga okkar nemenda og studdi vel við hann. Hann bauð okkur sem mestan áhugann höfðum á teikningu og málun m.a. upp á kennslu í meðferð og notkun olíulita. Hann fór líka með okkur niður á Ægisíðuna, þar sem hann lét okkur teikna skúrana. Eins lét hann okkur teikna og mála húsin í kringum skólann, eins og Hagaborg og kirkjuna, bara með því að horfa á byggingarnar út um gluggann. Hann bæði kenndi okkur og treysti okkur til að teikna og mála við hvaða aðstæður sem var, og hefur sennilega ætlast til þess að við gætum nýtt okkur það t.d. á ferðalögum, ef út í það væri farið. Einhvern tíma vildi ég vita, hvernig maður færi að því að búa til auglýsingu. Hann sagði mér það. Allar hans útskýringar voru mjög skýrar og ljósar. Hann var ævinlega hvetjandi og uppörvandi í kennslu sinni. Þannig eiga líka góðir kennarar að vera, enda virtist hann vera fæddur kennari. Sumir eru þannig. Hvenær sem við hittumst á förnum vegi, eftir að ég hætti grunnskólanáminu í Hagaskóla, Guðmundur Magnússon ✝ GuðmundurMagnússon fæddist í Reykjavík 11. ágúst 1936. Hann andaðist 16. janúar 2021. Útför Guðmundar fór fram 26. janúar 2021. þá tókum við tal saman, enda þótti honum vænt um að geta fylgst með gömlum nemend- um, og þegar hann heyrði að ég var að teikna og mála í frí- stundum mínum, þá var hann hvetjandi að vanda og gaf mér góð ráð. Ein- hvern tíma minntist ég á það við hann að við værum skyld og hann kannaðist við það. Á háskólaárum mínum hitti ég hann svo á förnum vegi á há- skólalóðinni og þar sagði hann mér að hann væri í landfræði- námi. Það fannst mér gaman að heyra, enda fannst mér að sú grein ætti svo vel við hann líkt og leiðsögumannsstarfið sem hann sagðist gegna. Síðasta skiptið, sem ég hitti hann, var fyrir allnokkrum ár- um í Bókabúð Vesturbæjar á Hagamelnum, meðan hún var og hét, og tókum þá að vanda tal saman. Þá sagðist hann vera að búa til málverk heima hjá sér og við töluðum um myndlistina, enda sagðist ég alltaf vera eitthvað að teikna og mála öðru hverju, sem honum leist vel á. Hann sagði mér líka margar sögur úr starfi teiknikennarans, eftir að ég var farin úr Hagaskóla, sem gaman var að hlusta á, sumar bráð- fyndnar að auki, enda fengum við nemendur hans snemma að kynnast kímnigáfu hans og frá- sagnarhæfni. Nú verður þetta minningin ein. Þegar ég nú kveð hann hinstu kveðju er mér efst í huga ein- lægt þakklæti fyrir góða kennslu og ráðleggingar, svo og góða viðkynningu gegnum árin, um leið og ég bið honum allrar blessunar Guðs, þar sem hann er nú og votta aðstandendum öllum innilega samúð. Blessuð sé minning Guð- mundar Magnússonar. Guðbjörg Snót Jónsdóttir Helgi keyrði skólabíl á Vatns- enda áratugum saman og var mik- ilvægur maður í lífi skóla- barnanna við Elliðavatnið. Hann tók við ungunum á öllum aldri úti við malarveg og hélt vel í kringum þá þar til hann skilaði þeim heim að loknum skóladegi. Sér til trausts og halds hafði hann stundatöflu hvers og eins og skólabíllinn fór ekki fyrr en síðasta barnið var komið um borð. Það var ansi oft yngri sonur minn sem hafði gleymt sér við að pakka í töskuna en Helgi kom inn og rak á eftir. Helgi var réttur maður í réttu starfi, umhyggjusamur, glettinn og glaðlegur en þó ákveðinn þegar þurfti að skakka leikinn í fjörugum krakkahópi. Strákarnir okkar sáu ekki sólina fyrir honum, hann var þeim mikil hetja og góður vinur. Það var gott að fá guttana örugga heim í hvaða veðri sem var og spjalla svo um skóladaginn og um Helga. Margar skemmtilegar sögur eru til af Helga skólabílstjóra. Helgi Jóhannesson ✝ Helgi Jóhann-esson fæddist 25. júlí 1922. Hann lést 16. janúar 2021. Útför Helga fór fram 28. janúar 2021. Mig grunar að „krakkarnir“ hans á öllum aldri rifji þær nú upp. Hann kom bílnum í gegn- um skafla, myrkur og rok og þær ótal beygjur sem voru á malarveginum enda sagðist hann kunna leiðina utan að og eiginlega ekkert þurfa að sjá til. Í vondum veðrum átti Helgi það til að keyra krakkana alla leið heim að húsi ef færðin leyfði. Á meðan dóttirin á eggjabúinu var fótbrotin öslaði hann snjóinn með hana og skólatöskuna í fanginu fram og til baka á hverjum degi. Við verðum honum alltaf þakklát fyrir hvað hann hugsaði vel um börnin og var alltaf traustsins verður. Sérstakur heiðursgestur á fyrsta skipulagða þorrablótinu sem haldið var á Vatnsendanum var síðan að sjálfsögðu Helgi. Hann átti greinilega hvert bein í unglingunum og þurftu allir að spjalla við hann. Fullorðna fólkið, sem margt hafði líka keyrt með Helga, þurfti að sæta lagi til að komast að. Og þegar tónlistin hófst kom í ljós að Helgi var líka mikill og glað- ur dansari. Takk, Helgi. Þú munt lifa lengi í minningu margra. Haraldur, Hanne, Daníel og Aron Þór.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.