Morgunblaðið - 09.02.2021, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 09.02.2021, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 2021 60 ára Stefán ólst upp í Kalmanstungu í Hvítársíðu, Mýr., og býr þar og í Reykjavík. Hann er cand.oecon. í viðskiptafræði frá HÍ og cand.merc. frá Við- skiptaháskólanum í Ár- ósum. Stefán er gæðastjóri við Háskól- ann á Bifröst. Maki: Bryndís Hlöðversdóttir, f. 1960, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu. Börn: Inga Valgerður, f. 1988, Kalman, f. 1992, og Jóhanna Katrín, f. 2001. Barnabörnin eru orðin þrjú. Börn Bryn- dísar eru Hlöðver og Magnús, f. 1997, og barnabarn Bryndísar Ronja Esther. Foreldrar: Kalman Stefánsson, f. 1935, d. 2011, bóndi í Kalmanstungu, og Bryndís Jónsdóttir, f. 1939, fyrrverandi bóndi í Kalmanstungu, búsett í Reykja- vík. Stefán Valgarð Kalmansson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ert að slaka á aftur og verður brátt áhyggjulaus. Reyndu frekar að færa það þér í nyt svo þú standir sterkari að vígi eftir en áður. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú þarft að beina athygli þinni að mál- um sem snerta heimilið, fjölskylduna og þína nánustu. Samskiptin ganga vel en þig langar þó mest til að vera ein/n með sjálfri/ sjálfum þér í dag. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Eitthvað ókunnugt sækir að þér og þú þarft að bregðast hart við til varnar þér og þínum. Haltu áfram að rembast. Hafðu hægt um þig þangað til þú nærð áttum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Notaðu daginn til þess að brjóta nið- ur hindrun sem þú hefur reist af sjálfs- dáðum. Vertu opin/n fyrir nýjum hug- myndum. Frestaðu ónauðsynlegum innkaupum til morguns. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Láttu aðra sem mest um sín mál og einbeittu þér að því að leysa þín eigin. Ef þú vilt keppa að slíku skaltu vera tilbúinn til þess að leggja þig fram. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það eru allir hlutir á fleygiferð í kring- um þig og þér finnst erfitt að festa hendur á því sem þú vilt fá. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þér finnst þú standa uppi með fangið fullt af verkefnum. Láttu af þeim leiða vana að efast um eigið ágæti. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Slakaðu vel á með fjölskyldunni því næstu vikur verða þéttbókaðar. Vertu ró- legur, vertíðin er senn á enda. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Treystu innsæi þínu í sam- skiptum við aðra í dag. Erfitt samtal sem þú kvíðir mun reynast þér auðvelt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Samræður við maka og nána vini gætu orðið venju fremur upplýsandi í dag. Engum þeirra ber saman en á annan máta segja þau öll það sama. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Láttu ekki hugfallast þótt hug- myndir þínar hafi ekki fallið í góðan jarðveg. Vertu bara nógu hávær. Ef illa gengur skaltu hugga þig við það að hlutirnir hefðu getað verið verri. 19. feb. - 20. mars Fiskar Heimsmálin eru þér ofarlega í huga og þú finnur til vanmáttar gegn óréttlætinu. Notaðu frekar kraftana til að efla samstarfið. R únar Hartmann Vilbergs- son fæddist 9. febrúar 1951 á Sjúkrahúsinu á Ísafirði og ólst upp í Pól- götunni og síðar í Hafn- arstræti á Ísafirði. „Nóg var að starfa í frelsi æskuáranna og voru smíðaðir ófá- ir prammarnir og bátshornin sem farið var á um allar fjörur og jafnvel lagt í glæfraferðir sem enduðu yfirleitt vel þó stundum væri teflt á tæpasta vað,“ seg- ir Rúnar. „Dúfnaveiði var einnig vinsæl og tilheyrandi kofasmíði. Allt var þetta smíðað meira og minna úr efniviði sem rekið hafði á fjörur eða fengið að láni þar sem fullorðna fólkið stóð í sínum framkvæmdum. Leiksvæðið var eyrin og reyndar allur Skutulsfjörðurinn frá fjöru til fjalls. Á sumrin naut ég þess einnig oft að vera hjá ömmu og afa á Flateyri í góðu yfirlæti en þar var heill ævintýraheimur heimur út af fyrir sig. Ég átti því láni að fagna að dvelja nokkur sumur í sveit, fyrst hjá Ásgeiri Guðmundssyni í Æðey í Ísafjarðardjúpi við dúntekju, fjósamennsku og heyskap og síðar í Alviðru í Dýrafirði hjá hjón- unum Helga Árnasyni og Jónu Krist- jánsdóttur.“ Frá unglingsaldri stundaði Rúnar ýmis störf, s.s. verslunarstörf, byggingarvinnu, fiskvinnslu, hús- gagnalökkun og vinnu á ljósmynda- stofu. Skólaganga Rúnars hófst í Inguskóla hjá Ingu Magnúsdóttur á Ísafirði, sem var undirbúningur 6 ára barna fyrir barnaskólann. Að loknu námi við barnaskólann og síðan gagnfræðaskól- ann á Ísafirði lá leiðin til Reykjavíkur þar sem Rúnar hóf um tvítugsaldurinn nám í fagottleik hjá Sigurði Markús- syni ásamt tónmenntakennaranámi við Tónlistarskólann í Reykjavík. Þaðan lauk hann tónmenntakennaraprófi 1976 og einleikaraprófi 1979. Rúnar stundaði framhaldsnám í fagottleik hjá Joep Terwey við Sweelinck Conserva- torium í Amsterdam á árunum 1980- 1983. Að námi loknu tók við leikur með ýmsum hljómsveitum og hljóðfæra- hópum, s.s. Sinfóníuhljómsveit Ís- lands, hljómsveit Íslensku óperunnar, Kammersveit Reykjavíkur, Íslensku hljómsveitinni, hljómsveitum kóra Hallgrímskirkju og Kórs Langholts- kirkju ásamt kennslustörfum m.a. við Tónlistarskólann í Garðabæ og Tón- skóla Sigursveins. Rúnar varð fastráð- inn við Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 1988. Um fermingu fór Rúnar að leika á trommur með ýmsum hljómsveitum, m.a. skólahljómsveitinni Hlykkjum í gagnfræðaskólanum á Ísafirði. Síðan tóku við ein hljómsveitin af annarri; Sexmenn, Leones, Jana, Öx og BG og Inginbjörg en með þeirri hljómsveit spilaði hann í a.m.k. sjö sumur og fjár- magnaði með því tónlistarnámið að mestu. Rúnar lék með Þursaflokknum frá 1978 á fagott og slagverk. Hann hef- ur leikið á fjölda hljóðritana, hljóm- platna og diska. „Ég hef verið svo hepp- inn að kynnast frábærum músík- köntum í gegnum tíðina og fengið að spila alls konar tegundir af músík með danshljómsveitum, Þursunum, Sinfóní- unni, kammerhópum, í óperunni o.fl. o.fl. Ég er mjög þakklátur fyrir það.“ Rúnar hefur sinnt ýmsum félags- störfum á vegum Félags íslenskra hljómlistarmanna og Starfsmanna- félags Sinfóníuhljómsveitar Íslands ásamt varaformennsku í Tónlistar- bandalagi Íslands. Helstu áhugamál Rúnars eru mús- íkin, ljósmyndun og að vera úti í nátt- úrunni. „Ég fór aftur að spila á tromm- urnar þegar ég fór á eftirlaun og hef undanfarin ár verið að spila með fé- lögum mínum að vestan. Þó ég hafi búið Rúnar H. Vilbergsson tónlistarmaður – 70 ára Á Kúbu Rúnar, Vilberg Samúel og Tamila í skoðunarferð í Havana 2015. Var í Þursunum og Sinfó Þursaflokkurinn Egill Ólafsson, Tómas M. Tómasson, Ásgeir Óskarsson, Rúnar og Þórður Árnason á tónleikum í Iðnskólanum í Reykjavík 1978. Börn Rúnars Ylfa Mist, Vilberg Samúel og Guðný heima hjá Rúnari. Vinirnir Elmar Bragason og Kári Freyr Halliwell söfnuðu 7.453 kr. til styrktar Rauða krossi Íslands með snjómokstri og dósasöfnun. Rauði krossinn þakkar þeim kærlega fyrir þeirra framlag til mannúðarmála. Hlutavelta 50 ára Gunna Magga er Hafnfirðingur en býr á Eskifirði. Hún er leik- skólakennari frá KHÍ en er þjónustustjóri hjá mötuneytis- og veisluþjónustu- fyrirtækinu Lostæti. Gunna Magga er formaður Fjarða- byggðardeildar Rauða krossins. Maki: Ríkarður Kristinn Magnússon, f. 1970, blikksmiður og verkstjóri hjá Launafli. Börn: Steinunn Fríða, f. 1994, Guðný Lára, f. 2002, Björn Andri, f. 2008, og Magnús og Margeir, f. 2010. Barnabörnin eru orðin þrjú. Foreldrar: Björn Guðnason, f. 1948, d. 2017, prentsmiður hjá Morgunblaðinu, og Steinunn Ólafsdóttir, f. 1953, starfs- maður í íþróttahúsi Hauka, búsett í Hafnarfirði. Guðrún Margrét Björnsdóttir Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.