Morgunblaðið - 09.02.2021, Side 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 2021
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR
um auglýsingapláss:
Berglind Bergmann
Sími: 569 1246
berglindb@mbl.is
BÍLA-SÉRBLAÐ
BÍLA
fylgir Morgunblaðinu
þriðjudaginn 16. febrúar 2021BLAÐ
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Nú er ég stödd í hallargarðinum hér
í Ósló, þar sem er afar fallegt í ljósa-
skiptunum, alveg dásamlegt. Nú er
nauðsynlegt sem aldrei fyrr að viðra
sig og fara út að hreyfa sig, því hér
hefur verið „lock-down“ vegna
Covid,“ segir Kari Ósk Grétudóttir
þegar hún svarar í símann nýkomin
úr þriggja tíma gönguferð þar sem
hún býr í Noregi.
„Ég er í raun komin aftur á æsku-
slóðir mínar því við fluttum til Nor-
egs þegar ég var ársgömul. Ég fædd-
ist á Íslandi, mamma mín er íslensk
en pabbi er norskur og við fluttum
aftur til Íslands þegar ég byrjaði í
grunnskóla. Fyrir fimm árum flutti
ég svo aftur til Noregs með mann-
inum mínum, Ásmundi Ásmundssyni
myndlistarmanni og Hrafnhildi dótt-
ur okkar,“ segir Kari
„Mig langar að vera duglegri við að
stunda vetrarútivist, því þótt það sé
kalt í Noregi þá er oftast stillt veður
hér í Ósló og margir stunda það að
fara á skíði, skauta og fleira. Ég hef
aldrei verið útivistarmanneskja en
þyrfti að bæta úr því,“ segir Kari,
sem sendi nýlega frá sér sína fyrstu
ljóðabók, Les birki.
„Ég hef verið skúffuskáld mjög
lengi en þetta er í fyrsta skipti sem ég
gef út. Ég skrifaði reyndar leikrit
með Kristínu Eiríksdóttur, Karma
fyrir fugla, sem sett var upp í Þjóð-
leikhúsinu. Mér finnst það að skrifa
leikrit svolítið eins og að skrifa ljóð;
maður varpar upp myndum sem eiga
sér oft stað í óskilgreindu rými og
tíma. Ljóðin mín verða oft til í stóru
rými og þau eru laus við tíma. Í ljóð-
um getur alveg verið tímaskekkja.“
Setningar eins og skúlptúr
Kari segir að ljóðabókin hennar
hafi í raun verið tilbúin fyrir einu og
hálfu ári.
„Ég gaf mér mjög góðan tíma til að
fínvinna hana, pússa til og láta lesa
yfir. Ég var ekkert að flýta mér að
senda hana frá mér fyrr en hún var
orðin eins og ég vildi hafa hana,“ seg-
ir Kari og víst er að ljóðin í bókinni
bera þess merki að hún hefur legið
lengi yfir þeim og tálgað, því þau eru
mjög meitluð. Ljóðin bera þess líka
merki að Kari er myndlistarkona, því
þau eru afar myndræn.
„Ljóðin koma oft til mín sem
mynd. Ég er líka að leika mér með
tungumálið, því ég upplifi tungu-
málið svolítið eins og eitthvað nýtt
hér í Noregi. Stundum segir fólk
eitthvað og ég skil kannski ekki al-
veg hvað það meinar, því ég er ekki
alveg eins reiprennandi á norsku og
íslensku. Þegar fólk talar við mig hér
í Noregi verða setningar stundum
eins og einhver skúlptúr. Þótt ég
upplifi tungumálið dálítið öðruvísi
sem fyrirbæri hér í Noregi þá skynja
ég líka einhvern tærleika við skandi-
navískuna, það er ekki svo tæknilegt
tugumál.“
Göt í eyrun á afmælisdeginum
Kari segir að persónuleg reynsla
hennar sé ekki endilega aðalatriði í
því sem hún varpar fram í ljóðum sín-
um.
„Hvað það er sem gerist í lífi okkar
er ekki aðalatriðið heldur upplifunin
eða hvernig við skynjum veröldina.
Það getur vissulega verið sársauki
eða einhver reynsla, en það er ekki
svo ólíkt milli fólks. Þess vegna fer ég
í þessum ljóðum aftur í tímann, til
goðsagnanna og í Biblíuna, því í þús-
undir ára hefur verið til fólk sem hef-
ur liðið alls konar. Gamla testament-
inu og goðsögum bregður fyrir í
ljóðum mínum og ég held að maður
þurfi að fara svona langt aftur til að
varpa fram hinu mannlega. Einhvers
staðar las ég að allar manneskjur
þyrftu bæði góðan guð og vondan af
því lífið er þannig samansett. Heim-
urinn sem ég skapa með ljóðunum
mínum verður athvarf, þar þótti mér
gott að vera þegar ég var að búa þau
til. Ljóðin eru einhvers konar skiln-
ingsverkfæri, rétt eins og í myndlist
geta myndir verið skilningsverkfæri.
Það er ekkert sem kemur í staðinn
fyrir myndlist; þar birtist einstakt
sjónarhorn í hverri mynd, og ég held
að ljóð séu þannig líka, því það er
hægt að flakka svo mikið í tíma í ljóði
og bregða upp alls konar myndum.
Innan ljóðsins er svo mikið pláss, þótt
þau geti á sama tíma verið mjög
knöpp í orðum.
Ljóðið snýst líka um að skynja,
ekki er allt eins og það virðist vera,
margt býr undir yfirborðinu sem fólk
skynjar frekar en skilur. Skynjun
okkar er jafnvel í myndum frekar en í
orðum, eða einhvers staðar á milli
þess að vera orð og myndir,“ segir
Kari sem heldur ótrauð áfram að
skrifa.
„Ég er að vinna í ljóðum, en þar
fyrir utan kenni ég myndlist í mynd-
listarskóla hér í Noregi, í hálfu starfi.
Auk þess kenni ég stundum í fyrsta
bekk í Steiner-skóla, sem er mjög
inspírerandi fyrir mig sem ljóðskáld.“
Kari er nýorðin fertug og þegar
hún er spurð hvort hún hafi gert sér
dagamun af því tilefni segist hún hafa
fengið sér göt í eyrun.
„Í fyrsta skipti á ævinni. Ég fór á
sleða til að láta gata mig og svo borð-
aði ég dömplings á eftir. Fullkominn
dagur með manni og barni.“
Ljósmynd/Line Slotnæs
Ljóðskáld „Ljóðin koma oft til mín sem mynd,“ segir Kari Ósk Grétudóttir.
Einhvers konar skilningsverkfæri
„Margt býr undir yfirborðinu sem fólk skynjar frekar en skilur,“ segir Kari Ósk Grétudóttir,
sem sendi nýlega frá sér ljóðabókina Les birki „Ég hef verið skúffuskáld mjög lengi,“ segir hún
Ljósmynd/Mikal Kvamsdal
Heima í Ósló Kari ásamt manni sínum Ásmundi og dótturinni Hrafnhildi.
Úslitaleikurinn í bandaríska fót-
boltanum eða ruðningi, kenndur
við Ofurskálina – Superbowl –, er
vinsælasti íþróttaviðburðurinn á ári
hverju vestanhafs og fylgjast yfir
100 milljónir manna með honum í
sjónvarpi. Var engin breyting á því
þegar hann var leikinn nú á sunnu-
dagskvöldið var. Kastljósið er líka
alltaf á listamönnum sem koma
fram í hálfleik og að þessu sinni var
það tónlistarmaðurinn sem kallar
sig The Weeknd en hann hefur not-
ið sívaxandi vinsælda. Flutti hann
nokkur sinna vinsælustu laga, í
íburðarmikilli sviðsmynd.
Fyrir leikinn var leikin upptaka
með hinni 22 ára gömlu skáldkonu
Amöndu Gorman, sem sló á dög-
unum í gegn við innsetningar-
athöfn Joes Bidens Bandaríkja-
forseta þegar hún flutti ljóð sitt
með áhrifamiklum hætti. Flutti hún
nú ljóðið „Chorus of the Captains“,
sem fjallar um lykilstarfsmenn í
baráttunni við veiruna. Var það í
fyrsta skipti sem ljóð er flutt fyrir
úrslitaleik um Ofurskálina.
AFP
Í hálfleik The Weeknd kom fram í hálfleik leiksins um Ofurskálina.
The Weeknd söng og
vakti lukku í hálfleik
Amanda Gorman flutti ljóð fyrir leik
pota fingri
í gat á veggnum
finn kaldan gust
skrælnuð dagblöð
ég festi fingur
í skítugri ull
ÓJÖFNUR Á
JAÐRINUM
ÚR BÓKINN LES BIRKI