Morgunblaðið - 09.02.2021, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 09.02.2021, Qupperneq 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. FEBRÚAR 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ VA R I E T Y C H I C AG O S U N T I M E S I N D I E W I R E T H E T E L E G R A P H Fjölskyldubönd, samvera ogsamskipti og sjálf kveðju-stundin eru í lykilhlut-verki í fyrstu skáldsögu Björns Halldórssonar, Stoli. Áður hefur komið út smásagnasafn hans Smáglæpir (2017). Það er hinn ráðvillti ungi maður, Baddi, sem segir söguna í Stoli og ávarpar hann föð- ur sinn, Hörð. Baddi er nýfluttur heim frá New York og búinn að slíta sambandi við kærastann sem hann bjó með þar. Ástæðan fyrir flutningnum er sú að faðirinn er al- varlega veikur af krabbameini og á skammt eftir. Hann hefur verið skorinn upp á heila og er ekki samur eftir það, hefur glatað miklu af get- unni til þess að tjá sig og að stórum hluta bæði skammtíma- og lang- tímaminni. Þegar Magnea, eiginkona föð- urins, stingur upp á að þeir feðgar fari saman í ferðalag um Suðurland líst Badda ekki á blikuna en hann lætur þó til leiðast. Þetta ferðalag myndar meginboga frásagnarinnar en stöku endurlit til barnæsku Badda og lífsins í New York brjóta hann upp. Feðgarnir hafa, hingað til, ekki verið sérlega nánir en ferðalagið neyðir þá til þess að eyða tíma sam- an og þrátt fyrir málstol og minnis- leysi föðurins eru þessar samveru- stundir ómetanlegar. „Við þurfum ekki lengur að fylla hvert andartak með skvaldri af ótta við þögnina; að ef við leyfum henni að teygja úr sér munum við missa eitthvað ógætilegt út í hana. Ég man ekki hvenær við sátum síðast saman í þögn með hvorki útvarp né sjón- varp til þess að fylla upp í tómið á milli okkar,“ segir Baddi (113). Björn lýsir vel þögninni sem myndast svo auðveldlega á milli okk- ar mannfólksins, kannski einkum og sér í lagi milli karlmanna. Feðga- sambandið, samband skilnaðarbarns og helgarpabba, sem höfundurinn dregur upp í Stoli, er ekki einsdæmi og ekki ólíklegt að margir geti spegl- að sambönd sín við sína nánustu í þeim lýsingum. Aðrir þættir verksins falla í skuggann af sambandi þeirra feðga og skakkaföllunum á ferðalagi þeirra, enda sumir hverjir í hlut- verki hálfgerðs uppfyllingarefnis. Frásagnir af ástarlífi Badda og sam- skiptum hans við unga krabba- meinssjúka konu eru til dæmis hálf- flatneskjuleg í samanburði við hátinda þess fjallalandslags sem bæði ferðalag og samskipti þeirra feðga eru. Birni tekst nokkuð vel að fanga hið íslenska ferðasumar, með til- heyrandi ferðamannaflaumi, bensín- stöðvum og lélegum vegum, eins og við þekktum það áður en til farald- ursins kom og munum ef til vill kynnast á nýjan leik þegar fram líða stundir. Sagan er einföld, falleg og þó nokkuð grípandi og textinn flæðir vel áfram. Það gerir söguna auð- lesna og aðgengilega auk þess sem hún vekur lesandann til umhugs- unar um hvaða hlutverki orðin og þagnirnar gegna í samskiptum við hans nánustu. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Höfundur „Sagan er einföld, falleg og þó nokkuð grípandi,“ segir um skáld- sögu Björns Halldórssonar. Og hún „vekur lesandann til umhugsunar um hvaða hlutverki orðin og þagnirnar gegna í samskiptum við hans nánustu.“ Skáldsaga Stol bbbmn Eftir Björn Halldórsson. Mál og menning, 2021. Kilja, 195 bls. RAGNHEIÐUR BIRGISDÓTTIR BÆKUR Samvera í þögn Nomadland, kvikmynd leikstjórans Chloé Zhao, hlaut þrenn verðlaun samtaka gagnrýnenda, Critics’ Circle, þegar þau voru afhent í Lond- on í vikunni. Nomadland var valin besta mynd ársins, Frances McDorm- and var valin besta leikkonan og leik- stjórinn Zhao hreppti verðlaun fyrir besta handrit. Nomadland hafði áður hlotið Gullna ljónið á Feneyjahátíð- inni. Breska hryllingsmyndin Saint Maud hreppti einnig þrenn verðlaun frá gagnrýnendum, þar á meðal sem besta breska eða írska kvikmyndin, leikstjórinn Rose Glass var valin besti nýliðinn og Morfydd Clark valin besta breska/írska leikkona ársins. Þriðji kvenleikstjórinn í baráttu um helstu verðlaun var Sarah Gavr- on fyrir kvikmynina Rocks sem var tilnefnd til sex verðlauna og hreppti tvenn, fyrir val á leikhópi og Bukky Bakray var besti nýliði meðal leik- ara. Steve McQueen hreppti verðlaunin sem besti leikstjórinn, fyrir fimm kvikmynda Small Axe-röðina. Hinn látni Chadwick Boseman var valinn besti karlleikari fyrir frammi- stöðuna í Ma Rainey’s Black Bottom og Shaun Parkes besti karlleikari í aukahlutverki fyrir Mangrove. Maria Bakalova var valin besta leikkona í aukahlutverki fyrir frammistöðuna í Borat Subsequent Moviefilm. Kvikmynd danska leikstjórans Thomasar Vinterbergs, Druk (Anot- her Round), var valin besta „erlenda“ myndin og þá var Collective eftir Al- exander Nanau valin besta heim- ildakvikmyndin. AFP Best Leikkonan Frances McDormand hreppti verðlaun fyrir leik í Nomadland. Nomadland valin best af breskum gagnrýnendum Sigurganga nýjustu kvikmyndar danska leikstjórans Thomasar Vin- terberg, Druk, heldur áfram. Hún hreppti á dögunum verðlaunin sem besta evrópska kvikmyndin og um helgina hlaut hún dönsku Robert- verðlaunin og var valin besta kvik- mynd ársins þar í landi. Féllu fimm af þeim tólf verðlaunum sem að- standendur myndarinnar voru til- nefndir til þeim í skaut. Vinterberg var valinn besti leikstjórinn, þeir Tobias Lindholm hlutu verðlaun fyr- ir besta handritið og þá var Mads Mikkelsen valinn besti karlleikarinn fyrir frammistöðu sína í myndinni. Mikkelsen var einnig tilnefndur fyrir leik sinn í kvikmyndinni Ret- færdighedens ryttere en 22 ára gömul leikkona, Andrea Heick Gadeberg, hreppti Robert-styttuna fyrir besta leik í aðalhlutverki fyrir frammistöðu sína í þeirri kvikmynd. Í flokki leikins sjónvarpsefnis sóp- uðu sjónvarpsþættirnir Ulven kom- mer til sín öllum mögulegum verð- launum en þættirnir eru sýndir á RÚV. Voru þeir valdir bestu sjón- varpsþættirnir og féllu öll leikaverð- laun leikurum þáttanna í skaut. Ulven kommer og Druk fengu Robert Drykkja Druk eftir Thomas Vinterberg var valin besta danska kvikmyndin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.