Morgunblaðið - 13.02.2021, Page 1
Íslenskt ál um allan heim | nordural.is
Við erum að
stækka hópinn
Íslenski áliðnaðurinn er með stærstu útflutningsgreinum
landsins og Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi.
Hjá okkur starfa um 600 manns með fjölbreytta menntun og
bakgrunn. Á hverju ári notum við endurnýjanlega raforku til
að framleiða um 320.000 tonn af áli fyrir erlenda markaði.
Við leitum að metnaðarfullu fólki í föst störf í ker- og
steypuskála í álveri okkar á Grundartanga. Verið er
að taka upp nýtt vaktafyrirkomulag þar sem vaktir
styttast úr 12 tímum í 8 tíma og þurfum við því að
bæta við fólki.
Störfin eru fjölbreytt og henta öllum kynjum. Norðurál leggur
áherslu á heilsusamlegt, öruggt og ánægjulegt starfsumhverfi
og góðan starfsanda. Starfsfólki bjóðast ferðir frá Akranesi,
Borgarnesi og af höfuðborgarsvæðinu.
Almennar menntunar- og hæfnikröfur:
• 18 ára lágmarksaldur • Góð samskiptahæfni
• Mikil öryggisvitund og árvekni • Dugnaður og sjálfstæði
• Heiðarleiki og stundvísi • Bílpróf er skilyrði
Umsóknarfrestur er til og með 22. febrúar. Umsóknir og upp-
lýsingar eru á www.nordural.is og í síma 430 1000. Öllum
um sóknum verður svarað og trúnaði heitið.