Morgunblaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021 3 Við leitum að öflugum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum í hjúkrunarþjónustu Lyfju í Lágmúla. Í hjúkrunarþjónustu Lyfju starfar sérhæfður hópur hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða sem sinnir þjónustu við fjölbreyttan hóp viðskiptavina á lifandi og skemmtilegum vinnustað. YFIRHJÚKRUNARFRÆÐINGUR Yfirhjúkrunarfræðingur ber faglega ábyrgð á hjúkrunar- þjónustu Lyfju sem starfrækt er í Lyfju Lágmúla, Smáratorgi og Akureyri. Yfirhjúkrunarfræðingur tekur virkan þátt í þróun þjónustuframboðs og verklags auk þess að sinna daglegum störfum í hjúkrunarþjónustu. Helstu verkefni: • Umsjón með sölu og ráðgjöf til viðskiptavina á heilsu- og hjúkrunarvörum • Heilsufarsmælingar, sáraumbúðaskipti og sprautun • Móttaka og þjálfun nýrra starfsmanna í hjúkrunarþjónustu • Ábyrgð á birgðahaldi og framstillingu á hjúkrunarvörum í verslun • Almenn afgreiðslustörf og önnur tilfallandi verkefni tengd hjúkrunarþjónustu fyrirtækisins HJÚKRUNARFRÆÐINGAR Opnunartími hjúkrunarþjónustu er alla virka daga frá kl. 8-16. Umsóknarfrestur er til og með 24. febrúar og eru umsækjendur beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Lyfju, lyfja.is/storf. Nánari upplýsingar um störfin veita Anna Sólmundsdóttir, lyfsali Lyfju Lágmúla, anna@lyfja.is og Hildur Þórisdóttir, mannauðsstjóri, hildur@lyfja.is. HJÚKRUNARFRÆÐINGUR Hjúkrunarfræðingur sinnir hjúkrunarþjónustu og ráðgjöf til viðskiptavina ásamt umsjón með hjúkrunarvörum og almennum afgreiðslustörfum. Helstu verkefni: • Sala og ráðgjöf til viðskiptavina á heilsu- og hjúkrunarvörum • Heilsufarsmælingar, sáraumbúðaskipti og sprautun • Umsjón með birgðahaldi hjúkrunarvara • Almenn afgreiðslustörf og önnur tilfallandi verkefni tengd hjúkrunarþjónustu fyrirtækisins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.