Morgunblaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021 3
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum í hjúkrunarþjónustu Lyfju í Lágmúla.
Í hjúkrunarþjónustu Lyfju starfar sérhæfður hópur hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða sem sinnir þjónustu
við fjölbreyttan hóp viðskiptavina á lifandi og skemmtilegum vinnustað.
YFIRHJÚKRUNARFRÆÐINGUR
Yfirhjúkrunarfræðingur ber faglega ábyrgð á hjúkrunar-
þjónustu Lyfju sem starfrækt er í Lyfju Lágmúla,
Smáratorgi og Akureyri. Yfirhjúkrunarfræðingur tekur
virkan þátt í þróun þjónustuframboðs og verklags auk
þess að sinna daglegum störfum í hjúkrunarþjónustu.
Helstu verkefni:
• Umsjón með sölu og ráðgjöf til viðskiptavina
á heilsu- og hjúkrunarvörum
• Heilsufarsmælingar, sáraumbúðaskipti og sprautun
• Móttaka og þjálfun nýrra starfsmanna í
hjúkrunarþjónustu
• Ábyrgð á birgðahaldi og framstillingu
á hjúkrunarvörum í verslun
• Almenn afgreiðslustörf og önnur tilfallandi verkefni
tengd hjúkrunarþjónustu fyrirtækisins
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR
Opnunartími hjúkrunarþjónustu
er alla virka daga frá kl. 8-16.
Umsóknarfrestur er til og með 24. febrúar
og eru umsækjendur beðnir að sækja um
starfið á heimasíðu Lyfju, lyfja.is/storf.
Nánari upplýsingar um störfin veita
Anna Sólmundsdóttir, lyfsali Lyfju Lágmúla,
anna@lyfja.is og Hildur Þórisdóttir,
mannauðsstjóri, hildur@lyfja.is.
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR
Hjúkrunarfræðingur sinnir hjúkrunarþjónustu
og ráðgjöf til viðskiptavina ásamt umsjón með
hjúkrunarvörum og almennum afgreiðslustörfum.
Helstu verkefni:
• Sala og ráðgjöf til viðskiptavina á heilsu-
og hjúkrunarvörum
• Heilsufarsmælingar, sáraumbúðaskipti
og sprautun
• Umsjón með birgðahaldi hjúkrunarvara
• Almenn afgreiðslustörf og önnur tilfallandi
verkefni tengd hjúkrunarþjónustu fyrirtækisins