Morgunblaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021
Laust er til umsóknar 100% ótímabundið starf sálfræðings fullorðinna við Heilsu-
gæsluna Seltjarnarnesi og Vesturbæ. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf og spennandi vettvang fyrir sál-
fræðing sem hefur áhuga á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu. Sálfræðingur
starfar í þverfaglegu teymi með læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru fagfólki í
skemmtilegu starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun. Lögð er áhersla á að sál-
fræðingar HH fái handleiðslu og símenntun í faginu.
Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustu þar sem
ólíkum þörfum notenda er mætt í nærumhverfi og þeim leiðbeint yfir í önnur
kerfi heilbrigðisþjónustunnar eftir því sem þörf er á. Mikil þróunarvinna er í gangi
og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga sem hefur
fjölgað mikið undanfarin ár. Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef
Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is)
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sálfræðiþjónusta fyrir einstaklinga 18 ára og eldri
- Greining, mat og meðferð á geðrænum vanda, gagnreynd sálfræðimeðferð
og ráðgjöf
- Einstaklings- og hópmeðferð
- Námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla
- Handleiðsla og þjálfun nema í klínískri sálfræði æskileg
- Þátttaka í þróun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
- Samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir s.s. Landspítala og félagsþjónustu
- Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum
Hæfnikröfur
- Leyfi frá landlækni til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði
- Reynsla af greiningu og meðferð fullorðinna með geðrænan vanda
- Þekking og reynsla af gagnreyndum aðferðum, s.s. hugrænni atferlismeðferð
- Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
- Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
- Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
- Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Góð almenn tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og
Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni
viðkomandi í starfið. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um sálfræði-
menntun og starfsleyfi. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og
viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast
Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Öllum umsóknum verður
svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Við ráðningar í störf hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er ávallt tekið mið af
jafnréttisstefnu stofnunarinnar.
Umsóknarfrestur er til og með 22.02.2021.
Nánari upplýsingar veitir
Emilía Petra Jóhannsdóttir - emilia.petra.johannsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6100
Agnes Sigríður Agnarsdóttir - agnes.agnarsdottir@heilsugaeslan.is - 513-5000
Sálfræðingur
- Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ
Við erum að ráða
Nánari upplýsingar á:
radningar.hafnarfjordur.is
Forstöðumaður
HafnarborgarDeildarstjóri
launadeildar
Le
ik
sk
ól
a
st
jó
ri
Safnstjóri skólasafns
Grunnskólakennarar
Leikskólakennarar
Sálfræðingur
Verkstjóri hjá vinnuskóla
Erum við að leita að þér?
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna
hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir
bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Ánægðir viðskiptavinir
eru okkar besta auglýsing
Sérfræðingar í
ráðningum
lind@fastradningar.is
mjoll@fastradningar.is
FAST
Ráðningar
www.fastradningar.is
Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík
Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is