Morgunblaðið - 13.02.2021, Side 8

Morgunblaðið - 13.02.2021, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021 Laust er til umsóknar 100% ótímabundið starf sálfræðings fullorðinna við Heilsu- gæsluna Seltjarnarnesi og Vesturbæ. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf og spennandi vettvang fyrir sál- fræðing sem hefur áhuga á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu. Sálfræðingur starfar í þverfaglegu teymi með læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru fagfólki í skemmtilegu starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun. Lögð er áhersla á að sál- fræðingar HH fái handleiðslu og símenntun í faginu. Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustu þar sem ólíkum þörfum notenda er mætt í nærumhverfi og þeim leiðbeint yfir í önnur kerfi heilbrigðisþjónustunnar eftir því sem þörf er á. Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga sem hefur fjölgað mikið undanfarin ár. Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is) Helstu verkefni og ábyrgð - Sálfræðiþjónusta fyrir einstaklinga 18 ára og eldri - Greining, mat og meðferð á geðrænum vanda, gagnreynd sálfræðimeðferð og ráðgjöf - Einstaklings- og hópmeðferð - Námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla - Handleiðsla og þjálfun nema í klínískri sálfræði æskileg - Þátttaka í þróun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu - Samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir s.s. Landspítala og félagsþjónustu - Önnur tilfallandi verkefni eftir þörfum Hæfnikröfur - Leyfi frá landlækni til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði - Reynsla af greiningu og meðferð fullorðinna með geðrænan vanda - Þekking og reynsla af gagnreyndum aðferðum, s.s. hugrænni atferlismeðferð - Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu - Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi - Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu - Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum - Góð íslenskukunnátta skilyrði - Góð almenn tölvukunnátta Frekari upplýsingar um starfið Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um sálfræði- menntun og starfsleyfi. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði. Við ráðningar í störf hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins er ávallt tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar. Umsóknarfrestur er til og með 22.02.2021. Nánari upplýsingar veitir Emilía Petra Jóhannsdóttir - emilia.petra.johannsdottir@heilsugaeslan.is - 513-6100 Agnes Sigríður Agnarsdóttir - agnes.agnarsdottir@heilsugaeslan.is - 513-5000 Sálfræðingur - Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ Við erum að ráða Nánari upplýsingar á: radningar.hafnarfjordur.is Forstöðumaður HafnarborgarDeildarstjóri launadeildar    Le ik sk ól a st jó ri Safnstjóri skólasafns Grunnskólakennarar Leikskólakennarar Sálfræðingur Verkstjóri hjá vinnuskóla Erum við að leita að þér? Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Ánægðir viðskiptavinir eru okkar besta auglýsing Sérfræðingar í ráðningum lind@fastradningar.is mjoll@fastradningar.is FAST Ráðningar www.fastradningar.is Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.