Morgunblaðið - 26.02.2021, Blaðsíða 19
Ólafur Finnbogason hefur starfað sem fast-
eignasali í 17 ár, þar af í tíu ár hjá Mikluborg.
Hann hefur miklar áhyggjur af fasteigna-
markaðnum og segir að það sé vont þegar
svona lítið framboð sé á fasteignum.
Marta María | mm@mbl.is
Þ
egar ég hóf störf á sínum tíma á
www.fasteign.is þá var starfið
aðeins öðruvísi. Fasteignasali
sýndi sjaldnast eignirnar nema
um nýbyggingar væri að ræða
og þá var ekki skylda að vera löggiltur
fasteignasali. Það voru mun færri fast-
eignasalar/sölumenn og fasteignasölur starf-
andi. Netið var rétt að byrja og man ég eftir
að keyra með ljósmyndir úr framköllun upp á
Morgunblaðið til að þær næðust í blaðið. Að vísu á
öðru ári mínu voru allar myndir orðnar stafrænar og
komnar á netið. Ég fékk mjög góða kennslu frá vinnuveitanda
mínum þá og sölustjóranum. Ég mátti til að mynda ekki taka
niður tilboð fyrr en ég hafði lært fasteignalögin og hafði starfað
hjá honum í sex mánuði,“ segir Ólafur.
Hvernig finnst þér fasteignamarkaðurinn vera að þróast?
„Ég hef miklar áhyggjur af markaðinum á næstu 12-18 mán-
uðum fyrir kaupendur þar sem úrval sem er til sölu í dag er allt
of lítið miðað við eftirspurn. Við á Mikluborg höfum kannað
hversu margar eignir eru til sölu í dag og
eru það um 850 eignir þegar búið er að taka
út tvískráningar og eignir sem eru seldar
með fyrirvörum. Næsta stóra nýbygginga-
verkefni okkar er líklega ekki að koma inn
fyrr en í byrjun 2022,“ segir hann.
Sérðu fram á frekari hækkanir?
„Já, það getur ekki annað gerst á meðan framboð
er þetta lítið. Það eina sem gæti hægt á sölu er ef vextir
myndu hækka aftur sem ég tel ólíklegt á næstunni og vona inni-
lega ekki því lækkun vaxta er líklega ein besta kjarabót sem
heimili hafa fengið og man ég þegar ég byrjaði að þá var bara
Íbúðalánasjóður sem lánaði til íbúðarkaupa og voru þeir vextir
5,1% auk verðtryggingar en eru í niður í 1,5% í dag, sem þýðir
lækkun um 90.000 kr. á mánuði á vaxtabyrði af 30 milljóna kr.
lánum.“
Hvaða hverfi/bæjarfélög njóta mestra vinsælda?
„Svæðin í kringum 101 hafa alltaf verið vinsælust en einnig
öll gróin og fullbyggð hverfi. En í dag skiptir svo sem ekki máli
hvar á höfuðborgarsvæðinu er verið að selja því það er skortur
á öllum svæðum.“
Ertu með einhver góð ráð fyrir þá sem dreymir um að flytja?
„Gefið ykkur tíma til að skoða nokkrar eignir áður en þið tak-
ið ákvörðun. Vandið valið á fasteignasölu og þeim fasteignasala
sem sér um viðskiptin fyrir ykkur. Kannið vel þá greiðslugetu
sem þið ráðið við,“ segir Ólafur.
Hvernig verður 2021 í fasteignsölu?
„Árið 2021 mun einkennast af seljandamarkaði. Það er ljóst
að úrval eigna verður ekki mikið og mun taka langan tíma að
vinna upp þennan skort. Til að mynda er ein 2ja herbergja íbúð
til sölu í Grafarvogi, Grafarholti og Úlfarsárdal. Salan mun
stýrast af því sem er til sölu svo ég sé ekki fram á annað en
samdrátt í þinglýstum kaupsamningum þó svo að það endur-
spegli ekki þörfina á markaðinum.“
Hefur
áhyggjur af
fasteigna-
markaðnum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ólafur
Finnbogason.
FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021 MORGUNBLAÐIÐ 19