Morgunblaðið - 26.02.2021, Blaðsíða 14
þetta eru yfirleitt heimili fólks og myndirnar sem eru
teknar eru líka minningar fyrir þá sem eru að selja,“
segir hann.
Er hægt að taka góðar myndir af öllum heimilum?
Hvað einkennir góðar fasteignaljósmyndir?
„Já, mér finnst það ef ljósmyndarinn nálgast verk-
efnið með það í huga. Þó að heimilið sé ekki hlaðið
„hönnunarvörum“ þá er það birtan og ásýndin sem
mun skipta máli að lokum. Ef heimili eru persónuleg
þá er alltaf hægt að gera góða hluti. Þegar þú spyrð
hvað einkenni góðar fasteignaljósmyndir, þá er það lík-
lega það sem ég sagði áðan, að þær veiti upplifun og að
sá sem myndar gefi sér tíma í verkefnið, reyni að
kynnast heimilinu og skili myndum af sér sem eru að
einhverju leyti eftirminnilegar.“
Tekur þú öðruvísi myndir af eign sem er að fara á
sölu en ef það er verið að mynda fyrir hönnunarbækur?
„Í sjálfu sér ekki. Mig langar að hafa þær svipaðar,
kannski minna um „nærmyndir“ af uppstillingum og
slíkt, en það er líklega óþarfi því það ætti að gleðja
augað og veita þau hughrif þegar inn er komið. En ég
reyni alltaf að nálgast verkefnin á sama hátt því það
þykir mér skemmtilegt og setur pressu á mig að vanda
mig.“
Hvað ráðleggur þú fólki að gera fyrir fasteigna-
myndatöku?
„Hafa eignina eins og hún er alltaf, fallega tekið til
og huggulegt. Hafa hana „sanna“ og treysta auga ljós-
myndarans, því það er svo gaman að sjá hvernig aðrir
sjá hlutina, sérstaklega þegar þú hefur kannski búið í
sömu eigninni í langan tíma. Bíða svo spennt að fá fólk
í heimsókn því þá kemur allt önnur upplifun í ljós.
Myndir gætu selt eign en verðandi kaupendur þurfa að
koma í heimsókn að lokum.“
Gunnar segir að það þurfi að vanda til verka þegar heimili séu mynduð og það þurfi að gefa sér tíma í það.
Það er meira spennandi að reyna að búa til hughrif og upplifun
af eigninni, svipað og þegar þú ert að skoða hótel á ferðalagi,
skilja smá spennu eftir þegar þú kemur og sérð síðan í raun.
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. FEBRÚAR 2021
• Er komið að húsnæðis-
skiptum eða vantar þig
stuðning og ráðgjöf við
erfðaskrá, kaupmála eða
dánarbússkipti?
• Vilt þú fá lögmann þér við
hlið sölu fasteignar án þess
að greiða aukalega fyrir þá
þjónustu?
• BÚUM VEL veitir nýja
tegund þjónustu.
Kynntu þér málið.
Elín Sigrún, lögmaður
sími 783 8600
elin@buumvel.is
www.buumvel.is
Sérhæfð
lögfræðiþjónusta
við búsetuskipti
með áherslu á 60+