Morgunblaðið - 13.02.2021, Page 7

Morgunblaðið - 13.02.2021, Page 7
LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021 MORGUNBLAÐIÐ 7 Marás ehf. Miðhrauni 13 - 210 Garðabæ Sími: 555 6444 - Fax: 565 7230 www.maras.is - postur@maras.is Fagleg ráðgjöf, sala og þjónusta Bjóðum aðeins viðurkenndan búnað KEILIR REVESTMANNAEY VE 54 FROSTI ÞH 229 YANMAR aðalvélar NORIS vélaeftirlitskerfi FINNÖY niðurfærslugírar STAMFORD rafalar SCANTROL autotroll SIMRAD sjálfstýring VULKAN ástengi PHONTECH kallkerfi SAILOR fjarskiptatæki OLEX þrívíddarplotter Allt fyrir nýsmíðina SIMRAD gírókompásYANMAR aðalvél NORIS vélaeftirlitskerfi VULKAN ástengi NORSELIGHT ískastari BÖNING aðvörunarkerfi VULKAN ástengi AQUAMETRO eyðslumælar YANMAR aðalvélar REINTJES niðurfærslugírar Friðrik A Jónsson ehf. Miðhrauni 13 - 210 Garðabæ Sími: 552-2111 - Fax: 552 2115 www.faj.is - faj@faj.is Simrad AP70 Sjálfstýring NF80, FU80 og QS80 útistýri (fjarstýringar) OLEX Þrívíddarkortaplotter Siglingaplotter, dýpisgrunnur, AIS siglingaferlar, botnhörkuskráning, straumupplýsingar. Rafdrifnar vindur Togvindur Netavindur Grandaravindur Kapalvindur Akkerisvindur Ómar Garðarsson fréttaritari í Vestmannaeyjum É g hef komið víða við; vann á elliheim- ili, í Miklagarði, á Ólafsvík í fiski, Skagaströnd en svo kom ég aftur í Ísfélagið með viðkomu í Vinnslustöð- inni. Akkúrat þegar Þráinn Bertels- son var að taka upp myndina Nýtt líf,“ segir Hildur. Í myndinni, sem frumsýnd var árið 1983, er dregin upp skopleg en alls ekki fráleit mynd af vertíðar- og verbúðarlífi á síðustu öld. Þar fóru Karl Ágúst Úlfsson og Eggert Þorleifsson á kostum ásamt fjölda Eyjafólks. „Ég lék ekki í myndinni en var svona aðstoðarljósameistari. Það var rosalega gaman en ég var á verbúð- unum í Vinnslustöðinni í þrjú ár. Þetta var aðallega vinna og böll. Það var bara þannig,“ segir Hildur og hlær. „Það var ekki flókið.“ Já, viðhorf Hildar til lífsins er ekki flókið. Hún náði sér í hann Óskar sinn eða öfugt og þau búa á ættarsetri eiginmannsins, mynd- arlegu húsi við Faxastíg 5. Þau eignuðust strákana, Hreiðar og Óskar, 1994 og 1995. „Hespaði þetta af og þegar þeir byrjuðu á leikskóla 1997 byrjaði ég að vinna í Ísfélaginu og er þar enn. Var gerð að flokksstjóra og síðar verkstjóra. Það er fínt að vinna hjá Ísfélaginu og mér líkar þetta vel.“ Mesta spennan í loðnunni Í vinnslunni eru um 50 manns og Hildur tekur daginn snemma. „Mæti yfirleitt fimm til hálf- sex á morgnana og er að vinna til klukkan fjögur á daginn. Stundum líka á kvöldin þegar eitthvað þarf að græja. Á vöktum í uppsjávarfiski, síld, makríl og loðnu er unnið á vöktum frá sjö til sjö. Það léttir yfir manni að fá eitthvað af loðnu í vetur eftir tveggja ára hlé.“ Þegar Hildur er spurð hvaða tímabil henni finnst skemmtilegast í vinnslunni nefnir hún strax loðnuna. „Þá er rosa gaman. Mikil spenna og allir á tánum því allt þarf að ganga upp á þeim stutta tíma sem hún veiðist. Við höfum ekki fengið loðnu síðustu tvær vertíðar þannig að núna er maður bara spenntur.“ Í bolfiski vinnur Ísfélagið þorsk, ýsu og ufsa, mest fyrir Frakklandsmarkað. „Svo erum við með blokk og þunnildi sem fara víða. Grímur kokkur tekur blokkina hjá okkur og marninginn. Hann framleiðir tilbúna fisk- rétti og þó að framboð á tilbúnum réttum sé alltaf að aukast held ég að hann haldi sínum hlut. Er með flotta vöru sem fólk vill. Það er bara gott fyrir Vestmannaeyjar.“ Hildur segir starfsmannafélagið mjög öfl- ugt. „Við höfum yfirleitt farið út annað hvert ár en ekki á síðasta ári út af kófinu. Í staðinn fengu félagsmenn 50 þúsund króna gjafabréf fyrir jólin í verslunum hér í Eyjum. Gott að styrkja kaupmennina í bænum. Ef ég borga 2.000-kall í starfsmannafélagið borgar Ísfélag- ið jafn mikið á móti, sem er vel gert. Við átt- um svo mikla peninga núna að við urðum að láta eitthvað frá okkur. Félagið er ekki til að safna peningum. Við förum svo eitthvað inn- anlands í sumar og sjáum svo til þegar kófið er búið.“ Æðisleg vinna Útlendingum hefur fjölgað í Ísfélaginu og segir Hildur að um helmingur starfsfólks sé erlendur. „Það er frá Póllandi, Litháen, einn frá Rúmeníu en aðallega Pólverjar. Allt mjög gott fólk, hörkuduglegt og góður mórall.“ Ertu harður verkstjóri? „Nei. Ég held ekki. Það þykir öllum vænt um mig og mér um þau. Hér eru allir jafnir og maður hefur ekkert leyfi til að vera ergilegur.“ Hildur er langt í frá ósátt með sinn hlut í starfi í sjávarútvegi. „Mér finnst þetta alveg æðisleg vinna. Það er bara þannig og ég skil ekki í þeim sem vilja ekki vinna í fiski. Finnst þetta gaman og hefur alltaf fundist. Annars væri ég ekki í þessu heldur á skrifstofunni hjá honum Óskari mínum í Áhaldaleigunni. Leika forstjórafrú,“ segir Hildur sem er sátt við launin. „Þeir borga bara vel og það er alltaf góður bónus hjá fólkinu. Ég held að það sé ekki hægt að hafa það betra. Ég verð ekki vör við annað en að fólkið sé ánægt,“ segir Hildur, sem nýtir frítímann í sumarbústað sem fjöl- skyldan á uppi á landi. Og bíður eftir því að strákarnir geri hana að ömmu. „Það verður gaman að dekra við barnabörnin þegar vakt- inni lýkur í Ísfélaginu,“ segir hún hlæjandi. Hildur er ánægð með sinn hlut og finnst gaman að vinna í fiski. „Öllum þykir vænt um mig og mér um þau“ Hildur Zoëga Stefánsdóttir, verkstjóri í Ísfélaginu, kom ung til Vestmannaeyja. Fyrst árið 1976 og sumarið 1978 byrjaði hún að vinna í saltfiski í Ísfélaginu. Morgunblaðið/Ómar Garðarsson Öflugir starfsmenn í vinnslu Ísfélagsins, Hildur, Silja, Anita og Agnieska. Verkstjórinn Hildur Zöega kveðst kunna vel við sig í Ísfélaginu og segir móralinn góðan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.