Morgunblaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 7
LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021 MORGUNBLAÐIÐ 7
Marás ehf.
Miðhrauni 13 - 210 Garðabæ
Sími: 555 6444 - Fax: 565 7230
www.maras.is - postur@maras.is
Fagleg ráðgjöf, sala og þjónusta
Bjóðum aðeins viðurkenndan búnað
KEILIR REVESTMANNAEY VE 54 FROSTI ÞH 229
YANMAR aðalvélar
NORIS vélaeftirlitskerfi
FINNÖY niðurfærslugírar
STAMFORD rafalar
SCANTROL autotroll
SIMRAD sjálfstýring
VULKAN ástengi PHONTECH kallkerfi
SAILOR fjarskiptatæki
OLEX þrívíddarplotter
Allt fyrir nýsmíðina
SIMRAD gírókompásYANMAR aðalvél
NORIS vélaeftirlitskerfi
VULKAN ástengi
NORSELIGHT ískastari
BÖNING aðvörunarkerfi
VULKAN ástengi
AQUAMETRO eyðslumælar
YANMAR aðalvélar
REINTJES niðurfærslugírar
Friðrik A Jónsson ehf.
Miðhrauni 13 - 210 Garðabæ
Sími: 552-2111 - Fax: 552 2115
www.faj.is - faj@faj.is
Simrad AP70 Sjálfstýring
NF80, FU80 og QS80
útistýri (fjarstýringar)
OLEX Þrívíddarkortaplotter
Siglingaplotter, dýpisgrunnur, AIS siglingaferlar,
botnhörkuskráning, straumupplýsingar.
Rafdrifnar vindur
Togvindur
Netavindur
Grandaravindur
Kapalvindur
Akkerisvindur
Ómar Garðarsson
fréttaritari í Vestmannaeyjum
É
g hef komið víða við; vann á elliheim-
ili, í Miklagarði, á Ólafsvík í fiski,
Skagaströnd en svo kom ég aftur í
Ísfélagið með viðkomu í Vinnslustöð-
inni. Akkúrat þegar Þráinn Bertels-
son var að taka upp myndina Nýtt líf,“ segir
Hildur.
Í myndinni, sem frumsýnd var árið 1983, er
dregin upp skopleg en alls ekki fráleit mynd af
vertíðar- og verbúðarlífi á síðustu öld. Þar fóru
Karl Ágúst Úlfsson og Eggert Þorleifsson á
kostum ásamt fjölda Eyjafólks. „Ég lék ekki í
myndinni en var svona aðstoðarljósameistari.
Það var rosalega gaman en ég var á verbúð-
unum í Vinnslustöðinni í þrjú ár. Þetta var
aðallega vinna og böll. Það var bara þannig,“
segir Hildur og hlær. „Það var ekki flókið.“
Já, viðhorf Hildar til lífsins er ekki flókið.
Hún náði sér í hann Óskar sinn eða öfugt og
þau búa á ættarsetri eiginmannsins, mynd-
arlegu húsi við Faxastíg 5. Þau eignuðust
strákana, Hreiðar og Óskar, 1994 og 1995.
„Hespaði þetta af og þegar þeir byrjuðu á
leikskóla 1997 byrjaði ég að vinna í Ísfélaginu
og er þar enn. Var gerð að flokksstjóra og
síðar verkstjóra. Það er fínt að vinna hjá
Ísfélaginu og mér líkar þetta vel.“
Mesta spennan í loðnunni
Í vinnslunni eru um 50 manns og Hildur tekur
daginn snemma. „Mæti yfirleitt fimm til hálf-
sex á morgnana og er að vinna til klukkan
fjögur á daginn. Stundum líka á kvöldin
þegar eitthvað þarf að græja. Á vöktum í
uppsjávarfiski, síld, makríl og loðnu er unnið
á vöktum frá sjö til sjö. Það léttir yfir manni
að fá eitthvað af loðnu í vetur eftir tveggja
ára hlé.“
Þegar Hildur er spurð hvaða tímabil henni
finnst skemmtilegast í vinnslunni nefnir hún
strax loðnuna. „Þá er rosa gaman. Mikil
spenna og allir á tánum því allt þarf að ganga
upp á þeim stutta tíma sem hún veiðist. Við
höfum ekki fengið loðnu síðustu tvær vertíðar
þannig að núna er maður bara spenntur.“
Í bolfiski vinnur Ísfélagið þorsk, ýsu og
ufsa, mest fyrir Frakklandsmarkað. „Svo
erum við með blokk og þunnildi sem fara
víða. Grímur kokkur tekur blokkina hjá okkur
og marninginn. Hann framleiðir tilbúna fisk-
rétti og þó að framboð á tilbúnum réttum sé
alltaf að aukast held ég að hann haldi sínum
hlut. Er með flotta vöru sem fólk vill. Það er
bara gott fyrir Vestmannaeyjar.“
Hildur segir starfsmannafélagið mjög öfl-
ugt. „Við höfum yfirleitt farið út annað hvert
ár en ekki á síðasta ári út af kófinu. Í staðinn
fengu félagsmenn 50 þúsund króna gjafabréf
fyrir jólin í verslunum hér í Eyjum. Gott að
styrkja kaupmennina í bænum. Ef ég borga
2.000-kall í starfsmannafélagið borgar Ísfélag-
ið jafn mikið á móti, sem er vel gert. Við átt-
um svo mikla peninga núna að við urðum að
láta eitthvað frá okkur. Félagið er ekki til að
safna peningum. Við förum svo eitthvað inn-
anlands í sumar og sjáum svo til þegar kófið
er búið.“
Æðisleg vinna
Útlendingum hefur fjölgað í Ísfélaginu og
segir Hildur að um helmingur starfsfólks sé
erlendur. „Það er frá Póllandi, Litháen, einn
frá Rúmeníu en aðallega Pólverjar. Allt mjög
gott fólk, hörkuduglegt og góður mórall.“
Ertu harður verkstjóri? „Nei. Ég held ekki.
Það þykir öllum vænt um mig og mér um
þau. Hér eru allir jafnir og maður hefur
ekkert leyfi til að vera ergilegur.“
Hildur er langt í frá ósátt með sinn hlut í
starfi í sjávarútvegi. „Mér finnst þetta alveg
æðisleg vinna. Það er bara þannig og ég skil
ekki í þeim sem vilja ekki vinna í fiski. Finnst
þetta gaman og hefur alltaf fundist. Annars
væri ég ekki í þessu heldur á skrifstofunni
hjá honum Óskari mínum í Áhaldaleigunni.
Leika forstjórafrú,“ segir Hildur sem er sátt
við launin.
„Þeir borga bara vel og það er alltaf góður
bónus hjá fólkinu. Ég held að það sé ekki
hægt að hafa það betra. Ég verð ekki vör við
annað en að fólkið sé ánægt,“ segir Hildur,
sem nýtir frítímann í sumarbústað sem fjöl-
skyldan á uppi á landi. Og bíður eftir því að
strákarnir geri hana að ömmu. „Það verður
gaman að dekra við barnabörnin þegar vakt-
inni lýkur í Ísfélaginu,“ segir hún hlæjandi.
Hildur er ánægð með sinn hlut og finnst
gaman að vinna í fiski.
„Öllum þykir vænt um mig og mér um þau“
Hildur Zoëga Stefánsdóttir,
verkstjóri í Ísfélaginu, kom
ung til Vestmannaeyja.
Fyrst árið 1976 og sumarið
1978 byrjaði hún að vinna
í saltfiski í Ísfélaginu.
Morgunblaðið/Ómar Garðarsson
Öflugir starfsmenn í vinnslu Ísfélagsins, Hildur, Silja, Anita og Agnieska.
Verkstjórinn Hildur Zöega kveðst kunna vel við
sig í Ísfélaginu og segir móralinn góðan.