Morgunblaðið - 13.02.2021, Síða 10
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
M
ikil þróun hefur staðið
yfir frá því að snjall-
siglingakerfið fór í sölu
á síðasta ári, segir Karl
Birgir Björnsson,
framkvæmdastjóri Hefring. Um er
að ræða kerfi sem mælir hreyfingar
bátsins og aðstæður og býr til leið-
beinandi upplýsingar fyrir skip-
stjórnarmenn varðandi ráðlagðan
hraða. „Kerfið safnar síðan öllum
gögnum í skýjið, þannig að allar
upplýsingar um ferðina eru not-
endum aðgengilegar,“ útskýrir Karl
Birgir.
„Fyrsta skrefið var að koma frum-
gerð af kerfinu af stað og sýna hug-
myndina,“ segir hann og bendir á að
fjölmargir hafa veitt fyrirtækinu
stuðning með því að leyfa prófun
búnaðarins. Þar gengdu meðal ann-
ars Landhelgisgæslan og Slysavarn-
arfélagið Landsbjörg mikilvægu
hlutverki, að auk útgerðarfyrirtækj-
ana Vísir og Skinney-Þinganes hf.
Staðalbúnaður
Það var kannski ekki besta tíma-
setning að hefja kynningu og notkun
kerfisins í byrjun árs 2020 eða „kort-
er í Covid“ eins og Karl Birgir orðar
það. Fyrst var nefnilega hugsað að
hefja notkunina í bátum hvalaskoð-
unarfyrirtækja, en eins og öllum nú
er orðið ljóst var sú starfsemi tak-
mörkuð á síðasta ári sökum kór-
ónuveirufaraldursins. „Við snérum
þá athyglinni annað og hófum sam-
starf með Landhelgisgæslunni og
höfum unnið vel með þeim síðan.
Einnig höfum við unnið með sjó-
björgunarsveitunum í gegnum
Landsbjörg og Björgunarskóli
Landsbjargar notar kerfi frá okkur í
hraðbátanámskeiðin sín, þar eru
þeir að kenna fólki á hraðbáta og
kerfið frá okkur leiðbeinir nem-
endum og svo fær kennari allar
skýrslur um ferðirnar. Svo tengdum
við okkur líka vel við norska sjó-
björgunarsambandið og það er með
kerfi frá okkur. Þeir hafa einnig lýst
yfir áhuga á áframhaldandi sam-
starfi og nýjum kerfum frá okkur.“
Áherslurnar hafa að undanförnu
beinst að því að byggja upp samstarf
með bátaframleiðendum og hóf
Hefring samstarf við De Haas
Maaslouis B.V. í Hollandi, sem sér-
hæfir sig í smíðum hraðbáta fyrir
löggæslu og aðra viðbragðsaðila sem
tengjast leit og björgun. Oftast þeg-
ar nýr bátur er smíðaður er hægt að
velja nánast allan tækjabúnað, út-
skýrir Karl Birgir, en snjallsiglinga-
kerfi Hefring er nú eitt af því sem
telst til staðalbúnaðar í bátum hol-
lensku bátasmiðjunnar De Haas
Maaslouis.
„Þetta var mikil sigur fyrir okkur
og staðfesti að það væri áhugi fyrir
búnaðinum hjá slíkum aðilum. Þann-
ig að við höfum verið að kynna okkur
meira fyrir bátaframleiðendum og
erum að vinna að nokkrum verk-
efnum með slíkum í skandinavíu og
Norður-Evrópu og stefnum á að
kynna nokkur slík samstarf í vor og í
byrjun sumars,“ segir Karl Birgir.
Samþætting
Framkvæmdastjórinn kveðst gera
ráð fyrir að Hefring nái mörgum
merkum áföngum á árinu 2021. „Við
eigum í viðræðum við tvö stór-
fyrirtæki, annað bandarískt og hitt
þýskt, um markaðssamstarf og að
fyrirtækin komi að fjármögnun
Hefring en bæði fyrirtækin eru leið-
andi á heimsvísu í framleiðslu og út-
gerð báta og skipa.
Við erum svo að fara af stað með
þrjár vörur. Í fyrsta lagi er það upp-
færsla á kerfinu sem við fórum af
stað með í fyrra, við höfum lært
mjög mikið af því kerfi og eitt sem
við lærðum er að vera ekki með auka
skjá. Það kerfi notar spjaldtölvu til
að vinna úr gögnum og notar skjáin
svo hægt sé að vinna úr og skoða
upplýsingarnar. Það er hins vegar
eitthvað sem notendur helst vilja
ekki þar sem það eru þegar fleiri
skjáir um borð. Skilaboðin sem við
fengum voru: Getið þið komið fyrir
notendaviðmóti ykkar í þá skjái sem
þegar eru til staðar í stað þess að
bæta við öðrum skjá. Við fórum því
af stað og erum nú að vinna í sam-
starfi við siglingatækjaframleiðand-
ann Garmin um að færa okkar not-
endaviðmót yfir í þeirra.
Þetta einfaldar okkar kerfi þar
sem við erum þá bara með nemana
sem tengdir eru inn í siglingakerfi
bátsins. Uppfærður hugbúnaður
verður því tekin í notkun sem verður
hægt að tengja við Garmin viðmót,
en verður einnig hægt að nota í
Android eða iOS spjaldtölvu. Þetta
kerfi verður tilbúið í vor og við höf-
um þegar fengið pantanir fyrir þess-
ari útgáfu en með samstarfinu við
Garmin komumst við að notendum
Garmin siglingatækja.“
Sjókort
Þá segir Karl Birgir Hefring stefna
að því að vera komið með enn öfl-
ugra kerfi sem mun ekki bara leið-
beina skipstjórnarmanni í sambandi
við hraða heldur einnig stefnu og
leiðina sem ætti að taka miðað við
veður og sjólag til að bæta öryggi og
draga úr eldsneytiseyðslu. „Það
kerfi metur sem sagt aðstæður fram
í tímann og velur leið milli erfiðra
svæða. Það er ekki alltaf skyn-
samlegt og best að sigla í beina línu
og í slíkum tilfellum kortleggur kerf-
ið hagstæðustu leiðina,“ bætir hann
við. Þá séu þegar komnar pantanir
frumgerð af þessari útgáfu og er það
sett saman í höfuðstöðvum Hefring
að Fiskislóð í Reykjavík.
Allar fyrrnefndar upplýsingar
verða einnig tengdar kortaviðmóti
sem gerir notenda kleift að sjá sigl-
ingaaðstæður á siglingakorti og
fylgjast með bátnum fylgja þessari
ráðlögðu leið. Stefnt er að kortið
sem verður til við samspil upplýsing-
anna verði gerð aðgengileg not-
endum óháð því hvort þeir nota
snjallsiglingakerfið, en með sigl-
ingakortinu geta skipstjórnendur
fylgst með nákvæmum veður- og
sjólagsspám og markað siglingaleið
sem tekur mið af þeim upplýsingum.
Fyrsta útgáfa af þessu korti verð-
ur tilbúið á þessum ársfjórðungi,
segir Karl Birgir. „Við sjáum fyrir
okkur að það geti ekki bara nýst bát-
um heldur stærri skipum líka. Ná-
kvæmnin verður hins vegar meiri ef
snjallsiglingabúnaðurinn er notaður
með siglingakortinu. Við höfum þeg-
ar kynnt siglingakortaverkefnið fyr-
ir Landhelgisgæslunni og Slysa-
varnafélaginu Landsbjörg og fengið
rýni frá þeim. Það væri hins vegar
mjög gagnlegt ef útgerðaraðilar og
aðrir áhugasamir hefðu samband við
okkur til að fá prufuaðgang að kort-
inu en það gæfi okkur mikilvæga
endurgjöf og umsögn sem nýtist í
áframhaldandi þróun.“
Samstarf við Google
Með sífellt aukinni sjálfvirknivæð-
ingu er vert að spurja hvort sjálfsigl-
andi skip og bátar þurfi ekki á þess-
um búnaði að halda til að meta
aðstæður á siglingu? „Algjörlega,“
svarar Karl Birgir. „Við fengum í
fyrra styrk frá Tækniþróunarsjóði,
til að þróa kerfi fyrir sjálfsiglandi
báta, sem var mjög mikilvægur
áfangi fyrir okkur. Þá höfum við
einnig notið góðs af öflugu stuðn-
ingsumhverfi nýsköpunar sem hefur
verið eflt verulega á síðustu miss-
erum.
Við erum núna komnir í tengingu
við aðila sem smíðar sjálfsiglandi
báta. […] Þeir eru með hraðsiglandi
báta sem þurfa að geta siglt sjálfir
og eru með mjög flottan búnað til að
þeir geti það og til að koma í veg fyr-
ir að þeir sigli á eitthvað annað fley.
En það vantar enn upp á getu bún-
aðarins til að skynja aðstæður og
hvernig eigi að haga siglingu sam-
kvæmt þeim. Þetta er oft eitthvað
sem reyndur skipstjóri myndi
þekkja og gæti brugðist við í raun-
tíma en þarna getur okkar kerfi
komið inn svo að þessir sjálfsiglandi
bátar geta tekið ákvörðun sjálfir eða
upplýst skipstjórnendur á landi.“
Ef sjálfsigling á að verða að veru-
leika er einnig mikilvægt að skoða
hvernig slíkt getur unnið með gervi-
greind og er Google eitt þeirra fyr-
irtækja sem hefur verið að gera eft-
irtektarverða hluti á því sviði.
Bandaríski hátæknirisinn hefur sýnt
hugmyndum Hefring áhuga. „Við
erum núna að prófa búnað frá
Google sem er undir vörumerkinu
Coral og höfum verið í samstarfi við
Google vegna þess. Þeim þykir kerf-
ið og sérstaklega sagan í kringum
Hefring mjög áhugavert og eru
sjálfir að leita að einstökum fyrir-
tækjum sem eru að nota hugbúnað
þeirra með óhefðbundnum hætti.
Við erum dæmigert þannig fyrirtæki
og þau hafa veitt okkur góðan stuðn-
ing,“ segir Karl Birgir.
„Framtíðin ber með sér að bún-
aðurinn sem hannaður var fyrir báta
verði notaður í sjálfsiglandi báta og
svo sjáum við fyrir okkur að fara að
prófa þetta í skipum líka,“ svarar
hann spurður um framtíðina. Enn er
þó verið að hanna sífellt fullkomnari
kerfi og er þróunarvinnunni hvergi
nærri lokið, að sögn Karls Birgis
sem hvetur áhugasama til að hafa
samband til að fræðast um hvernig
þeir gætu tekið þátt í prófunum,
fengið kerfi eða komið með ein-
hverjar gagnlegar athugsemdir.
Íslenskt snjallsiglingakerfi vekur áhuga víða
Í byrjun árs 2020 hóf fyrirtækið Hefring ehf. sölu á snjallsiglingakerfi sínu og hefur það verið hannað með hraðskreiða báta undir
24 metrum í huga og tekur það tillit til bátsgerðar og hraða. Í byrjun síðasta árs voru stofnendurnir þrír einir að vinna að kerfis- og
viðskiptaþróun en í dag starfa níu manns hjá fyrirtækinu og hefur átt sér stað samstarf við risa eins og Garmin og Google.
Karl Birgir sýnir starfsmönnum Landhelgisgæslunnar kerfið. Kerfið er partur af mælaborðinu og aðstoðar skipstjórbnarfólk.
Ljósmyndir/Hefring
Tæknimaður tengir kefið við innviði báts.
Morgunblaðið/Eggert
Karl Birgir Björnsson segir mikla viðurkenningu að siglingakerfið sé staðalbúnaður hjá De Haas Maaslouis.
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum