Morgunblaðið - 13.02.2021, Page 10

Morgunblaðið - 13.02.2021, Page 10
Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is M ikil þróun hefur staðið yfir frá því að snjall- siglingakerfið fór í sölu á síðasta ári, segir Karl Birgir Björnsson, framkvæmdastjóri Hefring. Um er að ræða kerfi sem mælir hreyfingar bátsins og aðstæður og býr til leið- beinandi upplýsingar fyrir skip- stjórnarmenn varðandi ráðlagðan hraða. „Kerfið safnar síðan öllum gögnum í skýjið, þannig að allar upplýsingar um ferðina eru not- endum aðgengilegar,“ útskýrir Karl Birgir. „Fyrsta skrefið var að koma frum- gerð af kerfinu af stað og sýna hug- myndina,“ segir hann og bendir á að fjölmargir hafa veitt fyrirtækinu stuðning með því að leyfa prófun búnaðarins. Þar gengdu meðal ann- ars Landhelgisgæslan og Slysavarn- arfélagið Landsbjörg mikilvægu hlutverki, að auk útgerðarfyrirtækj- ana Vísir og Skinney-Þinganes hf. Staðalbúnaður Það var kannski ekki besta tíma- setning að hefja kynningu og notkun kerfisins í byrjun árs 2020 eða „kort- er í Covid“ eins og Karl Birgir orðar það. Fyrst var nefnilega hugsað að hefja notkunina í bátum hvalaskoð- unarfyrirtækja, en eins og öllum nú er orðið ljóst var sú starfsemi tak- mörkuð á síðasta ári sökum kór- ónuveirufaraldursins. „Við snérum þá athyglinni annað og hófum sam- starf með Landhelgisgæslunni og höfum unnið vel með þeim síðan. Einnig höfum við unnið með sjó- björgunarsveitunum í gegnum Landsbjörg og Björgunarskóli Landsbjargar notar kerfi frá okkur í hraðbátanámskeiðin sín, þar eru þeir að kenna fólki á hraðbáta og kerfið frá okkur leiðbeinir nem- endum og svo fær kennari allar skýrslur um ferðirnar. Svo tengdum við okkur líka vel við norska sjó- björgunarsambandið og það er með kerfi frá okkur. Þeir hafa einnig lýst yfir áhuga á áframhaldandi sam- starfi og nýjum kerfum frá okkur.“ Áherslurnar hafa að undanförnu beinst að því að byggja upp samstarf með bátaframleiðendum og hóf Hefring samstarf við De Haas Maaslouis B.V. í Hollandi, sem sér- hæfir sig í smíðum hraðbáta fyrir löggæslu og aðra viðbragðsaðila sem tengjast leit og björgun. Oftast þeg- ar nýr bátur er smíðaður er hægt að velja nánast allan tækjabúnað, út- skýrir Karl Birgir, en snjallsiglinga- kerfi Hefring er nú eitt af því sem telst til staðalbúnaðar í bátum hol- lensku bátasmiðjunnar De Haas Maaslouis. „Þetta var mikil sigur fyrir okkur og staðfesti að það væri áhugi fyrir búnaðinum hjá slíkum aðilum. Þann- ig að við höfum verið að kynna okkur meira fyrir bátaframleiðendum og erum að vinna að nokkrum verk- efnum með slíkum í skandinavíu og Norður-Evrópu og stefnum á að kynna nokkur slík samstarf í vor og í byrjun sumars,“ segir Karl Birgir. Samþætting Framkvæmdastjórinn kveðst gera ráð fyrir að Hefring nái mörgum merkum áföngum á árinu 2021. „Við eigum í viðræðum við tvö stór- fyrirtæki, annað bandarískt og hitt þýskt, um markaðssamstarf og að fyrirtækin komi að fjármögnun Hefring en bæði fyrirtækin eru leið- andi á heimsvísu í framleiðslu og út- gerð báta og skipa. Við erum svo að fara af stað með þrjár vörur. Í fyrsta lagi er það upp- færsla á kerfinu sem við fórum af stað með í fyrra, við höfum lært mjög mikið af því kerfi og eitt sem við lærðum er að vera ekki með auka skjá. Það kerfi notar spjaldtölvu til að vinna úr gögnum og notar skjáin svo hægt sé að vinna úr og skoða upplýsingarnar. Það er hins vegar eitthvað sem notendur helst vilja ekki þar sem það eru þegar fleiri skjáir um borð. Skilaboðin sem við fengum voru: Getið þið komið fyrir notendaviðmóti ykkar í þá skjái sem þegar eru til staðar í stað þess að bæta við öðrum skjá. Við fórum því af stað og erum nú að vinna í sam- starfi við siglingatækjaframleiðand- ann Garmin um að færa okkar not- endaviðmót yfir í þeirra. Þetta einfaldar okkar kerfi þar sem við erum þá bara með nemana sem tengdir eru inn í siglingakerfi bátsins. Uppfærður hugbúnaður verður því tekin í notkun sem verður hægt að tengja við Garmin viðmót, en verður einnig hægt að nota í Android eða iOS spjaldtölvu. Þetta kerfi verður tilbúið í vor og við höf- um þegar fengið pantanir fyrir þess- ari útgáfu en með samstarfinu við Garmin komumst við að notendum Garmin siglingatækja.“ Sjókort Þá segir Karl Birgir Hefring stefna að því að vera komið með enn öfl- ugra kerfi sem mun ekki bara leið- beina skipstjórnarmanni í sambandi við hraða heldur einnig stefnu og leiðina sem ætti að taka miðað við veður og sjólag til að bæta öryggi og draga úr eldsneytiseyðslu. „Það kerfi metur sem sagt aðstæður fram í tímann og velur leið milli erfiðra svæða. Það er ekki alltaf skyn- samlegt og best að sigla í beina línu og í slíkum tilfellum kortleggur kerf- ið hagstæðustu leiðina,“ bætir hann við. Þá séu þegar komnar pantanir frumgerð af þessari útgáfu og er það sett saman í höfuðstöðvum Hefring að Fiskislóð í Reykjavík. Allar fyrrnefndar upplýsingar verða einnig tengdar kortaviðmóti sem gerir notenda kleift að sjá sigl- ingaaðstæður á siglingakorti og fylgjast með bátnum fylgja þessari ráðlögðu leið. Stefnt er að kortið sem verður til við samspil upplýsing- anna verði gerð aðgengileg not- endum óháð því hvort þeir nota snjallsiglingakerfið, en með sigl- ingakortinu geta skipstjórnendur fylgst með nákvæmum veður- og sjólagsspám og markað siglingaleið sem tekur mið af þeim upplýsingum. Fyrsta útgáfa af þessu korti verð- ur tilbúið á þessum ársfjórðungi, segir Karl Birgir. „Við sjáum fyrir okkur að það geti ekki bara nýst bát- um heldur stærri skipum líka. Ná- kvæmnin verður hins vegar meiri ef snjallsiglingabúnaðurinn er notaður með siglingakortinu. Við höfum þeg- ar kynnt siglingakortaverkefnið fyr- ir Landhelgisgæslunni og Slysa- varnafélaginu Landsbjörg og fengið rýni frá þeim. Það væri hins vegar mjög gagnlegt ef útgerðaraðilar og aðrir áhugasamir hefðu samband við okkur til að fá prufuaðgang að kort- inu en það gæfi okkur mikilvæga endurgjöf og umsögn sem nýtist í áframhaldandi þróun.“ Samstarf við Google Með sífellt aukinni sjálfvirknivæð- ingu er vert að spurja hvort sjálfsigl- andi skip og bátar þurfi ekki á þess- um búnaði að halda til að meta aðstæður á siglingu? „Algjörlega,“ svarar Karl Birgir. „Við fengum í fyrra styrk frá Tækniþróunarsjóði, til að þróa kerfi fyrir sjálfsiglandi báta, sem var mjög mikilvægur áfangi fyrir okkur. Þá höfum við einnig notið góðs af öflugu stuðn- ingsumhverfi nýsköpunar sem hefur verið eflt verulega á síðustu miss- erum. Við erum núna komnir í tengingu við aðila sem smíðar sjálfsiglandi báta. […] Þeir eru með hraðsiglandi báta sem þurfa að geta siglt sjálfir og eru með mjög flottan búnað til að þeir geti það og til að koma í veg fyr- ir að þeir sigli á eitthvað annað fley. En það vantar enn upp á getu bún- aðarins til að skynja aðstæður og hvernig eigi að haga siglingu sam- kvæmt þeim. Þetta er oft eitthvað sem reyndur skipstjóri myndi þekkja og gæti brugðist við í raun- tíma en þarna getur okkar kerfi komið inn svo að þessir sjálfsiglandi bátar geta tekið ákvörðun sjálfir eða upplýst skipstjórnendur á landi.“ Ef sjálfsigling á að verða að veru- leika er einnig mikilvægt að skoða hvernig slíkt getur unnið með gervi- greind og er Google eitt þeirra fyr- irtækja sem hefur verið að gera eft- irtektarverða hluti á því sviði. Bandaríski hátæknirisinn hefur sýnt hugmyndum Hefring áhuga. „Við erum núna að prófa búnað frá Google sem er undir vörumerkinu Coral og höfum verið í samstarfi við Google vegna þess. Þeim þykir kerf- ið og sérstaklega sagan í kringum Hefring mjög áhugavert og eru sjálfir að leita að einstökum fyrir- tækjum sem eru að nota hugbúnað þeirra með óhefðbundnum hætti. Við erum dæmigert þannig fyrirtæki og þau hafa veitt okkur góðan stuðn- ing,“ segir Karl Birgir. „Framtíðin ber með sér að bún- aðurinn sem hannaður var fyrir báta verði notaður í sjálfsiglandi báta og svo sjáum við fyrir okkur að fara að prófa þetta í skipum líka,“ svarar hann spurður um framtíðina. Enn er þó verið að hanna sífellt fullkomnari kerfi og er þróunarvinnunni hvergi nærri lokið, að sögn Karls Birgis sem hvetur áhugasama til að hafa samband til að fræðast um hvernig þeir gætu tekið þátt í prófunum, fengið kerfi eða komið með ein- hverjar gagnlegar athugsemdir. Íslenskt snjallsiglingakerfi vekur áhuga víða Í byrjun árs 2020 hóf fyrirtækið Hefring ehf. sölu á snjallsiglingakerfi sínu og hefur það verið hannað með hraðskreiða báta undir 24 metrum í huga og tekur það tillit til bátsgerðar og hraða. Í byrjun síðasta árs voru stofnendurnir þrír einir að vinna að kerfis- og viðskiptaþróun en í dag starfa níu manns hjá fyrirtækinu og hefur átt sér stað samstarf við risa eins og Garmin og Google. Karl Birgir sýnir starfsmönnum Landhelgisgæslunnar kerfið. Kerfið er partur af mælaborðinu og aðstoðar skipstjórbnarfólk. Ljósmyndir/Hefring Tæknimaður tengir kefið við innviði báts. Morgunblaðið/Eggert Karl Birgir Björnsson segir mikla viðurkenningu að siglingakerfið sé staðalbúnaður hjá De Haas Maaslouis. 10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.