Morgunblaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.02.2021, Blaðsíða 20
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is G aman hefur verið að fylgj- ast með vexti Vélfags og merkilegt til þess að hugsa að aðeins aldar- fjórðungur er síðan hug- myndaríkur sjómaður setti fyrir- tækið á laggirnar. Silfá Huld Bjarmadóttir er sölu- og verk- efnastjóri hjá Vélfagi en segja má að hún sé búin að vera þar með annan fótinn síðan hún var sex ára gömul þegar foreldrar hennar, Bjarmi Sig- urgarðarsson og Ólöf Ýr Lárus- dóttir, stofnuðu fyrirtækið. „Pabbi var sjómaður í mörg ár en þegar hann lenti í vinnuslysi sem batt enda á sjómannsferilinn hélt hann áfram því sem hann hafði byrj- að á úti á sjó: að smíða endurbætta varahluti fyrir gamlar Baader-vélar með það að markmiði að gera end- ingu, umhirðu þeirra og notkun hag- kvæmari og ekki síst auka gæði og nýtingu fiskafurðanna. Það gekk vonum framar og ekki leið á löngu þar til fyrsta bolfiskflökunarvélin í heimi, sem smíðuð var úr ryðfríu stáli og sérblönduðu plasti, leit dags- ins ljós. Síðan byrjaði boltinn að rúlla “ segir Silfá söguna. Í dag framleiðir Vélfag og hannar tölvustýrðar flökunarvélar, hausara, roðdráttarvélar og allan jaðarbúnað til að koma heilum fiski í flök og áframvinnslu. Sérstaða vöru- framboðs Vélfags felst ekki síst í því að búnaðurinn sem fyrirtækið fram- leiðir er hannaður til að henta bæði á sjó og í landi, vera áreiðanlegur, ná- kvæmur og auðveldur í umgengni við mjög krefjandi skilyrði. Í dag starfa hátt í 20 manns hjá Vélfagi auk verktaka og umboðsmanna. „Nú eru vélar frá okkur í öllum helstu fiskvinnslum landsins og í öflugustu flakafrystitogurunum. Einnig höfum við haslað okkur völl á alþjóðavísu undanfarin ár. Lang- flestar vélarnar sem við afhendum eru nú að fara í útflutning fyrir vinnsluskip og landvinnslur víðsvegar um heiminn, t.d. í Rússlandi, Bretlandi, Spáni, Þýska- landi, Eystrasalts- löndum, Suður- Afríku, Frakklandi, Ír- landi og Noregi,“ segir Silfá. Viðhald og eftirlit yfir netið Reksturinn hefur gengið vel undan- farin misseri en eins og með flest önnur fyrirtæki setti kórónuveiru- faraldurinn töluvert strik í reikning- inn á síðasta ári. „Óhjákvæmilega urðu truflanir á bæði útflutningi og þjónustu og t.d. hefur verið mjög erfitt að sinna uppsetningar- og við- haldsferðum vegna ferðatakmark- ana. Strax í byrjun tókum við farald- urinn mjög alvarlega og gripum til aðgerða bæði til að tryggja að ekki yrði röskun á framleiðslu og vara- hlutaafhendingum og að öryggi starfsfólks væri ekki stefnt í hættu,“ segir Silfá. „Tæknimenn okkar gátu samt fylgst vel með vélbúnaðinum hjá viðskiptavinum sem eru með nettengd stýrikerfi í vélunum. Einn- ig nýttum annars konar fjarbúnað til að aðstoða viðskiptavini við viðhald og eftirlit á vélunum ef ekki var mögulegt að koma á staðinn. Stefna Vélfags hefur ávallt verið að þjálfa sem best tæknimenn viðskiptavina okkar þannig að þeir verði sem sjálf- bærastir til að sinna sínum vélbún- aði og geti þannig tryggt hámarks- gæði og nýtingu á auðlindum hafsins með hátæknivélbúnaði frá Vélfagi. Þetta er auðvitað einnig sjálfsagður hluti af því að hafa grænar lausnir að leiðarljósi og minnka þörf á ferða- lögum og óþarfa sótspori en skilar sér einnig vel í aðstæðum eins og faraldurinn hefur kennt okkur.“ Tæknivæðing veitir forskot „En ástandið gaf okkur einnig svig- rúm til að einbeita okkur að stórum þróunarverkefnum sem við unnum að og ráðast í hagræðingar á borð við að flytja lagerinn okkar milli starfsstöðva frá Ólafsfirði til Akur- eyrar, styrkja sölukerfið, kynning- argögn og fleira sem við lítum á sem tækifæri til framtíðar. En auðvitað eru efnahagsleg áhrif heimsfarald- ursins áhyggjuefni og alveg tími til kominn að skoða þetta ástand í víð- ara samhengi og leyfa fólki að taka þá umræðu.“ Heyra má á Silfá að sjávarútvegs- fyrirtæki um allan heim séu samt allt annað en buguð og horfir hún björtum augum til framtíðar. „Fólk heldur áfram að borða fisk og kröf- urnar fara bara vaxandi um að nýta nýjustu tækni til að bæta nýtingu og auka gæði og upprunavottun hráefn- isins,“ segir Silfá og minnir á að í faraldrinum hafi komið í ljós að tæknivæddustu sjávarútvegsfyrir- tækin höfðu ákveðið forskot á þá sem hafa t.d. stólað á ódýrt vinnuafl frekar en fjárfestingar í sjálfvirkum tækjum. „Faraldurinn hefur beint kastljós- inu að kostum þess hafa bæði veiðar og fullvinnslu í sama landinu. Ekki var lengur hægt að stóla á það að senda aflann yfir hálfan hnöttinn í vinnslu í löndum til að nýta ódýrt vinnuafl, eins og í Kína, þaðan sem hann er svo sendur aftur til baka á neytandamarkaði. Faraldurinn varpaði ljósi á ýmsa ókosti þessa fyrirkomulags og neytendur urðu meðvitaðri um uppruna og kolefnis- spor vörunnar. Æ fleiri fyrirtæki um allan heim eru að skipta um gír hvað þetta varðar og horft er meðal ann- ars til íslenska sjávarútvegsins sem hefur vakið mikla athygli og er á margan hátt til mikillar fyrirmyndar hvað þetta varðar. T.d. er rúss- neskur sjávarútvegur á fleygiferð inn í tæknivædda framtíð að vinna sjálfir sitt hráefni og hefur ráðist í mikla uppbyggingu og fjárfestingu í veiðum og vinnslutækni í samstarfi við íslenskt hugvit og tækniþekk- ingu sem vaxið hefur upp af íslensk- um sjávarútvegi.“ Aðlagast með einum takka Silfá segir stjórnendur Vélfags bratta enda spennandi verkefni framundan. Nýlega markaðssetti Vélfag flökunarvélina M705 og hefur vakið verðskuldaða athygli: „Með hágæða tölvustýringu tryggir vélin aukna nýtingu, meiri flakagæði og bætir þannig umgengni við auð- lindina og umhverfið. Með gæða- og stjórnkerfinu Take Control í vélinni er hægt að stýra vélunum og stilla á einfaldan hátt, jafnframt því að kalla eftir fjölbreyttum upplýsingum um vinnsluna í gegnum notandaskjá,“ útskýrir Silfá en með því einu að ýta á takka á skjánum aðlagar vélin sig sjálfkrafa að ólíkum fisktegundum. Kerfið mælir hvern fisk með ná- kvæmum leysigeisla og stillir skurðarhnífana í samræmi við það, með því að nota servó-mótora og stærðargreina fiskinn. Í „Ad- vanced“-útgáfunni eru tvívíddar- og þrívíddarskynjarar sem miðla í rauntíma gögnum um lengd, hæð og þyngd fisksins sem fer inn og út úr vélinni og gefa notandanum upplýs- ingar um nýtingu og gæðaeftirlit þar sem myndum og upplýsingum er streymt beint á skjáinn. Tæknimenn Vélfags geta auðveldlega tengt sig inn í kerfið og hjálpað skipum/ vinnslum víðsvegar um heiminn með viðhald gegnum VPN-tengingu.“ Um þessar mundir beinir Vélfag sjónum sínum ekki síst að Rúss- landsmarkaði enda eru dýrmæt tækifæri þar. Í fyrra tók t.d. sjávar- útvegsfyrirtæki í Murmansk í notk- un nýja og fullkomna fiskvinnslu þar sem tölvustýrðar flökunar-, haus- ara- og roðdráttarvélar Vélfags vinna saman í heildarlausn með af- kastagetu upp á 15 tonn af afla á klukkustund. Í verksmiðjunni eru meðal annars nýjustu M521- hausara-/klumbuvélarnar frá Vél- fagi sem þróaðar voru í samvinnu við þessa rússnesku vinnslu. M521 get- ur bæði hausað fiskinn með og án klumbu og tekið klumbuna af haus- uðum fiski (H&G). „ Klumban fer þá alltaf af en ef klumba fylgir fiski inn í flökun veldur það undantekning- arlaust skemmdum og nýtingarfalli á verðmætasta hlutanum af flakinu og jafnvel einnig á þeim flökum sem á eftir því koma.“ Nú eru yfirstandandi samninga- viðræður við aðrar öflugar vinnslur í Rússlandi um verkefni sem þegar hafa vakið áhuga hjá fleiri sjávar- útvegsfyrirtækjum þar í landi sem fyrirmynd fyrir nýjar vinnslulausnir og þess hvers vinnslubúnaðurinn frá Vélfagi er megnugur. Stefnan er að þessi og fleiri verkefni muni ryðja leiðina fyrir enn frekari útrás fyrir- tækisins á þennan markað. Ný vinnslulína til Írlands Fyrirtækið hefur síðustu misseri vaxið töluvert, aukið afköstin og byggt upp öflugan grunn fyrir metn- aðarfull þróunarverkefni næstu mánuði. „Á rúmu ári afhentum við 25 vélar og í þessum töluðu orðum erum við að skila heilli vinnslulínu til Írlands og önnur verður fljótlega af- hent þangað til viðbótar. Við höfum verið í samvinnu við BIM og írska fiskframleiðendur síðustu tvö ár um þróun á vélbúnaði sem hentar þeirra hráefni, smærri og viðkvæmari fiski en þeim sem við erum t.d. vön að vinna með á norðurslóðum,“ segir Silfá. „Þar þarf búnaðurinn að vera jafnvígur á 500 gramma smáfisk og 5 kílóa fisk af mismunandi teg- undum. Þarna hentar einmitt M705-flökunarvélin mjög vel enda fær um að aðlagast breytilegu hrá- efni á augabragði.“ Vöxturinn hraður í Rússlandi Lausnir Vélfags hafa vakið verðskuldaða athygli í Rússlandi en fyrirtækið á í dag við- skiptavini um allan heim. „Fólk heldur áfram að borða fisk og kröfurnar fara bara vaxandi um að nýta nýjustu tækni til að bæta nýtingu og auka gæði,“ segir Silfá. Lausnir Vélfags hafa m.a. vakið athygli fyrir áreiðanleika og auðvelda umgengni. Teikning af afkastamikilli og fjölhæfri vinnslulínu Vélfags í Múrmansk. 20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.