Morgunblaðið - 13.02.2021, Page 20
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
G
aman hefur verið að fylgj-
ast með vexti Vélfags og
merkilegt til þess að
hugsa að aðeins aldar-
fjórðungur er síðan hug-
myndaríkur sjómaður setti fyrir-
tækið á laggirnar. Silfá Huld
Bjarmadóttir er sölu- og verk-
efnastjóri hjá Vélfagi en segja má að
hún sé búin að vera þar með annan
fótinn síðan hún var sex ára gömul
þegar foreldrar hennar, Bjarmi Sig-
urgarðarsson og Ólöf Ýr Lárus-
dóttir, stofnuðu fyrirtækið.
„Pabbi var sjómaður í mörg ár en
þegar hann lenti í vinnuslysi sem
batt enda á sjómannsferilinn hélt
hann áfram því sem hann hafði byrj-
að á úti á sjó: að smíða endurbætta
varahluti fyrir gamlar Baader-vélar
með það að markmiði að gera end-
ingu, umhirðu þeirra og notkun hag-
kvæmari og ekki síst auka gæði og
nýtingu fiskafurðanna. Það gekk
vonum framar og ekki leið á löngu
þar til fyrsta bolfiskflökunarvélin í
heimi, sem smíðuð var úr ryðfríu
stáli og sérblönduðu plasti, leit dags-
ins ljós. Síðan byrjaði boltinn að
rúlla “ segir Silfá söguna.
Í dag framleiðir Vélfag og hannar
tölvustýrðar flökunarvélar, hausara,
roðdráttarvélar og allan jaðarbúnað
til að koma heilum fiski í flök og
áframvinnslu. Sérstaða vöru-
framboðs Vélfags felst ekki síst í því
að búnaðurinn sem fyrirtækið fram-
leiðir er hannaður til að henta bæði á
sjó og í landi, vera áreiðanlegur, ná-
kvæmur og auðveldur í umgengni
við mjög krefjandi skilyrði. Í dag
starfa hátt í 20 manns hjá Vélfagi
auk verktaka og umboðsmanna. „Nú
eru vélar frá okkur í öllum helstu
fiskvinnslum landsins og í öflugustu
flakafrystitogurunum. Einnig höfum
við haslað okkur völl á alþjóðavísu
undanfarin ár. Lang-
flestar vélarnar sem við
afhendum eru nú að
fara í útflutning
fyrir vinnsluskip
og landvinnslur
víðsvegar um
heiminn, t.d. í
Rússlandi,
Bretlandi,
Spáni, Þýska-
landi, Eystrasalts-
löndum, Suður-
Afríku, Frakklandi, Ír-
landi og Noregi,“ segir Silfá.
Viðhald og eftirlit yfir netið
Reksturinn hefur gengið vel undan-
farin misseri en eins og með flest
önnur fyrirtæki setti kórónuveiru-
faraldurinn töluvert strik í reikning-
inn á síðasta ári. „Óhjákvæmilega
urðu truflanir á bæði útflutningi og
þjónustu og t.d. hefur verið mjög
erfitt að sinna uppsetningar- og við-
haldsferðum vegna ferðatakmark-
ana. Strax í byrjun tókum við farald-
urinn mjög alvarlega og gripum til
aðgerða bæði til að tryggja að ekki
yrði röskun á framleiðslu og vara-
hlutaafhendingum og að öryggi
starfsfólks væri ekki stefnt í hættu,“
segir Silfá. „Tæknimenn okkar gátu
samt fylgst vel með vélbúnaðinum
hjá viðskiptavinum sem eru með
nettengd stýrikerfi í vélunum. Einn-
ig nýttum annars konar fjarbúnað til
að aðstoða viðskiptavini við viðhald
og eftirlit á vélunum ef ekki var
mögulegt að koma á staðinn. Stefna
Vélfags hefur ávallt verið að þjálfa
sem best tæknimenn viðskiptavina
okkar þannig að þeir verði sem sjálf-
bærastir til að sinna sínum vélbún-
aði og geti þannig tryggt hámarks-
gæði og nýtingu á auðlindum hafsins
með hátæknivélbúnaði frá Vélfagi.
Þetta er auðvitað einnig sjálfsagður
hluti af því að hafa grænar lausnir að
leiðarljósi og minnka þörf á ferða-
lögum og óþarfa sótspori en skilar
sér einnig vel í aðstæðum eins og
faraldurinn hefur kennt okkur.“
Tæknivæðing veitir forskot
„En ástandið gaf okkur einnig svig-
rúm til að einbeita okkur að stórum
þróunarverkefnum sem við unnum
að og ráðast í hagræðingar á borð
við að flytja lagerinn okkar milli
starfsstöðva frá Ólafsfirði til Akur-
eyrar, styrkja sölukerfið, kynning-
argögn og fleira sem við lítum á sem
tækifæri til framtíðar. En auðvitað
eru efnahagsleg áhrif heimsfarald-
ursins áhyggjuefni og alveg tími til
kominn að skoða þetta ástand í víð-
ara samhengi og leyfa fólki að taka
þá umræðu.“
Heyra má á Silfá að sjávarútvegs-
fyrirtæki um allan heim séu samt
allt annað en buguð og horfir hún
björtum augum til framtíðar. „Fólk
heldur áfram að borða fisk og kröf-
urnar fara bara vaxandi um að nýta
nýjustu tækni til að bæta nýtingu og
auka gæði og upprunavottun hráefn-
isins,“ segir Silfá og minnir á að í
faraldrinum hafi komið í ljós að
tæknivæddustu sjávarútvegsfyrir-
tækin höfðu ákveðið forskot á þá
sem hafa t.d. stólað á ódýrt vinnuafl
frekar en fjárfestingar í sjálfvirkum
tækjum.
„Faraldurinn hefur beint kastljós-
inu að kostum þess hafa bæði veiðar
og fullvinnslu í sama landinu. Ekki
var lengur hægt að stóla á það að
senda aflann yfir hálfan hnöttinn í
vinnslu í löndum til að nýta ódýrt
vinnuafl, eins og í Kína, þaðan sem
hann er svo sendur aftur til baka á
neytandamarkaði. Faraldurinn
varpaði ljósi á ýmsa ókosti þessa
fyrirkomulags og neytendur urðu
meðvitaðri um uppruna og kolefnis-
spor vörunnar. Æ fleiri fyrirtæki um
allan heim eru að skipta um gír hvað
þetta varðar og horft er meðal ann-
ars til íslenska sjávarútvegsins sem
hefur vakið mikla athygli og er á
margan hátt til mikillar fyrirmyndar
hvað þetta varðar. T.d. er rúss-
neskur sjávarútvegur á fleygiferð
inn í tæknivædda framtíð að vinna
sjálfir sitt hráefni og hefur ráðist í
mikla uppbyggingu og fjárfestingu í
veiðum og vinnslutækni í samstarfi
við íslenskt hugvit og tækniþekk-
ingu sem vaxið hefur upp af íslensk-
um sjávarútvegi.“
Aðlagast með einum takka
Silfá segir stjórnendur Vélfags
bratta enda spennandi verkefni
framundan. Nýlega markaðssetti
Vélfag flökunarvélina M705 og hefur
vakið verðskuldaða athygli: „Með
hágæða tölvustýringu tryggir vélin
aukna nýtingu, meiri flakagæði og
bætir þannig umgengni við auð-
lindina og umhverfið. Með gæða- og
stjórnkerfinu Take Control í vélinni
er hægt að stýra vélunum og stilla á
einfaldan hátt, jafnframt því að kalla
eftir fjölbreyttum upplýsingum um
vinnsluna í gegnum notandaskjá,“
útskýrir Silfá en með því einu að ýta
á takka á skjánum aðlagar vélin sig
sjálfkrafa að ólíkum fisktegundum.
Kerfið mælir hvern fisk með ná-
kvæmum leysigeisla og stillir
skurðarhnífana í samræmi við það,
með því að nota servó-mótora og
stærðargreina fiskinn. Í „Ad-
vanced“-útgáfunni eru tvívíddar- og
þrívíddarskynjarar sem miðla í
rauntíma gögnum um lengd, hæð og
þyngd fisksins sem fer inn og út úr
vélinni og gefa notandanum upplýs-
ingar um nýtingu og gæðaeftirlit þar
sem myndum og upplýsingum er
streymt beint á skjáinn. Tæknimenn
Vélfags geta auðveldlega tengt sig
inn í kerfið og hjálpað skipum/
vinnslum víðsvegar um heiminn með
viðhald gegnum VPN-tengingu.“
Um þessar mundir beinir Vélfag
sjónum sínum ekki síst að Rúss-
landsmarkaði enda eru dýrmæt
tækifæri þar. Í fyrra tók t.d. sjávar-
útvegsfyrirtæki í Murmansk í notk-
un nýja og fullkomna fiskvinnslu þar
sem tölvustýrðar flökunar-, haus-
ara- og roðdráttarvélar Vélfags
vinna saman í heildarlausn með af-
kastagetu upp á 15 tonn af afla á
klukkustund. Í verksmiðjunni eru
meðal annars nýjustu M521-
hausara-/klumbuvélarnar frá Vél-
fagi sem þróaðar voru í samvinnu við
þessa rússnesku vinnslu. M521 get-
ur bæði hausað fiskinn með og án
klumbu og tekið klumbuna af haus-
uðum fiski (H&G). „ Klumban fer þá
alltaf af en ef klumba fylgir fiski inn í
flökun veldur það undantekning-
arlaust skemmdum og nýtingarfalli
á verðmætasta hlutanum af flakinu
og jafnvel einnig á þeim flökum sem
á eftir því koma.“
Nú eru yfirstandandi samninga-
viðræður við aðrar öflugar vinnslur í
Rússlandi um verkefni sem þegar
hafa vakið áhuga hjá fleiri sjávar-
útvegsfyrirtækjum þar í landi sem
fyrirmynd fyrir nýjar vinnslulausnir
og þess hvers vinnslubúnaðurinn frá
Vélfagi er megnugur. Stefnan er að
þessi og fleiri verkefni muni ryðja
leiðina fyrir enn frekari útrás fyrir-
tækisins á þennan markað.
Ný vinnslulína til Írlands
Fyrirtækið hefur síðustu misseri
vaxið töluvert, aukið afköstin og
byggt upp öflugan grunn fyrir metn-
aðarfull þróunarverkefni næstu
mánuði. „Á rúmu ári afhentum við
25 vélar og í þessum töluðu orðum
erum við að skila heilli vinnslulínu til
Írlands og önnur verður fljótlega af-
hent þangað til viðbótar. Við höfum
verið í samvinnu við BIM og írska
fiskframleiðendur síðustu tvö ár um
þróun á vélbúnaði sem hentar þeirra
hráefni, smærri og viðkvæmari fiski
en þeim sem við erum t.d. vön að
vinna með á norðurslóðum,“ segir
Silfá. „Þar þarf búnaðurinn að vera
jafnvígur á 500 gramma smáfisk og
5 kílóa fisk af mismunandi teg-
undum. Þarna hentar einmitt
M705-flökunarvélin mjög vel enda
fær um að aðlagast breytilegu hrá-
efni á augabragði.“
Vöxturinn hraður í Rússlandi
Lausnir Vélfags hafa
vakið verðskuldaða
athygli í Rússlandi en
fyrirtækið á í dag við-
skiptavini um allan heim.
„Fólk heldur áfram að borða fisk og kröfurnar
fara bara vaxandi um að nýta nýjustu tækni til
að bæta nýtingu og auka gæði,“ segir Silfá.
Lausnir Vélfags hafa m.a.
vakið athygli fyrir áreiðanleika
og auðvelda umgengni.
Teikning af afkastamikilli
og fjölhæfri vinnslulínu
Vélfags í Múrmansk.
20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 2021
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum