Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2021, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2021, Blaðsíða 13
geðshræringunni sem minningin um þessa erf- iðu stund kallar óhjákvæmilega fram. Óskari var þegar í stað vísað til Jakobs Jó- hannssonar, krabbameinslæknis og yfirlæknis geislameðferðar krabbameina á Landspít- alanum, upp á frekari meðferð. „Hann tjáði mér að við yrðum að vinna hratt, mættum eng- an tíma missa. Jakob lagði strax til bæði geisla- og lyfjameðferð. Þetta var á föstudegi og hann vildi fá mig til sín strax á mánudegi. Nú yrði ég að sníða mér stakk eftir vexti, hætta að keyra bíl og hætta að borða sykur, svo eitthvað sé nefnt. Ég reyndi að veiða upp úr Jakobi hvað ég ætti langan tíma eftir og hann svaraði því til að það væri einstaklings- bundið en þetta liti ekki vel út.“ Myndi gera allt Höggið var að vonum þungt fyrir börnin sem fóru strax að gúgla þessa gerð krabbameins og komust þá að því að fólk lifir að meðaltali í sex- tán til átján mánuði eftir greiningu. Ekki voru þær upplýsingar til þess fallnar að draga úr áfallinu. „Ég sannfærði börnin strax um það að ég myndi gera allt sem í mínu valdi stæði til að lengja þennan tíma eins og ég mögulega gæti. Ég myndi taka út sykur, minnka rauða kjötið, hreyfa mig eins og mikið og ég gæti og svo framvegis. Ég tók á þessari stundu ákvörðun: Ég ætla ekki að verða veikur og mun standa uppi eins lengi og heilsan mögulega leyfir!“ Sykurinn fór út með viðhöfn. Frændi og vin- ur Óskars, Sigurður Eyþór Valgarðsson og eiginkona hans, Guðrún Ösp Sævarsdóttir, mættu með Köku ársins í lok febrúar og Óskar naut hennar til hins ýtrasta. Síðan ekki söguna meir. „Ég lagði Nóakroppið á hilluna.“ Nokkrum dögum eftir uppskurðinn hófust búferlaflutningar en skömmu áður en Óskar veiktist hafði fjölskyldan fest kaup á íbúðinni í Grafarvoginum. „Ég var auðvitað ekki til stór- ræðanna í þessum flutningum en tók þeim samt sem áður fagnandi. Þeir gerðu mér kleift að dreifa huganum. Ég var mjög orkulítill fyrst eftir aðgerðina og í hálfgerðu móki fyrsta mánuðinn. Guffi sonur okkar safnaði saman her manna og ég held að aldrei í Íslandssög- unni hafi verið flutt jafn hratt og örugglega milli staða. Þetta var skipulagt eins og hern- aðaraðgerð. Guffi á mikið lof skilið.“ Óskar hefur haldið sig við sömu rútínuna á nýja staðnum. Hann stillir vekjaraklukkuna alltaf á 7.30, fer í World Class, gufuna og heitu pottana og hittir fólk, eins og aðstæður í sam- félaginu á tímum heimsfaraldurs leyfa. Þá læt- ur hann sér ekki detta í hug að kveikja á sjón- varpinu fyrr en eftir kvöldmat. „Hvað gerir maður gjarnan þegar maður er veikur og vor- kennir sér? Skríður upp í sófa undir teppi og kveikir á sjónvarpinu. Ég gat ekki hugsað mér það. Byrjaði í staðinn að mæta í ræktina um leið og það var hægt síðasta vor og gera mínar æfingar. Úthaldið og krafturinn er ekki sá sami, núna eru lóðin sem ég lyfti 5 kíló í stað 20 áður og ég þreytist mjög fljótt. En það er sama, ég ætla ekki að gefast upp og skipta um rútínu. Það er ekkert auðvelt að æfa meðan maður er í geisla- og lyfjameðferð en ég lét mig hafa það. Eftir æfingar er ég miklu ein- beittari og á auðveldara með að neita mér um þá hluti sem mig langar í en get ekki leyft mér vegna veikindanna. Fólk hefur líka verið mjög hvetjandi; þannig kom Bjössi í World Class [Björn Leifsson] til mín um leið og hann frétti af veikindunum og sagði að það væri búið að klippa kortið mitt og ég þyrfti ekki að greiða í World Class meðan ég stæði í þessum slag. Eins hafa frábæru æfingafélagarnir mínir sótt mig og keyrt mig heim eftir æfingar.“ Bakland í AA-samtökunum Fleiri hafa stutt dyggilega við bakið á honum. „Fyrir þrjátíu árum þurfti ég að viðurkenna vanmátt minn gagnvart áfengi og fara í með- ferð. Þar kynntist ég hinu gríðarlega öfluga starfi AA-samtakanna og bý að þeim góða fé- lagsskap nú. AA-félagarnir gripu mig strax og hafa verið duglegir að keyra mig á fundi svo ekki sé minnst á öll símtölin. Kjartan vinur minn Andrésson AA-félagi leysti Maríu oft af með keyrsluna í geislameðferðina. AA- samtökin hafa mótað mig mikið sem mann- eskju og þar á ég bakland út lífið. Fari maður villur vega kippa AA-samtökin í mann. Sömu sögu má segja af félögum mínum í Frímúr- arareglunni. Það eru allir boðnir og búnir að létta mér lífið. Í því felst rosalegur styrkur.“ Þess má geta að Óskar þurfti að fresta áfengismeðferðinni í nokkra daga á sínum tíma – af pólitískum ástæðum. Harður slagur stóð þá yfir um formannssætið í Sjálfstæðis- flokknum á landsfundi flokksins og Óskar gat ekki hugsað sér annað en að leggja sitt af mörkum og kjósa sinn mann, Davíð Oddsson. „Hvert atkvæði skipti máli.“ Hann kláraði því landsfundinn á sunnudegi, drakk eina kampa- vínsflösku um kvöldið til að fagna kjöri Davíðs og var svo mættur í meðferð á Vogi að morgni mánudags. Og hefur ekki neytt áfengis síðan. „Ég var að verða 24 ára á þessum tíma, þannig að þetta var stuttur drykkjuferill en stífur. Ég sé ekki eftir að hafa sett tappann í flöskuna.“ Samhliða krabbameinsmeðferðinni á Land- spítalanum, sem Jakob Jóhannsson hefur stýrt, hefur Óskar verið hjá Sigurði Böðv- arssyni, krabbameinslækni og yfirlækni göngudeildar á sjúkrahússviði Heilbrigðis- stofnunar Suðurlands. „Ég treysti Jakobi í einu og öllu og er mjög þakklátur fyrir hans aðkomu að mínum veikindum en mér var bent á Sigurð, sem starfaði lengi í Bandaríkjunum, og ákvað að setja mig í samband við hann. Hann féllst á að koma að mínum málum sem var mjög ánægjulegt. Mér þykir mikilvægt að hafa fleiri en eina rödd í kringum mig. Ég meina, hér er um lífið sjálft að tefla.“ Manneskja en ekki sjúklingur Hann hefur einnig sótt ómetanlegan stuðning til Ljóssins. „Ég fór þangað fyrst í maí og það opnaðist heill heimur fyrir mér. Maður finnur um leið að þetta hús á Langholtsveginum er al- gjört kraftaverkahús. Það er hrein unun að koma í Ljósið. Ég er á sex vikna karlanám- skeiði þar núna og það er svo gott að finna að Óskar Finnsson og María Hjaltadóttir ásamt börnum sínum þremur, Guðfinni, Klöru og Finni, tengdadótturinni Sigrúnu Eggertsdóttur og barnabörnunum, Maríu Sól og Arabellu Sól Guðfinnsdætrum. Og ekki má gleyma varðhundinum Lion. Morgunblaðið/Eggert ’ Ég var alveg að drepast þeg-ar við komum heim; fór úrúlpunni og lagðist beint í sófann.Þegar hér er komið sögu gat ég varla hreyft mig. Það var eins og ég væri með hníf í höfðinu. Þrátt fyrir veikindin hefur Óskar haldið áfram að mæta reglulega í ræktina í World Class enda segir hann hreyfingu og mataræði skipta sköpum í baráttunni sem hann stendur í. Baráttu lífsins. Morgunblaðið/Eggert 14.2. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.