Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2021, Page 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.02.2021, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.2. 2021 E nn hefur veiran aðdráttarafl og þykir fréttnæmust alls. Nokkrar klisjur ganga í gegnum alla umræðu. Aðal- klisjan, sú sem stjórnmálamönnum allra landa er tömust, er að „vís- indamenn“ verði að ráða ferðinni. Hver ætlar að vera á móti því? En ekki hverjir? Hið unaðslega ábyrgðarleysi Stjórnmálamenn í sinni sveit taka fagnandi framandi fyrirmælum og hafa nú síðast logið því að sjálfum sér að það sé sennilega frumskylda þeirra. Íslensk lagaákvæði sem voru forsenda þess að heimila mátti EES-samninginn eru með dularfullum hætti numin úr gildi án alls atbeina Alþingis. Ein- hverjir eru keyptir til að glutra niður megin- réttindum þjóðarinnar í skýrslu, með vísun í ekki neitt annað en aumingjadóm sinn og annarra og telja það réttarheimild! Þess háttar stjórnmálamönnum hentar auðvitað fyrrnefnd klisja. Enda flissar ráð- herra opinberlega yfir því hver leggur nafn sitt við endaleysuna. Veiran voðalega varð til, sumir segja í leðurblökum en aðrir á rannsóknarstofum ríkisvalds alræðisins og það hafi verið sjálfgefið að hún myndi leggja heim undir fót. Við rifjum upp hér á eftir að veirur hafa birst áður og virtustu fræðimenn veraldar vissu þá ekki betur stundum en að pínulítill heimsendir stæði fyrir dyrum. Af hverju ættu stjórnmálamenn sem vita þúsund sinnum minna um veiru en veirufræðingar að kok- gleypa ábyrgð á einhverju sem þeir vita ekki haus eða sporð á? Því ekki að sjá hvort veirumenn rambi óviljandi á eitthvað og deila þá sviðinu og taka það yfir ef vel tekst til. Gátu stjórnmálamenn nokkru sinni veðjað á svo að vit væri í að vænta mætti fylgisgróða þegar veiran agnarsmá og ósýnileg átti í hlut? Fjölmiðlar vestra (the mainstream media), þeir sem leggja línurnar, tóku veirunni fegins hendi að svo miklu leyti sem reikna mátti með henni sem hluta af baráttutæki á síðasta ári fyrir kosningar. Það tókst furðu fljótt að gera veiruna að sérstakri veiru Trumps í Hvíta húsinu. Hann bar frá uphafi miklu meiri ábyrgð á henni en alsaklaus hvítþvegin forysta kínverska kommúnistaflokksins. Þegar Trump nefndi illfyglið Kínaveiru þá brjálaðist góða fólkið og taldi þá nafngift einkennandi fyrir rasíska tilburði forsetans! Þeir töldu það ekki einu sinni innlegg í málið, og algjörlega óumdeilt, að veiran sú kom frá Kína! Rétt eins og allar þær inflúensur sem mæta í þennan heimshluta stundvísastar allra sérhvert haust, löngu á undan jólasveinunum, sem eru lands- þekktir fyrir að fylgja almanakinu drengilega eftir. Þessar flensur hafa fellt fleiri í valinn í hverri ein- ustu ferð en kórónuveiran hefur gert núna. En kór- ónuveiran á vinninginn þegar horft er á efnahagslega eyðileggingu hvert sem litið er. Þar munar mjög miklu. Kannski vegna þess að öllu var skellt í lás með öllu því tjóni sem því fylgdi. Íslenskir stjórnmálamenn þurftu í raun ekki heldur að koma nálægt því. Það voru aðrir sem skelltu í lás á okkur. Einn maður og þúsundir mannslífa Embættismaður í Svíþjóð réð því að hafa hjarðeðlis- tilraun í sínu landi og ríkisstjórnin þar virtist ekki hafa haft neitt um það að segja og það þótt margfalt fleiri létust þar hlutfallslega en annars staðar í ver- öldinni og það var þeirra óafturkallanlega innlegg í að taka þátt í þessu magnaða útspili embættismanns sem enga ábyrgð bar og ekki heldur hinir kjörnu sem voru uppteknir við að láta sig hverfa þá stundina. Í heila öld höfum við hér rætt um hina hræðilegu „spönsku veiki“. Það eru til skýringar á því nafni, en þær snúast ekki um það að „fjöldamorðinginn“ sé sá, sem lagði nærri 500 manneskjur, ekki síst ungt fólk, í sína íslensku gröf. Nærri 2.500 manns í þjóðlífstölum líðandi stundar. Það var ekki endilega verið að gefa til kynna að óværan mikla hafi verið upprunnin á Spáni. Íslendingar og þeir aðrir sem talað hafa um spænsku veikina hafa aldrei lagt hatur á Spán vegna veikinnar. Bókin sem kom út nýlega hér um spænsku veikina er þörf lesning fyrir flesta. Þá þótti sjálfsagt of langt í að hrópa á „rasista“ við hvert tækifæri og oftast nær gegn betri vitund þess sem öskraði, eins og nú þykir gáfnamerki gott. Hugmyndin er sjaldnast sú að verja fjarlægan minnihlutahóp. Það þarf að vísu hugmyndaflug til að telja Kínverja dæmigerðan minnihlutahóp og snúið fyrir okkur hér að tala til þeirra úr okkar ríkulega meirihluta. (Látum vera að fræðimenn og úrskurðar- nefndir hafi gleypt að konur séu minnihlutahópur hér.) Oftast nær er þykkjan fyrir Kína vegna veir- unnar hluti af almennum vilja stimplaranna til að þagga niður umræðu sem fellur í rangt kram. En það flækir málið að veiran hefur, eins og vænta mátti, komið sér upp nokkrum afbrigðum til að veikja vörn mannkynsins. Þessi afbrigði koma upp víða og eru þá einatt nefnd eftir þeim stað sem rak augun í afbrigðið fyrstur. Þannig er talað um breska afbrigðið og bætt við að það sé sérlega útsmogið. Bretar sjálfir tala um það þannig. Og enginn segir að þeir séu að beita sjálfa sig rasisma. En kannski hafi stimplarar ekki haft hgmyndaflug til þess. En jafnvel við, sem minnst vit- um, teljum víst að breska afbrigðið hefði aldrei orðið til, ef formóðirin, kórónuveiran sjálf, hefði ekki komið sér til Bretlands frá Kína með viðkomu þar sem milli- lent var. Varnir Breta hafa, allt til þessa dags, verið í molum á lendingarstöðum heima fyrir, hvort sem það eru vellir flugvéla eða hafnir ferja. Það er að minnsta kosti sennilegast að þannig hafi þetta afbrigði bankað upp á hjá Bretum, en ekki orðið til þar. Svo er það Suður-Afríku-afbrigðið, sem er við það land kennt þar sem það kom þar fyrst í ljós. Enginn hefur getað sýnt fram á það að þessi tvö afbrigði og máski öll hin sem eiga eftir að dúkka upp hafi verið getin þar. Eina sem má vera alveg ljóst ætti þó að vera það, að hefði veiran ekki breiðst út frá Kína þá hefðu „nýju afbrigðin“ aldrei komið sínum ættboga til. Gömlu tilvonandi heimsfaraldrar Við erum flest búin að gleyma svínaflensunni sem setti heiminn og þar með okkur (2009) á hættustig að mati sérfræðinga. Hún var helst talin hafa komið frá Mexíkó, Texas og/eða Kaliforníu. Og ekki má gleyma fuglaflensunni. Hún vakti ógn og skelfingu. Hún var talin hafa komið frá Hong Kong. Sagt var að gamli skrifstofustjórinn, sem mátti ekki vamm sitt vita, hefði algjörlega hætt að opna tölvupóst þaðan til að stuðla ekki að frekari útbreiðslu veirunnar. En hvað varð af hinni hræðilegu svínaflensu? Þór- ólfur sóttvarnalæknir var spurður um það fyrir nokkrum árum og sagði að hún væri enn til og væri nú ein af okkar föstu inflúensupestum. Hún hefði lengi haldið sínu nafni, en sérfræðingar væru nánast hættir að sýna henni slíka virðingu. Hún væri eigin- lega orðin hluti af hefðbundnum flensum. Með öðrum orðum þá virtist svínaflensuveiran hætt að syngja einsöng en væri orðin hluti af kórnum. Við héldum mörg að hún væri fyrir löngu dauð, svo þetta kom þægilega á óvart, sennilega. Þegar litið er til baka til þeirrar skelfingar sem blossaði upp um hríð vegna svínaflensunnar er at- Veiruleikinn enn ekki sá sem sýnist Reykjavíkurbréf12.02.21

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.